Morgunblaðið - 09.11.1943, Síða 1

Morgunblaðið - 09.11.1943, Síða 1
Hitler spáir lang- vinnu stríði Rássar BO Laskaður kafbáfur km. vestur uS Kiew Sækja fram. á Krím En segist skulu vinna siðustu orustuna London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. HITLER flutti ræðu í gærkveldi á 20 ára afmæli byltingartilraunar nasista. Var ræðn flutt í Burger- braukjallaranum í Miinc- hen, fyrir gamla fjelaga Hitlers frá fyrstu dögum flokksins. Ræðan stóð í tæpa klukkustund, og var aðalinntak henjnar hvatn- ing til Þjóðverja um að láta ekki bugast. Sjálfur kvaðst Hitler viss um lokasigur Þjóðverja, og sagði að alt gæti annað komið fyrir, en að hann misti kjarkinn. Hitler hóf mál sitt með því, að rekja sögu Þýska- lands eftir heimsstyrjöldina og sagði í því sambandi, að ef flokkur hans hefði ekki komist til valda þar, myndu Rússar hafa geysað yfir alla Evrópu og lagt hana undir sig. Þá sagði Hitler, að þrátt fyrir erfiða baráttu myndu Þjóðverjar að lokum sigra í styrjöldinni. Gaf hann í skyn, að stríðið myndi verða óheiqju langt. og ljet um mælt, að það væri síðasta orustan, sem úrslitin væru undir kominn. Sagði hann að baráttan í Rússlandi væri hin erfiðasta, sem Þjóðverjar hefðu nokkru sinni átt í, og átökin hefðu orðið erfiðari vegna svika Italíukonungs og klíku hans ,,Hvort sem óvinir trúa því eða ekki“, sagði Hitler. Framh. á 6. síðu. Roosevlt ræðir við hershöfðingja Washington í gærkveldi Roosevelt forseti hefir kvatt á sinn fund til Hvíta hússins, helstu herleiðtoga sína, og sitja þeir nú á ráðstefnu. Eru það þeir Marshall, yfirhérs- höfðingi, Iving, yfirflotafor- ingi og Arnold, yfirmaður alls flughers Bandaríkjanna. Ekki ,er vitað um hvað er rætt. —*- Reuter. Þýski kafbáturinn, sem sjest hjer á myndinni, var laskaður af Hudsonflugvjel úr strandvarnaliðnu breska. Nokkru eftir að þessi mynd var tekin, var kafbáturinn neyddur til að fara í kaf með skothríð frá flugvjelinni Vjelvirkjar hverfa til vinnu. LONDON í gærkveldi: — Þeir 24.000 vjelvirkjar, sem verið hafa í verkfalli í Skot- landi að undanförnu, sam- þykktu í dag að hverfa aftur j til vinnu. Fara þeir fyrstu til vinnunnar í kvöld, en aðrir í fyrramálið. — Retuer. Skotið á Durazzo. LONDON í gæi'kveldi: -—- Tveir bréskir tundurspillar, sem að undanförnu hafa herj- að á Miðjarðarhafi austan- verðu, gerðu í gær djarflega árás á hafnarborgina Durazzo í Albaníu.- Urðu skemdir á mannvirkjum hafnarinnar af skothríð tundurspillanna. — Reuter. London í gærkveldi. Amerískar sprengjuflugvjel ar frá bækistöðvum í Norður- Afríku, rjeðust á Torino í dag. Var sprengjum varpað á Fiat- verksmiðjurnar, én nokkrar þeirra framleiða kúlulegur, og var árásinn einkum þar að stefnt. Nánari fregnir af árás þessari eru enn ekki fyrir hendi. — Reuter. Þjóðhöfðingi Irak í London. LONDON í gærkveldi: — Þjóðhöfðingi Irak er nú stadd ur í London, og var honum haldin veisla í dag. Attundi herinn við Sangro-ána London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. Frjettaritarar með herjum handamanna á Italíuvígstöðv- utn skýra frá því í kvöld, að Þ.jóðverjar á austurströnd 1- talíu muni hyggja á að verjast áttunda hernum við ána San- gro, en framsveitir manna Montgomerys erú nú víðast hvar komnar mjög nærri á þessari, sem er all ill yfirferð- ar. Telja þeir sig geta sjeð varnarundirbúning óVinanna hinummegin árinnar. Áttunda hernum hefir orð- ið allvel ágengt í dag. llefir hann tekið bæinti Casa Ban- dino á Adriahafsströndinni og yfirleitt mætt fremur lítilli mótspyrnu i sóknhmi, nema frá dreifðum flokkum þýskra baksveita, sem hafa legið í leyni sutnsstaðar til að tefja sóknina. Fimti herinn hefir einnig sótty-nokkuð fram í dag, eu mótspyrnan gegn hernum er miklu harðari, sjerstaklega fyr ir norðan Venafro, þar sem Þjóðverjar veita snarpa mót- spyrnu í hæðum nokkrum. — Hafa sveitir fimta hersins orð- ið að lirinda allmörgUm snörp um gagnáþlaupum, sem Þjóð- verjar gerðu ofan úr hæðun- um, en flugher bandamanna hefir stutt sóknina með fjöl- mörgum árásum á lið og stöðv ar Þjóðverja. —Reuter. London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgua- blaðsins frá Reuter. Rússar tilkyntu í kvöld, að þeir sæktu fram á breiðri víglínu fyrir vestan Kiev, og væru nú lengst komnir um 80 km. frá borginni. Eiga þeir eftir svipaða leið til járn- brautarborgarinnar Zitomir. Vörn Þjóðverja er hörð, en sókn Rússa hefir hvergi verið stöðvuð. Á Krímskaga segjast Rússar hafa komið meira liði á land við Kerch í skjóli myrkurs, og sjeu þeir komnir mjög nærri bænum Kerch að sunnan. Segir í herstjórnartil- kynningu Rússa í kvöld, að þeir hafi hrundið gagnáhlaup- um Þjóðverja þarna. — Á Perekopeiðinu eru einnig grimmar orustur háðar. Jugoslafneskir svikarar aðvaraðir London í gærkveldi. YfirherShöfðingi Breta í löndunum við austanvert Mið- jarðarhaf, Sir Ilenry Maitland Wilson, hefix: útvarpað aðvör- un til jugoslafneskra svikara og quislinga, sem misnoti Chetnikanafnið, og berjist með Þjóðverjum. Sagði herforing- inn í ávarpi sínu, að þessa skyldi hefnt, því hver sá mað- ur, sem aðstoðaði Þjóðverja, væri fjandmaður hinna sam- einuðu þjóða, og yrðu þeir sjálfir að hitta sig fyrir, sem berðust gégn frelsishreyfingu Jugoslafa. — Reuter. Hungursneyð yfir- vofandi í Evrópu. LONDON —: Það er ljótt útlit í matvælamálum heims- ins, sagði Ilarlech lávarður, fulltrúi bresku stjórnarinnar í Suður-Afríku, í ræð.u, sem hann hjelt nýlega fyrir em- bættismönnum frá Bechuana- landi. „Hungursneyð er yfirvof- andi í mörgum Evrópulönd- ura, en þar hefir ríkt hálfgerð 'hungursneyð um tíma. Utlitið er einnig alvarlegt í Súður- Afríku. Það geta liðið niörg ár, þar til stórgripaeign lands- manna hjer kemst aftur í eðli- legt horf“, bætti ræðumaður við. — Reuter. Sprengja veldur mann- tjóni í London. LONDON í gærkveldi: — Sprengja, sem fjell á London í nótt sem leið, olli allmiklu manntjóni. Kom hún niður á krossgötur, en samkomu- og skemtistaðir voru við götuna, sem var full af fólki. Sprengj- an kveikti í sumum næstu hús um, þar á meðal kvikmynda- húsi og veitingastofu. Reuter. Þjóðverjar segjast eiga í mjög harðri varnarbaráttu vestur af Kiev, og kveða þeir Rússa tefla þar fram mjög miklu liði. Einnig segja Þjóð- verjar, að hershöfðingi þeirra, Schneider, sem stjórnaði stór- fylki einu, hafi fallið í bar- daga á þessum slóðum. Rússar seg.jast, hafa fellt niörg þús- und Þ.jóðverja á Kiev-víg- stöðvunum. Áhlaup Rússa norðar. Frjettaritarar herma, að Rússar sæki hart á fyrir suð- vestan og norðvestan Nevel, og segja Þjóðverjar að þar eigi þeir líka í mikilli varnar- orustu. Sumar fregnir herma, að Rússar hafi byrjað þarna allsherjar sókn, en ekki segja þeir sjálfir frá því í tilkynn- ingu sinni í kvöld. I Dnieperbugðunni. I Dnieperbugðunni hefir ver ið fremur kyrrt að undan- förnu, eftir hina æðisgengnu bardaga að undanförnu. Rúss- ar geta ekki um þessar víg- stöðvar sjerstaklega í tilkynn- ingu sinni, en Þjóðverjar segja að þar hafi frekar lítið verið barist, nema hvað þeir hafi gert þar nokkur áhlaup á ein- staka stað. Þá segjast þeir hafa getað innikróað nokkrar rúss- neskar sveitir við Nikoiiol. Þjóðverjar tilkynna sigur á sjó London í gærkveldi. Þýska herstjórnin hefir í aukatilkynningú tilkynnt mik- inn sigur á sjó. Ségir í tilkynn ingunni, að þýskar sprengju- og tundurskeytaflugvjelar hafi ráðist á stóra skipalest bandamanna úti fyrir strönd- um Norður-Afríku, og er skipa lest þessi talin hafa verið að flytja hermenn frá Ameríku. Segir í tilkynningunni, að 23 stór flutningaskip hafi verið í lestinni, en hún hafi verið varin 8 tundurspillum. Þá seg ir tilkynningin, að 13 skipum hafi verið sökkt, samtals um 140.000 smál. og hafi fjöldi hermanna farist. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.