Morgunblaðið - 19.02.1942, Page 5
Fimtudagur 19. febr. 1942.
r-isu.
5 1
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.).
Auglýsingar: Árni Óla.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 4,00 á mánuði
innanlands, kr. 4,50 utanlands.
f lausasölu: 25 aura eintakið,
30 aura með Lesbók.
Frambjóðendur Sjðlfstæðisflokksins
Stefnurnar
T) æjarstjórnarkosningar eiga
fram að fara hjer 'í
JReykjavík 15. mars næstkom-
andi. 1 boði eru fjórir listar og
eru þeir fram bornir og studd-
ir af þeim fjórum stjórnmála-
flokkum, sem um margra ára
skeið hafa háð baráttu á sviði
foæjar- og þjóðmálanna. Átök-
in í kosningunum verða því
milli flokkanna og um stefnur
'þeirra í bæjarmálunum.
Reykvískir kjósendur koma
því engan veginn ókunnugir að
kjörborðinu að þessu sinni. Þeir
þekkja vel stefnur flokkanna í
foæjarmálunum og kunna full
skil á því, hvað á milli ber.
Flokkarnir eiga allir fulltrúa
í bæjarstjörn og hafa markað
þar stefnuna skýrt og gr'eini-
lega.
AðalátöMn í bæjarmálunum
milli Sjálfstæðisflokksins ann-
• arsvegar og hinna þriggja and-
sstöðuflokka hans hinsvegar
hafa jafnan verið á sviði fjár-
málanna. Stefna Sjálfstæðis-
i'lokksins hefir ætíð verið sú, að
gæta hófs í álagningu á skatt-
þegnana. Flokkurinn hefir
aldrei vikið frá þessari höfuð-
.stefnu sinni. Sjálfstæðisflokk-
urinn lítur svo á, að ef ein-
staklingurinn aflar meira fjár
þetta árið en hitt, þá sje fjeð
foetur komið í vörslu hans held-
ur en í bæjarsjóðnunj. Flokkur-
ínn veit, að haÁ leinhtakling-
urinn fje handa á milli og
írjálsræði til þess að nota það,
muni bæja/rf jelaginu verða
þess meiri not í auknum fram-
kvæmdum einstaklingsin^ ,og
nýju athafnalífi, heldur en þótt
foærinn sjálfur tæki fjeð og
ráðstafaði því. Beri því nú að
ieggja höfuðáherslu á það, að
foúa þannig í haginn, að blóm-
legt athafnalíf geti hafist í bæn
«m og haldist eftir stríðið.
Á þessu sviði hafa höfuðá-
tökin verið milli flokkanna í
foæjarstjórn Reykjavíkur. Þessi
.átök hafa verið sjerstaklega
hörð nú, vegna þess, að almenn-
ingur hefir nú meira fje handa
á milli en endranær. Andstæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins hafa
viljað ná þessu fje í bæjarsjóð-
ínn og láta bæjarstjórnina ráð-
stafa því. Þeir vildu því hækka
í-’tórkostlega álögurnar á bæj-
arbúa; töldu óforsvaranlegt að
nota ekki tækifærið nú, þar sem
almenningur hefði svo mikil
fjárráð.
Um þessar tvær höfuðstefn-
ur verður fyrst og fremst barist
við kosningarnar. Það er ekki
snýtt. Það hefir verið barist um
þær áður. Reykvíkingar hafa
þingað til fylgt stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Þeir munu gera
það enn.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
ið 1928. Hún hefir verið for-
maður í Sjálfstæðiskvennafje-
iaginu Hvöt, frá því það fjöl-
menna fjelag var stofnað. Kven
tjóðin í Reykjavík ber óbrigð-
ult traust til þessarar konu. Hún
er hagsýn kona og gætin í bæj-
armálum, lætur sjer ant um
hag þeirra er bágstaddir eru,
víðsýn og tillögugóð. Hafa
konurnar þar hinn besta mál-
tvara sem hún er. Varaformað-
ur Sjálfstæðiskvennafjelagsins
Hvöt, er Guðrún Guðlaugsdótt-
ir. Hún er áhugasöm kona og
einbeitt í málefnum flokksins.
Fulltrúi iðnstjettanna í bæj-
arstjóm er Helgi H. Eiríksson
Iðnskólastjóri. Hann hefir átt
sæti í bæjarstjórn síðustu 4 ár-
ir*. Hann er f jölfróðastur manna
um alt er að málefnum iðnað-
arins lýtur, og fylgir fast fram
hverju því máli, er snertir fram-
farir iðnaðarins í landinu. Helgi
hefir«„átt sæti í bæjarráði síðan
Guðmundur heitinn Eiríksson!
fell frá í sumar.
Gunnar Thoroddsen hefir
verið jafnlangi og Helgi í bæj-
arstjórn, var valinn á framboðs-
l'stann sem fulltrúi Heimdallar.
Gunnar er, sem kunnugt er,
einn glæsilegasti stjórnmála-
foringi í hópi ungra Sjálfstæð-
ismanna ,enda hefir hann haft
mörgum trúnaðarstörfum að
gegna fyrir flokkinn. Hann á
óskift traust allra ungra manna
•_r honum kynnast. í bæjarstjórn
hefir hann m. a. haft með hönd-
um ýms áhugamál íþrótta-
nanna.
Valtýr Stefánsson ritstjóri er
fjórði maður listans. Hann hef-
ir átt sæti í bæjarstjórn síðasta
kjörtímabil og fylgst með bæj-
armálum miklu íengur, pem
einn þeirra blaðamanna, sem
lengst hafa sótt fundi bæjar-
itjórnar, og túlkað hafa bæjar-
málin fvrir borgurunum.
Sigurðúd’ Sigurðsson skip-
stjóri var í 12. sæti á lista
flokksins 1938, en hefir að
jafnaði mætt á fundnm bæjar-
stjórnar síðastliðið kjörtímabil,
þegar hann hefir verið heima.
Sigurður skipstjóri er, eftir
langt skipstjórastarf, nákunn-
ugur öllum málum er að sjó-
sókn lýtur og rekstri útgerðar.
Hann er maður sjerlega athug-
' 11, og eiga sjómenr góðan full-
tiúa þar sem hann er ,enda má
fullyrða, að sjómenn bera óbil-
andi traust til hans.
Tveir ungir menn eru á fram-
boéslista Sjálfstæðismanna, sem
eigi hafa áður átt sæti í bæjar-
stjórn, þeilr Gunnar Þorsteins-
son og Gísli Gúðnason.
Gísli Guðnason er þar sem
íulltrúi málfundafjelagsins Óð-
ins, en það fjelag skipa verka-
menn er fylgja stefnu Sjálfstæð
isflokksins. Á síðasta kjörtíma-
bili hafa Sjálfstæðisverkamenn
ákipulagt fjelagssamtök sín,
* og hefir flokkurinn á þann
hátt aukist mjög fylgi meðal
verkamanna, sem best kom
stæðismenn stóðu að kalla ein-
ir, gegn samfylking vinstri
flokkanna, og fengu 719 at-
kvæði en hinir flokkarnir þrír
samanlagt ekki nema 354 at-
kvæðum meira, svo örugt er, að
Sjálfstæðisflokkurinn er nú
fjö'lmennastur í Dagsbrún, þó
nokkuð vanti á að hann einn
hafi þar meirihluta.
Gísli hefir stundað venjulega
verkamannavinnu hjer 1 bæ og
er nákunnugur kjörum og hög-
um verkalýðsins. Hann hefir
tekið mikinn þátt í f jelagsstarf-
semi Sjálfstæðisverkamanna og
bera þeir til hans mikið traust.
Gunnar Þorsteinsson lög-
fræðingur er borinn og barn-
fæddur Reykvíknigur. Hann er
frá barnæsku nákunnugur at-
vinnulífi hjer í bæ og með mál-
flutnþigsstöírfum Isínum hefir
hann getið sjer hinn besta orð-
stír. Gunnar nýtur trausts allra
þeirra, sem hann þekkja fyrir
frábæra samviskusemi og alúð,
er hann leggur við öll þau
störf, sem honum eru falin.
Gunnar er nú m. a. formaður
Fasteignafjelags Reykjavíkur.
Stefán A. Pálsson umboðs-
maður hefir í mörg undanfarin
ár verið meðal áhugamestu og
starfsömustu flokksmanna í
samtökum Sjálfsts^ðismanna.
hjer í bænum, gagnkunnugur
högum bæjarbúa og nýtur mik-
ils trausts meðal almennings.
Einar Erlendsson húsasmíða-
meistari dr einn af merkustu
iðnaðarmönnum bæjarins, sem
kunnugt er, Guðmundur Á-
gústsson stöðvarstjóri hjá Shell,
hefir urn langt skelð verið í
fulltrúaráði Sjálfstæðisflokks-
ins, og gegnt ýmsum trúnaðar-
störfum, Einar Ólafsson bóndi í
Lækjarhvammi, hefir um langt
skeið rekið búskap í stórum stíl,
og verið forvígismaður bænda i
nágrenni Reykjavíkur. Bjarni
Björnsson verslunarmaður, er
rúmlega tvítugur að aldri, einn
af efnilegustu mönnum Heim-
dallar, og Alfred Guðmunds-
son, ráðsmaður Dagsbrúnar,
hefir með starfi sínu í þeim fje-
lagsskap áunnið sjer mikilla
vinsælda og álits meðal verka-
manna fyrir árvekni sína og’
starfsáhuga.
Hjer skal stáðar huniið að
minnast einstakra manna, fram-
boðslistans. En hver maður sjer,
að val mannanna á lista þenna
er gert með það sjerstaklega
fyrir augum, að þar sjeu sam-
ankomnir menn, sem hafa náin
kynni af athafnalífi bæjar-
manna og lífskjörum, eru full-
trúar sem flestra stjetta, og-
samvaldir til þess að sjá hag-
einstaklinga og bæjarfjelags
borgið.
‘UR
m* -MF _
ÍDAGLEGA LIFINU
fram við síðustu stjórnarkosn-
ingar í Dagsbrún, þar sem Sjálf-
i:
Venjulega líta menn svo á, að töfl-
ur og tölur sjeu leiðinlegt lestrarefni.
Menn muna ekki tölurnar stundinni
lengur. Ekki þýði því að lesa þær. Þær
bripi úr minni manna jafnóðum.
Þetta er rjett. En töflur og tölur,
sem varpa Ijósi yfir efni, er manni
koma við, eru alt fyrir það skemtileg-
ar.
Sjaldan hefi jeg handleikið talna-
skýrslur, sem mjer þykir eins skemti-
legar og Árbók Rvíkurbæjar eftir dr.
Björn Björnsson. Þar er fróðleikur
um margt, sem fáir hafa hugsað út i,
að til væri töflur yfir. Menn geta haft
ánægju af þessum fróðleik, og rýnt i
töflurnar tímunum saman.
★
Fyrsta viðfangsefnið i bók þessari
er veðráttan hjer í Reykjavik, þetta
daglega umræðuefni manna. Ef hægt
væri að semja töflur yfir það, hvaða
efni oftast beri á góma hjer i bæ í
daglegu tali, þá er jeg alveg viss um
að veðrið fengi hæstu hlutfallstöluna.
En þó talað sje um veðrið árið um
kring, þá hafa fáir gert sjer það ó-
mak að leggja á minnið helstu með-
altals eða niðurstöðutölur um veðnð
í Reykjavík.
★
Yfirlitið i bók dr. Björns nær ekki
nema yfir árabilið frá 1920—1938.
Oft heyrist um það rætt, að veðrátt-
ar. hafi síðustu áratugina verið
hlýrri, er, tðkaðist á árum áður. Yf-
irlit þessara 19 ára sannar, að það
urutal er á rökum bygt.
Meðalhiti ársins hjer í Reykjavík,
frá því veðurathuganir hófust á öld-
inni sem leið, hefir reynst 3,9 stig á
celsíus. En öll árin frá 1921—’38 hef-
ir meðalhitinn verið meiri, hæstur
1933, 6,1 stig, en öll árin 1932—’38
yfir B stig.
Á veðurskýrslum frá Reykjavík,
þegar öll árin eru tekin, er meðalhita-
stigið undir frostmarki 4 mánuði árs-
ins, janúar, febrúar, mars og desem-
ber, og er meðaltalið í janúar og fe-
brúar 1,2 stig. En 18 árin 1921—’38,
er meðalhitinn í janúar fyrir ofan
frostmark, og hefir sá mánuður þó
verið kaldastur. Á þessum árum hefir
meðalhitinn í nóvember aðeins tvisv-
ar verið undir frostmarki og þrisvar
hefir desember verið svo kaldur, að
meðaltal mánaðarins hefir verið frost.
★
Svör við spurningunum í gær:
1. Hið mikla farþegaskip Titanic
fórst nálægt New Foundlandi árið
1912.
2. Sirkill, sem hefir óendanlega
langan radíus er beín lina.
3. Grátittlingsegg eru langtum
stærri en fílsegg.
4. Barónsstígur fjekk nafn sitt
eftir fjósi því, er „baróninn á Hvít-
árvöllum“ C. Gouldrée Boilleau bygði
um aldamótin.
5. Napoleon Bonaparte var um skeið
nefndur Fjólupabbi.
Spurningar:
1. HvaS er Nóastokkur?
2. Hvaða nám stundaði Jóhann
Sigurjónsson áSur en hann helgaði sig
ritstörfum ?
3. Hvernig er skrifuð ávísun upp á
11 þúsund 11 húndruð og 11 krónur?
4. Hver vann konungsglímuna á
Þingvöllum sumariS 1907?
5. HvaS er ,,ljósár“?
•Haldið
Churchill**
WASHINGTON í gær; — I
blaðinu „Washirigton Post“ birtist
í dag forustugrein með yfirskrift-
inni „Haldið Churchill“. í grein-
inni segir: „Þau tíðindi berast
okkur frá London, að við hjer í
Ameríku gerum okkur ekki nægi-
lega grein fyrir því, að sú hætta
vofir yfir, að Cburchill missi for-
sætisráðherraembætti sitt“. Ef
Churclíill yrði að fara „myndi það
auka á áhyggjur þær, sem lagst
liafa. á menn hjer í Bandaríkjun-
um, við það að Singapore fjell í
hendur Japönum“.
Enginn fær metið það, hvað
Churchill hefir gert fyrir Bretland
í Bandaríkjunum, segir blaðið.
Blað þetta, „'Washington Post“,
er eitt af áhrifamestu blöðunum
í Bandaríkjunum.
Gísli Sveinsson
kosinn forseti
sameinaðs þings
Afundi í sameinuðu þingi í
gær vár Gísli Sveinssost
kosinn forseti Alþingis með 16
atkv.; Haraldur Guðmundsson
hlatit 3 atkv., Magnús Jónsson 1,
e)i 18 seðlar voru auðir.
Fvrri varforseti Sþ. yar kjör-
inn Bjarni Ásgeirsson og annar
varaförseti Finnui’ JÓnsson.
Skrifarar: Jóhann Jósefsson og
Bjarni Bjarnason.
Kjörbrjefanefnd: Pjetur Otte-
sen, Emil Jónsson, Einar Árna-
son, Þorsteinn Þorsteinsson og
Bergur Jónsson.
KOSNINGAR
í DEILDUM
1 efri deild var Einar Árnason
kjörinn forseti; 1. varforsetí
Magnús Jónsson og 2. varaforseú
Sigurjón Á. Ólafsson.
Skrifarar Ed.: Bjarni Snæ-
björnsson og Páll Hermannsson.
í neðri deild var Jörundur Bryn
jólfsson kjörinn forseti; 1. vara-
forseti Emil Jónsson og 2. vara-
forseti Jón Pálmason.
Skrifarar Nd.: Eiríkur Einars-
son og Sveinbjörn Högnason.
★
Kl. l1/^ í dag verður fundur í
sameinuðu þingi og fer þar fram
kosning í fastauefndir. Að þeim
fundi loknum hefjast deildafund-
ir og þar verða einnig nefndar-
kosningar.
Útbýtt hefir verið einu þing-
skjali. Er það frv. til laga ura
gerðardóm í kaupgjalds- og verS-
lagsmálum — þ. e. staðfesting
bráðabirgðalaganna.
Húsmæðrafjelag Reykjavíknr
ætlar að halda mikla hlutaveltn
n. k. sunnudag. Fjelagskonur eru
beðnar að styrkja fjelagið me8
því að gefa muni á hlutaveltuna
og koma þeim til frú Jónínu Guð-
mundsdóttur, sími 4740 eða til
frú Kristínar Sigurðardóttur, sími
3607.