Morgunblaðið - 09.11.1943, Síða 6

Morgunblaðið - 09.11.1943, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIE ÞriSjudagur 9. nóv. 1943. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. ■— Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Pólitískt hlutverk stjetta ANNARS VEGAR í þjóðfjelaginu hafa komið fram, og koma enn fram, menn með vaxandi orðagjálfri um það, að stjettir þjóðfjelagsins eigi að fylkja sjer einhuga með þessum eða hinum flokkinum, sem háværastur er í ein- hliða hagsmunakröfum viðkomandi stjetta. Hins vegar eru þeir, sem hafa þá skoðun, að hagsmunakröfur stjett- anna verði ekki leystar svo að vel fari fyrir heildina, og þá heldur ekki, þegar alt kemur til alls, fyrir viðkomandi stjettir, nema með þjóðlegri víðsýni og gagnkvæmu tilliti til tilsvarandi hagsmuna annara stjetta. Sjálfstæðismenn fylla síðarf flokkinn. Fylgjendur ann- ara flokka fyrri hópinn. Framsóknarforkólfarnir ganga nú fast á það lagið, að allir bændur eigi að fylkja sjer utan um Framsóknar- flokkinn. Vitaskuld er það hin mesta fásinna, að hinir einstöku bændur geti með nokkru móti miðað afstöðu sína til stjórnmálaflokkanna við það eitt, hverrar stjettar þeir eru. Þeir verða, eins og meðlimir annara stjetta, að miða pólitíska afstöðu sína til flokkanna við það, hvaða stefnu flokkanna þeir telja líklegasta þjóðinni til farsældar. Hvort þeir t. d. telja líklegra til velfarnaðar samyrkju- búskap eða sjereign og sjálfsábúð jarða, frjálsan atvinnu- rekstur einstaklinga eða ríkisrekstur og einokanir o. s. frv. — Það er þá líka staðreynd, að bændur hafa aðallega fylgt tveim flokkum, sem sitt á hvaða hafa haft mest bændafylgi og það mjög svipað. Hitt er augljóst mál, að bændur allir, svo sem aðrar stjettir, hljóta altaf að eiga viss sameiginleg hagsmuna- mál varðandi afkomu þeirra og efnahag. Og þá er jafn augljóst, að þegar mál þess eðlis koma til kasta Alþingis, sem skipað er pólitískum fulltrúum, þá er bændum, svo sem öðrum, mestur styrkur að því að njóta fyrirsvars og fulls tillits í sem flestum flokkum. Það er því ekki aðeins kórvilla, að stjettasjónarmið eigi að ráða pólitískri afstöðu manna, heldur einnig hagsmuna- lega varhugavert fyrir einstakar stjettir að binda trúss sitt í þröngsýni við boðendur stjettaflokkaskipunarinnar. Stór a uglýsing - lítil bók UM SÍÐUSTU HELGI gat að líta fyrirferðarmikla aug- lýsingu í dagblöðunum frá einu bókaforlagi bæjarins. Fyrirsögn auglýsingarinnar var svohljóðandi: Ný bók, sem allir íslendingar þurfa að lesa og eiga: Ástandið í sjálfstæðismálinu. Nú er þessi rækilega auglýsta bók komin fyrir almenn- ingssjónir. Hún hefir engan nýjan boðskap að flytja. Hún er nákvæmlega á sömu línu og Alþýðublaðið undanfarið, þar sem reynt hefir verið að telja þjóðinni trú um, að hún eigi ekkert að aðhafast í sjálfstæðismálinu. Ef Al- þýðublaðið er enn sömu skoðunar, mun það næstu daga birta nokkrar greinar úr bókinni. Svo er bókin gleymd, þrátt fyrir stóru auglýsingarnar. En bók „Ástands“-manna gefur tilefni til að spyrja: Hvað líður sjálfstæðismálinu á Alþingi? Hvað tefur að- gerðir þess í málinu? Ríkisstjórnin hefir tilkynt Alþingi afstöðu sína til máls- ins.Hún er eindregið fylgjandþ stofnun lýðveldis á næsta ári, eins og stjórnarskrámefnd hafði ráðgert. Þessi yfir- lýsing stjórnarinnar hafði góð áhrif á þingið og hún mun áreiðanlega stuðla að sameining þjóðarinnar í málinu. En þar sem enn eru að verki menn, þrátt fyrir samein- ingaívilja ríkisstjórnarinnar, serh halda áfram að telja þjóðinni trú um, að undanhaldsleiðin sje hin eina rjetta, má Alþingi ekki draga það lengur, að marka stefnuna, Þeir verða áreiðanlega ekki margir, íslendingarnir, sem skerast úr leik í sjálfstæðismálinu, þegar Alþingi hefir markað stefnuna, og tekið sínar ákvarðanir. Meira að segja mun svo fara, að flestir þeir, sem Ijetu undan áróðri undanhaldsmanna og skrifuðu undir áskorun til Alþingis, munu yerða með, er til úrslitanna kemur. — Hæða Hitlers Framh. af bls. 1. ,,Þá kemur sá dagur, að vjer munum hefna vor á þeim, og ef við náum ekki1 til Ameríku, þá er annað land nær, og það skal kom- ast að því keyptu“. Miklar fórnir. „Vjer verðum að færa þungar fórnir‘,‘ sagði Hitl- er, „en allar fórnir eru leik ur einn hjá því að bíða ó- sigur. Sagði Hitler, að ef bandamenn reyndu að mynda nýjar vígstöðvar, þá myndi sjást hvort Þjóðverj ar hefðu ekki varalið, og sagði Hitler, að það myndi verða annað að ganga á land í Frakklandi eða Nor- egi, eða á Sikiley. „Óvinirnir munu ekki sigra þýska herinn, sama hve stríðið verður langt. Þjóðverjar myndu aldreil gefast upp. — „Alt getuh skeð annað en að jeg missi kjarkinn", sgði hann. Hitler hvað loftárásirnar koma þungt niður á konum og börnum Þýskalands, og tæki sig sárt til þessa fólks, en skemdir kvað hann til- tölulega litlar, og myndi alt verða byggt upp aftur á tveim til þrem árum eftir stríðið. Kvað Hitler nú vera framleiddar 10 milj. smál. jaf sementi á ári til virkja- gerðar í Þýskalandi. Andstæð'ingarnir. „Bandamenn“, sagði Hitl er, „þykjast hafa unnið styrjöldina, en samt hlaupa þeir frá einni ráðstefnunni’ til annarrar, til þess að 'reyna að breiða yfir sundr- ungina í herbúðum sínum. „Jeg veit ekki“, sagði Hitler, „hvort sá er nokkur í þýskalandi, sem vonast eftir bjartari framtíð vegna sigurs bandamanna, jeg get aðeins sagt, að einung- is glæpamenn væru þannig skapi farnir, að þeir vildu þannig gerast böðlar þjóð- ar sinnar, og að þeir vonast aðeins til þess að mata krókinn með því að svíkja hana. 1939 og nú Hitler lauk máli sínu með því að segja: „Vjer skulum hafa eitt í huga á þessu f-imta styrjaldjarári: Þegar þessi ógurlegu átök byrjuðu, voru óvinirnir alls staðar nærri landamærum vorum,, og ýms ríki búin til svikráða undir yfirskyni hlutleysis, en nú standa herir óvinanha hvarvetna í órafjarlægð frá landa- mærum Þýskalands vegna hetjuskapar hermanna vorra“. Að síðustu kvaðst Hitler vera forsjóninni þakklátur fyrir að hafa getað samein- að þýsku þjóðina og kvað Guð hjálpa þeim, sem hjálpaði sjer. sjálfur“.. Afmælisvísur til, MorgunblaSsins. MEÐAL margra heillaóska, sem Morgunblaðinu barst á þrí- tugsafmælinu, voru nokkrar visur frá Ágúst Jónssyni. Hann er nú sjúklingur á Landakots- spítala. Afmælisvísurnar fara hjer á eftir: Eg mjer leyfi ef að má eina senda línu, og þjer til heilla óska á afmælinu þínu. Þú hefir nú í þrjátíu ár þjóðar hylli notið, og við öflugt flokka fár í flestu sigur hlotið. Þú hefir margan manninn frætt um mál, sem nokkuð varðar, og hluti alla hefir rætt himins milli og jarðar. Hjer skal ekkert einstakt nefnt, en eitt má jafnan sanna: Þú hefir, Moggi, stöðugt stefnt að störfum framfaranna. Út um landsins borg og bý berðu margskyns fræði. Árgangarnir enn á ný ýms málefni ræði. Er vini upp af værum blund vekur dagsins glæta, ennþá muntu marga stund morgunkaffið bæta. Skemdarverk. í HAIJST var komið fyrir all- miklu af trjáplöntum á Austur- velli. Var vel um trjáplönturnar búið, til þess að þær stæðust vetrarveðrin, m. a. voru settar trjespelkur upp með plöntunum, En það er með þessar trjá- plöntur eins og svo margt og margt, sem gert er í þeim til- gangi að fegra þenna bæ, að það fær ekki að vera í friði. Börn og unglingar leika sjer að því að rífa spelkurnar og fylgja þá oft hinar ungu plöntur með. Það verður ekki annað sjeð, en að ef þessi ljóti leikur ungling- anna fær '.að halda áfram, þá verði ekki eftir ein einasta planta á Austurvelli að vori. Væri nú ekki reynandi, að kennarar og foreldrar brýndu fyrir börnum að valda ekki spjöllum, eins og hjer hefir átt sjer stað. Kennarar gætu gert skólabörnum skiljanlegt með fá- um orðum, að þessar trjáplönt- ur eru settar niður í þeim til- gangi að fegra bæinn, sem þaU eiga sjálf að byggja og stjórna þegar þau eldast. Þeir fullorðnu ekki betri. EN það eru ekki eingöngu bömin, sem valda spjöllum hjer í bænum. Fullorðið fólk er svo kærulaust í umgengni, að furðu sætir. — Arnarhóll er vinsælasti túnbletturinn í bænum. Þangað sækja þúsundir manna á sumr- in, þegar veður er gott, til að njóta sólarinnar, Snotrar götur hafa verið settar um þveran og endilangan hólinn, til þess að menn geti komist leiðar sinnar í hvaða átt sem er, án þess að troða niður grasið. Þá hafa bæj- aryfirvöldin látið setja niður trjáplöntur. En þessa dagana má sjá, að þeir, sem um Arnarhól þurfa að ganga, gera sjer ekki að góðu þær götur, sem ætlaðar eru gang andf fólki, heldur hafa menn tekið að sjer að troða nýja slóða, sem eru eins og fjárgötur í tún- inu. Ein fjárgatan liggur frá skrif- stofúbyggingu ríkisstjórnarinn- ar. Er augsýnilegt, að sú slóð hefir verið troðin af fólki, sem hefir verið á leið frá og til Arn- arhvols. Það hefir ekki nent að ganga nokkur skref neðar til þess að komast á götuna, sem ætluð er gangandi fólki. Lokið öskutunnunum. KONA, sem býr innarlega við Grettisgötu, skrifar mjer brjef útaf öskutunnum í nágrenninu við hana. Hún segir, að við bak- hlið húsanna, milli Grettisgötu og Laugavegar sje urmull af rott um, sem sæki í öskutunnur, sem standa opnar og sem oftast eru fullar og hálffullar af matarleif- um. Konan segist horfa á þetta út um gluggann hjá sjer daglega Þarna sje hin mesta gróðrarstía fyrir rottur og vill hún, að ráð- stafanir verði gerðar til að bæta úr þessu. Það er vafalaust rjett, sem konan segir, því víða í bænum hirðir fólk ekki um að hafa lok á öskutunnunum hjá sjer, og þegar matarleifar safnast fyrir á milli þess, sem hreinsað er úr tunnunum, þá er ekki nema eðli legt að rottur sækist í ætið. Úr þessu þarf að bæta. Hver og einn einasti húseigandi ætti að sjá til þess, að vel sje gengið frá öskuíláti og umfram alt að gæta þess, að því sje lokað vel. Þetta kostar ekki mikið fyrir hvern einsfSkling, en myndi auka mjög ált hreinlæti í bænum. • Hækka kartöflur aftur í verði? BLÖÐIN hafa gert kartöflu- málunum allvel skil undanfarið og jafnvel ríkisstjórnin sjálf hef ir lagt orð í belg, væntanlega til að „gera hreint fyrir sínum dyr- um“. En vegna þess, að hófleg- um aðfinslum í sambandi við hringlandann með kartöfluverð- ið, hefir verið illa tekið af ríkis- stjórninni og hennar vinum, þá má benda á nokkur atriði enn í þessu sambandi, sem enn hafa ekki verið rædd opinberlega. Hvernig stendur t. d. á því, að þegar fyrst var ákveðið hámarks verð á kartöflum í haust, þá var álagning í srhásölu ákveðin 25%, en svo verðbreytingu ríkisstjórnarinnar, sem kom nokkru síðar, er smásöluálagn- ingin lækkuð niður í 20%, og loks með síðustu verðbreytingu á kartöflum ér smásöluálagning in aftur hækkuð upp í 25%. Og þó að þetta þyki kannske aukaatriði, þá er annað, sem miklu máli skiftir og það er, að verðlag á kartöflum hefir farið 0 \ hækkandi í Englandi undanfarn ar vikur. Var ríkisstjórnin búin að semja um ákveðið verð á öll- um þeim kartöflum, sem kaupa á til landsins, eða verður að breyta kartöfluverðinu einu sinni enn, vegna verðhækkunar í Englandi?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.