Morgunblaðið - 24.03.1942, Qupperneq 3
Þriðjudagur 24. mars 1942.
MORGUNBl. AÐIÐ
3
er „bannsvæði"
Samningaumleitaðir
smábátaeigenda
við setuliðið
Smábátaeigendiir við Skerja-
fjörð geta ekki róið til fiskj-
ar á Skerjafirði eins og er vegna
þess, að hernaðaryfirvöldin hafa
lýst Skerjafjörð sem „bannsvæði".
Én samningaumleitanir fara nú
fram milli setuliðsstjórnarinnar
amerísku og formanris bátafjelags-
ins „Björg“ um þessi mál. Ríkis-
stjórnin mun einnig hafa þetta
xriál til athugunar.
Pörmaður Bátafjelagsins Björg
er Henrik Ottósson. Hann átti s.l.
Jaugardag tal við fulltrúa frá
áíriéríáku herstjórninni, Sagði
hann blaðinu, að fulltrúar Banda-
ríbjahers liefðu tekíð málaleitun
sinábátaeigénda vel og með vin-
semd. f>eir skildu vel erfiðleika
þá, sem lokun Skerjafjarðar skap-
aði smábátaeigendum. Samninga-
um'Jeitunum er ekki Jokið og á
meðan
má enginn bátur fara á sjó á
Skerjafirði.
Formaður „Bjargar" ságoíst
hafa góða von um að mál þetta
leystíst á þann hátt, sem báðir
mættu vel við una.
Það er milli 20 og 30 srnábát-
ar víð Skerjafjörð og alger lokun
fjarðarins myndi hafa hinar
vérstu afleiðingar fyrir aí'komu
manna, sem eiga báta við fjÖrðinn.
Einkum er lökuri fjarðarins baga-
leg nu, er hrognkelsaveiðitíminn
fer í hönd.
í fyrra fengu smábátaéigendur
að róa til fiskjar við Skerjafjörð,
en u.rðn að hJýta vissum reglum.
-AOvörun til almennings—
frá ríkissfjórninni
Samkvæmt ósk foringja setuliðs Bandaríkj-
anna hjer, skal athygli alnrennings leidd að því,
er hjer fer á eftir, um skyldur hermanna á verði.
Skylclur herrnanna á vérði:
Til þess að öllum megi skilj- mannvirkjum eða tækjum.
ast, hve mikjlvægt er og nauð-
synlegt að hlýða fyrirmælum
þeim, sem gefin eru af her-
mönnum á verði, skulu eftir-
fárandi upplýsingar gefnar:
Þegar leið liggur inn í her-
mannabúðir og að hemaðar-
mannvirkjum, eru fyrir greini-
leg aðvörunarmerki á ensku
og íslensku, þar sem greint er
frá, að vopnaðir varðmenn sjeu
á verði. Samkvæmt lögum er
það á ábyrgð varðmanns, að
hann framkvæmi skyldustörf
sín fljótt og nákvæmlega, og
er um hemað er að ræða, get-
ur hann átt á hættu að verða
tekinn af lífi, samkvæmt dómi
herrjettar, ef hann gerir sig
sekan um vanrækslu í skyldu-
störfum sínum. Komast mætti
þannig að orði, að hermaður
sá, sem er á verði sje hið vak-
andi auga herbúðar sinnar. —
Hann verður að vera viðbúinn
því, að ekki sje komið að hon-
um að óvörum, og vera stöðugt
á varðbergi gegn þeim, sem
kynnu að vilja komast hjá því,
að hann taki eftir þeim. Hann
verður að hafa það hugfast, að
óvinir geta hafa komið úr lofti,
Aldrei má hann víkja af verði,
hvemig sem veður er og hvað
sem líður aðbúnaði hans sjálfs,
jafnvel þótt hann, ef því er að
skifta, eigi á hættu að verða
fyrir skothríð óvinanna. Ef
hann bregst skyldu sinni og
einhver sleppur framhjá hon-
um í heimildarleysi, á varð-
maðurinn á hættu að sæta
þungri refsingu fyrir van-
rækslu á hinni afarmikilvægu
skyldu sinni, án þess að að því
sje spurt, hver ástæðan hafi
verið, eða hverja afsökun*
hann hafi fram að færa.
*
Oft hafa menn, sem enga
heimild hafa til þess haft,
komist inn í herbúðimar og
getað nálgast mikilvæg hem-
aðarleg mannvirki. Ekki sjald-
an hafa þessir menn komist
undan, vegna þess að varð-
maður hefir hikað við að
skjóta á þá, er honum hefir
verið ókunnugt um, hverjir
þeir væru. Með þessu móti hef-
ir öryggi og vöm herliðsins og
islands sjálfs verið stofnað í
hættu á alvarlegan hátt. Því
miður hafa saklausir
menn,
oft vel dulbúnir, með þeim bæði óbreyttir borgarar og
fasta ásetningi að afla sjer hermenn, særst eða látið lífið
mikilvægra hernaðarlegra upp nýlega af völdum varðmanna,
lýsinga, eða til þess að vinma sem hafa verið að framkvæma
óbætanlegt t jón á hemaðar- skipanir, er þeir verða að hlýða
við framkvæmd skyldustarfa
sinna. Það er ekki síður ástæða
til að harma þetta, þar sem
hemaðaryfirvöldin hafa það
hugfast, að Islendingar hafa
verið óvopnaðir svo öldum
skiftir og eru óvanir heraaðar-
aga. Vegna þessa og vegna
hinna hörmulega slysa ér orð-
ið hafa, skora hemaðaryfir-
völdin á almenning að sýna
skilning á skýringu þeirri, sem
hjer hefir verið gefin, og að
veita samstarf öllum þeim her-
mönnum, sem á verði eru, við
framkvæmd hins erfiða vemd-
arhlutverks þeirra.
*
Allar skynsamlegar ráðstaf-
anir, sem ekki koma í bága
við hemaðamauðsyn, eru
gerðar til þess að koma í veg
fyrir, að saklausir menn verði
fyrir slysum. Er maður fær
skipun um að nema staðar,
verður hann að nema staðar
þegar í stað og víkja ekki úr
stað, fyr en honum eru gefin
fyrirmæíi eða merki um að
halda áfram. — Ef óbreyttum
borgara er ekki fyllilega ljóst,
hvemig honum beri að haga
sjer á leið inn í herbúðir, eða
þegar hann er þangað kominn
ber honum að bíða hjá varð-
manní og fara þess á leit, að
sóttur sje liðsforingi sá, sem á
verði er (Officer of the Day).
STJÓRNMÁLAS AMBAN D
PÁFAGARÐS OG JAPAN.
WASHINGTON í gær: — Páfa-
ríkið hefir ákveðið að taka
epp stjórnmálasamband við
.lapan, þrátt fýrir mótmæli, er
stjórnir Bretlands og Banda-
ríkjanna hafa lagt fram gegn
þessari fyrirætlan í páfagarði.
Matzuoka, fyrverandi utan-
ríkismálaráðherra Japana verð
ur sendiherra þeirra í Páfarík-
inu, en Morello kardináli, sem
nú dvelur í Tokio, verður skip-
aður sendiboði páfa þar.
— Reuter.
Hrakningar siglfirskra
fiskibáta
UM 14 smábátar — flestir
trillubátar — frá Siglu-
firði, lentu í vestanstormi, er
þeir voru í róðri á sunnudag.
Voru sendir þrír stærri bátar til
að aðstoða þá ef með þyrfti. —
Eru allir bátarnir komnir ,til
hafnar heilu óg höldnu.
Einn báturinn .,Bjarmi“ S. í.
82, var ekki kominn til Siglu-
fjarðar í gærmorgun og var
farið að óttast um hann. En um
hádegi 1 gær bárust frjettir um
að hann befði náð höfn í Flatey
á Skjálfanda.
;,Iljarmi“ er uú kominn til
Siglufjarðar.
Harðnandi um-
ræður á Alþingi
um kosninga-
fyrirkomuiagið
• .
UMRÆÐUR hjeldu áfram í neðri deild í gær
um stjórnarskrárbreytinguna varðandi kosn-
ingafyrirkomulagið og voru nú miklu harð-
ari en undanfarið.
Til máls tóku Sveinbjöm Högnason, Jón Pálmason, Sigurður
Kristjánsson og Hermann Jónasson.
Sveinbjörn andmælti frumvarp
inu, sjerstaklega því höfuðákvæði
Þetta er útlitsuppdráttur af hinum fyrirhugaða sjómannaskóla samkvæmt teikningu arki-
tektanna Sigurðar Guðmundssonar og Eiríks Einarssonar. Þeir hlutu II. verðlaun í hugmyndakepn
inni um uppdrætti að Sjómannaskóla í Reykjavik. Engin I. verðlaun vorn veitt.
þess, að hafa hlutfallskosningar í
tvímenningskjördæmum. Með
þessu kosningafyrirkomulagi væri
sagt við kjósendur í tvímennings-
kjördæmunum: Þið, sem ebki
viljið kjósa mig,! skuluð samt
koma mjer inn í þingið. M. ö. o.
flokkar, sem ekki hefðu fylgi í
kjördæmunum, vildu þvinga kjör-
dæmin til þess að senda menn inn
í þingið, sem ekki hefðu neitt
fylgi í kjördæminu.
Þessi rök Svhj. H. eru vita-
skuld fráleit í Jandi, þar sem
rjettur minnihlutans er ekki með
öllu fyrir borð borinn.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐlT
Þrjð menn teknr
út nf bát vlO
SandgerOi
Frækileg björgun
tveggja manna
DAÐ hörmulega slys vildi til
í Sandgerði á sunnudag, að
þrjá menn tók út af vjeíbátnum
„Brynjari“ frá Ólafsfirði. Voru
þeir allir ofanþilja. Tveir menn
sem voru undir þiljum, björguð-
ust nauðulega yfir í annan bát.
Var kastað til þeirra Iínu og
voru mennimir síðan dregnir
milli bátanna.
Þeir, sem drukknuðu, voru:
Gunnlaugur Friðriksson, skip-
stjóri, kvæntur og átti eitt barn.
Jón Þ. Björnsson, háseti. Kvænt
ur og átti eitt barn og Mikael
Guðmundsson. haseti, ókvænt-
ur. \
Þeir, sem af komust, voru
vjelamaður bátsins, Sigurjón
Jónasson og Óskar Karlsson há-
seti.
Slysið varð klukkan 3,45 á
sunnudag, rjett við Sundið við
innsiglinguna í Sandgerði. —
Stormur var og ósjór eftir því.
Kom tvisvar sinnur ólag á
„Brynjar“. Fyrra ólagið reið
aftan á bátinn. en hitt á ská á
stjórnborða. Stýrishús bátsins
brotnaði og aftur mastur og
fleiri skemdir urðu á bátnum.
Þeir, sem björguðust eru viss-
ir um að bátnum hafi aldrei
hvolft, eins og ranglega hefir
verið skýrt frá í blaði.
,,Brynjar“ náðist, er hann var
að reka á land. Voru það skip-
verjar af vjelbátnum „Jórij
Dan“, sem tókst að koma tveim
mönunm um borð í bátinn, og
koma streng í hann og draga til
hafnar. Formaður á „Jóni Dan“
er Axel Pálssdn.
VJELAMAÐUR
Á „BRYNJARI“ SEGIR FRÁ
Sigurjón Jónasson vjelamaður
á „Brynjari“ segir svo frá þessu
hörmulega slysi í viðtali við
Morgunblaðið.
— Við Óskar Karlsson háseti
vorum báðir undir þiljum, er
ólögin rjeðu yfir bátinn. Óskar
var í hásetaklefa fram í, en jeg
var í vjelarrúmi. Okkur er því
ekki vel kunnugt um hvar fje-
lagar okkar voru staddir ofan-
þilja, nema að Gunnlaugur skip
stjóri var í stýrishúsi.
Eftir að seinna ólagið reið yi~
3r bátinn, komum við upp. Var
vjel bátsins þá enn í gangi og
stýrið í lagi, en línan hafði lent
í skrúfunni. Tókst að snúa
bátnum upp í vindinn og sigld-
um á móti til hafs. Var vjelin
í gangi í 20 mínútur, eða þar
til skömmu áður en við yfirgáf-
um bátinn.
FRÆKILEG BJÖRGUN
Sigurjón vjelamaður rómar
mjög framkomu skipverja á vjel
bátnum „Þráinn“ frá Norðfirði,
sem björguðu honum og Óskari.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU