Morgunblaðið - 29.11.1942, Qupperneq 3
Stmnudagur 29. nóv. 1942.
MORGUNBLAÐIÐ
I
Oðnægja með íiskdreifinguna i Bretlandi
Bresk blöð ræöa
stöðvun Isl.
togaranna
Bresk blöð, sem MorgunblaS-
inu bafa borist úrklippur
ár ræða um þá kröfu matvælaráðu
neytisius breska að íslensku tog-
ararnir sigli með fisk sinn til
kafna á austurströnd Englands.
(rManchester Daily Herald“ seg-
ir undir fyrirsögninni ' „Nýskipun
getur haft ábrif á fiskbirgðir11:
„Matvælaráðuneytið hefir fyrir-
skipað nokkrum íslensku tognrun-
tim, sem í 'langan tíma hafa land-
áð miklurn fiskbirgðum í höfn á
vésturströndinni, að landa fiski
síniiin framvegis á tveiniur höfn-
iim á a;nsturströndmni“.
„Eu íslensku fiskimennirnir hafa
mótmæit breytingunni og lýst yfir
því að þeir muni ekki undir nein-
um kringumstæðum fara til hafna
á austurströndinni“.
„Nýskipanin getur haft þær áf-
leiðingar, að Islendingar fari með
allan sinn fisk til heimahafna, eða
þá að þeir hætti að flytja fisk til
Englands og senda veiði sína með
flutningaskiþ.um, sem ekki þurfa
að skipta sjer af nýskipaninni.
Beinni íeíðin myndi tefja fisk-
flutninga“.
„Daily Sketch“ segir frá því,
að ráð Iandssambands fisksala í
Englandi hafí sent. Woolton mat-
vælaráðherra. eítiríarandi skeyti í
tilefni af nýskípan lians í fisk-
sölumálunum:
„Állar, skýrslur benda til þess
að hin uýja sölumiðstöðva skift-
ing hafi algjörlega mishepnast.
Birgðaskiftingin hefir mistekist.
Yfrivnóg á sumum stöðum en ekk
ert til á öðrum. Þúsundir fisk-
lniða fisklausar“.
Blaðið gerir enga athugasemd
við þessa frjett.
f
%
I
I
£
t
t
t
t
t
y
t
t
t
t
♦>
I
1 Til minningar um franska sjómenn
i
I
1
t
1
|
t
¥
I
I
I
S
I
í gærmorgun kl. 9 var einnrar mínútu þögn í franska flotanum, sem er á valdi stríðandi Prakka
til mínningar um frönsku sjómennina, sem fórust með herskipum í Toulon. Myndin er tekin
um borð í frönsku herskipi þegar verið er að draga fánann að hún.
Pjetur Benediktsson
talar í breska útvarpið
PJETUR BENEDIKTSSON
sendiherra Islands í
London, mun tala í útvarpið
í London í hinum íslenska dag-*
skrárlið þess á morgunn, mánu
daginn 30. þ. m.
Talar hann þar í sambandi
við fullveldisdaginn, og mun
flytja kveðjur heim til íslands.
Útvarpað verður kl. 3,45 á
24,8 metra öldulengd.
****4*44**4**»*,4*****»*****«**«*****«*í**«M*,**MJK***M**,I*4t”«********t
1068 fjelagar í
Verslunarmanna-
fjelagi Reykja-
víkur
Nordahl Grieg
boðið tíl
Sviþióðar
HIÐ mikilsvirta skáld Norð-
manna, Nordahl Grieg,
er fegurstu ættjarðarkvæði
og hvatningaljóð hefir ort fyr-
ir þjóð sína, síðan Norðmenn
lentu í styrjöldinni, hefir feng-i
ið ítrekuð tilmæli frá Svíþjóð
um að koma þangað, og halda
þar fyrirlestra og kynna Svíum
kvæði sín.
Nordahl Grieg er í norska
hernum hjer á landi. Hefir
hann því miður ekki getað
tekið þessu virðulega og vin-,
gjarnlega boði Svía, vegna þess
að hann getur ekki horfið frá
skyldustörfum sínum í hemum.
VEGNA hins mikla
kostnaðarauka við
blaðaútgáfu, sem orðin er,
og stafar af hækkun vinnu
launa og pappírsverðs
hafa útgefendur Morgun-
blaðsins ákveðið að hækka
áskriftagjald blaðsins frá
næstu mánaöamótum um
eina krónu á mánuði í
kr. 6. —
Hafa útgefendur þeirra
blaða, sem koma hjer út
á morgnana, komið sjer
saman um þessa verðhækk
un Er hún, að því er Mong
unblaðið snertir enganveg
in eins mikil, eins og hækk
un sú, sem orðið hefir á
útgáfukostnaði blaðsins.
Gliufciiill ílytur ræðu
í kvóld
CHURCHILL forsætísráS-i
herra Breta mun flytja
útvarpsræðu í kvöld kl. 7 eftir
íslenskum tíma. — Ræðunni
verður útvarpað um allar bresk
ar stöðvar.
AÐALFUNDUR Verslunar-
mannafjelags Reykjavík
ur var haldinn í fyrrakvöld í
Fjelagsheimilinu. —
j Var fúndurinn fjölsóttur og
fór vel fram. Adolf Björnsson
var fundárstjóri. Fráfarandi
, formaður, Egill Guttormsson
gaf skýrslu um starf fjelags-
ins á liðnu ári. Margir almenn-
ir íjelagsfundir voru haldnir
á árinu. 35 stjórnarfundir og
15 skemtifundír. Margir nýir
fjelagar hafa gengið í fjelagið
á árinu og eru nú 1068.
| Stefán Björnsson gjaldkeri
fjelagsins gaf skýrslu um hag
V. R, Fjelagið á nú 150 þúsund
kr. skuldlausar eignir og höfðu
eignir fjelagsins aukist um
33,5 þúsund á árinu.
í stjórn voru kosnir: Hjörtur
Hansson formaður og meðstjórn
endur Bergþór Þorvaldsson,
Lárus Blöndal Guðmundsson og
Konráð Gíslason. Fyrir voru í
stjórninni: Adolf Björnsson,
Stefán Björnsson og Sveinn
Helgason.
Endurkosnir voru í húsnefnd
Frímann Ólafsson, Sigurður
Árnason, Tómas Pjetursson,
Ásgeir Bjarnason og Eyjólfur
Jóhannsson. Ýmsar fleiri nefnd
ir voru kosnar.
Skaftfellingafjelagið biður þá,
sem enn eiga eftir að gera skil
fyrir sölu á happdrættismiðum sr.
Jóns Steingrímssonar sjóðsins vin
samlegast að gera það nú þegar,
með því að dregið verður 2. des.
tslenskur flugkspteinn
i Amerlku
Frá frjettaritara vorum
• á Akureyri.
TVf ýlega hafa borist hingað
* frjettir af Jóhannesi Snonra-
syni, flugmanni.
Jóhannes er sonur Snorra Big-
fússonar, skólastjóra á Aknreyri.
Hann fór vestur til flugnáms við
flngskóla Konna Jóhonnessonar í
Winnipeg vorið 1941 og lauk þar
farþegaflugmannsprófi síðastlið-
ið vor með ágætiseinkunn. Að
námi loknu rjeðist hann sem flug-
kénnari við flugskólann í Regina
í Sáskátchewan og starfaði þar í
sumar við þjálfun flugnema, en
áður hafði hann. lokið tveimur
viðbótarprófum, einnig með ágæt-
iseinkunn.
Jóhannes fluttist svo með skól-
anum vestur í Pierce í Kanada í
septembermánuði og mun starfa
þar í vetur AÚð að þjálfa flug-
nema fyrir herinn. Hann hefir ver-
ið sæmdur flugkapteinsnafnbót og
unnið sjer hið besta. orð fyrir
dugnað og áreiðanleik sem flug-
maður.
„Þorlákur þreytti
i Hafnarfirði
T eikflokkur Hafnarfjarðar ætl
ar að leika 'gamanleikinn
„Þorlák þreytta“ á - næstunni og
verðnr frumsýning í kvöld.
Aðalleikari verður Haraldur Á.
Sigurðsson, sem leikið hefir „Þor-
lák þreytta“ víða. um land undan-
farin ár og er Þorlákur eitt af
bestu hlutverkum Haraldar, sem
knnnugt er. Ault Haraldar leikur
Emilía Jónasdóttir sem gestur í
„Þorláki“.
Frú Roosevelt
talar I útvarp tll
Islands I. des.
C RÚ ELANOR ROOSEVELT
* kona forsetans heldur
eina af aðalræðunum í útvarpi
til íslands frá Bandaríkjunum
1. desember n. k. Er dagskrá
þessi í tilefni af fullYeldisdegi
íslands.
Auk frú Roosevelt mun ThOr
Thors sendiherra halda ræðu
og hinn heimsfrægi landkönn-
uður og rithöfundur Vilhjálmur
Stefánsson og öldungardeildar-
þingmaðurinn Elbert Thomas
frá Utha, formaður fræðslu-
og atvinnunefndar öldunga-
deildarinnar, munu og halda
ræður.
Dagskránni verður útvarpað
gegnum stöðina WBOS í Bostoh
og hefst kl. 6 eftir íslenskum
tíma. Reynt verður að endur-
varpa dagskránni gegnum
Reykjavíkur stöðina.
y
❖
'} •>
15 ára afmæli
Ferðaljelagslns
F YRR A KV ÖLD minntist
^ stjórn Ferðafjelags ís-<
lands 15 ára afmælis fjelagsins
með því að koma saman í OddT
fellowhúsinu. Bauð hún þang-
að með sjer tveim fyrv. forset-
um fjelagsins, þeim Birni Ól-
afssyni og Gunnlaugi Einars-
syni og ennfremur frjettaritur-
um blaðanna. — Var þar
góður fagnaður fram á nótt
og mátti heyra á stjórninni,
að mikill hugur var í henni að
efla Ferðafjelagið sem mest
á komandi árum. Er hún sje
þess og fyllilega meðvitandi,
að mörg og margvísleg vanda-
söm og kostnaðarsöm verkefni
bíða hennar. og flest þeirra
þegar aðkallandi.
Þar á meðal má nefna sælu-
húsabygginguna, að fjelagið
eignist svonefnda almennings-
bíla til langferða, og leyst verði
þau vandkvæði, sem nú eru á
um, gististaði víðsvegar um
land, að leiðbeina erlenduxn
ferðaxnönnum og hafa land-
kynningu út á við með höndum
o. m. m. fl. —- Að sjálfsögðu
verður og kappkostað að vinna
að því marki að gera Ferðafje-
lagið að „fjelagi allra lands-
manna“ og gera Árbækurnar,
hið merkilega landfræðirit, enn
fullkomnara. Má geta þess að
nú þegar munu þrjár Árbæk-
ur vera í smíðum og jafnvel
lögð drög að fleiri.
Það voru sjö menn, aem
unnu að stofnun Ferðafjelags-
ins fyrir 15 árum. Nú eru fje-
lagsmenn rúmlega 4000 og
fjölgar óðum, enda er stór->
gróði að því fyrir hvern mann
að vera í fjelaginu, þegar tekið
er tillit til þess að hann fær
Árbókina ókeypis.