Morgunblaðið - 21.01.1943, Page 7
Fimtudagur 21. janúar 1943.
MORGUNBLAÐIÐ
Skammagreinin
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
Verðið, sem boðið er, þótt það
sje geySihátt á friðartímamæli-
kvarða, er ekki nægilegt til þess
að fá þá til þess að leggja neitt
í hættu, hve lítilf jörleg sem hún
kann að vera. Ástæðan er fyrst
og síðast sú, að Islendingum er
ekkert úm okkur gefið. Hvers
'vegna? í fyrsta lagi vegna þess,
að þeir hafa andúð á öllum út-
lehdingum. Sem kynþáttur eru
þeir eins hátt upp hafnir og
kuldalegir og hinir eilífu jökl-
ar“.
I . 1*1 i • ' ' : * '■ .
Síðan segir, að þetta eigi sjer
staklega við Reykjavík, einu
fiskborgina, bændur sj.eu ekki
eins fálátir og hafi sýnt her-
námsliðinu vinsemd í maí 1940.
Slíkt hafí hinsvegar verið mjög
fjarri bæjarbúum, sem var illa
við veru okkar í landinu frá upp
hafi.
Því næst er lýst afstöðu Breta
til íslands eftir hernámið: „Við
gerðum, að því er við hjeldum,
alt sem í okkar valdi stóð, til
þess ^ð gera ísiendinga ánægða.
Okkur hefir mistekist þetta
hraparlega, og það er ein ástæð
an til þess, að þig og mig skortir
fisk til morgunverðar, að ekki
sje minst á kvöldverðinn“t Til
frekari sjkýringar þessu segir
greinarhöfundur frá samtali á
aðaltorgi Reykjavíkur við ís-
lending, sem álasar Bretum fyr-
ir hræsni þeirra. Þeir þykist
þapgað komnir til þess, að
vernda landið, þegar eini til-
gangurirm hafi verið sá, að ná
þar fótfesijú til eigin nota. Is-
lendingurixm . er síðan látinn
segja heilmikinn þvætting, til
þess að snnna hve miklu hærra
menningartstigi við stöndum á
en Bretar.
„Slíkur hugsunarháttur get-
ur verið háfleygur eða hlægi-
legur, en hann er staðreynd,
sem vjer gáfum ekki gaum, eða
reyndum að bæla niður, með
ráðum, sem ekki verða nefnd
öðru nafni en mútur. „Borgið
þeim nóg, og þeim mun þykja
vænt um okkur“, virðist hafa
verið kjörorð okkar“,
Þetta tvöfaldaði dýrtíðina,
sem enn er vaxandi, síðan Ame-
ríkanar komu.
„Aðalauðsældarmerkið er
skipsfarmur af sex-cylindra bif-
reiðum, Cadillac og Paekard,
sem fara áttu til Kaupmanna-
hafnar, en komu til Reykjavík-
ur í apríl 1940 og hafa stöðugt
gengið kaupum og sölum síð-
an“. Verð þeirra hefir fjórfald-
ast.
Greinin endar: „Amerískur
her er nú í landinu, en hvað okk
ur viðvíkur, þá lítur út fyrir, að
í óefni sje komið. Við höfum
„drepið“ tslendinga með ein-f
tómri góðmensku, og þeir eru
ekkert þakklátir“.
NlræOisafmæil
ur níutíu ára í dag. Þórey er
fædd 21. janúar 1853 að Eyri
í Kjós. Dóttir hjónanna Hinriks
og Þóreyjar, er þar bjuggu.
Þórey giftist aldrei, en eign-
aðíst eina dóttur, Ágústu Guð-
laúgu Þórðardóttur. Þórður sá
fór svo til Ameríku.
Þórey Hinriksdóttir var vinnu
kona alla sína æfi, þar til hún
settist í bú dóttur sinnar. Lengst
v^r Þórey 22 ár á Syðri-Brú í
Grímsnesi.
Enginn nema hún veit hljóm
þess strengs, sem í brjósti henn-
ar brast, er hún ung með sína
lítlu dóttur varð að ganga undir
ok vinnuhjúsins og missa af
kónustöðunni og heimilisforráð-
um, sem er konunnar helgasti
rjettur. — Þórey skóp sína gæfu
upp úr einstæðingsskap og
Vinnuhörku hins liðna tíma og
ber merki móðurkærleikans
hátt, því að hún skildi aldrei
dóttur sína við sig og ól hana
upp með sjer, og hlutyerk Þór-
‘éyjar gegnum lífið var æfinlega
fórnin.
Þórey hefir altaf verið heilsu
góð, en er nú orðin mjög bogin
í baki og fótaveik og á því erf-
itt um gang. Hún hefir góða
heyrn og sjón, en minni er far-
ið að dofna mjög mikið.
Þrátt, fyrir sinn háa aldur
vinnur Þórey sífelt við prjóna-
vinnu, en síðastliðna viku hefir
hún legið rúmföst sökum elli-
lasleika.
Þórey er góðleg kona og ber
elli sína vel.
Eins og áður er getið fylgd-
ust mæðgurnar æfinlega að og
hafa aldrei skilið, og er Ágústa
giftist Þorleifi Halldórssyni,
bónda í Einkofa á Eyrarbakka,
fjekk Þórey fyrst sitt eigið
heimiji hjá dóttur sinni og
tengdasyni. — Nú hugsar dótt-
irin um sína öldnu móður af
sannri ást og þakklæti, því að
djúp og einlæg var ást og fórn
hinnar einstæðingssömu móður,
sem fyrir móðurkærleikann bar
vel erfiði og sorg hvers komandi
dags hins liðna tíma. — Og þær
munu aldrei skiljast að.
Lárus Salómons.
V{elaf¥ístur
| fyrlrllggjandl Y
| O- Helgason & Melsted h.f. $
00<><X>0<X><X><X><XX>00<>0<><><>0<X><><X><><><>0<><>0<><
Stjórnarfrumvarp
um verðlag
FIÁMH. AF ÞRIÐJU BtÐU
verðlagsmáj, skulu tveir nefndar-
menn jafnan víka úr ráðinu sam-
kvæmt ákvörðun ríkisstjórnar í skip
unarbrjefum þeirra og skulu í
þeira stað koma verðlagsstjóri og
annar maður er ríkisstjórnin skip-
er, með atkvæðisrjetti um verðlags-
ákvarðanir.
í Viðskiftaráði ræður afl atkvæða
og eru úrskurðir þess og álykiamr
fullnaðarúrslit verðlagsmála. Þó má
taka mál til meðferðar að nýju, ef
ástæður hafa breyst eða nýjar
skýrslur komið fram er máli skifta.
Viðskiftaráð er ekki ályktunarfært
um verðlagsmál nema það sje full-
skipað.
Eins og sjest á niðurlagi 1.
gr. nær verðlagseftirlitið ekki
til innlendra afurða, svo sem
kjöts, mjólkur og mjólkuraf-
urða. jarðepla o. fl.
Dagbók
Stuart 59431217 R,
I. O. O. F: 5 =1241218»/» =
Næturlæknir er í nótt Úlfar
Þórðarson, , Sólvallagötu 18. —
Sími 4411.
Næturvörður er í lyfjabúðinni
Iðunni.
Sjötug varð í gær Sólveig
Jónsdóttir, Vindási, Rangárvöll-
um.
Jarðarför frú Guðrúnar J.
Briem fór fram frá Dómkirkj-
urlni í gær, að viðstöddu miklu
fjölmenni. Sjera Þorsteinn Briem
prófastur flutti húskveðju, en
síra Bjarni Jónsson vígslubiskup
talaði í kirkjunni. Frændur og
vinir báru kistuna. Námsmeyjar
Kvennaskólans í Reykjavík
gengu fylktu liði á undan kist-
unni og skipuðu sjer í raðir við
hlið kirkjugarðsins, meoan kist-
an var borin inn í garðinn. Fjöldi
blómsveiga bárust frá ýmsum
fjelögum kvenna og stofnunum.
Nesprestakall. Börn, sem eiga
að fermast í vor, af svæðinu
vestan og sunnan Hringbrautar
og Hafnarfjarðarvegs, og sem
eru í Þjóðkirkjunni, komi til við-
tals í Háskólanum (norðurdyr)
4 laugardaginn kemur, 23. janú-
ar, kl. 4.15 síðdegis.
Afmælissjóði Fjelágs Ísí. stú-
denta í Kaupmannahöfn. Afh.
Morgunbl. frú R. og Þ, 50 kr.
Sjera Jón Auðuns biður spum
ingabom sín í Reykjavík að
koma til viðtals í Austurbæjar-
skólann næstk. föstudag kl. 6
síðdegis.
Tvær villur voru í frásögn
blaðsins af framsöguræðu borg-
arstjóra við fyrri umræðu fjár-
hagsáætlunar bæjarins á bæjar-
stjórnarfundi í gær. — 1 saman-
burði á gjöldum við löggæsluna
var sagt, að í fyrra hefði verið
áætlað til hennar 1.712 þúsund
kr„ en átti að vera 713 þús. kr.,
í stað 1.815 þús. kr. nú. — Þá
var þess getið að setuliðið bæri
hálfan kostnað loftvama á móti
bænum, en átti að vera, að ríkis-
sjóður bæri kostnaðinn móti
bænum.
Útvarpið í dag:
20.50 Erindi: Hafnarstúdentinn
21.20 Stúdentasöngvar (plötur(.
n
Heröatrjen
eru komln
V
// / <1^,
l/etjUwatfelaqid,
Garðastræti 2.
Sími 5333.
Sími 5333.
Fasteignaeigendafjel.Reykiavlkur
heldur fund í Kaupþingssalnum í kvöld kl. 8.30.
Fundarefni: ,,
Frumvarp að nýjum húsaleigulögum og nauðsyn
húsaleiguhækkunar, og rýmkunar á ráðstöfunar-
rjetti húseigenda.
Þingmönnum Reykjavíkur og formönnum stjórnmálaflokk
anna er böðið á fundinn. Fjelagsmenn fjölmennið. Nýir
fjelagsmenn geta innritast í fjelagið fyrir fundarbyrjun
á fundarstaðnum. — Lyftan verður í gangi-.
Stjórnin.
Okkur vantar
Geymslupláss
fyrir ca. 100 tunnur af smurningsolíum.
GOTFRED BERNHÖFT & CO. H.F.
Sími 5912. — Kirkjuhvoli.
Hðmarksverð á kolum
Dómnefnd í verðlagsmálum hefir ákveðið, að með nu-
verandi verðlagsvísitölu skuli útsöluverð kola í Reykjavík
vera kr. 169.00 per smálest, afhent í porti á útsölustaðnum.
Reykjavík, 20. jan. 1943.
Dómnefnd í verðlagsmálum.
Jarðarför konunnar minnar,
JÓNÍNU GUNNLAUGSDÓTTUR,
fer fram frá Fríkirkjunni, föstudaginn 22. þ. m. og hefst
með húskveðju að heimili mínu, Framnesveg 16. kl. 1 e. h.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað..
Fyrir hönd mína, harna minna og annara vandamanna.
Lárus Hansson.
Jarðarför mannsins míns,
BRYNJÓLFS SIGHVATSSONAR,
fer frarn laugardaginn 23. þ. nu, kL 1 frá heimili okkar,
Bergstaðastrætí 43.
Fyrir mína hönd og ænnara vandamanna.
Þórunn Benediktsdóttir.
Systkini og aðrir vandamesnn
SIGURÐAR EINARSSONAR frá Háhóli,
þakka innilega auðsýnda vináttu og samúð við andlát hans
og jarðarför.