Morgunblaðið - 27.05.1941, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 27. maí 1941.
Stórorusta á Krit
„Þjóðverjar brjótast í gegnum
herlínu Breta: Bresk gagnsókn"
Bardagar um mikil-
vægustu flotahöfn-
ina á eynni
Efflirförinni ái efflir „Bismarck0
haldið áfram: Skipið tvisvar
Aiæffl með Idugvjelatundurskcyti
STÓRORUSTA stendur nú yfir á vesturhluta
Krítar, þar sem Þjóðverjar eru að reyna að
brjótast í gegn til Khania og þar með ti!
Sudaflóans, mikilvægustu flotabækistöðvarinnar á eynni.
Breska herstjórnin tilkynti í gær, að þýsku hersveit-
unum, sem studdar hafi verið af flugvjelum, hafi tekist
að brjótast í gegnum herlínu Breta fyrir vestan Khania,
en ný-sjálenskar hersveitir hefðu gert gagnáhlaup og harð-
ir bardagar stæðu enn yfir.
Þýska frjettastofan skýrði frá því í gær, að þýskar steypi-
flugvjelar tækju þátt í hinum hörðu bardögum á Krít. 1 fregn-
inni segir, að Bretar hafi beðið mikið manntjón.
I fregn frá Kairo í gærkvöldi var skýrt frá því, að bardagar
stæðu yfir á svæðinu frá Malemi ti Khania (á 15 km. svæði) og
umhverfis Malemiflugvöllinn. ,
Mikilvægi þessarar orustu er ekki síst fólgmn í því, að
ef Þjóðverjar ná Khania á sitt vald, þá hafa þeir þar með
í fyrsta skifti hlotið hafnarskilyrði á Krít, þar sem þeir
geta affermt stór skip með tiltölulega góðu öryggi.
í Berlín er því haldið fram, samkvæmt upplýsingum þýsku
herstjórnarinnar, að bresku herskipin hafi algerlega verið hrakin
burtu af hafinu milli Krítar og gríska meginlandsins. Samt sem
áður var því haldið fram í London í gær, að Þjóðverjar hefðu
engum stórum skipum komið til Krítar ennþá.
í London var á hinn bóginn
skýrt frá fregnum, sem birtar
hafa verið í Róm um að öx-
ulsríkin hafi komið mörgum
smáum fiskiskipum til Rrítar,
og að á hverju þeirra hafi verið
50—60 (hermenn. Breskir
hernaðarsjerfræðingar telja vel
hugsanlegt, að þetta sje rjett.
MINNI SKOTHRÍÐ.
Eins hafa borist óstaðfestar
fregnir um að Þóðverjar hafi
komið ljettum skriðdrekum til
leyjarinnar, senníiilega loftleið
ina með stórum flugvjelum, en
engar fregnir hafa borist um að
skriðdrekar þessir hafi verið
notaðir í bardögum við Breta.
Þóðverjar fengu liðsauka loft
leiðina á sunnudaginn áður en
þeir hófu sóknina til Khania.
Bretar segja að Þjóðverjar hafi
teflt fram liði sínu í atlögunum
í fyrradag og í gær, án tillits
til manntjóns.
A Reutersfregn frá Kairo í
gærkvöldi var skýrt frá því, að
í Khania hefði virst, sem dreg-
ið hafi úr skothríðinni síðdegis
í gær. Taldi Reuters-frjetta-
ritarinn, að Þjóðværja vantaði
meira lið.
í Berlín var í gær skýrt nán-
ar frá fyrstu bardögum á Krít.
Þjóðverjar náðu fyrst "vestur-
hluta íMalemi-flugvallarins á
sitt' vald og sóttu síðan að
bresku hermönnunum, sem
bjuggu um sig í flugskýlunum
og öðrum byggingum.
Breska flotamálaráðuneytið gaf í gærkvöldi
út svohljóðandi tilkynningu: „Eltingarleiknum
á eftir þýska orustuskipinu „Bismarck“ er hald-
ið áfram af miklum ákafa. Tundurskeytaflug-
vjel flotans gat síðdegis í dag komið tundur-
skeyti á orustuskipið. Eftirförinni er haldið
áfram.
Ekkert hafði frjest um þessa eftirför, er
þessi tilkynning var gefin út í gærkvöldi, frá
því síðdegis í fyrradag, en þá skýrði flotamála-
ráðuneytið frá því, að flugvjel hefði einnig þann
dag tekist að hæfa Bismarck með tundurskeyti.
Tilk)mningin í gærkvöldi sýnir (segir í
fregn frá London), að þýsku flotadeildinni hef-
ir enn ekki tekist að hrista af sjer bresku her-
skipin, sem eftirförina veita, enda þótt liðnar
sjeu meira en 6Q klst. frá því að sjóorustan
var háð við Grænland, þegar ,,Hood“ var sökt.
í fregn frá Berlin er skýrt frá því, að
breska orustuskipið, sem sneri við er það var
hæft í sjóorustunni á laugardaginn, hafí verið
af „George V.“ gerðinni, en ef svo hefir verið
getur ekki verið nema um 2 skip að ræða, ann-
aðhvort „George V.“ eða „Prince of !WaIes“.
Þessi skip eru nýjustu orustuskip Breta.
í Berlin er einnig skýrt frá því, að er
„Bismarck“ sökti „Hood“ hafi hann verið búinn
að sökkva 122 þús. smálestum af kaupskipastól
Breta í Atlantshafi, þ. á. m. Járvis Bay flotan-
um (en fám til þessa hefir verið talið að
„Scharnhorst“ og „Gneisenau“ hafi sökt Járvis
Bay skipaflotanum).
Ræða
Roosevelts
í kvöld
Fallhlífarhermenn
lentu við bústað
Grikkjakonungs á Krít
B
1
fregn frá Washington í gær-
kvöldi var skýrt frá því, að
ræða Roosevelts í kvöld myndi
verða mjög mikilvæg. Steven
Early, fulltrúi Roosevelts, sagði í
gær, að forsetinn myndi verða
önnum kafinn' í alla nótt og á
morgun við að breyta ræðu sinm
í samræmi við ástandið í alþjóða-
málum, sem háð væri stöðugum
breytingum.
alið er að Roosevelt sje að
Amerískír
hermenn í
Síngapore?
Fregnir hafa borist frá Thai-
landi til Japan á þá leið,
að allstór hópur amerískra
hermanna hafi nýlega komið til
Singapore, flotabækistöðvar
Breta í Austur-Asíu.
Hermenn þessir komu frá
Shanghai og öðrum borgum í
Kína.
reskur frjettaritari hefir
skýrt frá því, er þýskir
fallhlífarhermenn lentu nálægt
bústað Georgs Grikkjakonungs1 breyta ræðu simii með hliðsjón af
á Krít.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Konungur var á gangi í garð-
inum hjá bústað sínum er þýsk-
orustuflugvjelar komu og
ar
sveimuðu þar yfir. Strax á eftir
komu stórar hprflutningaflúg-
vjelar og fallhlífarhermenn
byrjuðu að falla niður, sumir
jafnvel í sjálfum garðinum hjá
bústað konungs..
Konungi og nokkrum fylgd-
armönnum hans tókst þó að
komast burtu, án þess að
kensl væru borin á þá, og fóru
þeir fótgangandi. Gengu þeir
um fjöll og firnindi í þrjá daga,
og höfðust við undir berum
himni á næturnar. Þeir voru illa
skóaðir til langferðar, en voru
samt hressir í skapi (segir
frjettaritarinn).
Konungur og nokkur hluti
af stjórn hans er nú komin til
Egypta’ands. Gríski verkamála
ráðherrann, innanríkismálaráð
herrann og her og flugmála-
ráðherrann urðu þó eftir á
Krít.
samtali, sem Eric Raeder aðmíráll,
yfirmaður þýska flotans, hefir-
veitt japönsku Ðomei-fjettastof-
unni.
í samtali þessu segir Raeder, að
Þjóðverjar muni líta svo á, ef
Bandaríkin láti herskip sín fylgja
skipaflotum, sem um stríðssök sje
að ræða og tilefnislausa árás og að
þýsk herskip muni telja sig hafa
rjett til að nota vopn sln, ef reynt
verður á nokkurn hátt að hindra
þau í framkvæmd lögmætra stríðs-
rjettinda þeirra.
Ræða Lavals.
Pierre Laval flutti einnig ræðu
í gær. Sneri Laval máli síriu tii
Bandaríkjanna og kvaðst treysta
því, að Bandaríkin notuðu ekki
ósigursstund Frakka til þess að
leggja undir sig franskar uýlend-
ur, „Friikkum rnyndu verða við
það eins og ef tekinn væri hlutí
af lioldi þeirra“.
Laval sagði, að stríðið í Evrópu
FRAMH. Á SJÖXJNDU SÍÐU
„Það er ekki hægt að
þvinga Ira til að
berjast íyrir Breta“
Eamon de Valera forsætisráð-
herra írlands sagð í ræðu,
sem hann flutti í írska þinginu,
er kallað hafði verið saman á fund
í gær, að ef Bretar færu því fram,
að setja herskyldu á í Norður-ír-
land^, þá myndi það hafa i för
með sjer sömu vandræði í sambúð
Breta og íra og ríktu áður fyr,
áður en sættir tókust með þeim.
de Valera sagði, að írar forðuð-
ust alt, sein talist gæti Bretum til
ills. En hann sagði, að fylkin sex
i Norður-trlandi væri hluti af Eire
og það væri ekki liægt að neyða
þjóð með ofbeldi til þess að bug-
ast fyrir landi, sem hún vildi eklti
teljast til.
Andrews, forsætisráðherra Nörð-
ur-írlands, er nú kominn aftur til
Belfast frá London, þar sein ham.
ræddi við Churchill um fyrirætl-
anir sínar uiú herskyldu í Norður-
írlandi. Andrews sagði við komu
sína, að hann myndi gefa skýrslu
á þingi N.-íra, við fyrsta tækifær;.
„Beitiskipafloti Breta
í Miðjarðarhafi
afmáður“
Þ ýska herstjómin tilkynti í gær, að
á tímabilinu frá 20. maí hafi
Þjóðvterjar söbt ií IMjiSjiai’ðarhafi 7
beitfekipum eða loftvama-beitiskipum,
8 tundurspillum, einum kafbáti og 5
íhraðskreiðum herbátum. Auk þess hef-
ir verið laskað eitt orustuúkip, nokk-
ur beitiskip og önnur smærri herskip.
Á sama tímabili liafa ítalir sökt 4
beitiskipum.
Þýskir kiinnunarflugvjelameati
þkýrðu frá því í gær (skv. D.C-N-B.
frjett) að þeir hefðu s.jeð á Miðjarðar-
hafi stórt breskt beitiskip. sem var
gjörbrimnið, og breskan tundurspilli,
sem hleýpt hafði verið á land. Enn-
fremur tvö gjörbrunnin kaupskip.
í Berlín er opinberlega skýrt svo
frá, að í breska Miðjarðarhafsfíotan-
i hafi verið eftir að harni fekk
nyjan iiðsafla úr Austur-Asíu, 12
beitiskip og að skip þe^si sjeu nú raun-
veridega afmáð.
Paasikivi fær
lausn frá störfum
Forseti Finnlands, Risto Ryti,
hefir veitt sendiherra
Finna í Moskva, Paasikiwi
lausn frá embætti. Skrifstofu-
stjóranum í finska sendiráðinu
í Moskva hefir verið falið að
gegna sendiherrastarfinu fyrst
um sinn.
Rúþs'ar höfðu fjrrir sitt leyti skift
um sendiheri'a í rússueska sendiráSiau
í Moskva fyrir skömmu.
Paasikijwi kjom mjög við sögu í
samningunum við Rússa fyrir finsk-
rússnesku styrjöldina, og eins er frið-
ai'samningarnir stóðu yfir.