Morgunblaðið - 29.09.1940, Síða 3
Sunnudagur 29. sept. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Loftskeytatækjamál-
Íð að leysast
Togararnir munn fá
að halda (ækjunum
RÍKISSTJÓRNINNI barst í gær skeyti frá
Pjetri Benediktssyni charge d’affaires í Lon-
don og samkvæmt því mun vera gott útlit
fyrir að íslensku togararnir fái að halda loftskeytatækj-
um sínum.
Ekki er Morgunblaðinu þó kunnugt um, hvernig mál-
ið verður leyst.
En rætt hefir verið um þá lausn málsins, að togararnir fái að
halda öllum sínum tækjum, en að þau verði innsigluð og að
ekki verði leyfilegt að brjóta innsiglin nema í brýnustu nauðsyn
og enda verði þá haldinn sjórjettur í málinu, er skipið kemur
í höfn.
Reykjavík
rafmagnslaus
í 6 klst.
Rafmagnslaust var hjer í bænum í gærmorgun frá kl. 8,10
f. h. til 2 e. h. Stafaði það af bilun, sem varð á „stillir-
um“ í Ljósafossstöðinni. Elliðaárstöðin var strax sett í gang,
en hún framleiðir ekki nema 3000 kw., en notkunin í öllum
bænum getur farið upp í 0000 kw. á þessum hluta dags.
Var þá tekið það ráð, að hafa straum á Hafnarfirði og
úthverfunum hjer í bænum, t. d. Skildinganesi. Var m. a.
rafmagn á loftskeytastöðinni. Hinsvegar var ekki hægt að
setja straum á einstök bæjarhverfi í sjálfum bænum vegna
þess hve bæjarkerfið er samtengt.
í fyrstu hjeldu verkfræðingar Rafmagnsveitunnar, að
bilun hefði orðið á línunni frá Ljósafossi og voru strax sendir
menn með línunni.
Rafmagnsleysið kom sjer afar bagalega fyrir verksmiðj-
ur í bænum og stöðvaðist vinna svo að segja alveg í sumum
verksmiðjum. Engin vjelsetning gat farið fram í prentsmiðj-
unum. Fjöldi heimila fekk ekki nema kaldan mat og margir
fengu ekkert morgunkaffi.
Rafmagnsbilunin kom á þeim tíma dags, þegar rafmagn
er langsamlega mest notað í bænum.
Landsmenn allir munu fagna
því af heilum hug takist að
leysa þetta mál á heppilegan
hátt og án þess að þessi nauð-
synlegu öryggistæki sjómanna
missi gildi sitt ef hættu ber að
höndum.
Sjómannafjelög og sjómanna-
sambönd hafa undanfarna daga
haldið fundi sín á milli til að
r-æða þetta alvarlega mál.
Þegar lausn er fengin í loft-
loftskeytatækjamálinu þarf að
leysa úr því hvernig fara á með
þau skip, sem þegar er búið
að taka loftskeytatækin úr, en
þau mnu nú vera orðin æði
mörg.
Ekki munu fáanleg hjer á
landi tæki í togarana og er
þá vart annað ráð, en að tog-
ararnir sigli út tækjalausir, þar
sem þeir svo fá sín gömlu tæki
aftur. f
Ekkert er því til fyrirstöðu,
frá lagalegu sjónarmiði, að tog-
arar fari á veiðar án loftskeyta-
tækja, þar sem í lögunum er
aðeins mælt svo fyrir að skipin
hafi loftskeytatæki í millilanda-
siglingum.
Samsæti fyrir
Vilhjálm Þór og frú
& Akureyri
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
ilhjálmi Þór bankastjóra og
frú hans var haldið samsæti
með kvöldverði í fyrrakvöld að
Hótel Gullfoss, að tilhlutan bæj-
arstjórnar og sóknarnefndar.
Bæjarstjóri stjórnaði samsætinu.
Ræður fluttu forseti Bæjarstjórn-
ar, Árni Jónsson, Steingrímur
Jónsson fyrv. bæjarfógeti, Sigurð-
ur Eggerz bæjarfógeti, Sigurður
Hlíðar alþingismaður og fleiri.
Fyrr um daginn var þeim hjón-
um haldið samsæti í Samkomu-
húsi bæjarins og stóð fulltrúaráð
K. E. A. og starfsfólk fjelagsins
fyrir samsætinu. Einar Árnason
alþm. stjórnaði samsætinu og voru
margar ræður fluttar og kvæði
fluttu Friðgeir Berg og Sveinn
Bjarman.
VertfOin f Eyjnm,
kartöfluuppsker-
an 08 dýrtfOin
Alstaðar af landinu er sömu
söguna að segja af kartöflu-
uppskerunni. f Vestmannaeyjum
er nú verið að taka upp úr görð-
um og er uppskeran langt undir
meðallagi og víða fá menn ekki
eins mikið og til var sáð í vor.
En þótt Vestmannaeyingar eigi
við éömu kartöfluvandræði að búa
og við, þá er dýrtíðin þó ekki
eins mikil þar. Allir vita um mis-
muninn á kolaverðinu, en nú er
slátrun byrjuð í Eyjum og slátr-
ið selt á kr. 5.00 (hjer á kr. 5.50).
35 bátar frá Eyjum hafa stund-
að veiðar í dragnót og vörpu und-
anfarið. Aflinn hefir orðið mest
7 smálestir, mest ýsa, en dálítið af
flatfiski, en sú veiði er nú farin
að bregðast aftur. í gær og í fyrra
dag gaf ekki á sjó. ,
Mest af afla Eyjabátanna hefir
farið í hraðfrystihúsið, en nokk-
uð þó verið sent ísvarið til út-
landa. 7. sept. síðastliðinn hafði
hraðfrystihúsið tekið á móti 10
þús. kössum.
Fólk er nú að koma til Eyju
aftur úr sumarvinnunni víðsvegar
um land. Hæsti aflahlutur sjó-
manna í Eyjum hefir orðið kr.
3500.00 (á Garðari).
Um mánaðamótin hefst sjó-
mannanámskeið í Eyjum og taka
þátt í því 25 manns. Skólastjóri
verður Friðrik Steinsson frá Eski-
firði.
HLAÐA OG FJÁRHÚS
BRENNA.
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
ð Syðra-Hóli Kræklingahlíð
kviknaði í heyi í hlöðu að-
faranótt föstudags.
Brann hlaðan og að mestu leyti
tvö fjárhús.
Eitthvað af heyi náðist..
Skaðinn er talinn mikill.
9 störmyndir
sem koma
i Nýja Bfú
Nýlega var frá því skýrt
hvaða stórmynda væri von
á næstunni í Gamla Bíó. Blaðið
hefir aflað sjer upplýsinga um
hvaða kvikmyndir Nýja Bíó
sýnir á næstunni og eru meðal
þeirr margar stórmerkar og
frægar myndir.
Nýja Bíó hefir fengið tvær
kvikmyndir, sem hin unga söng-
kona Deanna Durbin leikur að-
alhlutverkið í. Önnur myndin
heitir „First love“, og hin
„Smart girls grow up“.
„My lucky star“ heitir kvik-
mynd, sem Sonja Henie, norska
skautadrotningin leikur aðal-
hlutverkið í. Sýnir hún þar listir
sínar á skautum. Mótleikari
Sonju í þessari mynd er Richard
Greene.
„Mr. Smith goes to Washing-
ton“, er ein síðasta kvikmynd
Franks Capra. Er það bráð-
skemtileg mynd. Aðalhlutverkin
leika James Stewart og Jean
Arthur.
Kvikmyndin „The rains came“
er gerð eftir samnefndri skáld-
sögu Louis Bromfield. Sú saga
gerist í Indlandi og fjallar um
náttúruhamfarir og sambúð Ev-
•ópumanna oglndverja.Er þetta
ein af stórfenglegustu kvik-
myndum, sem gerðar hafa ver-
ið. Aðalhlutverkin í ,,The rains
came“ leika Myrna Loy, Tyt-
one Power og George Brent.
„Tower of London“, er sögu-
leg mynd og gerist á þeim
tímum, er Tudorarnir brut-
ust til valda í Englandi. Aðal-
hlutverkið leikur Boris Karloff.
‘,,The invisable man returns“,
er amerísk útgáfa af „Ósýnilegi
maðurinn ‘ eftir H. G. Wells,
sem hjer var sýnd við mikla
aðsókn. Þessi nýja mynd er þó
engan veginn undantekning á
þeirri gömlu.
„Daugt' Courageous“, er
kvikmynd, m marga mun
hlakka til zSj sjá, er sáu kvik-
myndina ,,Systurnar“. Aðalhlu-
verlpn leika sömu stúlkurnar
fjórar. Priscilla Lane, Rosemary
Lane, Lola Lane og Gale Page.
„Only Angels have wings“,
er ein af stórmyndum þeim, er
Nýja Bíó hefir fengið frá Amer-
íku. Gerist sú mynd í hitabelt-
inu og er mjög stórfengleg. —
Aðalhlutverkin leika Jean Art-
hur og Cary Grant.
Magnús Jónsson dr. theol. kom
til Vífilsstaða s.l. miðvikudag og
flutti þar skemtilegt og fróðlegt
erindi um Palestínu. Sjúklingar
hafa beðið Mbl. .að færa honum
k'ærar þakkir fyrir komuna. .
Þrjd hundruD
islandingar
I samsæti
I Stokkhólml
1^1 jelagið Sverige-Island bauð
* þrjú hundruð Islendingum
stöddum í Stokkhólmi á leið til
Finnlands og þaðan til íslands,
til kvöldfagnaðs í Esseltepalat-
set.
Thulin ríkisráð og Ahlman
prófessor fluttu ræður fyrir
minni íslands og íslendinga, en
af íslendinga hálfutöluðu Vilhj.
Finsen sendifulltrúi og Finnur
Jónsson alþm. Þökkuðu þeir
hjartanlega alúð óg vinsemd
Svía.
1 Ræður voru einnig fluttar
fyrir minni Danmerkur, Noregs
og Finnlands. Mikið var rætt
um norræna samvinnu.
Þjóðsöngvar Norðurlanda voru
sungnir og ýmsir íslenskir og
sænskir söngvar og skemtu
menn sjer hið besta. Varð sam-
fundur þessi til aukinna kynna
og mikillar ánægju öllum þátt-
takendum.
Frú Kirstin Pjet-
ursdóttir látin
¥ gær andaðist hjer í bæ frú
■* Kirstín K. Pjetursdóttir, 4
heimili sonar síns, Pjeturs Lárus-
sonar fulltrúa. Frú Kirstín var
komin á tíræðisaldur. Hafði hún
verið lasin undanfarna mánuði.
Frú Kirstín var elsta barn
Pjeturs Guðjohnsen organleikara
og móðir Guðrúnar sál. Lárus-
dóttur.
Úrslitaleikur
W a I terskepnínn-
ar i dag
O íðasti knattspyrnukapleikur
^ ársins fer fram í dag kl.
2 á íþróttavellinum. Er það úr-
slitakappleikur í Walterskepn-
inni milli K. R. og Vals.
K. R. er handhafi Walters-
bikarsins og hafa þeir æft mjög
vel síðan á Islandsmóti. — Má
báast við að hörð kepni verði í
dag um úrslitin. Aúk bikarsins
fær það lið, sem vinnur 11 heið-
urspeninga úr silfri. Að kapp-
leiknum loknum afhendir for-
maður knattspyrnumönnunum
verðlaunin.
Lúðrasveit leikur áður ent
kappleikurinn hefst og milli
hálfleikja.
Skotæfingar hjá
Kleifarvatni
Frá bresku herstjórninni
hefir blaðinu borist eft-
irfarandi:
tórskotaliðsæfingar verða
haldnar á morgun og
þriðjudag frá kl. 9 f. h. til 6
e. hád. báða dagana á eftirtöld-
um stöðum:
í Breiðdal, norðaustur af
Kleifarvatni, á svæðinu norðan
.Kleifarvatns meðfram Undir-
hlíðum að Helgafelli. — Frá
Helgafelli að Bolla, og þaðan
aftur að Kleifarvatni.
Hættulegt er að vera þarna
á ferð og þessvegna er almenn-
ingi bönnuð umferð um þessi
svæði meðan skotæfingarnar
fara fram.
Hjúskapur. 26. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Guð-
rún Jónsdóttir frá Sumarliðabæ í
Holtum og Sigurður Sigurbjörns-
son bílstjóri. Heimili þeirra er á
Ránargötu 15.