Morgunblaðið - 03.03.1944, Side 8
g
iæg ntiólk
mun verða
i dag
NÆG MJÓLK mun verða í
bænum í dag. Mjólkurbílarnir
komust Þingvalaleiðina í gær-
kvcldi. Sögðu bifreiðarstjórarn
ir leiðina vera færa, t. d. var
einn bíllinn ekki á keðjum.' Þá
fóru mjólkurbílar með um það
þrjú tonn á vörupalli hjeðan úr
bænum um Hellisheiði. Voru
bílarnir um það bil 6 tímar á
Ieiðinni og var ekið ýmist á
veginn eða á hjarni. Versti kafl
inn er fyrir austan Smiðjuhæð
á heiðinni. Varð að draga bílana
í gegn um mikinn skafl, sem er
um það bil V2 km.
Eins og að ofan getur, komu
bílarnir Þingvallaleiðina, en
þar var í fyrradag hin mesta
ófærð, á Mosfellsheiði, 18 stiga
gaddur, mikií veðurhæð og
blindhríð.
H-DraiaSur dæaidur í
i ára þræUnmar
mm íyrir nauS-
ungartiiraun
HERSTJÓRNINN ameríska
hefir tilkynt blöðunum, að ame-
ríski hermaðurinn, sem gerði
tilraim til að nauðga 15 ára ís-
lenskri stúlku, sem var á leið
heim til sín á Seltjarnamesi
um kvöldið þann 6. febrúar s.
1., hafi verið dæmdur í 8 ára
þrællcunarvinnu.
Hann var rekinn úr hern-
um með skömm og missir þar
með öll sín borgaralegu rjett-
indi.
Bridgekepnin:
nia
Onflur iMiferð
ÖNNUR umferð meistara-
flokkskeppni Bridgefjelagsins
var spiluð í fyrrakvöld. Eftir
þessa umferð stendur kepnin
þannig:
Fyrst er sveit Gunnars Guð-
mundssonar með 649 stig, önn-
ur sveit Harðar Þórðarsonar
með 624, þriðja sveit Gunngeirs
Pjeturssonar með 575, fjórða
sveit Lárusar Fjeldsted 572,
fimta sveit Axeis Böðvarssonar
567, sjötta sveit Stefáns Þ.
Guðmundssonar 558, sjöunda
sveit Brands Brynjólfssonar
555 og áttunda sveit Ársæls
Júlíussonar 508 stig.
Þriðja umferð kepninnar
verður spiluð n. k. sunnudag kl.
1.30 að Hótel Borg. Verður að-
gangur ókeypis fyrir fjelags-
merin.
Hörð sókn gegn
Japönum,
London í gærkveldi: — Fjórt
ándi herinn breski sækir hart
á stöðvar Japana á Arakansvæð
inu í Burma, en til þeirra
stöðva, sem nú er sótt að, hörf-
uðu leyfar þess liðs Japana,
sem á dögunum innikróuðu 7.
indverska herfylkið á þessum
slóðum. Bardagar erií mjög
hatrammir. — Reuter.
Mólekja í Danmörku
Síðan styrjöldin hófst, hafa Danir mjög þurft að búa að sínu um eldsneyti, þar sem kola-
innflutningur hefir torveldast. Hafa Danir því mikið notað mó til eldsneytis, og sjest hjer
danskur mótekjumaður vera að dreyfa mó til þurkunar.
Ávarp um fjársöfnun til danskra flóttamanna
Föstadagur 3. mars 1944.
Stórórós
á Stattgart
London í gærkveldi.
Um 600 breskar flugvjelar
fóru í nótt sem leið til árása á
Þýskaland, og var aðalárásin
gei-ð, á borgina Stuttgart. en.
auk þess rjeðust Mosquitoflug-
vjelar á Munchen.
í Stuttgart er, álitið áð miklar
skemdir hafi orðið, þar sem á-
rásin- var hörð, en ilt var að
sjá árangur, vegna þess að loft
var mjög skýjað. Hindraði það
og allar varair. Þjóðverja, bæði
loftvarnaskyttur og orustuflug-
vjelar, enda fórust ekki nema
4 af flugvjelum Breta í árás
þessari.-
í dag rjeðust mörg hundruð
meðalstórra, flugvjela á hernað
arstaði í Norður-Frakklandi
með miklum árangri. —
— Reuter.
Mikill fjöldi danskra flóttamanna dvelur í Svíþjóð og víðar
um þessar mundir. Flestir þessara manna hafa komist úr landi
slyppir og snauðir og munu eiga litla kosti atvinnu og vera
mjög hjálparþurfa. Fólk þetta er úr öllum stjettum þjóðfje-
lagins og meðal þess margt barna, kvenna og gamalmenna.
Islenska þjóðin hefir þegar sýnt Finnum og Norðmönnum
samúð sína í verki og efnt til almennrar fjársöfnunar þeim til
handa. Eru það þá Danir einir af ninum nauðstöddu Norður-
landaþjóðum, sem enginn slíkur vináttuvottur hefir veriö sýnd-
ur. Mun það hafa komið af því, að fram til þessa hafa íslend-
ingar litið svo á, að eigi væri hægt að veita þeim hjálp, er að
gagni mætti koma, en nú mun þörf hinna dönsku flóttamanna
í Svíþjóð vera einna brýnust þeirra Norðurlandabúa, sem unt
er að rjetta hjálparhönd eins og sakir standa.
Islendingum hefir vegnað svo vel, þrátt fyrir allar hörm-
ungar stríðsins, að þeir eru aflögufærir öðrum til styrktar, og
munu þeir fúsir að sýna Dönum þannig vinarhug í verki. Verði
þátttakan almenn, erum við færir um að ljetta verulega raunir
margra danskra flóttamanna, og það án þess að nokkur ein-
staklingur taki nærri sjer.
Væntum vjer því, að íslendingar liggi nú ekki á liði sínu,
heldur láti gjafir skjótt og vel af hendi rakna, enda er ætlunin,
að söfnunin standi aðeins yfir næstu mánuði. Mun sannast sem
jafnan, að fyrsta hjálpin er besta hjálpin, enda verði fjeð sent
jafnóðum og það kemur inn.
Það má ekki einvörðungu telja rjett að íslenska þjóðin efni
til slíkra samtaka, heldur siðferðislega skylt. Islendingar megd
aldrei láta hlut sinn eftir liggja, þegar unnið er að mannúðar-
málum.
Reykjavik 1. mars 1944.
Sigurður Nordal, prófessor,
Kristján Guðlaugsson, ritstjóri
Vísis, form. M. F. í. Lúðvíg
Guðmundsson, skólastjóri. Ben.
G. Waage, forseti í, S. í. Stefán
Jóh. Stefánsson, form. Norræna
fjelagsins. Páll S. Pálsson, form.
Stúdentaráðs. Björn Br. Björns-
son, tannlæknir. Gísli Sveins-
son, forseti sameinaðs Alþingis.
Björn Þórðarson, forsætisráð-
herra. Haraldur Guðmundsson,
form. þingfl. Alþfl. Brynjólfur
Bjarnason, form, miðstj. Sósí-
alistaflokksins. Olafur Thors,
form. Sjálfstæðisflokksins. Ey-
steinn Jónsson, form. þingfl.
Framsóknarmanna. Jón Hjalta-
lín Sigurðsson, rektor Háskóía
íslands. Pálmi Hannesson, rekt
or Mentaskclans. Jónas Þor-
bergsson, útvarpsstjóri. Skúli
Skúlason, form. Blaðamanna-
fjel. Islands. Prófessor Ásmund
ur Guðmundsson, formaður
Prestafjelags íslands. Helgi H.
Eiríksson, forseti Landsam-
bands iðnaðarm. Guðgeir Jóns-
son, forseti Alþýðusamb. ís-
lands. Valtýr Stefánsson, rit-
stjóri Morgunblaðsins. Sigurð-
ur Guðmundsson, ritstjóri Þjóð
vilians. Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri Tímans. Kristinn Stef-
ánsson, stórtemplar. Magnús
Pjetursson, hjeraðslæknir, for-
maður, Læknafjelags íslands.
Daníel Ágústínusson, ritari
sambandsstj. U. S. í. Steindór
Steindórsson, form. Akureyr-
ardeildar Norr. fjel. Jakob
Jónsson, prestur. Garðar Sva-
varsson, prestur. Sigurður Sig-
urðsson, form. Rauða kross ís-
lands. Guðmundur Ásbjörns-
son, forseti bæjarstjómar
Reykjavíkur. Magnús Jónsson,
form. Útvarpsráðs íslands.
Jakob Kristinsson, fræðslu-
málastjóri. Sigurður Guð-
mundsson, skólameistari, Ak-
ureyri. Ingimar Jóhannesson,
form. Sambands ísl. barnakenn
ara. Hallgrímur Benediktsson,
form. Verslunarráðs íslands.
Tómas Guðmundsson, form.
Bandalags ísl. listamanna. Stef
án Pjetursson, ritstjóri Alþýðu
blaðsins. Árni Jónsson frá Múla
ritstjóri íslands. Bjarni Ásgeirs
son, form. Búnaðarfjelags ís-
lands. Kjartan Thors, form.
Landssambands ísl. útvegs-
manna. Ragnhildqr Pjeturs-
dóttir, fórm. Kvenfjelagasam-
bands íslands. Bjarni Jónsson,
vígslubiskup. Kristján Jónsson,
form. ísafjd. Norræna fjelags-
ins. Jón Thorarensen, prestur.
Árni Sigurðsson, fríkirkjuprest
ur. Helgi Tómasson, dr. med.
Gunnlaugur Einarsson, læknir.
Sigríður Einarsdóttir, formað-
ur Hjúkrunarkvennafjelags ís-
lands. Þuríður Bárðardóttir,
formaður Ljósmæðrafjelags ís-
lands. Friðrik Hallgrímsson,
dómprófastur.
Kvikmyndahús
á Siglufirði
BÆJARSTJÓRN Siglufjarð-
ar hefir leyft verkalýðsfjelagi
Siglufjarðar að reka kvik-
myndahús. Verður Alþýðuhús-
inu þar breytt í kvikmyndahús
Sýningarvjelar af fullkomn-
ustu gerð hafa vefið keyptar og
hefir maður verið sendur til
Reykjavíkur til að taka á móti
vjelunum.
Hressingankálinn
opnaðnr á ný
HRESSINGARSKÁLINN í
Austurstræti, sem hefir verið
lokaður síðan um jól vegna
breytinga og endurbóta á hús-
næði, hefir verið opnaður á ný
og undir nýrri stjórn. Það er
hlutafjeiag, Hressingarskálinn
h. f., serra nú rekur skálann.
Formaður fjelagsins er Ragnar
Guðlaugsson fyrv. bryti og
stjórnar hann veitingahúsinu.
í fjelagi með honum er og
Brynjólfur J. Brynjólfsson, sem
rekur veitingahúsið Höll í
Austurstræti.
Töluverðar breytingar hafa
verið gerðar á Hressingarskál-
anum. Alt húsnæðið málað hátt
og lágt og nýir innanstokksmuh
ir settir upp að nokkru leyti.
Þá verður rekið „Soda-found-
tain“ í skálanum. Inngangi hef
ir verið breytt frá því sem var
cg í ráði er að hafa útiveitingar
í trjágarðínum á bak við húsið
þegar veður leyfa í vor og í
sumar.
Öll nýtisku áhöld eru í eld-
húsi og búrL
Þá verða og gerðar þær breyt
ingar, að þjónar annast frami-
stöðu ásamt framistöðustúlk-
um. Sigurður B. Gröndal verð-
ur yfirþjónn.
Hressingarskálinn er hinn
vistlegasti eins og hann er nú
og Ragnar Guðlaugsson er hinn
hæfasti veitingamaður, sem
mun sjá um, að hafa bestu fram
reiðslu og umgengni á veitinga
húsinu.
Rausnarlegar gjafir
STAÐAHRAUNSKIRKJU á
Mýrum hefir borist rausnarleg
gjöf — 1000 krónur — frá sr.
Lárusi Amórssyni, presti í
Miklabæ í Skagafirði, til minn-
ingar um fósturforeldra hans.
Jóhönnu Magnúsdóttur, sem
búsett er í Reykjavík, og sr.
Stefán heitinn Jónsson, fyrrum
prófast að Staðarhrauni.
Ennfremur hefir kirkjunni
borist gjöf — 200 krónur — frá
sóknarbami, sem ekki vill láta
nafns síns getið.
Sóknamefndin hefir beðið
blaðið að færa gefendunum
bestu þakkir fyrir hönd safnað-
arins.