Morgunblaðið - 21.01.1943, Blaðsíða 3
Fimtudagur 21. janúar 1943.
MOEfeUNBLAÐIÐ
Vísilalan
263
Lækkaði um 9 stig
Kauplagsnefnd og Hag-
stofan hafa reiknað
vísitölu janúarmánaðar og
er hún 263. Hefir vísitalan
þannig lækkað um 9 stig
frá því í desember.
Lækkun vísitölunnar staf-
ar aðallega frá verðlækk-
unum á dilkakjöti, smjöri
og eggjum, sem ríkisstjóm-
in beitti sjer fyrir.
Rælin skammagrein um
ísienðinga í Lunðúnablaði
ViðskiftaráOtð
er nú skipað
Bjöm ólafsson fjármála-
og viðskiftamálaráðherra
kvaddi blaðamenn á fund sinn
ádegis í gær og afhenti þeim
svohljóðandi tilkynningu:
„Samkvæmt lögum um inn-
flutning og gjaldeyrismeðferð
frá' 16. þ. m. hefir ríkisstjórnin
skipað þessa menn í Viðskifta-*
ráð: Svanbjöm Frímannsson,
aðalgjaldl^era Landsbankans,
og er hann formaður ráðslns,
Gunnlaug Briem, stjórnarráðs-'
íulltrúa, og er hann varafor-
maður ráðsins, Jón Guðmunds-
son, skrifstofustjóra í Viðskifta-
máiaráðuneytinu, Jón ívarsson,
fyrv. alþingismann og dr. Odd
Guðjónsson, hagfræðing.
• Viðskiftaráðið mun taka til
starfa einhverntíma nú næstu
daga og taka við störfum inn-
flutnings- og gjaldeyrisnefnd-
ar svoí fljótt sem því verður við
komið.
Frumvarp til laga um verð-
lag verður útbýtt á Alþingi í
dag, en í því eru gerðar víðtæk-
ari ráðstafanir um verðlagseftir
lit en hingað til hefir verið. Er
þar gert ráð fyrir að skipaður
verði sjerstakur verðlagsstjóri,
sem hafi á hendi framkvæmd
verðlagseftirlitsins undir eftir-
liti Viðskiftaráðs.
. Skipun verðlagsstjóra og
manns, sem með honum verður
í starfi hans, mun fara fram
þegar verðlagslögin hafa verið
samþykt á Alþingi. :
Er ætlast til þess að þessir
tveir menn víki úr sæti úr ráð-
inu í þeim málum, samkvæmt
ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Að öðru leyti starfar Við-i
skiftaráð óskift að öllum mál-
um, sem það á að f jalla um sam-
kvæmt lögunum“.
★
Fjármálaráðherra skýrði frá
því, að Svanbjörn Frímannsson,
Jón Ivarsson og Oddur Guðjóns
son hafi allir látið af störfum
þeim, er þeir áður höfðu. Hins-*
vegar munu þeir Gxfnnlaugur
Briero og Jón Guðmundsson
gegna áfram störfum í stjórnar-
ráðinu.
Nýtt stjórnar-
frumvarp um
verOlag
NÝ T T stjórnarfrumvarp
Itom fram á Alþingi í
gær. Er það frv. til laga um verð
lag.
Samkræmt frumvarpinu skal
skipa sjerstakan verðlagsstjóra,
er hafi með höndum fram-
kvæmd verðlagsmálanna og
geri tillögur til Viðskiftaráðs
um verðlagsákvæði. Hann tek-
ur og sæti í Viðskiítaráði, þeg-
ar teknar eru ákvarðanir í verð-
lagsmálum.
Aðalefni fi'umvarpsins eru
þrjár fyrstu greinarnar. — Eru
þær svohljóðandi:
1. gr.: Viðskiftaráð, sem skipað
er samkvæmt lögum um innflutning
og gjaldeyrismeðferð, frá 16. jan.
þ. á., skal hafa eftirlit með öllu
verðlagi, og hefir það bæði af sjálfs
dáðum og að fyrii'lagi ráðuneytisins
vald og skyldu til að ákveða há-
marksverð á hverskonar vörur og
verðmæti, þar á meðal hámak á-
lagningar, umboðslauna og annara
þóknunar, sem máli skiptir um verð-
lag i landinu. Svo getur Viðskifta-
ráð og úrskurðað um aðra kostnaðar
liði, sem máli skipta um verðlagn-
ingu á vörum. Þá getur og Við-
í'kiftaráð ákveðið gjöld fyrir flutn-
inga á landi, sjó og í lofti, þar með
talin fax-mgjöld og afgreiðslugjöld,
ennfremur greiðslur til verkstæða
og annara vei’ktaka fyrir alskonar
verk, svo sem pípu- og raflagning-
ar, smíðar, málningu og veggfóðrun,
saumaskap, prentun og því um líkt.
Þá getur Viðskiftaráð og ákveðið
hámarksverð á greiðasölu, veiting-
um, fæði, snyrtingu, fatapressun
og aðgöngumiðum að almennúm
skemtunum og öðru slíku. Ákvæði
þessarar greinar taka ekki til vöru-
tegunda, sem verðlagðar eru sam-
kvæmt sjerstökum lögum, nje til
vöru ,sem seld er úr landi, eða launa
fyrir verk, sem ákveðin hafa verið
með samningum stjettarfjelaga.
2. gr. : Ríkisstjómin skiþár verð-
lagsstjóra, sem gerir tillögur til
Viðskiftaráðs úm verðlagsákvæði og
hefir á hendi framkvæmd þeirra og
eftirlit með að þeim sje hlýtt. Hann
skipar trúnaðarmenn um land a!t
til verðlagseftirlits. Hann hefir á
hendi allan daglegan rekstur í sam-
bandi við verðlagseftii’litið. Ef upp
rís ágreiningur um skilning á verð-
lagsákvæðum, sker Viðskiftaráð ur.
Þeir, sém með verðlagseftirlit
fara samkvæmt lögum þessum, geta
krafið hvern sem er allra þeirra upp
lýsinga, skýrslna og annara gagna,
er þeir telja nauðsynleg í starfi
sínu.
3.: Þegar Viðskiftaráð fjallar um
FRAMH Á SJÖUNDU SÍÐU.
Togarastöðvunin til-
efni greinarinnar
Nýir samningar í vændum
um siglingar skipanna
E INHVER illkvltnasta skammargrein; sem skrif-
uð hefir verið um íslendinga birtist í Lund-
únablaðinu Daily Mail þann 7. þ. m. Greinin
er skirfuð vegna fisksölumálanna í Bretlandi og stöðvun
íslensku togaranna. Fyrir og eftir áramótin ljetu bresk
blöð sjer mjög tíðrætt um ísland og íslendinga í sambandi
við fyrgreint mál. Andaði víða köldu í okkar garð, en
þessi Daily Mail-grein gekk þá lengst í svívirðingum
gagnvart Islendingum og rangfærslum.
I sambandi við þessi mál boðaði Vilhjálmur Þór utanríkis-
málaráðhen’a blaðamenn á .sinn fund í gær til að skýra frá hvað
ríkisstjórnin hefði gert til að fá þetta lagfært. Afhenti ráðhei’ranr.
blaðamönnum eftir-fai’andi yfirlýsingu frá ríkisstjórninni:
TILKYNNING FRÁ
RlKISST J ÓRNINNI.
„Svo sem almenningi er kunn
ugt af i’æðum ráðherranna um
áramótin hefir ríkisstjórnin á-
kveðið, að beita sjer fyrir því,
að veiðar og siglingar botn-
vörpuskipa íslendinga höfjist á
ný. Stöðvun siglinganna vakti
óþægilega athygli ekki aðeins
hjer heima heldur og engu síð-
ur í Bretlandi, þar sem fisksins
er neytt, og siglingamálið var
jafnvel komið á dagskrá breska
þingsins um miðjan desember
síðastl. Bárust utanríkisráðu-
neytinu jafnóðum upplýsingar
frá sendiráði íslands í London
um ummæli, er sumpart voru
Islendingum til lasts, og til þess
fallin að spilla vinsemd bxæsku
þjóðarinnar til íslendinga.
Þá hefir og þann 7. janúar
s.l. birst mikil ádeilugrein á Js-
lendinga í hinu víðlesna breska
dagblaði „Daily Mail“. Hefir
sendiherrann í London að sjálf-
sögðu verið á verði, bæði með
leiðrjettingar og með að sýna
fram á skaðsemi ádeilugreina í
mjög erfiðu og viðkvæmu máli,
og hefir honum verið að því
styrkur að ríkisstjórnin hefir
falið honum að fullvissa bresku
ríkisstjórnina um, að hún hefði
allan hug á því að reyna að
leysa málið. Hefir hún jafn-
hliða sjerstaklega óskað þess,
að fulltrúar yi’ðu sendir hingað
frá Bretlandi til þess að reyna
að finna lausnir, og mun hinn
nýi breski sendiherra vera vænt
anlegur bráðlega, eftir að hafa
kynt sjer rækilega hin bresku
viðhorf. Hitt er þó jafnframt
vitað, að breytinga mun ekki
von á næstunni á fyrgefnum til-
kynningum um siglingaleiðir,
en því er hinsvegar heitið, að
málið skuli tekið til nýrrar vin-
samlegrar athugunar, að feng-
inni reynslu.
Þar eð vænta má, að íslensk
blöð vilji skýra lesendum sínum
frá aðalefnum skrifanna, er
bresk blöð hafa nýlega birt,
strax og blöðin berast hingað,
vill í’íkisstjórnin að almenningi
verði jafnhliða kunnugt um við-
leitni hennar til lausnar máls-
ins, og rjett er að það verði jafn
framt kunnugt, að skömmu eft-
ir að áminst grein í ,Daily Mail‘
birtíst, var gefin út opinber til-
kynning til breskra blaða af
hálfu bresku stjórnarinnai’, með
lofsamlegum ummælum, þegar
það þá hafði vitnast, að farið
væri að búa nokkra íslenska
botnvöi’punga á veiðar. Má ráða
af breyttu orðavali blaða,
hversu fegins hendi sú fregn
hefir verið gripin, og enda þótt
blaðafullyrðingarnar muni sum
part skjóta yfir markið, að svo
stöddu, kemur vonandi ekki til
þess á ný, að íslenska þjóðin
verði fyrir aðkasti í breskum
blöðum“.
SKAMMARGREININ í
DAILY MAIL.
Þann 7. jan. birti ,Daily Mail‘
illkvitnislega grein um Is-
land undir þrídálka fyrirsögn,
sem er á þessa leið: „Það er eng
in furða, frú, þótt þjer getið
ekki fengið nægan fisk“. Eftir
að x’ætt hefir verið í greininni
um ásakanir í garð fiskkaup-
manna vegna þess að íslending-
ar neiti að sigla til hafna á aust
urströnd Bretlands, segir á þessa
leið: „Það er vafa undirorpið,
hvoj’t Islendingar þurfa nokkra
hvatningu i þessu efni; þeir
neita eða játa eftir sínum geð-
þótta og við getum ekkert gert
af þeirri einföldu ástæðu, að
þeim stendur á sama. Það er
það sama fyrir þá, hvort þeir fá
greiðslu fyrir fiskinn eða ekki.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Vjeibátur fær
60 þús. krónur
i björgúnarlaun
U æstirjettur tildæmdi í gær
Á-l vjelbátnum „Ársæl“ frá
Vestmannaeyjum 60 þús. króna
björgunarlaun, fyrir björgun
e.s. „Kinaldis“ fx-á Abei’deen í
febrúarmánuði 1942.
E.s. „Kinaldis“ rakst á
Drangasker x dimrnu og brotn-
aði skrúfa og stýri skipsins.
V.b. „Ársæll“ var að veiðum og
sá neyðarljós frá „Kinaldis",
fór samstundis á vettvang og
tókst að draga skipið til hafnar
í Eyjum.
„Kinaldis“ var virt með farmi
á tæpar 309 þús. kr.
Undirrjettur (sjódómur Vest
mannaeyja) ákvað tu'örgunar-
laun „Ái-sæls“ 50 þús. kr. og
málskostnað 5 þús.
Hæstirjettur hækkaði björg-
unarlaunin í 60 þús. kr., ljet
málskostnað undirrjettar hald-
ast, en dæmdi auk þess eigenda
„Kinaldis“ til að greiða 1500
kr. í málskostnað fyrir Hæsta-
rjetti.
Sveinbjörn Jónsson hrl. flutti
málið fyrir ,,Ársæl“ og Theodór
Líndal hrl. fyrir eigenda „Kin-
aldis“.
Brotist inn í skart
gripaverslun
Brotist var inn í Skartgripa-
verslun Jóhanns Ármanns
í Tjamargötu í fyrrinótt og sto!
ið þaðan karlmannsúrum og
karlmannshringjum.
Innbrotsþjófurinn eða þjóf-
amir hafa komist inn í verslun-
ina með því að fara í gegnum
gang, sem liggui* þangað úr
birgðageymslu Daníels Ólafs-
sonar, stórkaupmanns. Tvær
hui’ðir úr krossviði hafa verið
brotnar upp, önnur með því að
smástykki var skorið úr henni
og smekklás síðan opnaður að
innanverðu, en hin með því að
hurðarspjald var brotið úr og
þannig hægt að smeygja sjer
inn.
Stolið var í versluninni 20—
30 karlmannsúi’um og um 20
karlmannshringjum úr 9 karata
gulli.
Robert Taylor
ekkl fangl
HOLLYWOOD í gær: - Þrá-
látur orði’ómur hefir gengið um
það, að kvikmyndaleikarinn
Robexl Taylor væri fangi í
Spænsku Marokko í Afríku. —
Þetta er ekki rjett. Taylor er
við vinnu sína hjer í borginni.
— REUTER.