Morgunblaðið - 19.02.1942, Side 7
Fhntudagur 19. febr. 1942.
morgunblaðið
Urslitalsikir Sund-
knattlaiksmóts
Raykjavlkur I kvðld
Urslitaleikirnir í sundknatt-
leiksmeistaramóti Reykja-
víkur fara fram í kvöld í Sund-
höllinni. Keppendur eru A sveit-
ir Ármanns og Ægis, sem eru
taidar svo jafnar, að ómögulegt
er að segja fyrir um úrslitin.
Einnig keppa K.R. og B. sveit
Ármanns um 3. og 4. sæti. —
Kepnin er haldin til heiðurs ÍSÍ
þrítugu.
Kept verður um foi'kunnar-
fagran verðlaunagrip, sem
Trýggvi Ófeigsson skipstjóri
gaf til verðlauna í sundknatt-
leik, Verðlaunagripurinn heitir
,,Sundknattleiksmaðurinn“ og
er haglega gerður og skorinn í
amerískt birki af listamannin-
um Ágústi Sigmundssyni trje-
skurðarmeistara.
Erlingur Pálsson yfirlögreglu
þjónn og formaður Sundráðs
Reykjavíkur, hefir í þessu sem
öðrum sundmálum bæjarins
verið lífið og sálin í öllum fram-
förum og nýungum sundíþrótt-
arinnar. Hann skýrði svo frá í
<rær:
Árið 1940 ákvað Sundráðið að
meistarakepni í sundknattleik
skyldi fara fram hjer í Reykja-
vík. Fyrsta mótið fór fram í
fyrravetúr og fóru leíkar þá
svo, að úrvalssveit Ármanns
sigraði. Gripurinn góði var þá
ekki tilbúinn og því ekki hægt
að afhenda hann.
Nú taka, 5 sundknattleiks-
flokkar þátt í kepninni: A og B
sveitir Ármanns og Ægis og
sveit frá K.R. 7 leikjum er þeg-
ar lokið og hafa leikar farið
þannig:
1. leikur, Ægir A og B: 7:3.
2. leikur Ármann A ogB: 7:0
3. leikur Ægir A og K.R.:
6:0.
4. leikur Ármann A og K.R.
7:1.
5. leikur Ármann B og Ægir
B: Ægir gaf leikinn.
6. leikur K.R. Ægir B: 5:0.
7. leikur Ægir A og Ármann
B: 7:0.
í kvöld verður einnig kept í
100 m. bringusundi karla, 50
m. bringusundi drengja innan
16 ára og 50 m. skriðsundi
drengja innan 16 ára.
Framför mikil hefir orðið
undanfarin ár í sundíþróttinni
hjer í bæ og er víst að kepnin i
kvöld verður mjög spennandj'
og Skemtileg og ekki nokkur
vafi á að'Suhdhöllin verður þjett
skipuð áhorfendum.
Verðlaunagripurinn verður
1 il sýnis í glugga Morgunblaðs-
ins í dag. í reglugerð um grip-
inn segir m. a. svo, að hann
skuli vinna 7 sinnum í röð til
eignar, eða 10 sinnum alls,
enda er þetta hinn dýrasti grip-
ur, sém hverju fjelagi mun leika
hugur á að vinna. Verðlauna-
gripurinn er sjerstakur að því
leyti, að hann er táknrænt
merkfi, suj'ndknattleiksinsi, ein
lifandi hreyfing úr leiknum,
þar sem sundmaður er að
mynda sig til að kasta á mark.
Ðagbók
Frím.’. □ 59422206 — Systra-
kvöld að Hótel Borg. Listi í □
og hjá S.". M. ’.
I. O. O. F. 5= 1232198‘/2 = 9. 0.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12,
Næturvörður er í Revkjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Áttræð er í dag 'Guðrún Ólafs-
dóttir frá Nxipi undir Eyjafjöll-
um, nú til heimilis á Egilsgötu 16.
Halldór Sigurðsson úrsmiður,
Laufásveg 47. átti 65 ára afmæli
í gær. Halldór er vinsæll og vel-
látinn maður af öllum þeiiu mörgu
sem til bans þekkja, enda dreng-
skaparmaður mikill.
Innbrot var framið í fyrrinótt
í sælgætisbúð við Sundlaugarnar
og stolið þar sælgæti um 80 kr.
virði. Málið er í rannsókn.
Nýjar bækur. Tvær nýjar bæk-
ur hafa komið út, síðustu daga.
Eðlisfræði banda unglinga- og
gágnfræðaskólum, eftir Jón Á.
Bjarnason verkfræðing, og María
Stúart éftir Stefan Zweig. Stefan
Zweig er orðint^ kunnur hjer á
landi, því að nokkrar af bestu
bókum hans eru áður komnar í
íslenskri þýðingu. Má þar meðal
annars nefna Maríu Ántoinetfu,
sein kom út 1940, og bókina um
Magellan, Hinn heimákunna land-
könnuð. María Stúart er af mörg-
um talin besta verk Zweigs, og er
ánægjulegt til þess að vita, að
bókin er nú komin í íslenskri þýð-
ingu.
Háskólafyrirlestur. Símon .1 óh.
Ágústsson flvtjir fyrirlestur í dag
kl. 6,15 í T. kenslustofu háskólans.
Efni: Andleg heilsuvernd. Ollum
beimill aðgangur.
Tilkynning frá Rauða krossi ís-
lands. í brjefi frá alþjóðánefnd
Rauða krossins dags. 13. jan; 1942
er sú ósk látin í Ijós, að allir
starfsmenn Rauða. kross fjelaga
beri vegabrjef er sýni. að þeir
vinni, að hjálparstörfum í þágu
fjelaganna. Eru þessi tilmæli kom-
in fram vegna þess að fyrir kem
ur að hjálparliðar eru kvrsettir
af hernaðariljum vegna þess að
þeir geta ekki sannað að þeir
vinni á vegum R. K., en skv. 12.
gr. í Genfersamþ. eru allar R. K.
hjálparsveitir friðhelgar. Nú er
öllum Reykvíkingum skylt að
bera vegabrjef, en óþægilegt er
að bera mörg slík plögg á sjer að
staðaldri og hefir því orðið að
samkomulagi milli R. K. f. og lög-
reglustjóra að hin almennu vega-
brjef'sem meðlimir hjálparsveit
anna fá, verði stimpluð og t.ölu-
sett á sjerstakan hátt, til viðbótar
því sem gert er við vegabrjef
borgara og tryggja þau þar með
friðhelgi rjettra handhafa í starfi’
sínu. Þeir úr hjálparsveitum R. K.
L, sem ekki hafa sótt vegabrjef
sín, fá þan úr garði gerð eins og
þau eiga að vera, en hinir, sem
þegar hafa fengið þau, eru vin-
samlega beðnir að framvísa þeim
á lögreglustöðinni og fá viðbót-
arst.implun ög skrásetningu.
Stjórn Rauða kross Íslands.
Háskólakapellan. Gjöf frá S. S.
greiðsla frá N. \.: 5—6 ár. kr.
50.00. Þakkir. M. J.
Ctvarpið í dag:
12.15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegistónleikar.
18.30 Dönskukensla, 2. fl.
19.00 Ensknkensla, 1. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Trúin á ofstækið
OGrjetar Fella).
20.55 Útvarpshljómsyeitin : Laga-
syrpa eftir Schumann.
21.15 Minnisverð t.íðirfdi (Jón
Magnússon fil. kand.).
21.35 Hljómplötur ; Andleg tónlist
Brunaútsalaii
frá Lífstykkjabúðinuí, Hafnar-
stræti 11 í Slippbúðinni við Ægis-
götu, er í fullum gangi.
SIGLINGAR
milli Bretlanda og Islands halda áfram,
eins og að imdanförnu. Höfum 3—4
gkip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Culliford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, PLEETWOOD.
Sjómenn
Stýrimannaskólinn í Reykjavík er orðinn fimtugur.
Af því tilefni hefir Einar Jónsson magister samið prýði-
legt minningarrit um skólann. Ritið er skemtilega samið
og prýtt myndum. En aftan við það er stýrimannatal
1891—1941. Er það skrá yfir alla þá, er lokið hafa próf-
um við skólann á þessu tímabili.
Sjómenn! Lesið minningarritið. Þið þurfið að vita
deili á sögu þeirrar stofnunar, sem býr ykkur undir lífs-
baráttuna.
Ritið fæst í öllum bókaverslunum.
BÓKAYERSLUN ÍSAFOLDAR.
Hðfum fengið
ADdlifs-púðnf — Varalit
Ki n vxalftf
Björgunarteppi
í grænbláu hlífðarsegli, tapaðist af bifreið slökkvi-
liðsins, að kveldi föstudagsins 13. febrúar. við horn-
ið á Reynimel eða þaðan að Slökkvistöðinni.
Sá sem hirti teppið, er vinsamlega beðinn að skila
því tafarlaust á Slökkvistöðina gegn ómakslaunum.
Það tilkjmnist vinum og vandamönnnm, að
ÁSTHILDUR HREIÐARSDÓTTIR
frá Fíflholti, andaðist á sjúkrahúsi 17. þ. mán.
Aðstandendur.
Bróðir okkar, <
ÞÓRARINN ARNÓRSSON,
andaðist 18. þ. mán.
F. h. systkinanna.
Halldór Axnórsson.
Maðurinn minn,
VILHJÁLMUR VIGFÚSSON,
verður jarðsunginn föstudaginn 20. þ. m. Athöfnin hefst að
Elliheimilinu Grund kl. 12 á hádegi. Athöfninni í kirkjmini
verðnr útvarpað.
Fyrir mína hönd og bamanna. • ’
Þórdís Þorsteinsdóttir.
)Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför mannsins míns, föður og tengdaföður okkar, 1
JÓNS BRYNJÓLFSSONAR kaupm.
Gnðrún J. Brynjólfsson, börn og tengdabörn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
jarðarför
GUÐRÚNAR BALDVINSDÓTTUR frá Siglufirði.
Börn og tengdabörn.
Öllum þeim, er sýndu okkur hluttekningu við fráfall og
jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
GUÐRÚNAR BJARGAR JÓNSDÓTTUR,
vottum við okkar innilegasta þakklæti.
Bjarni Jónsson og synir.
ri
|
j-i
il