Morgunblaðið - 15.06.1944, Side 2

Morgunblaðið - 15.06.1944, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 15. júní 1944 Leikur Fram og Vík- ings gat verið miklu # betri LSIKURINN í fyrrakvöld getur ekki talist hafa verið vel leikinn, enda kom margt fyrir 1 honum, sem hlaut að hafa trufiandi áhrif á leikmennina, þannig að iþróttin hlaut að líða við slíkt. \’íkingur ljek í fyrri hálf- leik undan hægri golu, og h ifði yfirleitt meiri sókn, en framherjar voru slyppifeng- ii, skutu framhjá, eða þá svo liniega, að vel varð varið. Framarar gerðu fá upp- h iaup, en þau voru altaf vel snögg, eins og þeirra er vandi. Var nú hin gamla .fcetnpa Jón Sigurðsson aftur fcominn á kantinn, en var þar aðeins skamma hríð, mun hafa meiðst í fæti. — f»á meiddist Vilberg, vinstri framvörður Víkings, einnig í fvrra hálfleik, — þó ekki tnikið. Komu varamenn í þeirra stað. Víkingur skor- að eit't mark í þessum hálf- ’íeik, jáað gerði Helgi Ey- steinsson, hægri útherji. *[ siðari hálfleik gerðu Fram- ar.-: meiri sókn undan vínd- -ijtum, en Víkingar náðu einnig mörgum vel sæmilegum upp- hiaupum og mátti vart á milli sjí, hvort liðið ætti meira í leiknum, en langspyrnurnar voru hafðar í hávegum, og alt of Iítið sást af stuttum, lagleg- um samleik, þótt honum brygði fyrir einstöku sinnum. Þegar liðið var nokkuð á hálf léikinn, var dæmd vítaspyrna á Víking og skoraði Sigurður ágætt mark úr. Og þótt ekki þýði að deila við dómarann, þá skal það sagt hjer 1 frjettaskyni, að. áhorfendur leyfðu sjer. að fussa og sveija honum fyrir þenna úrskurð hans, svo það bergmálaði vítt um kring. Man jer> ekki að jeg hafi heyrt slíkt hjev á vellinum, síðan Mark- usaer. hinVi danski dæmdi hjer eite.iar minningar um árið. — Dómarinn, sem var „hyltur“ svo ákaft, var Sigurjón Jóns- so. Þetta er í fyrsta skifti, sem ýig veit til að vítaspyrna hafi yerið dæmd á markmann, sem hjeit á knettinum. Eítir þetta færðist fjör í leik- in.n, en hann batnaði hvergi, sem og að líkum lætur, eftir ann.að eins fuss og veihróp. Nei, ef nokkuð var, voru spyrn urnar' lengri og ónákvæmari en áður og menn hittu knöttinn verr. Upphlaupin fóru í handa- skolum að mestu, og einnig samleikur allur. Mitt í þessu þvargi tókst F am að skora mark. En Vík- ingar Ijetu sjer hvergi bregða, þótt þeir ættu talsvert and- stætt, með vindinn á móti sjer og allskyns andstreymi, held- ur hertu sóknina og auðnaðist að tiá jafntefli rjett fyrir leiks- lok. Fyrir utan vítaspyrnuna, sem jeg ætla ekki að dæma um, þótt mjer fyndist hún dæmalaus, því áhorfendur dæmdu hana ræki- Iþga og eftirminnilega, þá var lái'inn mjög óheppilegur að övt leyti, að hann tafði oft leik- ifui að.óþörfu. Þótt það standi skýrum stö£um í knaltspyrnu- iögunum, að dómarinn eigi að forðast eftir megni að tefja leikinn, var Sigurjón hjer sí- flautandi út af atriðum, sem engu máli skiftu, og þar af leið- andi altaf að stöðva leikinn. Ekki þurfti þessa með vegna ó- drengilegs leiks, því hann sást ekki. — Gott dæmi var það, þegar Framari og Víkingur rák- ust saman á hlaupum, svo að þeir hlutu báðir að detta, þá er flautan umsvifalaust á lofti og aukaspyrna tekin á Víking, — sem ekki skiftir hjer máli, en það er leiðinlegt með þessa blessaða dómara okkar; þeir út- skrifast margir á hverju ári, en altaf dæma þeir sömu *fyrir það. Og það er leitt að þurfa altaf að vera að nöldra við dóm arana. en það* verður samt gert, meðan þeir vinna til þess, og líka er það slæmt, þegar menn, sem hafa yfirleitt dæmt vel, dæma svona áberandi Ijelega. Leikar standa nú þannig, að Valur hefir 3 stig eftir tvo leiki, Víkingur tvö stig eftir tvo leiki, K. R. tvö stig eftir tvo leiki og Fram eitt stig eftir tvo leiki. — Óvíst er, hvenær næsti leikur fer fram, eða hverjir leika þá. En í. R. mun algjörlega hætt þátttöku í mótinu. J. Bn. Brjef: Lýðveldishátíðin og kvenþjóðin Herra ritstjóri! ÞEGAR Lýðveldishátíðar- nefndin var skipuð, þótti mjer furðu gegna, að þar átti engin kona sæti. Og meira en helm- ingur íslensku þjóðarinnar eru konur! Hátíðarnefndin hefir nú birt dagskrá hátíðarhaldahna á Þing völlum og í Reykjavík dagana 17. og 18. þ. m. Þar er einnig gengið fram hjá konunum, og enginn fulltrúi skipaður fyrir þeirra hönd. íslendingar voru með fyrstu þjóðum, sem viðurkendu fullt jafnrjetti karla og kvenna, og er það þakkar vert, og þjóðinni til sóma. En hvar er nú jafnrjettið? Og er þelta ekki ósæmileg lít- ilsvirðing í garð kvenþjóðarinn ar, á mestu fagnaðar hátíð okk ar íslendinga? Þess er fastlega vænst, að hátíðarnefndin.svari þessum spurningum á viðeig- andi hátt, með því að gera taf- arlaust ráðstafanir til þess að úr þessum misfellum verði bætt. Kona. Hraðfrystihúseigendur halda fundi í Reykjavík Vilja auka starfsemi hraðfrystihúsanna útgerðarm. frá Vestmannaeyj AÐALFUNDUR Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna var haldinn í Oddfellowhúsinu í gær kl. 15. Fjelagar þessarár stofnunar eru eigendur 49 hraðfrysti- húsa víðsvegar á landinu og eru það öll hraðfrystihús lands ins að undantéknum 14 eða 15 hraðfrystihúsum kaupfje- láganna, sem SÍS sjer um sölu ffskjar fyrir. Mætt.ir voru á. fundinum eígendur og um-* boðsmenn allra þessara hrað- frystihúsa að undanteknum 5, er jafnvel var von á síðar á fundinn. -------~^3aassss3SBm Fyrir fundinum lá ítarleg vjelrituð skýrsla um staíf- semi Sölumiðstöðvarinnar. • Elías Þorsteinsson, formað- ur fjelagsstjórnarinnar skýrði frá ýmsum framkvæmdum og starfsemi Sölmiðstöðvarinnar, og þeirri miklu aukningu á hraðfrystingu fiskjar sem var hjá fjelagsmönnum s.l. ár. Guðmundur Albertsson, framkv.stj. ias upp og skýrði reikninga Sölumiðstðvarinnar fyrir liðið ár. Til umræðu voru trygging- armál hraðfrystihúsanna og hafði Ólafur Þórðarson* frá Laugarbóli, framsögu í þessu máli. Fjelagsstjórnin vildi fá um- boð fundarins til að ráða um- boðsmann í Ameríku með fastri búfetu þar, til að annast sölu hraðfrystifiskjar fyrir Sölumiðstöðina og var það samþykt með öllum greiddum atkvæðum. Framsögu þessa .máls hafði Einar Sigurðsson, um. ' Fundi þessum heldur áframl í dag og voru nokkur máí óafgreidd í gærkveldi. Á fundinum í dag haldai þeir erindi Trausti Ólafsson, efnafræðingur, Davíð Ólafssoh fiskimálastj., Björgvin Frede- riksen, vjelfræðingur og Sv. Árnason fiskmatsstjóri. í kvöld halda hraðfrystihússl eigendur veglegt samsæti í OddfelloWhúsinu. Miklar og fjörugar umræð- ur voru um hraðfrystimálini og stóðu langt fram á kvöld< — Fundarstjóri var Elías Ing-> varsson frá Hnífsdal. Þátttakan í Reykjavík 98% ? Aðalfundur Fulltrúa- ráðs Sjálfstæðis- flokksins. AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins var hald- inn í fyrrakvöld. Formaður, Jóhann Hafstein, gerði grein fyrir slörfum ráðs- ins á s.l. ári. Síðan fóru fram önnur aðalfundarstörf. Stjórn fulltrúaráðsins var öll endur- kosin, hana skipa: Frú Guðrún Jónasson, form. Sjálfstæðis- kvennafjel. Hvöl, Eyjólfur Jó- hannsson, form. Landsmálafjel. Vörður, Lúðvíg Hjálmtýsson, form. Fjel. ungra Sjálfstæðis- manna, Gisli Guðnason, form. Málfundafjel. Óðinn, Bjarni Benediktsson, Gunnar Thor- oddsen og Jóhann Hafstein. í lok fundarins urðu nokkr- ar umræður um málefni full- trúaráðsins og sljórnmálavið- horfið. ý' Guðmundur Benediktsson, formaður lýðveldiskosninga- nefndar Reykjavíkur gaf yfir- lit um úrslit lýðveldiskosning- anna. Samkvæmt þeim tölum, sem nú liggja fyrir, en frá kjör dögum hefir borist allmikið af atkvæðum, er sennilegt, að þátt taka í kosningunum muni að lokum reynast um 98%. De Gaulle kominn til Norður-F rakklands. London í gærkveldi: — De Gaulle hershöfðingi er kominn til strandsvæðis þess í Norður- Frakklandi, sem bandamenn hafa á sínu valdi. — Hann mun bráðlega fara vestur um haf til fundar við Roosevelt. — Reuter. Harðar deilur í breska þinginu London í gærkveldi. EINHVERJAR hörðustu deil- ur, sem lengi hafa orðið í neðri málstofu breska þingsins, urðu í dag, er rætt var þar um mjólkurframleiðslu. Kvað svo ramt að deilum þessum, að landbúnaðarráðherrann var kallaður fasisti og einræðis- herra, og sagt, að hann vildi vera alt í einu, ákærandi, mála flutningsmaður og dómari. ■— Kom þetta mest úf því, að ráð- herrann vildi hafa rjett til þess að svifta þá menn rjettindum til mjólkurframleiðslu, er ekki fullnægðu vissum skilyrðum, en flestir deildarmenn vildu gera slíkum mönnum mögulegt að áfrýja til vissrar nefndar, en ráðherrann sagði, að hann yrði þó að hafa úrslitavaldið. Umræðurnar stóðu í hálfa níundu klukkustund. — Reuter. — Innrásin Framh. af 1. síðu. vissu á hvors valdi þorp þetta er nú. Sjóorustur og skipatjón. Báðir aðilar segja frá endur- teknum viðureignum á sjó, og tefla Þjóðverjar einkum fram tu.ndurskeytabátum sínum og hraðbátum gegn flutningaskip- um bandamanna, en flugvjelar og herskip verja þau. Þá gera sprengjuflugvjelar Þjóðverja árásir á landgöngusvæðið og skip undan ströndinni á nætur- þeli og segjast Þjóðverjar hafa sökt þarna mörgum skipum en kveikt í öðrum eða laskað þau með sprengjum. — Bandamenn hafa sökkt allmörgum hraðbát- um Þjóðverja, æn sjálfir viður- kenna þeir að hafa mist nokk- ura slíka ; hörðum viðureignum við skip og flugvjelar banda- manna. Heimdellingar halda lýðveldis- fagnað LÝÐVELISFAGNAÐUR Fjð lags ungra Sjálfstæðismannai yerður 18. þ. m. í OddfelloWr-i húsinu. Fagnaðurinn hefst kl. 9, verður skemtiskrá fjölbreytt* ræður, flutt kvæði og söngur^ Salir verða skreyttir sjer-t stökum viðhafnarbúningi. —• .Sjálfstæðismenn ættu aðí tryggja sjer miða í tíma, en þeir verða seldir á skrifstofu1 flokksins, Thorvaldsensstræti 2, sími 2339. Gluggasýning Landgræðslu- | ■ r sjoðs SKÓVERSLUN Lárusar G. Lúðvígssónar hefir lánað Land græðslusjóði einn af hinum á- gætu sýningargluggum búðar- innar, og hefir þar verið sett upp sýning til að vekja athygli vegfarenda á fyrirhuguðu starfi í landgræðslumálum. Þar ér uppdráttur íslands með áteiknuðum helstu gróð- urlendum landsins. Þar eru myndir, er sýna uppblástur og eyðing landa o. fl. Vegfarendur staðnæmast við gluggann og hugleiða með sjer, hvort þeir hafi lagt sinn skerf til þessara mála eða hvort þeir eiga það eftir. Best ú auglýsa í Morgunblaðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.