Morgunblaðið - 19.04.1944, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.04.1944, Blaðsíða 10
30 MORGrUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. apríl 1944 <,Nú?“ „Það þarf að dvelja í Reno í sex vikur, held jeg, til þess að skilnaður þar sje löglegur, en hún gerði það ekki. Naney Gibbs, stúlkan, sem hún versl- ar í fjelagi við, var skorin upp við botnlangabólgu og lá á ►júkrahúsi í þrjár vikur, og Stella flaug frá Reno, til þess að taka við versluninni á með- an, áður en þessar sex vikur voru liðnar. Af tilviljun komst Frank að þessu nokkru seinna. Hann varð alveg æfur, en jeg taldi hann á, að skifta sjer ekk- ert af því, sagði honum, að hann myndi ekkert græða á því“. „Og þú heldur að hann hafi farið til hennar, og sagt henni að skilnaðurinn væri ekki lög- legur, og hún gæti því ekki gift sig aftur?“ spurði Armitage. „Hvað heldur þú?“ „Jeg held“, sagði gamla kon- an kuldalega“, að það passi á- gætlega. Og svo ákvað Stella að gei-a sjálfa sig að ekkju, þar eð skilnaðurinn væri ólögleg- ur?“ „Já, því ekki það?“ „Jeg veit það ekki, góða mín. En jeg trúi því ekki, að hún þafi gert það. Ef það væru að- eins skotin......“ Það fór hrollur um Margrjeti. „Hún hefir orðið hrædd, og virst það eina leiðin til þess að losna við líkið“. „Þetta er vitleysa, Margrjet, og þú veist það“, sagði frú Armitage. Margrjet var þrákeldnisleg á svipinn. „Rand trúir þessu“, sagði hún. „Hann er lögregluþjónn, og þekti ekki Stellu. En þú er kona, og þú þekkir hana. Mjer finst þú ættir að skammast þín“. Margrjet fór að gráta. Hún fjell á knje fyrir framan gömlu konuna og grúfði andlitið í keltu hennar. „Svona, svona“, sagði hún og strauk blíðlega yfir hár Mar- grjetar. „Þú hefir verið of mik ið ein. Komdu og vertu hjá okk ur, þar til alt er um garð geng- ið“. „ „Jeg get það ekki“, svaraði Margrjet snöktandi. „Jeg mundi stöðugt hugsa um, að ef Frank væri lifandi, mundi hann reyna að ná í mig í íbúðinni, og þá væri jeg ekki þar“. Og eftir dálitla stund sagði Margrjet dálítið, sem gömlu konunni fanst undarlegt seinna, þótt hún ekki tæki eftir því þá. „Jeg er svo ógurlega hrædd“, sagði hún. XVII. Kapítuli. Herbert Martin stóð við skrif borð sitt, og horfði af nafn- spjaldinu, sem hann hjelt á í hendinni, og á bláeygða mann- inn, sem stóð gegnt honum. „Ef þetta er ráð til þess að fá viðtal, hr. Gnatt“, sagði hann, „verð jeg að biðja yður að hafa mig afsakaðan“. Hann h horfði aftur á riafn- spjaldið, en á það var skrifað: Jeg var síðasti maðurinn, sem sá Frank Vaughan á lífi. Barney brosti elskulega. „Það er nú dálítið meira en viðtal, sem jeg vil fá, hr. Mart- in. Jeg ætla að komast til botns í Frank Vaughan-málinu, og hefi til þess fult umboð blaðs míns. Jeg hefi unnið dálítið með Rand, þó ekki opinberlega. En nú finst mjer stefna lögreglunn- ar i málinu of einhliða. Jeg hygg að möguleikarnir sjeu fleiri um lausn gátunnar. Jeg kom því til yðar í von um að fá hjá yður lykilinn að ein- hverjum þessara möguleika". „Til dæmis?“ „Ja, jeg veit það ekki“, sagði Barney. „Jeg hefi spurt sjálf- an mig einnar spurningar. Setjum svo, að Vaughan hafi yfirgefið íbúðina strax eftir að skotin heyrðust. Hvað hefir þá skeð? An efa hefir yður dott- ið þessi sama spurning í hug“. Martin kinkaði kolli. „Já, rjett er það“. „Svar Rand er, að hann hafi ekki yfirgefið íbúðina. En hingað til, hefir honum ekki tekist að sanna það. Jeg trúi því ekki, að hann geti sannað það, því að jeg hygg að það sje einmitt það, sem hann hafi gert“. „Gjörið svo vel að fá yður sæti, hr. Gnatt“, sagði Martin og nú var kuldinn í svip hans alveg bráðnaður. „Hvað er það sem þjer viljið vita?“ „Jeg vildi gjarnan fá að vita um innihald brjefsins frá Sop- híu Masson, sem Vaughan hafði í vasa sínum, þegar hann hvarf“, sagði Barney. Andartak hugsaði Martin sig um, en studdi síðan á hnapp á skrifborðinu,1 og bað ungfrú Rose um afritið af Masson- brjefinu. Barney athugaði það vand- lega, en það var erfitt að lesa það. Skriftin var einkennileg óg gamaldags, og hafði brjef- ritarinn augsýnilega verið mjög skjálfhentur. Brjefið var á þessa leið: Kæra Hilda. Jeg held að jeg eigi aldrei eftir að sjá þig framar. Thom- as ræður yfir öllu hjer, crg jafnvel Wilder hjúkrunar- kona er á hans valdi. Enginn fær að heimsækja mig. Þau segja að jeg sje ekki nógu frísk, en jeg er alveg frísk. Þau segja að það sje hjartað, en enginn úr okkar fjölskyldu hefir nokkru sinni þjáðst af hjartasjúkdómi. Thomas hefir skipað sjálfan sig einkaritara minn, og endurskoðar jafnvel brjef mín. Jeg er hrædd og treysti engum. Dr. Sawyer er góður við mig, en jeg sje að hann trúir mjer ekki. Hann heldur að jeg sje orðin elli- ær. Jeg reyndi að segja hon- um, að Thomas myndi ein- hvern daginn drepa mig, vegna peninga minna, en hann brosti aðeins og sagði, að jeg skyldi engar áhyggjur hafa. Jeg er hrædd um barnið mitt, að Thomas hafi narrað mig til þess að undirskrifa erfðaskrá. Hann hefir haft með höndum ýms viðskipti fyrir mig, síðan jeg veiktist, og hefir látið mig skrifa und- ir mörg skjöl, og í síðustu viku var það eitthvað, sem þurfti að hafa vitni við. Hann kom með kokkinn og ungfrú Wilder. Hann ljet á sjer skilj ast, að skjalið stæði í sam- bandi við veð á húsi nokkru. En seinna mundi jeg að það hafði verið gengið frá því öllu fyrir tveim árum síðan. Minni mitt er ekki eins gott, og það hefir verið. Jeg er hrædd um, að jeg hefi verið svikin. Jeg þori ekkert að segja. Jeg er hrædd við hann-. Hann er altaf mjög góður og um- hyggjusamur, en jeg veit að hann gefur mjer stöðugt gæt- ur. Jeg hefi heyrt hann ganga fram og aftur um ganginn á nóttunni, en einu sinni, þegar jeg bað Wilder hjúkrunarkonu að gá fyrir mig, sagði hún, að hann væri ekki þar. Hann hefir hana alveg í vasanum. Mjer hefði aldrei verið leyft að skrifa þetta, en hann er ekki heima í dag, og stofu- stúlkan á að vera hjá mjer. Jeg sendi hana inn í næsta herbergi og sagði henni að jeg ætlaði að sofna. Hún er góð stúlka. Jeg ætla að biðja hana að laumast út með brjefið á eftir, ok koma því í póstinn fyrir mig. Jeg vil að þú vitir það, Hilda mín, að ef eitthvað kemur fyr ir, þá er gamla erfðaskráin mín, sem jeg gerði árið 1930 —• sú eina, sem á að gilda. Þú átt að fá helminginn. Jeg hefði gjarnan viljað, að þú fengir það alt, en jeg þori það ekki. Thomas myndi drepa mig, ef hann kæmist að því. Jeg er hrædd. Allir eru á móti mjer. En jeg veit að þjer finst vænt um mig. Þín frænka. Sophia Sagan af Gisku kerlingu Æfintýri eftir P. Chr. Asbjömsen. 1. EINU SINNI VAR EKKJUMAÐUR, hann hafði ráðs- konu, sem hjet Giska, og hún vildi gjarna fá hann fyrir mann og var altaf að nauða á honum að giftast sjer. En að lokum varð maðurinn svo leiður á henni og nöldrinu í henrii, að hann vissi ekkert hvað hann ætti að gera,-til þess að losna við hana. Svo var það eitt sinn á slætti, þegar hampurinn var orðinn þroskaður, að þau fóru að hrista hamp. Gisku fanst hún vera ósköp falleg og dugleg og hristi hamp af alefli, en varð ringluð í höfðinu af hinni sterku lykt, svo hún valt um og sofnaði á hampekrunni. Meðan hún svaf, kom maðurinn og smurði hana í framan og um hendurnar, fyrst með tólg og svo með sóti, svo hún varð ekki beint glæsileg ásýndum eftir það. Þegar Giska vaknaði og sá, hvemig hún var orðin, þekti hún sjálfa sig ekki aftur. „Get þetta verið jeg?“ sagði hún við sjálfa sig. „Nei, ekki getur það verið, svona ljót hefi jeg aldrei verið, þetta hlýtur að vera fjandinn sjálfur11. En nú vildi hún vita.nánari deili á þessu fyrirbæri, svo hún fór og barði að dyrum hjá húsbónda sínum og sagði: „Er Giska þín heima í dag?“ „Já, auðvitað er hún Giska mín heima“, sagði maðurinn. hann vildi losna við kerlu. „Jæja, þá get jeg ekki verið hún Giska hans“, hugsaði kerling og labbaði af stað, og glaður var bóndinn að hafa losnað við hana. Þegar kerling hafði nokkuð farið, kom hún inn í stóran skóg, og þar mætti hún tveim þjófum. — Það er best jeg verði með þeim þessum, hugsaði Giska, — úr því jeg er fjandinn sjálfur, þá fer víst vel á því. En þjófunum fanst nú eitthvað annað, þegar þeir sáu hana tóku þeir til fót- anna og hlupu eins og þeir gátu, því þeir hjeldu að sá gamli væri kominn að sækja þá. En hlaupin gögnuðu þeim ekki mikið, því Giska var frá á fæti og hafði náð þeim áður en þeir vissu af. „Ef þið ætlið að fara að stela, þá vil jeg koma með ykk- ur og hjálpa til, því jeg er vel kunnug hjerna í sveitinni“, sagði hún. Þegar þjófarnir heyrðu þetta, fanst þeim það ágætt og hættu að vera hræddir. ?,Við ætlum nú eiginlega að ná í sauð, en við- vitum ekki almennilega hvar það er hægt“, sögðu þeir. Gamli sáttmáli af hendi íslendinga við Há- kon konung gamla Hákonar- son og Magnús konung son hans um skattgjöld og þjóðríkissjett- indi íslands, samþyktur á Al- þingi 1263 (og 1264, og endur- nýjaður síðar). Gamli sáttmáli á millum Noregs kongs ok íslendinga. I nafni föður ok sonar ok heilags anda. Var þetta játað ok samþykt af öllum almúga á íslandi á Al- þingi með lófataki: At vjer bjóðum (virðulegum herra) Hákoni konungi hinum kórónaða vára þjónustu undir þá grein laganna, er samþykt er milli konungsdómsins ok þegnanna, þeirra er landit byggja. Er sú hin fyrsta grein, at vjer viljum gjalda konungi skatt, ok þingfararkaup slíkt sem lögbók váttar, ok alla þegnskyldu, svá framt sem haldin er við oss þau heit, sem í móti skattinum var játað. JJtanstefningar viljum vjer Jaungvar hafa, utan þeir menn, sem dæmdir verða af várum mönnjjm á Alþingi í burt af landinu. ,Item at islenskir sje lög- menn ok sýslumenn á landi váru af þeirra ættum, sem at fornu hafa goðorðin upp gefit. Item at sex hafskip gangi á hverju ári til landsins forfalla- laust. ' Erfðir skulu ok upp gefast fyrir íslenskum mönnum í Nor- egi, hversu lengi sem staðit hafa, þegar rjettir arfar koma til eðr þeirra umboðsmenn. Landaurar skulu upp gefast. Slíkan rjett skulu hafa ís- lenskir menn í Noregi sem þeir hafa bestari haft. Item at kongr láti oss ná ís- lenskum lögum ok friði eftir því sem lögbók váttar ok hann hefir boðið í sínum brjefum, (sem guð gefur honum fram- ast afl til). Jarl viljum vjer hafa yfiF oss meðan hann heldr trúnað við yðr, en frið við oss. Halda skulum vjer og vorir arfar allan trúnað við yðr með- an þjer ok yðrir arfar halda við oss þessa sættargerð, en lausir, ef rofin verðr af yðvarri hálfu at beztu manna yfirsýn. Anno m. ijc. lxiij. • Hjer eftir er eiðr íslendinga. Til þess legg ek hönd á helga bók og því skýt ek til guðs at ek sver herra Hákoni konungi ok Magnúsi konungi land ok þegna ok æfinlegan skatt með slíkri skipan ok máldaga sem nú erum vjer sáttir orðnir ok sáttmálsbrjef várt váttar. Guð sje mjer hollr, ef ek satt segi, gramr ef ek lýg. ★ Fyrirlitningarbros særir oft meira en hvössustu orð eða eggjárn. ★ Vaninn heldur menn í hlekkj um, en þörfin í böndum. Eggert Claessen Einar Ásmundsson hæstarjettarmálaflutninKsrtu'iui, Oddfellowhúsið. — Sími 1171. Allskonar lögfrœöistörf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.