Morgunblaðið - 30.03.1943, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 30.03.1943, Qupperneq 6
6 MORGUN ÖLAÐIÐ Þriðjudajíur 30. mars 1943. Idag verOur lokaO kl. 1-3.30 vegna farOarfarar Derberlspronl Békaterol. Sig. Krist|án«fonar I dag verOnr lokaO kl. 1-3.30 ve([na (arðarfarar Verðl. Slella, Bankantr. $ lllkynning Verslnn mfn er loknO i dag frá kl. 12-4. Sígurþór Jónsson úrsmíður Hafnarstrœtl 4 Minningarorð um Ólaf r Arnason prentara Fyrir dömur: Fyrír herra Kápur Frakkar Pife Föt Hlacks . Jakkar (stakir) Tv Shorts Oxfordhuxur ' VICTOR Laugaveg 33 Tilkynning Höfum fyrirlggjandi; /' Svefnherbergishúsgögn, ljóst birki, tvær gerðír. Borðstofuborð, eik og hnota, tvær stærðir. Skrifborð, eik með rennihurð Salonstólar ;•*' /; /*' r.. 1"' Sófaborð, eik og hnota. Renaissance sófaborð, útskorin íura. Furustólar. með baki. Stólkollar Jén Halldórsson & Co. h.f. Skóiavörðustíg 6 A. Sími 3107 CELLOPHAN pappfr fyrirliggfandl 1. Bryniélfsion & Kvaran Tilkynnlng frá Loftvainanefnd Loftvarnafundur verður haldinn í Háskólanum, 1. kenslu stofu í dag 30. mars kl. 20.30. Fundarefni: Agnar Kofoed Hansen, lögreglustjóri talar. Meðlimir úr hverfunum 1—30, alvarlega ámintir um að mæta. Ath. Gengið inn um suðurgafl. I dag verður til grafar borinn * Ólafur Árnason, prentari. Hann varð bráðkvaddur að morgni hins 17. þ. mán. Ólafur varð aðeins 31 árs gamall. Hann var fæddur hjer í Reykjavík 1. september 1911; yngsti sonur hjónanna Kristín- ar Ólafsdóttur og Árna Árna- sonar að Bakkastíg 7. Eru þau hjónin og stór og mannvæh- legur barnahópur þeirra göml- um Reykvíkingum að góðu kunn. Ólafur ólst upp með foreldr- um sínum. Ungur hóf hann að nema prentiðn hjá mági sín- um, Herbert Sigmundssyni, sem þá var prentsmiðjustjóri ísafoldarprentsmiðju. Lauk hann námi með góðum vitnis- burði og starfaði síðan hjá sama fyrirtækinu til dauða-t dags. Ólafur var maður einstaklega dagfarsgóður og varð gott til vina. Hann var verkmaður góður, laginn og smekkvís í iðn sinni, Hann var iengst af handsetjari og það veit sá, er þetta ritar, að margir viðskifta- menn prentsmiðjunnar, sem þektu tií vinnubragða Ólafs, báðu um að hann ynni þau verk, er þeir þurftu að láta af hendi leysa í prentsmiðjunni, þótt völ vasri á öðrum vel fær- um mönnum. Það lýsir lagni Ölafs, að fyrir nokkrum mán-> uðum breytti hann til og gerð- ist vjelsetjari, og náði hann á skömmum tíma mikilli leikni í þeirri grein og hefði vafalaust orðið fyrirtaks verkmaður á því sviði jafnt og handsetningu. Við, jafnaldrar Ólafs hjer í hænum, sem þektum hann frá barnæsku, vitum, að hann var göður drengur, fjelagi hinn bestí og tryggur vinur vina sinna. Ólafur var í <?<51i sínu fjelagslyndur maður, en nokk- uð dulur í skapi og flíkaði ekki tilfinningum sínum eða skoð-1 unum framan í hvern og einn. En hann var þó ákveðinn í skoðun og fastur fyrir í þeim málum, sem hann tók að sjer að koma fram. Fyrir nokkrum árum kendi Ólafur sjer meins, sem var svo alvarlegs eðlis, að hann varð að ganga undir hættulegan holskurð. Var hontim þá um tíma vart hugað líf. Lá hann lengi í spítala, en náði þó heilsu aftur, að því er talið var, þótt líklegt sjé, að hann hafi aldreii fullkomlega borið sitt barr, | eftir þau veikindi. Ekki var hægt; að hugsa sjer betri fjélága, hvort sém var í gleði eða raun. Það var sama hvort. heldur var á vinnustað, í leik, glöðum vinahóp, eða á erfiðum ferðalögum, altaf þótti betra að Ólafur væri með, held- ur en ekki, og þess vegna var hann eftirsóttur fjelagi. Við, sem teljum okkur heið- ur að því að hafa getað kallað Ólaf Árnason vin okkar, finn- um að við höfum mist mikið við fráfall hans. Okkur setti hljóða við andlátsfregn hans. Við áttum bagt með að átta okkur á því, að hann akyldi vera kallaður burt svo ungur, en sárastur er harmur kveð- inn að aldraðri móður og föð-> ur, sem nú verða að sjá á bak yngsta syni sínum, sem miklar framtíðarvonir hljóta að hafa verið bundnar við. Ólafur reyndist foreldrum sínum góður sonur, eins og hann reyndist öllum góður drengur, sem hon- um kyntust. Blessuð veri minning hans. I. G. Starfsemi Skðgrækt artjelags Eyiatjafðar Frá frjettaritara vorum á Akureyri. A ðalfundur Skógræktarfje- ^ lags Eyjafjarðar var hald inn á Akureyri' þriðjudaginn 23. mars. Var þar gefin skýrsla um starfsemi og fjárhag fje- lagsins. AðalstÖrf fjelagsins á síðast liðnu ári voru þau, að lokið var við girðinguna á Kross- staðahálsi í Skíðadal, haldið var áfram að gróðursetja í reiti fjelagsins í skógræktargirðing unni við Akúreyrarpoll. Voru þar settar um 8000 plöntur. 1 reit i Akureyrarbrekku, sem fjelagið fjekk til umráða á ár- inu, voru settar 1700 plöntur, Þá annaðist fjelagið enn út- vegun plantna fyrir emetaka menn. Undirbúin hefir verið uppeldisstöð í Klauf í Eyjá- firði. Þá var og veittur lítils- háttar styrkur til undirbúnings uppeldisstöðvar í Svarfaðar- dal. Vinna við þessar fram- kvæmdir var að miklu leyti gefin. Fjelagið fekk og á þessu ári umráðarjett yfir eyðibýl- inu að Miðhálsstöðum í Öxna- da!, en þar eru lítilsháttar kjarrleifar og er ákveðið að hefjast handa um friðun þeirra á næsta sumri. Hrein eign fjelagsins er kr. 16.131.56. Meðlimum á árinu fjölgaði um 39 og eru þeir nú 190. Stjórn fjelagsins skipa nú Árni Jóhannsson, formaður, Steindór Steindórsson, ritari, Jónas Thordarson, fjehirðir og Baldur Eiríksson og Þorsteinn Þorsteinsson, meðstjórnendur. Auk þess starfa í fjelaginu v’innunefnd og nefnd til um- sjónar í Akureyrarbrekkunni. Aðalfuíidur Frlkirkju- safnaOarins A ðalsaínaðarfundur Fríkirkju- safnaðarins í Reykjavík var haidinn í Fríkirjcjunni sunnudag inn 21. mars kl. 3.30. Hófst fundurinn með sálma- söng og ávarpi, er sr. Ámi Sig- urðsson flutti. Fundarstjóri var Ingimar Jóhannesson kennari, fundarritari Hannes Guðmunds- V. son bankastarfsmaður. Þá gaf safnaðarstjómin skýrslu. Formaður safnaðar- stjórnar, Sigurður Halldórsson skýrði frá störfum stjóraarinn- ar. Þakkaði hann þá velvild, sene margir höfðu sýnt söfnuðinum. MeðaJ annars höfðu söfnuðinum borist nokkrar veglegar minning- argjafir og ýmsar vinagjafir aðrai*. Fjehirðir safnaðarins, Bergsteinn Kristjánsson, las og skýrði safnaðarreikningana, ogr sýndu þeir að fjárhagur safnað- arins má teljast mjög góður, þrátt fyrir verðsveiflur vísitöl- únnar síðastb'ðið ár. Reikning- amir höfðu verið endurskoðaðir óg vom þeir samþyktir í einu Hljóði. Skýrt var og frá barna- guðsþjónustum og unglingastarf semi í söfnuðinum. Formaður safnaðarstjómar og tveir safnaðarfulltrúar, þær frúmar Ingibjörg ísaksdóttir ogr IngibjÖrg Steingrímsdóttir, vort* endurkosnar í einu hljóði, svo og aðrir starfsmenn og aðstoðar- mehn, er kjósa skyldi. Þá vom samþyktax, tillögur síifnaðarstjórnar þess efhis, a& hækka safnaðargjöld og sum aukaverkagjöld til samræmis við sömu gjöld í þj óðkirkj usöfnu ð- um bæjarins, en þau hafa verið lítið eitt lægri í fríkirkjusöfnuð- inum undanfarið ár. Loks flutti Ásmupdur Gests- son fagurt og fcugðnæmt erindi. Var svo fundi slitið, og hafðii hann farið hið besta fram. Ægir tekur togara FRAMH. AF ÞRIÐJU SBDU á tógaranri sjálfan með kúlum Fyrsta kúlan hitti togarann i byrðinginn, rjett við vatns- borðið framan við stjórnpall- inn, en togarinn stöðvaðist ekki enn. Sendi Ægir þá skeyti til> stjórnarvaldanna í landi til að fá frekari fyrirmæli um hvað gera skyldi, og fjekk skipstjór inn fyrirskipun um að gera alt j sem í hans valdi stæði til að stöðva togarann. Hefst þá hin alvarlega viðureign. Als munu fjögur kúluskot hafa lent í togaranum. Tvö við vatnsborðið að framan, við fisklestarnar. eitt í reykháfinn og eitt í „chasinn“, eða yfir- bygginguna að aftan. Mún þá hafa sprungið gufurör og þá fyrst stöðvaði enski skipstjór inn skip sitt. Ægir kom siðan með togar- ann hingað til hafnar í gær- kveldi., Rjettarhöld munu hefjast í máli þessu klukkan 10 f. h. £ dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.