Morgunblaðið - 22.06.1944, Blaðsíða 12
12
e*
Bandamenn
ná baBki-
slóðvum
flui
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunbl
frá Reuter.
ÞAÐ VAR OPINBERLEGA
tilkynt í dag, að hersveitir
Bandaríkjamanna hefðu náð á
sitt vald bækistöðvum á Frakk
landsströndum, sem notaðar
voru tii að skjóta hinum nýju
manniausu flugvjelum Þjóð-
verja á staði í Englandi. Bæki-
stöðvar þessar höfðu verið sett
ar upp á Cherbourg-skaga.
Sjerfræðingar bandamanna
hafa þegar farið til bækistöðv-
anna til að athuga þar alt er
kynni að koma að gagni.í barátt
unni við þessi nýju sprengju-
skeyti Þjóðverja.
Mannlaus flugvjel sett
saman.
Sjerfræðingum bandamanna
hefir nú tekist að setja saman
heila flugvjel af hinni nýju
gerð, sem Þjóðverjar hafa sent
mannlausar til Englands. Er nú
verið að athuga og rannsaka
skeyti þetta.
FHugmenn Breta skjóta
Jþ-ær niður.
Flu.gm.enn Breta hafa skotið
niður margar hinna mannlausu
iflugvjela, sem Þjóðverjar hafa
verið að senda til Englands
undanfarið. Segja flugmennirn
ir að ógurlegar sprengingar
verði í loftinu þegar mann-
lausu flugvjelarnar verða fyrir
skotum orustuflugvjela.
í gær og í dag hafa Þjóðverj
ar skotið fleiri mannlausum
flugvjelum yfir Ermarsund en
áður, en margar þeirra voru
skptnar niður áður en þær
fjellu til jarðar og gátu valdið
tjóni. í fyrrinótt sendu Þjóð-
verjar 20 mannlausar flugvjel-
ar á 7 mínútum, en þær voru
allar skotnar niður yfir Ermar-
sundi.
Amerískar sprengjuflugvjel-
ar rjeðust á bækistöðvar fyrir
mannlausar flugvjelar Þjóð-
verja í Pas de Colais svæðinu í
dag og ollu miklu tjóni.
JWtagttttb
Rommal ræðir við Chrisfiansen
Rommel heldur ekki kyrru fyrir, eða hjelt ekki áður en innrásin byrjaði. Hjer sjest hann vera
að ræða við Christiansen yfirhershöfðingja Þjóðverja í Hollandi, — líklega um innrásarvarn
ir. Rommel er til vinstri á myndinni, en Christiansen til hægri. —
Æffaði að synda yffir
Ermarsund - en lenti
í fangelsf
London: Ungur íri, Kelvin
Lawler frá Eire, sem búsettur
var í London, var dæmdur í
Dover fyrir skemstu í þriggja
mánaða fángelsi fyrir að vera
á Doversvæðinu án leyfis.
Hann sagðist hafa verið í
Dover með það fyrir augum, að
.synda yfir Ermarsund og ganga
í þjónustu Þjóðverja. Sagðist
hann hafa ætlað að ganga í
þýska flugherinn og gera árás-
ix á England.
Hann var tekinn fasíur á
ströndinni nærri Dover og hafði
þá meðferðis sundföt og björg-
unarbelti.
Rússar sækja fram í
átt til Helsingiors
London i gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
RÚSSNESKU HERSVEITIRNAR, sem tóku Viborg í gærdag,
halda áfram sókn sinni og sækja fram í áttina til Helsingfors,
höfuðborgar Finnlands. Það er ekki fullljóst, hvar Finnar hafa
í hyggju að verjast, en vitað er, að þeir hafa ekki bygt neinar
varnarstöðvar á leiðinni milli Viborgar og Helsingfors, að minsta
kosti ekki neinar, sem komast í hálfkvisti við Mannerheim-
línuna.
I herstjórnartilkynningu Rússa
í kvöld «r skýrt frá því, að her-
sveitir þeirra hafi sótt yfir Avir
ána og hrakið Finna úr bæki-
stöðvum, sem þeir höfðu á
syðri bökkum fljótsins. Rússar
segjast ennfremur hafa brotist
í gegnum varnarlínur Fínna hjá
Medevezhegorsk pg tekið þar
nokkra staði. Þá segjast þeir
haf a tekið bæinn Voznesenye.
Rússar vilja veita góða
friðaí-skilmála.
I Stokkhólmi líta menn svo
á, að vonir sjeu til þess, að
Rússar vilji enn veita Finnum
tiltölulega góða friðarskilmáia,
ef þeir hætta nú að berjast. Er
talið, að Rússar vilji láta Finna
fá góða skilmála vegna þess að
það myndi hafa góð áhrif í
Ungverjalandi, Rúmeníu og
Búlgaríu og flýta fyrir því að
Balkanþjóðirnar segi upp vist-
inni hjá Þjóðverjum.
Cort heimsækir De
GauIIe.
LONDON: Gort lávarður, lands
stjóri á Malta hefir nýlega
heimsótt De Gaulle hershöfð-
ingja í bækistöðvum hans í
Algiers. Ræddust þeir lengi við
um sameiginleg ófriðarmaVk-
mið.
Kvikmynd a( þjóð-
háfíðarhöldunum
ÓSKAR GÍSLASON ljós-
myndari sýndi í gær í öamla
Bíó kvikmynd, sem hann tók
af þjóðhátíðarhöldunum hjer í
Reykjavík og á Þingvöllum.
Kvikmyndin hófst með mynd-
um frá útifundi æskulýðs-
fjelaganna, sem haldinn var
við Austurvöll fyrir kosning-
arnar í maí. Síðan komu
myndir frá kosningunum hjer
í Reykjavík og síðan myndir
frá ÞingvöIIum og af hátíða-
höldunum hjer í bænum á
sunnudaginii.
Kvikmyndin er mjófilma.
Virðist hún hafa tekist mjög
sæmilega. Þegar tekið er tillit
til hinna erf'iðu aðstæðria í
rigningunni á Þingvöllum.
Ljósmyndarinn hefir lagt í
það mikla vinnu að fram-
kalla myndina og hefir aldrei
fyr hjer á landi verið sýnd
frjettakvikmynd opin))erlega
jafn skömmu eftir að atburð-
irnir hafa skeð.
(jamla Bíó var þjettskipað.
áhorfendiuh,-bæðí gestum og
fólki, sem hafði greitt að-
gangseyri. Virtist mönnum
vel líka myndin.
Viðgerð lokið á efri
hæð Fjelagsheim-
ilis V. R.
SlÐASTLIÐINN sunhudag
voru salir á ef2*i hæð Fje-
lagshehnilis Verslunarmanna-
fjelags Reykjavíkur teknir í
notkun. eftir að farið hafði
fram ' gagngerð viðgerð á
hæðinni.
Kl. 15,30 komu nokkrir
fjelagsmenn V. R. sanien í
sölunum. Formaður fjelagsins
Iljörtur Hanson, bauð menn
velkomna og lýsti að nokkru
endurbótum þeim, sem farið
höfðu fram á hæðinni. Hafa
allir salirnir verið mjög fag-
urlega málaðir og híisgögn
endurbætt.
Að ræðu Hjartar lokinni
flutti Vilhjálmur Þ. Gíslason
skólastjór.i ræðu í tilefni dags
ins.
Að sainkvænii jiessu loknu
voru salirnir opnaðir, og
verða nú, eins og áður, seldar
þar veitingar fjelagsmönnum
V. R. og gestum þeirra.
Úrsiifaleikur íslands-
mótsins í kvöld
í KVÖLD kl. 8.30 fer fram á
Iþróttaveíilinum úrslitaleikur-
inn í knattspyrnumóti íslands
1944. Keppa þar Fram og Val-
ur, og vinnur Valur mótið, ef
hann ber sigur úr býtum í þess-
um leik. Fram getur hinsvegar
unnið mótið. fyrir K. R., þvi
sigri Fram, vinnur K. R. mót-
ið. En verði jafntefli, verða K.
R. og Valur að keppa aftur, því
þá verða þau jöfn að stigum.
Leikurinn verður efalaust
spennandi, eins og títt er um
úrslitaleiki'Fram og Vals. — Á
undan leik og í leikhljei mun
lúðrasveitin Svanur skemta
vallargestum.
Fimtudagxir. 22. júní 194í<
10 kr, hátíðamerkin
uppseld
SVO SEM kunnugt er, gaf
Póst- og símamálastjórnin út
hátíðarfrímerki og voru þau í
sex verðflokkum, frá 10 aur--
um til 10 krónur. Tíu krómi
merkin eru nú til þurðai*
gengin, en upplag þeirra var
50 þiisund.
Eftirspurn eftir níerkjun-
um hefir verið svo mikil að'
ekki er annað sjáanlegt, en a9.
hinir mörgu föstu viðskifta-
vinir okkar í útlöndum verðí
útundan, sagði Sæmundur
Helgason, póstfulltrúi blaðinu
í gær.
Upplag hinna frímerkjanna
var öllu meira. og skortur ál
þeim ekki yfirvofandi.
I. R.-ingar á Isaíirði
IÞRÓTTAFÓLK Iþróttafjð
lags Reykjavíkur, sem fór U
þróttaför til Vestfjarða, kom
til Isafjarðar í gær.
Formaður 1. R.. Þorsteimi
Bernharðsson, skýrði blaðinui
svo frá í gær, að öllum í
flokknum liði vel og föriii
gengi að óskum. — Flokk-
urinn mun dvelja á ísafirði í
einn eða tvo daga áður en í-
þróttasýningar hefjast. Et|
ætlunin að fyrstu sýningarnarí
verði á ísafirði, en síðan fariðl
víðar um Vestfirðina.
Skæruliðasveitir
stofnaðar í Búlgaríu
LONDON í gærkveldi: Eden
utanríkismálaráðherra skýrði
neðri deild breska þingsins frá
því í dag, að mikil samtök væru
um það í Búlgaríu að standa
gegn stefnu núverandi stjórn-
ar, sem hefir samvinnu við Þjóð
verja. Eden sagði, að stofnaðar
hafi verið sveitir skæruliða í
Búlgaríu til að valda Þjóðverj-
um tjóni. Ráðherrann sagðist
ekki geta gefið nákvæmari upp
lýsingar um baráttu skæruliða
í Búlgaríu, því slíkt myndi að-
eins hjálpa búlgörsku stjórn-
inni og Þjóðverjum í baráttu
þeirra við föðurlandsvinina.
— Reuter.
Árnaðaróskir
frá Færeyingum
Herra forseti Sveinn Björns-
son, Þingvöllum.
Thórshavn 17 júnl
„Færeyingar, sem saman eru
komnir á fundi í Thórshavn í
tilefni af mesta merkisdegi í
sögu íslands, senda þjóðinni,
forsetanum, Alþingi og stjórn-
inni hjartanlegustu kveðjur sín
ar. Vjer samgleðjumst frænd-
um vorum, sem í dag hafa al-
gerlega tekið örlög lands síns í
eigin hendur. Vjer treystum því
og trúum, að þetta mesla sögu-
lega stórvirki yðar, sem þjer
hafið lokið við eftir margra ára
erfiði, megi verða til blessunar
landi og lýð og til þjóðarsóma
á ókomnum árum.
Heilir og sælir, íslendingar,
bræðraþjóð vor!
Jóhannes Palursson".