Morgunblaðið - 21.01.1943, Page 6
0
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 21. janúar 1943.
\ Nýkominn Tvinni,
CLARKS — COATS — SYLKO
,pg fleiri tegundir- fyrir verslanir og iðnað.
: G. Helgason & Melsted h.f.
ÓOOOOOOOOOO^^OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO^
Skrifstofustarf
Karl eða kona óskast til útgerðarfyrirtækis. Umsókn
sendist í pósthólf 336 í Reykjavík.
■ *\
Oooooooooooooooooooooooooooooooooooo
Iðnnemi |
♦ Handlaginn og áhugasamur piltur, ekki yngri en 16 |
ára, getur komist að sem iðnnemi nú þegar. **
Breiðfjörðs blikksmiðja og tinhúðun. ;l;
Sími 3492. |
Skrifstofumaður
vanur allskonar skrifstofustörfum óskar eftir fram-
í tíðarvinnu hjá góðu fyrirtæki eða opinberri stofnun.
Tilboð óskast sent blaðinu fyrir 23. þ. m., merkt 777.
niufMitiufuiuiiiiimiiiiitiiHiHMiiMmiiiiiiiiMiiuiiimimiiimiiiiiiMimHmiMiiHMiMtiiiiimiiuiMiiMiiiiiuiiiiuuiiiiiiiiiiis
Prjónagarn, m
Br od ergarn,
-ö'jhikhb’ÆI |
t» ■!*m Uá v~-
m\
-2
Heklugarn
er nú aftur fyrirliggjandi.
Erl.*Blandon & Co., h.f.
Sími 2877. 1
; ' £
UUItlUIIIIIMIUIUUMMMMIIUMIMMMlMIUMIUMIMIMMIIUlUMMMMMMIIMIMMMUMMnMimMMIIIIIIMHIUUIIIIUMUMIMIinillt
Dökkir Herrafrakkar
jt
teknir upp í dag. Verð kr. 233.00. Nýtísku snið.
Koma ekki aftur að sinni.
Ingólfsbuð,
Hafnarstræti 21.
Hafnarstúdentar
riAMH. AJf FIMTU SlÐO
ina, var að mörgu leyti betra en
frumvarp dr. Valtýs frá 1897,
þó að enn sem fyrr væri til þess
ætlast, að ráðgjafinn sæti í
Kaupmannahöfn. Áður en lok-
ið var meðferð málsins á alþingi,
bárust hingað frjettir um stjórn
arskifti í Danmörku. Konungs-
valdið hafði loksins látið und-
an síga fyrir þjóðþinginu. Hægri
menn höfðu slept völdum og
vinstrimannastjórn var komin.
Ándstæðingar valtýskunnar
lögðu nú til, að ekki skyldi sam
þykt stjórnarskrárfrumvarp á
því þingi, heldur reynt, hvort
vinstrimenn vildu ekki unna oss
innlendrar stjórnar, en valtýing
ar neyttu meirihluta síns til þess
að fella allar tillögur í þá átt og
samþykkja frumvarp sitt. Minni
hlutamenn sendu Hannes Haf-
stein á fund stjórnarinnar með
kröfur sínar. Hann var heiðurs-
gestur á fundi stúdentafjelags-
ins í Höfn 12. sept. þá um haust
ið, og samþykti fjelagið að
senda hinum nýja fslandsráð-
gjafa, Alberti, ávarp um stjórn-
arskrármálið. Þessa ávarps get-
ur ísafold 12, okt. í greininni
Yfiralþingi lætur til sín heyra.
Sú grein er síðasta skeytið, sem
ísafold sendi Hafnarstúdentum
út af stjórnarskrármálinu, en
svo mörg og hvöss höfðu þau
verið, að blaðið hefir bersýni-
lega ekki talið þá með öllu mein
lausa andstæðinga. Enda van-
ræktu þau blöð, sem fylgdu
þeim að málum, ekki þá skyldu
sína að geta um alt, sem kom
frá stúdentunum í Höfn.
LANDVARNAR-
STEFNAN
Svo sem kunnugt er, lauk
stjórnarskrárdeilunni þannig,
að á aukaþingi 1902 var sam-
þykt í einu hljóði frumvarp frá
stjórninni, sem raunar var val-
jtýska frumvarpið frá 1901 með
þeirri mikilvægu breytingu, að
ráðherra íslands og stjórnarráð
skyldi sitja í Reykjavík. Þessari
breytingu tóku báðir ílokkar
fegins hendi. En sá böggull
fylgdi skammrifi, að nú var
beinlínis ákveðið, að ráðherra
vor skyldi bera upp í ríkisráð-
inu lög og mikilvægar stjórnar-
ráðstafanir, en um það var ekk-
ert sagt í valtýsku frumvörpun-
um, heldur gert ráð fyrir því
steinþegjandi eins og í stjórnar
skránni frá 1874. Brátt mynd-
aðist flokkur, sem ekki vildi
sætta sig við þetta ákvæði.
Hann nefndi sig landvarnar-
flokk og fjekk mikið fylgi með-
al Hafnarstúdenta. Á fundi í
fjelagi þeirra 18. apríl 1903
voru landvarnarmenn svo marg-
ir, að tillaga frá þeim um að
skora á alþingi að fella ríkis-
ráðsákvæðið burt úr stjórnar-
skránni fjekk 25 atkvæði, en
þeir, sem felldu hana, voru 26,
og á meðal þeirra allir eldri
mennirnir í fjelaginu. Sá fund-
pr hefir verið allheitur, og
nefndu landvarnarmenn and-
stæðinga sína albirtinga eftir
Alberti, en við hann kendu
menn oft ríkisráðsákvæðið. —
Álþingi 1903 samþykti stjórnar-
skrárfrumvarpið frá 1902
óbreytt með öllum atkvæðum
gegn einu (landvarnarmánns),
og samkvæmt því fengum vjer
heimastjórnina 1. febr. 1904.
En landvarnarstefnan fjekk inn
ah skamms yfirhönd í stúdenta-
fjelaginu, og í febrúar 1905
tóku þeir stúdentar, er fylgdu
hinum gætnari stefnum, sig út
úr því og stofnuðu nýtt fjelag,
er þeir nefndu Kára. Það starf-
aði til 1913.
SKRÆLINGJA-
SÝNINGIN
Seint á árinu 1904 kom á dag
skrá fjelagsins nýtt mál, sem
olli miklum hita. Kvenfjelag
eitt í Kaupmannahöfn undir
forustu aðmírálsfrúar Emmu
Gad hafði áformað að halda í
skemtigarðinum Tivoli í Kaup-
mannahöfn sumarið 1905 sýn-
ingu frá þeim löndum, er Danir
kölluðu hjálönd sín og nýlend-
ur: Islandi, Færeyjum, Græn-
landi og Vesturheimseyjunum,
sem þeir áttu þá. Emma Gad var
einhver fínasta hefðarfrú í Dan
mörku, og fyrir bænastað henn
ar gerðist krónprinsessan vernd
ari sýningarinnar. Af íslenskum
konum mun frú Helga Vídalín
frá öndverðu hafa unnið að und
irbúningi hennar með Emmu
Gad. Mörgum íslendingum leitst
vel á þetta í fyrstu, og þegar
boðsbrjefið að sýningunni vár
sent út, voru þar undirskrifaðir
sem meðlimir forstöðunefndar
Hannes Hafstein, ráðherrá, dr.
Valtýr Guðmundsson, Finnur
Jónsson, prófessor, og Thor E.
Tulinius, stórkaupmaður, en
Hannes Hafstein sagði sig úr
nefndinni með brjefi til frú
Emmu Gad dags. 17. des. 1904.
í Reýkjavík vár sett á stofn sjer
stök undirneínd, er safna átti
sýningarmunum hjeðan, og ekkí
verður vart neinnar andúðar
gegn sýningunni, þangað til
stúdentafjelagið í Kaupmanna-
höfn tók að berjast gegn þátt-
töku í henni af íslands hálfu,
einkum vegna þess, að þar átti
að sýna oss ásamt svertjngjum
og eskimóum, enda hluut hún
brátt nafnið Skrælingjasýning-
in. Þá baráttu hóf fjelagið í
nóvember með því að skora
brjeflega á stúdentafjelagið í
Reykjavík að vinna á móti þátt-
töku hjeðan. Fjelagið varð fljótt
og vel við þessari áskorun, og
á sömu sveif hölluðust öll ís-
lensk blöð. En Hafnarstúdentar
stóðu í ströngu út af þessu máli.
Á fundi 7. des. voru samþykt
andmæli gegn því, að fsland
yrði við sýninguna brugðið, og
birtust þau bæði í dönskum og
íslenskum blöðum. f febrúar og
mars 1905 hjelt fjelagið hvern
fundinn eftir annan um sýning-
armálið og hvern öðrum heitari,
skoraði á sýningarnefndiná í
Reykjavík að leggja niður störf,
gekst fyrir almennum andmælá-
fundi meðal íslendinga í Höfn
og sendi Matthías Þórðárson
tvíVegis á fund Emmu Gad til
þess.að skýra málið fyrir henni
frá íslensku sjðnarmiði. Stúd-
entar rituðu einnig greinar um
málið í dönsk blöð, en lítt munu
þær hafa breytt skoðunum
Dana. Þó var kunnur auðmað-
ur í Kaupmannahöfn, gyðing-
urinn Móses Melchior, sömu
skoðunar og stúdentafjelagið.
Barátta stúdentanna hafði þau
áhrif, að íslensk þátttaka í sýn-
ingunni varð miklu minni en
ella mundi, og var það vel far-
ið, því að ef hjeðan hefði orðið
veruleg þátttaka, mundi hún
hafa styrkt þá hugmynd sumra
útlendinga um oss, að menning
vor væri sambærileg við menn-
ingu eskimóa og svertingja, sein
komu fram á þessari sýningu.
Stúdentafjelagið í Höfn hjelt
enn um nokkurt árabil áfram
afskiftum sínum af sjálfstæðis-
málinu. En fundabækur þess um
árin 1908—1913 munu með öllu
týndar, og yngri fundabækur
eru ekki aðgengilegar hjer sem
stendur.
K. F. U. K. U. D. heldur út-
breiðslufund í dag kl. 8.30 í húsi
fjelagsins, Amtmannsstíg 2 B.
*
Eftir
Walt Disney.
„En hvað gerir þú á meðan verið er að hefja hlassið?" spyr Mikki
vinnumanninn.
„Jeg geri ekkert“, segir vinnumaðurinn.
„Það myndi spara mann, ef þú stjórnaðir hestunum“, segir Mikki.
„í stað þess að gera ekki neitt“. — Vinnumanninum finst þetta
góð hugmynd.