Morgunblaðið - 27.05.1941, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. maí 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Reykvíkingur, lem hafði wefursetu I Englandi segir frá:
Ffárlögin
Almenningur í Bretlanöi
harðnar við hverja raun
Trúin á lohasigurinn
er óbifandi
Samtal við Hjálmar Júnsson bankamann
Viðskiftasamningur
Breta og Færeyinga
UNGUR REYKVIKINGUR, Hjálmar Jónsson
bankamaður, er nýkominn heim frá Eng-
landi, þar sem hann hefir dvalið vetrar-
langt, eða frá því í desember í vetur. Hjálmar dvaldi í
Manchester og gekk þar á bankaskóla. Fekk hann styrk
frá Landsbankanum til námsins.
Hjálmar kann frá mörgu að segja frá veru sinni í
Englandi, enda dvaldi hann í einni af stærri iðnaðarborg-
um Englands, sem Þjóðverjar hafa gert miklar loftárásir
á, og m. a. sagt í tilkynningum sínum að verksmiðjur
borgarinnar væru í rústum.
f viðtali, sem blaðamaður frá Morgunblaðinu átti við Hjálmar í
gær, sagði hann, að það væri rjett, að allmiklar skemdir liefðu orðið
á íbúðarhúsum í Manchester, en að ekki væri það satt, að iðnaðar-
framleiðslan í verksmiðjum borgarinnar hafi beðið neitt' markvert
tjón, því þýsku flugvjelarnar hafi kastað sprengjum sínum af handa-
hófi á borgina, en ekki beint árásunum að iðnaðarhverfunum sjer
staklega.
Það var skömmu eftir að Hjálm-
ar kom til Manchester, að Þjóð-
verjar gerðu áköfustu loftárásir
sínar á borgina. Það var um jóla-
leytið. í tvær nætur í röð stóðu
árásirnar í samfelt 10 klukku-
stundir. Það voru lengstu árásir,
sem gerðar liafa verið á þá borg.
Miklar skemdir urðu í verslunar-
hverfi borgarinnar í þessum árás-
um. Á meðan á árásunum stóð
var svo bjart í borginni að lesa
mátti dagblað í birtunni frá eld-
unum.
T. d. um það hve hepni ræður
mikið um afdrif manns í loftárás-
um sagði Hjálmar frá því, að hús
í 4—5 götum, sem voru í um 200
metra fjarlægt frá, þar sem hann
bjó, hafi gersamlega lagst í rústir.
í húsinu, þar sem hann bjó, safn-
aðist fólkið saman í eina stofii á
neðstu hæð hússins og beið þar
meðan á loftárásunum stóð. Ljek
þá alt húsið oft á reiðiskjálfi og
hávaðinn frá loftvarnabyssum og
flugvjelasprengjum ætlaði alt að
æra. „En langverstar voru þó ísk-
ursprengjurnar, því manni fanst
altaf sem þær væru á leiðinni
beint í hausinn á manni“, segir
Hjálmar.
— Það hafa vafaíaust borist
hingað fregnir um hinar miklu
árásir á Liverpool. Jeg kom þang-
að nokkrum sinnum og sannleik-
urinn er sá, að jeg varð blátt
áfram að leita að skemdum í borg-
inni.
Bretar harðna
við hverja raun.
— Og hvernig tekur almenning-
ur svo árásunum og erfiðleikun-
umt spyr jeg Hjálmar.
— Jeg held að því verði best
8varað með eftirfarandi dæmi: Áð-
PEAMH. Á 8JÖTTU SÍÐIi
Hjálmar Jónsson.
Flugvjel yfir Hrútafirði
I gærkvðldi
Klukkan 7.55 í gærkvöldi kom
flugvjel inn Hrútafjörð og
flaug mjög lágt yfir Prestsbakka.
Flugkjelin flaug rjett fyrir of-
an bæinn, yfir efra túnið og þar
lækkaði liún flugið mjög, en þar
er túnið sljett og auðvelt fyrir
flugvjel að lenda.
Tveít menn frá Prestsbakka
voru staddir við fjárhús þarna á
efra túninu. Lýsing þeirra af flug-
vjelinni er nókkuð ólj.ós. Þeim ber
sáman uni, að þetta hafi verið
stór flugvjel, með tvöföldum
vængjum. Annar segist hafa sjeð
hakakross-merki innan í hring,
aftan til á vjelinni. Hinn segist
hafa sjeð hakakross-merki innan
í hring, á stjelinu. Eftir að flug-
vjelin var komin framhjá Prests-
bakka, hækkaði hún flugið og
flaug inn Hrútafjörð að vestan-
verðu. (Samkvæmt símtali við síra
Jón Guðnason á Prestsbakka).
Er hann svipaður og samn-
♦ /
ingurinn við Islendinga?
VIÐSKIFTASAMNINGUR sá, sem gerður hefir
verið milli Bretlands og íslands, og gengið
var frá fyrir alllöngu síðan, hefir ekki verið
birtur.
Ástæðurnar fyrir því eru blaðinu ekki kunnar.
En nýlega barst liingað tölublað
af færeyska blaðinu „Dimmalett-
ing“ og er ]>ar birtur samningur
sá, sem gerður hefir verið um
viðskifti Breta og Færeyinga.
Ekki veit blaðið hvort hann er
svipaður og samuingur okkar við
Breta. En líkur munu vera til að
svo sje. Er samningurinn samkv.
hinu færeyska blaði á ])essa leið:
1. Bresk-færeysk nefnd þriggja
manna, skal sett á stofn í Þórshöfn í
þeim tilgangi tð gefa leiðbeiningar um
verslun Færeyja og’ gjaldeyriþástandið,
og vera til aðstoðár nxeð framkva.uud
eftirfarandi samnings:
2. Yfirvöld Færeyja skulu koma á
takmörkunum á innflutningi allra vöru
tegunda frá öllum löndum, þannig að
framfylgt verði innflutningshöftum,
sem nauðsynleg eru á ófriðartímum,
Unnið verður að þvi, svo sem frekast
er únt að ná vörum til Færeyja af
breskunl uppruna innan þessara tak-
markana. Þegar þetta er ógerlegt mun
breska stjórnin láta nauðsynlegan er-
lendan gjaldeyri af hendi við fær-
eyska innflytjendur, með sömu kjör-
um og til breskra innflytjenda. með
hæfilegu tilliti til þess hvort erlendur
gjaldeyrir á þeim tíma, eða síðar kann
að vera fyrir hendi hjá mönnum, sem
búsettir eru í Færeyjum.
3. Erlendur gjaldeyrir verður ekki
látinn af hendi aðeins með tilliti til
hagkvæms verðlags á vörunum, án
tillits til erfiðleikanna sem á því eru,
að ná erlendum gjaldeyri frá ýmsum
jöndum. Þar 'sem verðmunur er ó-
rýmilega. mikill getur nefndin í Þórs-
höfn gripið í taumana.
4. Umsóknir um erl. gjaldeyri, þar
með talin sterlingspund, afgreiðir
nefndin í Þórshöfn. Breska stjórnin á-
skilur sjer þó endanlégar ákvarðanir
um allar umsóknir, en álit nefndar
verður yfirleitt látið ráða.
5. Yfirvöld Færeyja skulu fram-
fylgja reglum um
a. Bann gegn innflutningi og út-
ílutningi gjaldeyris, svo og útflutning
- erlendum verðbrjefum og gulli;
b. Bann gegn útflutningi á inn-
lendum gjaldeyri til manna, sem bú-
settir eru utan Færeyja;
c. Skyldur til að afhenda allan
erl. gjaldeyrir þ. á. m. sterlingspund,
sem er eða verður eign Færeyinga, til
FRAMH. Á SJÖTTU SlÐU.
Óttast um breska
flugvjel með
5 manna ðhðfn
Bresk hernaðarflugvjel fór um
hádegi í gær af flugvelli
norður í landi og ætlaði til Suð-
urlands. Sást til flugvjelarinnar
rúmlega klukkustund eftir að hún
lagði af stað, en síðan hefi ekkert
til hennar spurst og er óttast um
að hún hafi hrapað til jarðar eða
neyðst til að lenda í óbygðum.
I flugvjelinni' voru fimm meun,
fjórir farþegar og einn flugmaður.
í útvarpinu í gærkvöldi lýsti
breska herstjórnin eftir flugvjel-
inni, ef vera kynni að hún hefði
nauðlent einhversstaðar nálægt
bæjum. Seint ‘í nóft höfðu engar
fregnir borist af' flugvjelinni.
Glæsilegt nýtt
met í kúluvarpi
Seytján ára gamall K. R.-ing-
ur, Gunnar Huseby, setti í
gær glæsilegt nýtt met í kúluvarpi
á innanfjelagsmóti K. R. Kastaði
hann 14.31 meter. Gamla metið,
sem Kristján Vattnes setti 1938
var 13.74 m., en þess má geta að
hið nýja met er aðeins 3 senti-
metrum skemra en danska metið
(14.34).
Met þetta er, reiknað í stigum
eftir finsku töflunnl, næsthesta af-
rek í frjálsum íþróttum, sem unn-
ið liefir verið thjer á landi, gefur
848 stig, en besta afrekið er 10.9
sek. í 100 metra hlaupi.
Huseby setti einnig nýtt met í
beggja handa kasti', var það 24.21
meter, en met Vattnes, einnig frá
1938, var 22.45.
Nokkrar nýjar
tillðgur
T^riðju umræðu fjárlaganna var
* haldið áfram í gær. Var um-
ræðunni lokið á kvöldfundi, en
atkvæðagreiðslu frestað.
Allmargar hréytingartillögur
liggja fvrir frá þingmönnum. Hjer
verður getið nokkurra tillagna.
Atvinnumálaráðherra (Olafur
Thors) flvtur tillögu uni 500 þús.
kr. fjárveitingu (1. greiðslu) til
byggingar sjómannaskóla.
Sami ráðherra flytur og tillögu
um, að svohljóðandi athugasemd
verði aftan við grein fjárlaganna
um rekstur landssímans:
„Verði verulegur tekjuafgangur
af rekstri landssímans á árunum
1941 og 1942 umfram það, sem
fjárlög gera ráð fyrir. heimilast
ríkisstjórninni að leggja til hliðar
hæfilega upphæð til bætcs við-
hakls og annara símafranikvæmda
síðar“.
Sami ráðherra vill fá inn. í 22.
gr. svohljóðandi heimild: „Að
verja xír ríkissjóði alt að 50 þús.
kr. til þess að styrkja þá útgerð-
armenn, er mist hafa báta sína frá
ófriðarbyrjun til þess að byggja
nýja báta, -þó ekki yfir 20% af
bvggingarkostnaði“.
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra og Jakob Möller fjármála-
ráðherra flytja tillögu um svo-
hljóðandi heimild í 22. gr.: „Að
kaupa Gullfoss í Hvítá fyrir alt.
að 15.000 kr.“. (Þetta er endur-
veiting).
Fjárveitinganefnd flytur tillögu
um (við 22. gr.) að heimila stjúrn-
inni: „Að greiða stofnkostnað fyr-
ir hjeraðsskólana í samræmi við
ákvæði hjeraðsskólalaganna og nið
urstöður nefndar þeirrar, sem met-
ið hefir stofnkostnað skólanna".
Tveir þingmenn (F. J. og Sig.
Hlíðar) flytja svohljóðandi við-
aukatillögu við tillögu fjárveit-
inganéfndar: „Ennfremur að'
greiða stofnkostnað og styrk til
húsmæðraskóla samkvæmt lögum
um húsmæðrafræðsln í kaupstöð-
um“.
Sjúmannadagur-
ino verOur 8. júnl
Sjómannadagurinn verður að
þessu sinni haldinn 8. júní,
það er annan sunnudag.
Vegna útisamkomubannsins má
búast við að lítið verði hægt að
hafa af útiskemtunum, sem jafn-
an hafa sett aðalsvip sinn á dag-
inn, en í stað þess verða skemtanir
í samkomuhúsunum. og einnig
munu sjómenn fá útvarpið að ein-
hverju leyti til umráða þemia dag.
Rússav og
Þfóðverfar
Finskt blað liefir skýrt frá því, að
samningar standi yfir milli
Rússa og Þjóðverja um það, að Rússar
selji Þjóðverjum Ukrainu á leigu. I
Berþ'u va.r lýst yfir því opinberlega f
gær, að fregn þesei væri vitelysa tóm.