Morgunblaðið - 29.09.1940, Síða 8
JPftðfgptttMaAtfr
Sunnudagur 29. sept. 1940.
GAMLA BÍÓ
NINOTCHKA.
GRETA GARBO,
MELVYN DOUGLAS.
Kl. 5, 7 off 9.
Barnasýning kl. 3
HAROLD LLOYD:
Fornfræðingurinn.
INNANFJELAGSMÓT K. R.
heldur áfram í dag kl. 4 og
verður þá kept í 200 m. hlaupi.
Spótkasti og 1500 m. hlaupi
fyrir drengi og fullorðna og í
langstökki, sleggjukasti og
fimtarþraut fyrir fullorðna. -
Iþróttanefndin.
I. O. G. T.
ST. FRAMTÍÐIN NR. 173.
Fundur í kvöld klukkan 8^,
1. Inntaka.
2. Mælt með gæslumanni.
3. Spilakvöld.
ÞINGSTOKUFUNDUR
í dag kl. 11/2 e. m.
'&iC&tfnn&ngac
DRENGJAREIÐHJÓL
TEKIÐ í ÓLEYFI
Síðdegis í gær var drengja-
reiðhjól tekið í óleyfi hjá rak-
arastofunni á horni Barónsstígs
og Grettisgötu. Eigandinn er
fatlaður drengur, sem á erfitt
moð gang. Sá, sem verður reið-
hjóJsins var, er beðinn að gera
lögregluuní þegar aðvart.
BETANÍA
Samkoma í kvöld kl. 8V2. Ól-
afur Ólafsson talar.
SUNNUDAGASKÓLINN
í Betaníu byrjar í dag kl. 3.
öll börn velkomin.
HJÁLPRÆÐISHERINN
Samkomur í dag kl. 11 og
8,30. Lúðrafl. — Strengjasveit.
Allir velkomnir!
ZION,
Bergstaðastræti 12 B. Samkoma
í kvöld kl. 8. Hafnarfirði Linn-
etsstíg 2, samkoma klukkan 4.
Allir velkomnir.
FILADELFÍA
Vakningarsamkomur í dag,
Hverfisgötu 44, kl. 4, og 8%.
Allir velkomnir!
5 krúnur fyrir 1 krónu.
Hugheimar, Ijóðabók eftir Pjetur Sigurðsson, sem
kostað hefir til þess 5 krónur, verður seld nokkra daga,
eða meðan upplag endist, fyrir aðeins 1 krónú. Þetta er
stór bók, 160 bls., prentuð á þykkan og fallegan pappír.
Og þeir sem þekkja höfundinn vita, að bókin hefir margt
fallegt að geyma.
Aðeins seld i
Bókaverslun ísafoldarpentsmiðlu
ÍBÚÐ
Jeg hefi verið beðinn að# út-
vega 2—3 herbergja íbúð með
eldhúsi, fyrir bamlaust fólk.
Skilvís greiðsla. Jón Guðnason,
fisksali, Bergstaðastræti 44. —.
Sími 4364.
IBÚÐ ÓSKAST
Uppl. í síma 4092.
REGLUSAMUR NÁMSMAÐUR
óskar eftir herbergi, sem næst
Miðbænum. — Tilboð sendist
Morgunnblaðinu merkt „X‘.
ÁGÆT STOFA
til leigu. Víðimel 36, neðri hæð.
SKÓRNIR~YÐAR
myndu vera yður þakklátir, ef
þjer mynduð eftir að bursta þá
aðeins úr Venus-Skógljáa.
Svo er það
VENUS-GÓLFGLJÁI
í hinum ágætu, ódýru perga-
mentpökkum. Nauðsynlegur á
hvert heimili.
PIANO
til sölu. Tilboð merkt: „Lítil
útborgun", sendist blaðinu fyrir
1. október.
1—2 ÁGÆTAR KÝR
októberbærar, til sölu. Uppl. í
síma 4132, kl. 9—10 árdegis
á morgun.
HÁLF HÚSEIGN
til sölu. Laus íbúð 1. okt. Sími
4100.
Vömduð '
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
til sölu, með tækifærisverði á
Hringbraut 196, uppi.
MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR
kept daglega. Sparið millilið-
ina og komið til okkar, þar sem
þjer fáið hæst verð. Hringið í
síma 1616. Við sækjum. Lauga-
vegs Apótek.
KÁPUBÚÐIN
Laugaveg 35. Úrval af kápum
og Swaggerum. Einnig fallegar
kventöskur.
FRAKKAR og SVAGGERAR
fyrirliggjandi í miklu úrvali.
Guðm. Guðmundsson, klæð-
skeri. Kirkjuhvoli.
SLYSAVARNAFJELAG
ISLANDS
ielnr minningarspjöld. — Skrif-
stofa í Hafnarhúsinu við Geira-
götu. Sími 4897.
DÖKKBRÚN KVENTASKA
tapaðist síðastliðinn föstudag á
Sóleyjargötu eða Hringbraut.
Skilist á Laufásveg 75, sími
1816.
Tapast hefir
BUDDA MEÐ PENINGUM
á veginum frá Hverfisgötu 64
að Braunsverslun.Skilist í Versl.
Þörf, Hverfisgötu 64.
Cem£cv
SMÁBARNAKENSLA
okkar byrjar 1. október. Tök-
um einnig eldri börn í tíma-
kenslu. Lára og Sigurður Helga-
son, Vífilsgötu 2. Sími 5732.
v *>
STÚLKA ÓSKAST
í vist í Þingholtsstræti 72,
GÓÐSTÚLKA
óskast á heimili Hjalta Lýðsson-
ar. Hringbraut 67.
LAGA LEIÐI
ryðber og mála grindur o. fl.
Til viðtals í gamla kirkjugarð-
inum. Einar Fr. Jóhannesson.
SENDISVEINN
Röskur og ábyggilegur sendi-
sveinn óskast nú þegar. Gott
kaup. Uppl. í síma 5719.
REYKHÚSIÐ
Grettisgötu 50 B, tekur kjöt,
fisk og aðrar vörur til reyking-
ar eins og að undanförnu.
NÝJA BlÓ
Eldur I Rauðuskógutn.
Spennandi og viðburðarík amerísk kvikmynd, gerð eftir hinni
víðfrægu skáldsögu eftir JACK LONDON [(Romance of the
RedWoods). ------ Aðalhlutverkin leika:
JEAN PARKER og CHARLES BICKFORD.
AUKAMYNDIR:
Frá Malajalöndum og Stríðsfrjettamynd.
í Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9.
Barnasýning kl. 3: NÝTT SMÁMYNDASAFN.
4 teiknimyndir ásamt frjetta- og fræðimyndum.
.-x-:~x-:-x-x-x-:-x-:-x-x-:-x*x-x-x-x-x-x-x-x-x**x-x-x-:**x-x~x
•? 9
X Þakka hjartanlega alla vinsemd mjer sýnda á sextugs- X
.*. v
•:* afmælinu. Y
X *
} t
•í* »
x~x~:-:-:-x*<-:-x-X“X-x-x-:-:-X”X-x-x-x-x-x-x-X":"X-x**:-:-:"X**x-x<>
Stefán Gunnarsson.
Dansleikur
aO Hótel BJÖBNINN í kvöld
(sunnudag) kl. 10.30.
Komið, skemlið ykkur.
iijnnnniHninnBnnnnHiiiHiiiunnnimiiiiiiiiiiimiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiituiiiiiiiiimiiiuHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiniiiiiiinii
s
| Síðasfi sunnudags
! Dansleikur
5
haustsins í IÐNÓ hefst kl. 10 í kvöld.
Hin ágæta IÐNÓ-hljómsveit leikur,
undir stjórn FRITZ WEISSHAPPEL.
=
Gömlu og nýju dansarnir. |
| Aðgöngumiðar seldir í Iðnó frá kl. 6. Sími: 3191. s.
=j =2-
miiiniiimiimiuuimiiiiiHiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimimiimHiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiuiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiimiuHiiiimiiimiij
Skrifstofustarf
Maður vanur allri algengri skrifstofuvinnu óskast
nú þegar. Umsóknir sendist Morgunblaðinu, merkt-
ar „Ábyggilegur“.
LITHOPRENT, Nönnugötu 16.
Þeir kaupsýslumenn, sem sjer
staka láherslu leggja á smekk-
legan frágang, áferðarfagra
prentun og sanngjarnt verð,
leita fyrst tilboða hjá okkur.
S j ergreinar: Brj ef hausar,
skrautmiðar, öskjur og pakkar.
Sími 5210.
REYKHÚS
Harðfisksölunnar við Þvergötu,
tekur |lax, kjöt og fisk og aðrar
rörur til reykingar.
OTTO B. ARNAR
löggiltur útvarpsvirki, Hatfnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
GERI VIÐ
saumavjelar, skrár og allskonar
heimilisvjelar. H. Sandholt,
Klapparstíg 11. Sími 2635.
Bókfærslunómskeill
fyrir byrjendur og framhaldsnemendur hefst 7. október.
Kent verður að færa sjóðbók, ’dagbók, viðskiftamannabók
og höfuðbók. Gert verður upp, samdir efnahags- og rekst-
ursreikningar. Samhliða bókfærslunáminu veitist ennfrem-
ur nokkur æfing í verslunarreikningi.
Nánari upplýsingar og þátttaka tilkynnist í síma 2370.
ÞORLEIFUR ÞÓRÐARSON.
Námskeið Rauða Krossins
>
Námskeið í heimahjúkrun og hjálp í viðlögum fyrir
almenning hefst á vegum Rauða Krossins mánudaginn 7.
okt. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu fjelagsins
Hafnarstræti 5 kl. 1—4 virka daga.
STJÓRNIN.