Morgunblaðið - 16.12.1941, Qupperneq 7
Þriðjudagur 16. des. 1941.
Skvrslan um
Hawai
FRAMH. AF ANNARI 8lÐV
móðurskip í Pearl Harbour. —
„Utah“ varð fyrir harðvítugri
árás, vegna þess að Japanar
hjeldu að það væri flugvjela-
pióðurskip.
Skotið sem hæði Arizona var
,,happaskot“, sagði Knox. —
Hæfði sprengja í gegnum rauf
beint ofan í eina púðurgeymslu
skipsins.
En áður hafði sprengja fallið
niður í ketilrúmið.
Knox sagði að ekkert tjón
Jiafi orðið í þurkvíunum í höfn-
ínni, og olíugeymarnir hefðu
einnig sloppið. Ennfremur mik-
ilvæg tæki flotans á landi. En
ílugvjelatjón hersins hefði orð-
ið mikið, og nokkur flugvjela-
skýli hefðu einnig verið eyði-
3ögð. En tæki til endurnýjunar
væru á leiðinni.
Engar flugvjelar ameríska
hersins eða flotans voru á flugi,
■þegar árásin var gerð, en könn-
uriarflugvjelar flotans, er venju'
lega taka sig upp . um dögun,
voru að leggja af stað. Flotinn
liafði ekki haldið uppi neinu
könnunarfíugi að næturlagi,
þar sem talið var að það væri
tilgangslaust. Knox hjelt að
þurft hefði 300 könnunarflug-
vjelar til að gæta Hawai gagn-
vart sknyidiárásum.
150—300 FLUGVJELAR
Hann hjelt að um 150—300
japanskar flugvjelar hefðu
gert árásina, of margar til þess
að þær hefðu getað komið frá
einu ílugvjelamóðurskipi. Það
var greinilegt að það voru ein-
göngu einhreyfilsflugvjelar, er
árásina gerðu, svo að þær gátu
ekki hafa haft bækistöð á
iandi. Að því er kunnugt væri
hefði engri þeirra Verið stjórn-
að af þýskum flugmönnum og
þær höfðu engin ný vopn.
,,Jeg held, sagði Knox, að
meira 5. herdeildarstarf hafi
verið unnið á Hawai, heldur en
áður hefir þekst í stríðinu, e. t.
’ . að Noregi fráteknum“. Er nú
erið að leita uppi 5. herdeild-
•armennina og koma þeim fyrir.
Kjarkur hersins á Hawai er
ágætur.
Knox fór lofsamlegum orð-
um um dugnað áhafnanna á
herskipunum. Innan 4 mínútna,
eftir að fyrsta hættumerkið var
gefið, byrjuðu hinar stóru byss-
ur flotans að gelta, og sekúndu
síðar hrapaði fyrsta japanska
flugvjelin i sjóinn.
Mestu hetjudáðina vann
deyjandi skipherra á orustu-
skipi einu. Þó hann væri særð-
ur til ólífis, stóð hann í brúnni
bg neitaði að láta flytja sig í
burtu. Hann stjórnaði skothríð-
inni frá logandi brúnni.
Ferðaf jelag íslands tilkynnir, að
árbókin 1941 verður afhent f jelög-
nm gegn greiðslu árgjaldsins hjá
gjaldkera fjelagsins, Kristjáni Ó.
Skagfjörð, Túngötu 5, þriðjudags-
kvöldið 16. þ. m. kl. 8 til 10 og
rniðvikudagskvöldið sama tíma.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Skýrsla
Roosevelts
I langri skýrslu, sem Rooseveit
'*• hefir sent Bandaríkjaþingi
um samningana við Japana, skýr-
ir hann m. a. frá því, að síðustu
samningaumleitanirnar hefðu far-
ið fram samkvæmt eindreginni ósk
Japana, og að þeir hefðu stungið
upp á að hann, Boosevelt, og Ko-
nóve prins hittust;
Jeg myndi hafa viljað ferðast
þúsund mílur til þess að hitta
japanska forsætisráðherrans ef jeg
hefði getað treyst því, að sam-
komulag næðist á þeim grundvelli,
sem Bandaríkiu vildu semja á,
sagði Roosevelt, en engin slík
trygging fekst.
Roosevelt sagði að hann hefði í
miðjum samningaumleitununuin
frjett að Japanar væru að undir-
búa árás, án þess að kunnugt
væri, hvar þeir ætluðu að hera
niður. Hann bað nm skýringu, en
fekk ekkert svar.
33 ríki fá láns-
og leiguhjálp
Washington í gær.
oosevelt forseti hefir sent þjóð-
þinginu þriðju skýrslu sína um
framkvæmdir í sambandi við láns- og
leigulögin. Samkvæmt skýrslunni nam
hjálpin, sem veitt hafði verið 33 þjóð-
um þar til 13. nóvember, 1200 milj.
dollurum.
Láns og leiguhjálpin hefir verið
stórlega aukin síðustu 3 mánuðina.
Hinum upphaflegu 7 þús. milj. doll-
urum hafði öllum verið ráðstafað fyr-
ri 13. nóv., og yfir 2 þúsund dollarar
af annari fjárveitingunni höfðu ver-
ið lagðir til hliðar, til sjerstakra nota.
í skýrslunni segir, að auka þurfi
framleiðsluna á skotfærum og vopn-
um umfrarn það, sem framleitt er nú
eða ráðgert hefir yerið að framleiða.
Árangurinn af hjálp þeirri, sem
ráðgert er að veita með láns og leigu-
lögunum, veltur á því (segir í skýrsl-
unni) að hve miklu tekst að hraða
og auka skipasmíðarnar. f sambandi
við þetta er skýrt frá því, að nú
sje hleypt af stokkunum í Bandaríkj-
unum tveimur skipum á viku, en um
mitt ár 1942, verður tveim skipum
hleypt af stokkunum á dag.
Dagbók
^ STUART 594112167 R 5
I.O.O.F. = O.b. l.P. = 12312168V2
— ES — KE.
□ Edda 594112187 — Jólahl.
atkv.
Næturlæknir er í nótt Ólafur Þ.
Þorsteinsson, Eiríksgötu 19. Sínn
2255.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Fimtugur er í dag Lárus Hans-
son innheimtumaður hjá bæjar-
gjaldkera. Hefir hann verið við
starf þetta um tuttugu ára skeið,
vænn maður og vel látinn.
• „Bridge“-kvöld Anglíu verður í
Oddfellotvhúsinu uppi annað kvöld
kl. 8.45.
Annar kvöldsöngur í Landakoti
annað kvöld kl. 8.30. Davina Sig-
urðsson, Björg Guðnadóttir, Kjart-
an Sigurjónsson og blandaður kór
syngja Davíðs sálm 113 eftir
Hándel og 4 kafla úr Hámessunni
eftir Bach. Þórir Jónsson og Þor-
valdur Steingrímsson leika Largo
eftir Bach með hljómsveitarundir-
leik undir stjórn Dr. V. Urbant-
schitsch. Aðgöngumiðar fást á
venjulegum stöðum.
Nýjasta hefti fsl. fyndni fæst á
afgreiðslu Morgunblaðsins.
Afgreiðsla Morgunblaðsins tek-
ur á móti peningagjöfum til Vetr-
arhjálparinnar.
Skrifstofa Vetrarhjálparinnar er
í Bankastræti 7 (hjá Ráðningar-
skrifstofu Reykjavíkurbæjar). Þar
or tekið á móti gjöfum til starf-
seminnar. Sími 4966.
Peningagjafir til Vetrarhjálpar-
innar í Reykjavík: Frú Arnar,
Mímisveg 8, kr. 25.00. Kunnugur
kr. 10.00. Sigga kr. 10.00. Þorst.
Sch. Thorsteinsson lyfsali ltr.
500.00. Kærar þakkir. F. h. Vetr-
arhjálparinnar, Stefán A. Pálsson.
Útvarpið í dag:
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.30 Erindi: Siðskiftamenn og
trúarstyrjaldir, II: Machiavelli
(Sverriri Kristjánssou sagnfræð-
ingur).
21.00 Tónleikar Tónlistarskólans:
Strengjasveit (stjórn.: dr. Ur-
bantschitseh) : Konsert í d-moll
fyrir fiðlur og stroksveit.
21.30 Hljó.mplötur: Píanókonsert í
A-dúr eftir Mozart..
21.55 Frjettir.
41
Elskuleg dóttir okkar
ÓLÖF JÓNA
andaðist í spítala laugardaginn 13. þ. m.
Guðrún Jónsdóttir. Þorgrímnr Sigurðsson.
Börn og tengdabörn.
Kunn<íjörixi^.
Matros i Den norske flygeavdeling
KÁRE JENS ROALl)
hjemmehörende i Vigra pr. Álesund avgikk ved döden den 11.
desember 1941.
Bisettelsen finner sted fra Domkirken den 18. desember
1941 kl. 11. Jordfestelse i Fossvogi.
DEN KGL. NORSKE
LEGASJON I REYKJAVÍK.
Það tilkynnist hjer með að minn-
ingarathöfn um
skipshofn botnvðrpungsins „Sviða"
fer fram í Hafnarf jarðarkirhfu
á morgun, 17. þ. m. kl. 1 síðd.
H.f. JSviði“ Hafnarflrði.
Okkar kæra dóttir og systir
PÁLÍNA GUÐLAUGSDÓTTIR
Þrastargötu 3, andaðist í gær.
Foreldrar og systírinL
Maðnrinn minn, faðir okkar og tengdafaðir
ÁGÚST K. LÁRUSSON málarameistari
andaðist að heimili sínu sunnudaginn 14. desember.
Ágústa Magnúsdóttir, böm og tengdasonur.
Maðurinn minn, sonur okkar og tengdasonar,
EMIL GUNNAR ÞORSTEINSSON,
andaðist 14. þ. m.
Sigrid Thorsteinsson, fædd Mogensen.
Lára og Þorsteinn Sigurðsson.
Ingeborg og Peter Mogensen.
Litli somir okkar,
BJÖRN,
andaðist s. I. sunnudag.
Sigurbjörg og Morten Ottesen.
Faðir okkar,
PJETUR EINARSSON,
fæddur að Stað í Aðalvík 10. júní 1851, látinn 13. des., verður
jarðsunginn fimtudaginn 18. des. kl. 10 f. h., frá dómlrirkjunni.
Fyrir hönd fjarstaddra bræðra og annara aðstandenda.
Rakel Ólöf Pjetursdóttir. Sigurlinni Pjetursson.
Jón Þorleifseon.
Jarðarför konunnar minnar, móður okkar og tengdamóður,
GUÐMUNDÍNU GUÐLAUGAR PÁLSDÓTTUR,
fer fram frá dómkirkjunni miðvikndaginn 17. desember. Athöfn-
. '<(y
in hefst með bæn á heimili hiirnar látnu, Bergþórugötu 8,
kl. 1 e. h. *
Sæmundur Magnússon. Páll Sæmundsson.
Iingibjörg Sæmundsdóttir. Eygerður Björnsdóttir.
Jarðarför ekkjunnar
ÞÓRLAUGAR ÞORVARÐARDÓTTUR,
Shellveg 10, fer fram frá fríkirkjunni miðvikndaginn 17. des.
og hefst með bæn heima kl. 1.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Kristín Bjarnadóttir. Eyvindur Eyvindsson.
Jarðarför konunnar minnar, móður okkar, dóttur og
systur
GUÐRÚNAR MARGRJETAR FINNBOGADÓTTUR
fer fram frá dómkirkjunni föstudaginn 19. desember 1941 og
hefst með bæn á heimili foreldra hennar, Vesturvallagötu 5 kl.
1 e. hád.
Pjetur Jóhannsson og synir.
Dagmar Gísladóttir, Finnb. Magnússon
og systkini.
Hjartanlega þökkimi við öllum, sem veittu aðstoð og sýndu
okkur samúð við andlát og jarðarför
STEINUNNAR JÓHANNESDÓTTUR.
Aðstandendur.