Morgunblaðið - 13.07.1941, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudaffur 13. júlí 1941.
Aukafilkynniiig þýskn hcrsfjórnarinnar
„STALINLÍNAN ROFIN Á 0LL-
UM MIKILVÆGUM STOÐUM“
Þýsku hersveitirnar við hlið
Kiev. Sækja frara tii Leningrad
„Möguleikar Rússa
til gagnárása að
mestu þrotnirM
PÝSKA HERSTJÓRNIN tilkynti í nótt, aS
þýskar hersveitir hefðu gert djarflegar árás-
ir á Stalin-línuna og rofið hana á öllum mik-
ilvægum stöðum.
Þýskar og rúmenskav hersveitir, sem sækja fram í
Moldau, hafa hrundið rússnesku hersveitunum til Dniestr-
fljótsins og yfir fljótið á breiðri víglínu.
Þýskar, slóvakiskar og ungverskar hersveitir í Galiziu elta
flótta hins sigraða óvinar.
Hersveitir þessar og þýskar og rúmenskar hersveitir, sem
sækja í suð-austur frá Dniestr eru við hlið Kiev.
RINGULREIÐ OG UPPLAUSN
Norð-austan við Pripet-fenin hafa þýskar hersveitir ráðist
yfir Dniepr, og náð á sitt vald hinum öflugu rússnesku virkj-
um austan við fljótið. Þýskár hersveitir hafa sótt hjer fram um
200 km. frá Minsk.
Ringulreið og upplau^n er farin að gera vart við sig í rúss-
neska hernum á þessum vígstöðvum. Vitebsk hefir verið á valdi
Þjóðverja frá því 11. júlí.
Á suðaustur vígstöðvunum sækja þýskar brynvagnasveítir
fram norður með Peipus-vatninu (á landamærum Estlands og
Rússlands) í áttina til Leningrad.
Rússar hafa að mestu verið sviftir möguleikum til gagn-
árása með árásum þýskra flugvjela á samgönguæðar þeirra að
baki víglínunni.
TILKYNNING RÚSSA
Herstjórnartilkynning Rússa í nótt staðfesti það að bardag-
ar á austurvígstöðvunum hefðu blossað upp að nýju. Harðir bar-
dagar eru sagðir standa yfir hjá Pskov, fyrir austan Peipus-vatnið
og hjá Vitebsk, á mið-vígstöðvunum. í þesum atriðum getur til-
kynning Rússa komið heim við tilkynningu Þjóðverja. En á Ukra-
inu-vígstöðvunum segja Rússar að barist sje við Novograd-Vol-
ynsk um 150—200 km. fyrir vestan Kiev.
Hjer tala Þjóðverjar um sókn alia leið austur að borgarmúr-
um Kiev, höfuðborgar Ukrainu. Rússar minnast ekkert á bar-
dagana við Dniestr, þar sem Þjóðverjar segjast vera komnir að
Kiev að norð-vestan.
Hjer virðist hættan vera alvarlegust fyrir Rússa (að því er
fregn frá London hermdi í nótt). Tilkynning Þjóðverja leiðir í
ljós, að þýsku hersveitimar á miðvígstöðvunum eru á tveim
stöðum aðeins í 100 km. fjarlægð frá Smolensk. Að norðaustan
sækja þeir að borginni frá Vitebsk, en að suðaustan eru þeir ein-
hversstaðar í grend við Orsha.
Sókn Þjóðverja á þessum tveimur vígstöðvum virðast miða
að því, að króa inni þar hersveitir Rússa, sem eru á milli þessara
tveggja fleyga þeirra.
Mussolini býr enn
til konungsríki
Samkvæmt fregn frá höfuðborg
Montenegro var Montenegro
í gær lýst óháð fullvalda ríki.
Hið nýja ríki verður konung-
dæmi, og hefir Vietor Emanuel
Ítalíuk'onungur verið kvaddur til
að tilnefna konung Svartfjalla-
manna.
Jafnframt
Montenegro
Itala.
Montenegro var sjálfstætt kou-
ungsríki fvrir síðustu heimsstyrj-
öld. En að styrjöldinni lokinni var
það innlimað í þjóðasambanclið
Júgóslafía.
Landið var tæpir 10 þús: fer-
kílómetrar að flatarmáli og íbúar
er lýst yfir því, að
sje á áhrifasyæði
Heillaóskir
Nygaardsvolds
til íslendinga
r
Arni Jónsson frá Múla hafði
orð fyrir Islendingum
IVEISLU ÞEIRRI, sem Johan Nygaardsvold, for-
sætisráðherra Norðmanna, hjelt fyrir íslensku
blaðamennina í gildaskálum Savoy-hótelsins í
London í fyrradag, hafði Árni Jónsson alþingismaður frá
Múla orð fyrir íslendingunum.
Ræða sú, sem Nygaardsvold forsætisráðherra flutti við þetta
tækifæri, fer hjer á eftir:
Forsætisráðherrann mintist á hin nánu tengsl, sem verið
hefðu milli íslendinga og Norðmanna, alt frá söguoldinni. Hinn
náni skyldleiki, og arfgengar venjur hafa altaf verið öflugur
tengiliður milli þjóðanna.
___________ Frá íslandi fengu Norðmenn
I Smoiensk eru Þjóðverjar
hálfnaðir á leiðinni frá Minsk
til Moskva.
GAGNÁRÁS
Fyr í gær hafði þýska frjetta
stofan skýrt frá gagnárás Rússa
hjá Vitebsk, síðastliðinn fimtu
dag. Frjettastofan segir, að
þýskar brynvagnasveitir hafi
kæft þessa gagnárás í fæðingu
með því að ráðast mitt inn í rað
ir óvinaskriðdrekanna.
Harður bardagi tókst þarna,
og segjast Þjóðverjar hafa eyði
lagt 101 rússneska skriðdreka.
Þjóðverjar segjast hafa kró-
að inni þarna rússneskar her-
sveitir.
Þýska frjettastofan skýrði
einnig frá loftárás í gær, sem
þýskar flugvjelar gerðu á rúss-
neska olíuvagnalest með 31
Vopnahlje
í Sýrlandi
VOPNAHLJE hefir verið í Sýrlandi frá því kl.
12 á miðnætti í fyrrinótt. Dentz, landsstjóri
Frakka, fjelst á það í fyrradag að semja við
Wilson, hershöfðingja Breta, með þeim skilmálum, sem
Bretar settu.
Fyrirskipuðu Bretar þá vopnahlje um stundarsakir.
í gærkvöldi gaf breska herstjórnín í Kairo út aukatilkynningu,
þar sem segir, að samningarnir gangi greiðlega, en að eftir sje að
ráða frarn úr nokkrum smáatriðum.
Hermálaráðuneytið í Víehy hef-
ir staðfest það, að samningar sjeu
byrjaðir, ,,og nú verður að hraða
því að binda enda á þetta blóðnga
og ójafna stríð“, sagði fulltrúi
ráðuneytisins. En hann lýsti yfir
því, að Frakkar semdu ekki viö
svikara.
Samningar fara fram í borginiú
Acca í Suður-Sýrlandi, í aðalbæki-
stöð Wilsons og Cartroux hershöfð
ingja, yfirmanns frjálsra Frakka
í Sýrlandi. Þrátt fyrir að Vichy-
stjórnin hafi lýst yfir því, að hún
muni ekki semja við svikara, þá
herma frjettastofufregnir fvá 'Sýr-
landi, að Cartroux taki þátt í
samningunum. .
Samkomulag
T7regnir seint í nótt hermdu, að
franska samninganefndin
hefði gengið að friðarskilmálum
Breta, en að eftir sje að staðfesta
bráðabirgðaundirskriftir hennar, í
Beirut.
FRAMH. Á SJÖTTU SH)U
SVÍAR OG FINNAR
Finnlandsnefnd 1941 liefir ver-
ið stofnuð í Svíþjóð, til þess
að greiða fyrir sænskum sjálfboða-
liðum, sem vilja berjast með Finn-
)
um.
Loftárás
á Helsingfors
Loftárás var gerð á Helsing-
fors í fyrrinótt. Eiu rúss-
nesk flugvjel flaug inn yfir borg-
ina og varpaði niður sprengjum.
Tvö hús eyðilögðust og 3 menn
særðust. Sprengja fjejl niður um
þakið á öðru húsinu og sprekk á
miðhæðinni. Við sprengjuna
hrundi framhlið hússins.
konungasögurnar og þýðing
þeirra fyrir þjóðlega vakning
og sjálfsvitund Norðmanna
iverður varla of mikils metin. —
Þjóðir okkar unna frelsinu og
þótt þær vilji að einstaklingur
inn fái að njóta sín, þá hefir
þó ástin á ætt og óðali þjappað
þeim saman og vakið hjá þeim
sjálfstæða þjóðarvitund, gagn-
kvæma samúð og ást á föður-
landinu.
Út frá þessu sjónarmiði, sjálfs
vitundinni, samúð og ást, höf-
um við leitast við að byggja land
okkar. og skapa þjóðum okkar
öryggi á sviði menningar, at-
vinnumála og fjelagsmála.
Harðvítug styrjöld hefir
stöðvað þessa friðsamlegu fram
þróun í okkar landi, og yfir því
drotna nú framandi harðstjór-
ar, sem afnumið hafa hið forna
norska rjettaröryggi og skap-
að glundroða í atvinnumálum
og eymd í fjelagsmálum. Island
sem staðið hefir í meir en þús-
und ár utan við styrjaldir og al-
þjóðlegar þrætur, hefir dregist
inn í hringiðu styrj aldarinnar,
en afleiðingarnar hafa verið ó-
líkar í Noregi og á íslandi. —
Norska þjóðin hefir mist hvern
urmul af sjálfstæði sínu í her-
numdu landi sínu, en ísland h-f
ir á meðan stríðið hefir staðið
yfir, tekið sjer sæti, full-
komlega og algerlega við hlið
frjálsra, sjálfstæðra og full-
valda þjóða. Jeg vil nota
þetta tækifæi? til þess aö óska
íslendingum til hamingju með
hina sögulegu ákvörðun, sem
þeir hafa tekið þessa dagana.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU