Morgunblaðið - 29.09.1940, Blaðsíða 7
Sunnudagur 29. sept. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
Helgi Guðmundsson
bankastjóri
íimtugur
Helgi frá Reykholti var hann
oftast nefndur í skóla. —
Honum var alt nám auðvelt.
Hann var músikalskur, fjörugur
og tók sjer lífið ljett. Engum
datt í hug að setja nein banka-
mál eða fjesýslu í sambandi við
hann eða framtíð hans. Hann
lagði mesta stund á hljóðfæra-
leik, og naut sín oftast vel, í
livaða hóp sem var.
En þegar fullorðinsárin færð-
ust yfir og hann fór að sjá fyrir
sjer sjálfur, sneri hann sjer
að bankastörfum og viðskiftum.
Og þá kom í ljós meðfædd hag
sýni hans, sem lítið bar á, með
an hann var við nám. Þá kom
það á daginn, að hann var mesti
vinnuþjarkur, þegar hann vildi
það við hafa og einbeittur við
hvert starf. Fljótur að taka á-
kvarðanir. — Stundum máske
helst til skjótráður. En það vann
sig upp af því, hve oft það kem
ur að gagni, að hann er ekki
<altaf lengi að velta hlutunum
fyrir sjer.
Helgi kemur til dyranna eins
og hann er klæddur, og fer
ekki dult með skoðanir sínar.
Þeir sem þekkja hann lítið taka
það ekki altaf vel upp. En þeir
sem þekkja hann betur, vita að
á bak við hið hrjúfa yfirborð, er
velviljaður maður, sem vill helst
geta greitt úr hvers manns
vandræðum, og vinna að rjett-
læti í viðskiftum og jöfnuði á
kjörum manna.
Hann er maður glaður og
reifur í vinahóp. Og þó hann
hafi nú um langt skeið fengist
mest við bankastörf, skuldir,
víxla, sparisjóðsbækur og önn-
ur ólistræn efni, er langt frá
því, að vera búinn að yfirgefa
þann fyrri Helga frá Reykholíi,
sem spilaði sínum fingrum ekki
á ritvjel og bankabækur, held-
ur á guitar og slaghörpu.
Skólabróðir.
tfiHiiniiiiumiiuiuiiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiuuii
Þjettilistar
FILT
| á glugga og: hurðir.
| tfárnvörudeild
I Jes Zftmsen
(Mflianiniiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiii
Dagbók
I. O. O. F. 3 = 1229308 S *
Helgidags- og næturlæknir í dag
er Halldór Stefánsson, Ránargötú
12. Sími 2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Næturakstur annast næstu nótt
Litla bílstöðin. Sími 1380. Næt-
urakstur aðfaranótt þriðjudags:
Bifreiðastöð Reykjavíkur. Sími
1720.
Messað í Fríkirkjunni í dag kl.
5, síra Árelíus Níelsson.
70 ára afmæli átti í gær Stein-
grímur Guðmundsson, Njálsg. 38.
Sjötíu ára verður á morgun
(mánudag) frú Rósa Kristjáns-
dóttir, *Týsgötu'6.
Ólafur Ólafsson frá Bolungar-
vík, til heimilis á Laugaveg 28,
verður 66 ára í dag.
Sextug var í gær frú Sigríður
Bjarnadóttir, Frakkastíg 14.
Sextug verður á morgun frk.
Ragnhildur Jakobsdóttir í Ögri við
ísafjarðardjúp. Frk. Ragnhildur
býr stóru búi á hinu forna höfð-
ingjasetri, þar sem var þegar í
tíð foreldra hennar, Þuríðar og
Jakobs, annáluð rausn og óvenju-
legur menningarbragur bæði á
húsbúnaði og búskaparháttum öli-
um.
Silfurbrúðkaup eiga 30. þ. m.
hjónin Jóhanna Jónsdóttir og Ari
Magnússon, Bragagötu 22 A.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í hjónaband af síra Frið-
rik Hallgrímssyni ungfrú Guð-
finna Magnúsdóttir, Reykjavíkur-
veg 7, Skerjafirði og Kristján
Kristjánsson bifreiðarstjóri frá
Hólslandi, Hnappadalssýslu. Heim-
ili ungu hjónanna er á Reykja-
víkurveg 7, Skerjafirði.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Anni
Baldursdóttir og Valgeir Pálsson.
Heimili þeirra er á Egilsgötu 28.
Aðalfundur Ármanns verður
haldinn annað kvöld í Varðarhús-
inu.
Kaupendur Morgunblaðsins, er
hafa bústaðaskifti, eru beðnir að
tilkynna afgreiðslunni það hið
fyrsta, til þess að koma í veg
fyrir vanskil á blaðinu.
Ársfundur Guðspekifjelagsins
hefst í dag kl. 1%.
Dansskóli Báru Sigurjónsdótt-
ur tekur til starfa n.k. þrið.judag
í Fríkirkjuveg 11 (Bindindishöll-
inni). Kent verður ballet, stepp,
akrobatik, plastik og samkvæmis-
dansar.
Véfstofu sína flytur frú Sigur-
laug Einarsdóttir í Tjarnargötu 10
1. október n.k., og nú um helgina
hefir hún líka sýningu á vefstól
og vefnaði, eftir nemendur, í
Vörukússglugganum. Frúin hefir
haldið uppi yefnaðarnámskeiðum
3 undanfarna vetur og kent á
þessa fyrirferðarlitlu vefstóla, sern
eru nú orðnir þektir og vinsælir.
Vefstóla þessa hefir frúin svo
| EMOL í
X TOILET SOAP |
X X
x-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-:-;.
jafnan útvegað nemendum að nám
skeiði loknu frá Danmörku, þaðan
sem þeir eru uppfundnir. En nú
hefir hún fengið velvirkan mann
til þess að smíða þá úr völdu efm
hjer í Reykjavík.
Til nýju kirkjunnar á Skóla-
vörðuhæðinni. Frá Þ. Þórðarsyni,
Laugaveg 45, til minningar um
frú Þórnýju Þórðardóttur, konu
hans, sem andaðist 7. mars 1933,
200 krónur. — Afhent síra Fr.
Hallgrímssyni.
Til fatlaða mannsins. Gömul
hjón í sveit 20 kr. G. B. 20 kr.
Útvarpið í dag:
11.00 Messa í Dómkirkjunni (síra
Bjarni Jónsson).
15.30—16.30 Miðdegistónleikar:
Yms tónverk (plötur).
20.30 Lúðrasveit Reykjavíkur leik
ur: 1) Lúdecke: Mar’z. 2) Rich.
• Wagner: Marz og kór úr óper-
unni „Tannháuser". 3) Bizet:
Menuet úr L ’Arlésienne-svítu II,
flautu-sóló: Oddgeir Hjartarson.
4) Zeller; Vals úr óperettunni
„Der Obersteiger“. 5) ísl. lög:
a) Friðr. Bjarnason: Hafnar-
fjörður. b) Sigv. Kaldalóns:
Reykjavík. 6) Ó.l Þorgrímsson:
Marz.
21.00 Erindi; Sagan um manninn
(Pjetur Sigurðsson erindreki).
Útvarpið á morgun:
19.30 Hljómplötur; Tilbrigði eftir
Beethoven við stef úr „Töfra-
flautunni“ eftir Mozart.
20.30 Sumarþættir (Einar Magn-
ússon mentaskólakennari).
20.50 Einsöngur (Gunnar Páls-
son): 1) Joh. S. Svendsen: Ser-
enade. 2) Merikanto: Til eru
fræ. 3) Sig Þórðarson: Hlíðin.
4) Sigfús Einarsson: Augun
bláu. 5) Adams: Thora. 6)
Brahe: I passed by your win-
dow.
21.15 Útvarpshljómsveitin: Lög
eftir Joh. S. Svendsen (100 ára
minning).
Baldvin Jónatansson
alþýöuskáld, áttræður
Húsavík í gær.
Attræður verður 30. sept. næst-
komandi Baldvin Jónatans-
son alþýðuskáld og þjóðsagnahöf-
undur.
Baldvin hefir aldrei notið skóla-
mentunar, en er þó vel að sjei
og sjetrstaklega leikinn í þeirri list,
sem hann hefir mjög tamið sjer,
að kasta fram vísum við ýms
tækifæri alveg um leið og efni
gefst og eru margar þeirra snjall
ar og orðnar landfleygar. Einnig
hefir hann góða frásagnargáfu,
eins og sögur hans bera með sjer.
Síðan Baldvin varð að bregða
búskap 1932, vegna heilsubrests,
hefir hann dvalið á Halldórsstöð-
um í Laxárdal, en nú á afmælis-
degi sínum dvelur * hann meðal
gamalla vina og kunningja í Húsa-
vík.
Akranes-Svignaskarð-Borgames
Bílferðir 2 daga vikunnar frá Akranesi eftir komu skip-
anna að morgni: miðvikudaga og föstudaga.
Ódýrast, best og fljótlegast að ferðast um Akranes
í Borgarf jörð.
MAGNÚS GUNNLAUGSSON, Akranesi.
Folalda og Tryppakjöt
Eins og undanfarin ár útvegum við
kjöt af folöldum og tryppum i lieil-
um og liálfum skrokkum
SendftO pantanftr yðar
sem allra lyisf.
H.f, Smjörllkisgerðin Smðrl.
Skðmtunarseðlar fyrlr ágúst-
september, gilda aðeins
ð morgin. cuuai/aidj
BEST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU.
Móðir mín ,
KIRSTÍN K. PJETURSDÓTTIR
andaðist í gær, 28. september.
Pjetnr Lárusson.
Maðurinn minn
JÓN JÓNSSON,
Svínavatni í Grímsnesi andaðist laugardag 28. þ. m. Jarðar-
förin ákveðin síðar.
Sigurleif Þorleifsdóttir.
Jarðarför
frú GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR HANSEN,
Smiðjustíg 3, sem andaðist 22. sept., fer fram frá heimili hinnar
látnu miðvikudaginn 2. okt. kl. iy2 e. hád.
Svava Jóhannesdóttir og börn.
Jarðarför, móður okkar
VALGERÐAR ÞÓRÐARDÓTTUR
fer fram frá fríkirkjunni þriðjudaginn 1. október og hefst
með húskveðju á heimili hennar Kárastíg 8 kl. 1 e. hád.
Valgerður Guðmundsdóttir. Sólveig Guðmundsdóttir,
Guðjón Guðmundsson.
Da jeg ikke kan na alle personlig vil jeg herved fá lov
á takke alle for utvist deltagelse ved
Overkanoner EMILIUS KNUTZEN’S bortgang.
E. ULLRING
Sjef H. N. M. S. Fridtjof Nansen.
Við þökkum af hrærðu hjarta fyrir alla þá samúð, sem
okkur var sýnd við andlát og jarðarför elsku litla drengs-
ins okkar
VIÐARS WAAGE.
Guð blessi yður öll.
Guðrún Eggertsdóttir. Ölver Waage.