Morgunblaðið - 30.09.1941, Side 2
MORTtUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 30. sept. 1941-
Bresk-rússnesk varnarlína frá
Norður-lshafi til Miðjarðarhafs
Wavell heldur mikilvægar
ráðstefnur í Austurlöndum
„Tíminn er dýrmætur
segir Molotoff**
Wavell hershöfðingi er nú að undirbúa breska
varnarlínu frá Sýrlandi austur og norður
að Kákasus, þar sem hún sameinast vam-
. ✓
arlínu Rússa.
Það var tilkynt í London í gær, að Wavell hefði á
föstudag og laugardag haft mikilvæga ráðstefnu í Bagh-
dad með Auchinleck yfirhershöfðingja Breta í hinum vest-
lægari austurlöndum, að viðstöddum hershöf ðingjum Breta
í Sýrlandi, Iraq og Iran.
Frá Baghdad fór Wavell til Teheran, höfuðborgar Irans og
hjelt þar ráðstefnu með rússneska hershöfðingjanum þar í gær.
Wavell sagði við blaðamenn, að hann teldi ekki nauðsynlegt, að
sett yrði á fót sameiginleg bresk-rússnesk herstjórn í Iran, en
hinsvegar myndi verða náin samvinna milli bresku og rússnesku
herjanna þar.
Wavell var spurður, hvort útvarpsfregnir um að Bretar ætl-
uðu að senda herleiðangur til Rússlands væru rjettar, og svaraði
hann þá: Útvarpsþulir segja svo margt, sem ekki er satt.
Búist er við, að Churchill
munj næstu daga gefa
þinginu yfirlit um horfurn-
ar í austri og víkja þá sjer-
staklega að viðbúnaði
Breta í Austurlöndum.
Yiðskiftaráðstefnan í Moskva
hófst í gær undir. forsæti Molo-
toffs. I setningarræðu sinni
lagði Molotoff áherslu á, að
tíminn væri dýrmætur og Bea-
verbrook og Harrimann, for-:
menn bresku og amerísku nefnd
anna undirstrikuðu ákvörðun
þjóða sinna um að veita Rússum
alla þá hjálp, sen. hægt væri að
láta í tje, og það strax.
VÍGSTÖÐVARNAR.
Litlar fregnir hafa borist af
?„álfum vígstöðvunum í Rúss-
landi. Rússar virðast hafa stöðv-
að sókn Þjóðverja frá Poltava
í áttina til Kharkov (segir í
fregn frá London) en tilkynn-
ing þýsku herstjórnarinnar í
gær um bardaga fyrir norð-
austan Dniepropetrovsk gæt:
bent til þess, að Þjóðverjar væru
byrjaðir sókn að Kharkov, einn-
ig að sunnan eða suð-austan. Er
talið, -ð þýsku herirnir hjá
Dniepropetrovsk kunni að hafa
komist á hlið við þýska Poltava-
herinn og sótt þannig fram um
ea. 120 km.
Þjóðverjum virðist ekki hafa
tekist að brjótast í gegnum
x-x-x-x-x-x-x-x-x-:-x~x~x~x*
varnir Rússa á Krim-eiðinu, en
hinsvegar er talið, að þeir hafi
gert miklar loftárásir á sam-
gönguæðar á sjálfsm Krim-
skaganum.
Harðir bardagar virðast enn
lialda áfram á Leningradvíg-
stöðvunum. Rússar segjast hafa
sókt þýsku beitiskipi, sennilega
6 þús. smál. skipniu Köln, og
auk þess tveim þýskúm tundur-
spillum.
f
X
I
t
*f
T
T
x
T
T
x
5*
T
T
NýsoBin svið
með rófustöppu
fást daglega.
Hótel Hekla.
Sími 1520.
x-:-x-x-x-x-:-x-x-:-:-:-:-x-X“X-:*
Þýska hersffórnar-
tilkynnftnglii
Þýska herstjórnin tilkynnir:
F-j ýskar og ítalskar hersveib-
* ir rjeðust á og afmáðu
þrjú rússnesk herfylki norð-
austur af D.niepro-petrovsk.
Samkvæmt upplýsingum, sem
fyrir liggja, voru 13 þús. fang-
ar teknir, og 69 fallbyssur auk
mikils af öðrum hergögnum.
Hlutar af liði óvinanna voru
hraktir út í mýrlendi. Tjón ó-
vinanna fallnir og særðir, var
mikið og blóðugt
Öflugar sveitir flughersins
rjeðust með góðum árangri á
járnbrautarlínur og önnur
mannvirki á Donetz-svæðinu og
einnig umhverfis Moskva.
Á hafinu við Kronstadt var
rússneskt beitiskip hæft með
sprengju .
Eins og þegar hefir verið
skýrt frá í aukatilkynningu,
hefir þýskum kafbátum tekist
að sökkva 12 óvinakaupskipum,
samtals 67 þús. smál., úr skipa-
ílota, sem var á leiðinni frá Gi-
braltar til Englands.
I Suður-Atlantshafi sökti
þýskur kafbátur 12 þús. smál.
eiíuflutningaskipi.
Bardaglmillj
skipatlota og
flugvjela
í Miðjarðarhafi
Ifregn frá London í gær var
skýrt frá því, „að enn hefði
breskur skipafloti barist í gegn-
um Miðjarðarhafið, gegn ítrekuð-
um óvinaloftárásum“.
Þrátt fyrir hinar ítrekuðu ár-
ásir segjast Bretar hafa mist að-
eins eitt kaupfar, sem laskaðist
svo, að ekki var hægt að taka
það í eftirdrag, og söktu bresk
herskip því.
Eitt breskt herskip laskaðist, en
þó ekki meir en svo, að það gat
haldið áfram að berjast, en nokk-
uð dró úr ferð þess.
ítalska herstjórnin hefir þó
aðra sögu að segja. í aukatilkynn-
ingu, sem hún birti í gær, er skýrt
frá því, að ítalskar tundurskeyta-
flugvjelar hafi sökt tveim stórurn
beitiskipum og einu litlu, auk þess
hafi orustuskip og annað stórt her
skip verið hæft, og einnig 3 minni
herskip og 1 tundurspillir. Enn-
fremur segir herstjórnin að þrjú
kaupför hafi verið hæfð.
í tilkynningunni er því lýst
ínokkuð, hvernig könnunarflugvjel
ar urðu fyrst varar við skipaflot-
ann, rjett eftir að hann lagði úr
höfn í Gibraltar, og hvernig hver
flugsveitin af annari tók sig upp
til árása frá Sardeniu og Sikiley.
6 breskar flugvjelar(frá flugvjela-
móðurskipi, sem var með skipa-
flotanum) eru sagðar hafa verið
skotnar niður, en 6 ítalskra flug-
vjela er saknað.
BRESK SPÍTALASKIP TIL
NORÐUR-FRAKKLANDS
Ólgao fi Tfekkoslówakfiu
Heydarich, ,stað-
gengill von
Neuraths'
Berlín í gær.
Heyderich, S.S.-foringi, sern
settur hefir verið til að
gegna ,,verndara“-embættinu í
Bæheimi og Mæri, á meðan von
Neurath er fjarverandi í heilsu-
bótarfríi (von Neurath hefir
l'ongið lausn frá störfum aðeins
um stundarsakir), gekk þegar
eftir komu sína til Prag á
sunnudaginn á fund Hacha pró-
fessors. Þýska frjettastofan
kallar Hacha „forseta sjálf-
stjórnarverndarríkisins Bæheim
ur og Mæri“. Tilkynti Heyde-
rich forsetanum, að hann hefði
látið handtaka forsætisráðherra
verndarríkisins, Elías, og að mál
hans — hann er sakaður um
landráð —, muni verða tekið
lyrir af þjóðardómstólnum í
Þýskalandi.
Elías hefir verið fluttur til
Berlín, og er hann sakaður um
að hafa haft samband við stjórn
dr. Benesch í London.
Fulltrúi þýsku stjórnarinnar
sagði í gær, að það væri vafa-
samt, hvort erlendum blaða-
mönnum yrði leyft að Vera við-
staddir, þegar mál hans verður
tekið fyrir.
Þýska frjettastofan segir, að
Hacha hafi heitið Heyderich
'fullum stuðningi, og einnig
stuðningi tjekknesku stjórnar-
innar við það, að vinna bug á
starfsemi hemaðarverkamanna
og landráðamanna í verndar-
ríkinu.
LOFTÁRÁS Á NORDUR
ÍTALÍIJ
W vissneska stjórnin hefir boöist til
að láta þýjsku stjóminni í tje
tvær spítala-eimreiðar, til þess að flytja
særða breska stríðsfanga til frönsku
strandarinnar. Hefir orSið samkomu-
lag milli Breta og Þjóðverja um skifti
á særðum stríðsföngum og verða fang-
arnir fluttir yfir Ermarsund á breskum.
spítalaskipum.
Er ráðgert, aS bresku skipin fari
með þýsku fangana til Norður-Prakk-
lands og taki bresku fangana þar um
borð. Þar sem hjer er um að ræSa um
1000 fanga frá bvörri hlið, er búist
við að skipin verði að fara margar
ferðir.
Skifti þessi fara sennilega fram um
miðjan næeta mánuð.
Stórar, breskar, fjögra
hreyfla sprengjuflugvjel-
ar, Stirling-flugvjelar, ásamt
Wellington-flugvjelum flugu í
fyrrinótt 2300 km. vegalengd
fram og til baka frá Englandi til
hafnarborgarinnar Genoa og
'iðnaðarborg'krjnnar Turin í
Norður-Ítalíu.
„Elnn blóðugasti
lærisveinn
Hitlers"
London í gær.
Dr. Benesch, forseti tjekk-
neska þjóðráðsins í Lond-
on, kallaði nýja „verndarann“ í
Bæheimi og Mæri „blóðug-
asta liðssvein Hitlers“, í ræðu
sem hann flutti í gær. Forset-
inn sagði, að vænta mætti nýrr-
ar ógnarstjórnar í Tjekkíu, við
valdat.öku hans, en hann sagði.
að viðnám emstaklinganna
rayndi verða ríkisharðstjórn-
inni yfirsterkari og spáði því,
að á sama hátt myndu einstak-
lingarnir í Þýskalandi, sem
neyddir hefðu verið út í þessa
ftyrjöld, steypa ríkisharðstjórn
liitlers að lokum.
Eitt fyrsta verk hins nýa
„verndara“ var að handtaka og
láta taka af lífi 6 Tjekka, sem
sakaðir voru um landráð og
eign óleyfilegra vopna, þar af 2
aldraða hershöfðingja.
I gær fyrirskipaði Heyderich,
að öll umferð skyldi bönnuð á
götum úti í nokkrum helstu
borgum verndarríkisins eftir kl.
11 að kvöldi.
Því var lýst yfir af hálfu á-
byrgra manna í London í gær,
að það væri algerlega tilhæfu-
að Elías, ,,forsætisráðherra“
verndarríkisins, hefði haft noklc
urt samband við London.
Þýskar fregnir í gærkvöldi
hermdu, að alt væri rólegt í
Prap, eftir komu Heyderichs
þangað. En klukkustundu síðar
tilkynti útvarpið í Prag, að 20
liienn hefðu verið teknir fastir
samkvæmt herlögunum.
90 mínútum síðar barst Reut-
ersfregn um, að þessir 20 menn
1- fðu verið skotnir.
ÁRÁS Á ÖSEL
Þýska frjettastofan skýrði
frá því í gær, að Rússar
hafi reynt að gera atlögu að
eyjunni Osel, en þýska varnar-
liðið hafi hrundið árásinni.
2 fbúOarhús til sölu.
Húsin eru í byggingu og verða þau íbúðarhæf í lok
októbermánaðar. íbúðir lausar.
Upplýsingar gefur