Morgunblaðið - 20.12.1942, Side 7
Suimudagur 20. des. 1942.
MORGUNBLAÐIÐ
I
Dýrtíðarmálin rædd á þingi
FKAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
sala bak við lögin — hvað ætl-
ar stjórnin að gera til þess að
hindra slíkt?
4. Er ekki hætta á, að fraín-
leiðsla á innlendri iðnaðarvöru
stöðvist?
Eysteinn Jónsson: í þessu
frumvarpi er eitt verulegt ný-
inæli, það, að stjórnin fái heim-
ild til að hindra verðbreyting-
ar — þ. e. stöðva verðlagið eins
og það er í dag. Framsóknar-
flokkurinn telur þetta spor í
rjetta átt og styður frumvarp-
ið.
Ólafur Thors: Innan Sjálf-
stæðisfl. er almenn sú skoðun,
að þetta frumvarp muni reyn-
ast mjög lítilvirkt til úrbóta á
því böli, sem því er ætlað að
ráða bót á. Auk þess eru í frv.
ákvæði, sem erfitt er að sætta
sig við.
Eins og öllum er kunnugt,
ræður verð á innlendum afurð-
um og kaupgjald muestu um
vísitöluna. Samkv. frumvarpinu
er leyfilegt að þessar vörur
hækki í verði, enda þótt engar
sannanir liggi fyrir um ’það, að
þetta sje nauðsynlegt. Hins-
vegar er svo fyrir mælt í frumv.
að erlendar vörur, sem miklu
minna ráða um vísitöluna megi
ekki hækka í verði, enda þótt
sannað sje rjettmæti hækkun-
arinnar. Þetta er órökrjett hugs
un.
Bn nú upplýsir stjórnin, áð
hún telji sig geta ábyrgst, að
innlenda varan hækki ekki, og
að til sjeu í landinu nægar
vörubirgðir, keyptar með því
verðlagi, er nú liggur til grund-
vallar fyrir útsöluverði var-
anna svo að örugt megi telja
að enginn verulegur skaði hljót
ist af banni við verðhækkun.
— Hvorttveggja þetta styrkir
mjög fyrirmæli frumvarpsins.
Stjórnin telur sig að sönnu
ekki geta trygt, að kaupgjald
haldist óbreytt, en telur að því
megi treysta.
Með alt þetta í huga og því
viðbættu, að stjórnin sjálf tel-
ur mjög þýðingarmikið að þetta
fyrsta spor hennar á hinni örð-
ugu göngu, sem framundan er,
takist vel, hefi jeg innan Sjálf-
stæðisflokksins lagt til, að
flokkurinn sýni samúð sína með
frumvarpinu og greiði atkvæði
með því, þó að sjálfsögðu ein-
staka þingmenn hafi þar ó-
bundnar hendur.
RÁÐHERRA SVARAR
Björn Ólafsson fjármálaráð-
herra svaraði nú ýmsu, er fram
kom í ræðum talsmanna flokk-c
anna.
Fyrirspurnum E. O. svaraði
ráðherrann þannig, að ^tjórnin
teldi enga hættu á verðhækk-
un nauðsynja fyrst um sinn. í
landinu væru nú 4—6 mánaða
birgðir nauðsynja og væri ljóst
að þær hækkuðu ekki í verði
þó verðinu væri haldið föstu í
tvo mánuði. Væri því útilokað
að kaupmenn neituðu að selja
vörur. Hvað olíuna snerti, væri
stjórnin að athuga það mál
sjerstaklega, og líkur til að úr
rættist,. — Sá ótti, að vörur
yrðu ekki pantaðar, væri á-.
stæðulaus. Skipakostur væri
þannig, að ekki hefði verið
hægt að flytja til landsins
nema helming af þeim vörum,
sem leyfðar hefðu verið og
lægjif í New York 15—20 þús.
tonn. Væri því ástæðulaust fyr-
ir kaupmenn að hætta að kaupa
inn. — Eigi væri til fulls rann-
sökuð sú hliðin, er.sneri að inn-
lenda iðnaðinum, en skoðun
mín er, að hann þurfi ekki að
stöðvast þessa tvo mánuði, þótt
verðlagið sje sett fast.
Ýmsir fleiri tóku til máls við
þessa 1. umr. og síðar við með-
ferð málsins, en rúmsins vegna
verður að bíða að skýra fra
sjónarmiðum þeirra.
AFGREIÐSLAN
í Nd.
Frumvarpinu var vísað til 2.
umræðu með 26 atkvæðum
samhljóða og til allsherjar-
nefndar.
Klukkan 5 síðdegis . hófst
fundur á ný og var þá frv. til
2. umræðu. Allsherjarnefnd
mælti með frumvarpinu, með
þeirri breytingu, að sett var inn
fyrirmæli um, að verðfestingin
skyldi gilda til loka febrúar-
mánaðar næstkomandi. Enn-
fremur, að óbreytt verðlag
skuli haldast þenna tíma bæði
í heildsölu og smásölu. Voru
þessar breytingar samþyktar í
einu hljóði.
Sigurður Kristjánsson- flutti
breytingartillögp þess-efnis, að
verðfestingarákvæði frúmvarps-
ins skyldu einnig ná til inn-
lfendra neysluvara. í sambandi
við þessa brtt. spurði Garðar
Þorsteinsson landbúnaðrráðh.
(Vilhjálm Þór) hvort hann
myndi leyfa verðhækkun þess-.
ara vara á umræddu tímabiíi.
Það dróst hjá ráðherra að svara
og endurtók þá Emil Jónsson
fyrirsípurnina.
Gaf þá landbúnaðarráðherra
Vilhjálmur Þór svohljóðandi yf
irlýsinguu: Jeg mun ekki sam-
þykkja hækkun á núverandi
verði á nýmjólk og kjöti til loka
febrúarmánaðar, ef þann tíma
verður í gildi auglýsing sú, um
verðlag, er ríkisstjórnin mun
gefa út eftir gildistöku þessara
laga, og ef ekki verða gerðar
grunnkaupshækkanir á þessum
tíma.
Var brtt. S. Kr. feld með 27
gegn 4 atkv. — Frumvarpið
síðan samþykt til 3. umræðu
með sarnhljóða 29. átkv., og
einnig út úr deildinni strax á
eftir.
Að lokinni afgreiðslu máls-
ins í Nd. kvaddi forsætisráðh.
Björn ÞórSarson sjer hljóðs og
mælti: Jeg leyfi mjer f. h. rík-
isstjórnarinnar að þakka deild-
inni fyrir vinsamlega og skjóta
afgreiðslu þessa fyrsta frum-
varps, er stjórnin hefir borið
fram.
í EFRI DEILD
Frumvarpið kom' til efri
deildar í gærkvöldi, og var lok-
ið umræðum og það afgreitt
sem lög frá Alþingi nokkru fyr-
ir miðnætti.
Nokkrir þingmenn tóku til
! máls við 1 umræðu þess, þeir
Gísli Jónsson, Hermann Jónas-
son, Haraldur Guðmundsson,
Magnús Jónsson og Bjami Bene
diktsson. Fjármálaráðh. Björn
Ólafsson svaraði nokkrum fyr-
irspurnum þingmanna. En all-
ir ræðumenn tjáðu sig lögunum
fylgjandi, enda voru þau sam-
þykt með 15 samhljóða atkvæð-
um.
Sjötug: Sigrún
Halldórsdóttir
Amorgim .verður sjötug Sig-
rún Halldórsdóttir, Berg-
staðastræti 29. Hún er fædd að
Vestri-Reynir í Innri Akranes-
þreppi þann 21. des. 1872.
Sigrún er góð kona í þess orðs
bestu merkingU, það sýnir hið ó-
eigingjarna lífsstarf hennar'. er
allir, sem hana þekk.ja, kannast
við. Hún hefir alt sitt líf verið
reiðubúin að Ijetta byrði með-
bræðra sinna. bæði skyldra og
vandalausra og hefir gert það í
svo ríkum mæli, að margur má
henni muna.
Það er gamalt máltæki, að „Sá
er vinur, sem í raun reynist“. Það
máltæki á vel við Sigrúnu, því
æfinlega, ef hún veit um veikindi
eða einhverskonar örðugleika hjá
viiium sínum, þá ber hún þar æf-
inlega að dyrum, til að reyna að
bæta úr á einhvern hátt, ef mögu-
legt er. Slíkir einstaklingar eru
hverju þjóðfjelagi til sóma, og
væri gott að eiga sem flesta slíka.
Sigrún er nú farin að heilsu,
enda bííin að standa við hlið
margra á erfiðum stundum um
dagana. En jeg vona, að eins og
hún hefir verið mörgum styrkur,
þegar mest lá á, eins muni sá, sem
alla huggar, styrkja hana á ólif-
uðum árum.
Það munu margir minnast Sig-
rúnar Halldórsdóttur á þessum
degi, því kontt sem hana er gott
að muna. Frændkona.
„Jeo er ekki and-
vlguíBretym"
— WiIIkle
New York í gærkv.
Wendell Willkie sagði i
viðtali við breskan út
varpsfrjettamann, að hann væri
ekki á móti Bretum, og sagði,
að það væri hlægilegt, að halda
slíku fram.
Willkie sagði að sjer þætti
vænt um Breta og hann dáðist
að þeim, og kvaðst geta gagn-
rýnt stefnu þeirra í nýlendu-
málum, einmitt þess vegna.
— Reuter.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í kapellu Háskólans af sr,
Jóni Thorarensen Olafía. G. Jóns-
dóttir (Jóns heitins Olafssonar
bankastjóra) og Thor G. Hall-
grímsson (Guðmundar T. Hall-
grímssonar fyrv. læknis á Siglu-
firði). Heimili ungu hjónanna
verður í Miðtúni 7.
Dagbók
•MHMnuM ••■••uurai
□ Edda 594212227 — Jólahl.
I. O. O. F. 3 = 12412218 = 81/* 0.
Morgunblaðið er 12 síður í dag.
Næturvörður er í Iðunnar Apó-
teki.
LaugarnesprestakalL Baruaguðs
þjónusta og messa falla niður í
dag vegna þess að salurinn verð-
ur notaður í þarfir barnaskólans.
Trúlofun. S.l. laugardag opin-
béruðu trúlofun sína ungfrú Jóna
Árnadóttir, Njarðarg. 49 og Hin-
rik Ragnarsson bílstjóri, Ingólfsí
stræti 16.
Síra Árni Sigurðsson kemur á
fund baruastúkunnar Svövu í dag
og flytur þar jólakveðju. Díönu-
fjelagar og börn úr öðrum stúk-
um eru boðin á fundinn.
Útvarpið í dag:
10.00 Morguntónleikar (plötur)*
„Pláneturnar“, lagaflokkur eftn
ir Holst.
11.00 Ungmennaguðsþjónusta f
dómkirkjunni (síra Bjami Jóns-
son).
18.40 Barnatími.
19.25 Hljómplötur; Valsar eftir
Chopin.
19.35 Ávarp frá Vetrarhjálpinni í
Reykjavík (Stefán A. Pálsson).
20.35 Erindi: Wilfred Grenfell, I
(Pjetur Sigurðsson erindreki).
20.55 Hljómplötur; SÖnglög.
21.00 Upplestur: „Söguþættir land
póstanna", kafli úr nýrri bók
(Jón Sigurðsson skrifstofustj.).
21.20 Danshljómsveit Bjarna Böðv-
arssonar ..leikur og syngur.
Best að auglýsa
s Morgunbl&ðimu
KRISTINN KARLSSON skósmiður
frá Vopnafirði andaðist á Vífilsstöðum, 18. des. 1942.
Aðstandendur.
Bróðir okkar elskulegur
GUÐMUNDUR JÓNASSON,
fyrrum kaupmaður í Skarðstöð, andaðist hjer í bænum í
fyrrakvöld, 18. des.
Fyrir okkar hönd og annara f jarstaddra aðstandenda
Ingibjörg Jónasdóttir. Margrjet Jónasdóttir.
Jarðarför mannsins míns, föður og tengdaföður okkar
DAVÍÐS KRISTJÁNSSONAR umboðsmanns,
fer fram frá heimili hins látna, Austurgötu 47, HafnarfirðL
mánudaginn 21. þ. m. Athöfninni verður útvarpað.
Una Vagnsdóttir. Valgerður Guðnadóttir.
Jens Davíðsson. Gunnar Davíðsson.
Maðurinn minn og faðir okkar
SVEINN G. SVEINS^ON bakari,
Kjartansgötu 1, ljest 17. þ. mán.
Kristín Guðmundsdóttir og börn.
Móðir okkar og tengdamóðir
GUÐNÝ GÍSLADÓTTIR LÍNDAL
verður jarðsungin 22. des. Húskveðja hefst kl. 1 frá Þórs-
götu 26 A.
Vandamenn.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
STEINUNNAR BJARNASON
fer fram mánudaginn 21. þ. m. og hefst kL 1 e. h. að heim-j
ili hinnar látnu, Freyjugötu 16. Jarðáð verður í Fossvogs-
kirkjugarði.
Þorst. Bjarnason og böm.
Jarðarför móður okkar *!
VILBORGAR JÓNSDÓTTUR
fer fram frá dómkirkjunni mánudag 21. des. Hefst með hús-
kveðju frá Elliheimilinu Grund kl. 10 árd.
Einar Pjetursson. Sigurjón Pjetursson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð-
arför
ÓLAFS K. ÞORVARÐSSONAR.
Sjerstaklega flytjum við alúðar þakkir starfsfólki Sundhall-
arinnar og íþróttaf jelögum, bæjarins.
Sigríður Klemenzdóttir. Gróa Bjamadóttir.