Morgunblaðið - 07.07.1944, Side 1
REYNT AÐ UMKRINGJA LE HAYE
Flestar svifsprengj-
urnar falla á London
Farið ú flytja börn úr borginni
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins frá Reuter.
CHURCHILL forsætisráðherra gaf í morgun í neðri málstof-
unni skýrslu um svifsprengjuárásir Þjóðverja á Bretland og
kvað flestar af sprengjunum hafa fallið á Lundúnasvæðið. —
Hann kvað menn ekki mega gera of lítið úr þessu nýja vopni.
Verið er nú að byrja á að flytja skólabörn úr Londón og til
öruggari staða.
„Frá því Þjóðverjar hófu
svifsþrengjuskothríð sína og
þar til kl. 6 í morgun höfðu fall
ið 2764 svifsprengjur á Bret-
lándil, sagði Churchill. Hann
kvað fjölmargar af sprengjun-
um ekki hafa komist alla leið,
eða verið skotnar niður.
Manntjón af völdum sprengj
anna hefir orðið mest í Lond-
on, en alls hafa þær orðið að
bana 2752 manns. eða hver
sprengja hefir orsakað bana
eins manns. — Særst hafa yfir
8000 manns.
Churchill sagði, að breska
stjórnin hefði aldrei gert of
lítið úr þessu vopni og barátt-
an gegn því yrði löng. Nefnd
hefði nú verið skipuð, til þess
að finna varnir gegn því.
Rakettur líka?
Churchill kvað langt vera
orðið síðan Bretar vissu um að
svifsprengjur þessar voru á
döfinni og einnig risastórar
rakettur. Sagði ráðherrann að
alls hefði verið varpað á stöðv-
Framh. á bls. 11
Sjö ára stríS
í Kína
í dag eru liðin 7 ár síðan
styrjöldin milli Kínverja og
Japana byrjaði og hjelt Chang
Kai Shek ræcu í Chungking af
þessu tilefrn. Sagði hann Kín-
verja aldrei skyldu gefast upp
og aldrei fyrr linna baráttunni,
en Japanar væru reknir úr
Kína. — Að vísu kvað Chang
Kai Shek alvarlega horfa vegna
sóknar Japana í Honanfyliíi, en
Kínverjar væru þó vongóðir
vegna þess, hve bandamönnum
gengi vel í Burma. — Reuter.
K. R. vann 1. íl.
mótið
K. R. vann 1. fl. mótið á jafn-
tefli við Fram í gærkveldi, 1:1.
Fjekk K. R. 7 stig, Valur 6
(Víkingur gaf leikinn), Fram
5, I. R. 2 og Víkingur ekkert.
Von Kluge
Sekur við a
Rundsfedl
Generql Gunther Von Kluge
London í gærkveldi.
Frá aðalstöðvum Hitlers er
tilkynt í kvöld, að von Kluge
marskálkur hafi tekið við yfir-
stjórn þýsku herjanna á Vest-
urvígstöðvunum, af von Rund-
stedt, sem látið hefir af her-
stjórn sökun heilsubilunar.
Þýska frjettastofan segir, að
Hitler hafi sent Rundstedt inni-
legt þakkarbrjef fyrir örugga
og góða herstjórn í örðugum
kringumstæðum. Einnig var
gefið í skyn, að von Rundstedt
myndu falin sjerstök verkefni,
ef hann þyldi að leggja nokkuð
á sig.
Von Kluge marskálkur, hinn
nýi yfirstjórnandi varnarherj-
anna í Frakklandi, hefir víða
tekið þátt í orustum í styrjöld
þessari.
ÞJÓÐVERJAR YFIRGEFA KOVEL
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Rússar ná mörgum íleiri bæjum
í KVÖLD gaf Stalin út dag-
skipan, þar sem hann tilkynti
að herir Rokossowsky hefðu
tekið Kovel, en Þjóðverjar
höfðu áður tilkynt að sveitir
þeirra hefðu yfirgefið borg
þessa, sem talin er allmikilvæg.
Þá segja Rússar frá því, að
þeir hafi tekið ýmsa bæi víðs-
vegar um vígstöðvarnar, eink-
um þó á svæðinu umhverfis
Polotsk, fyrir norðan og norð-
vestan borgina. Einnig kveðast
Rússar hafa tekið bæinn Derz-
insk í hörðum bardögum. Bær
þessi er fyrir suðvestan
Minsk og var barist þar af mik
illi hörku að sögn Rússa.
Þarna voru einnig teknar
fjórar járnbrautarstöðvar, tvær
þeirra allstórar.
Borgin Kovel er aðeins um
50 km. austur af Efri-Bug og
er þar hin upphaflega og eðli-
lega varnarlína Varsjáborgar.
Kovel er um 150 km. austan
Brest-Litovsk og 270 km. frá
Varsjá í suðaustur. Hún stend-
ur við ána Turia, sem fellur í
Pripetfljótið. Er nú álitið að
Rússar muni sækja fram vestur
á bóginn til Lublin.
í tilkynningu sinni í kvöld
segjast Rússar sækja að borg-
inni Baranovichi, og segir að
þar hafi Þjóðverjar gert hörð
gagnáhlaup með allmiklu liði
Loks segjast Rússar enn hafa
fært nokkuð út kvíarnar á
Aunuseiði, en Finnar viður-
kenna að þar hafi þeir enn orð
ið að láta nokkuð undan síga.
En bardagarnir á Kirjálaeiðinu
eru stöðugt jafnharðir, en
breytingar hafa ekki orðið þar
teljandi. Rússar segjast hafa
gert loftárásir á ýmsar stöðvar
Þjóðverja, en þýskar sprengju
flugvjelar hafa ráðist á ýms
skotmörk að baki víglínu
Rússa. Báðir aðilar telja sig
hafa unnið andstæðingunum
mikið flugvjelatjón í loftorust-
um. — A öllu suðurhluta víg-
stöðvanna er enn kyrt.
Þjóðverjar hafa enn
Carpiquet-flugvöllinn
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
LITLAR BREYTINGAR hafa orðið á vígstöðvunuin
í Nóftnandi í dag. Bandaríkjamenn á suðurhluta C'her-
bourgskagans sóttu að bænum La Haye en urðu að hörfa
undan fyrir hörðu gagnáhlaupi Þjóðverja, að því er
írjettaritari vor, William Stringer, símar frá vígstöðv-
unum. Er nú talið að Bandaríkjamenn murií gera tilraun
til þess að umkringja borgina, þar sem herinn hefir tvisv-
ar komist að henni en í bæði skiftin verið hrakinn aftur-
ábak aftur.
„Krafan um skilyrð-
islausa uppgjöf
versla skyssa
bandamanna",
— segir Göbbels
London í gærkveldi:
Dr. Göbbels ritar í dag í Das
Reich: „Óvinir vorir gerðu
sína mestu skyssu, þegar þeir
tóku að halda fram kröfunni
um skilyrðislausa uppgjöf og
tilkyntu þýsku þjóðinni þar
með að hún berðist fyrir tilveru
sinni. Ef bandamenn ætla sjer
að framkvæma styrjaldarmark
mið sín, mega þeir taka á
meiru en þeir hafa til, því ekki
verður slakað á tökunum af oss
Þjóðverjum. Þýska þjóðin hef-
ir þegar sýnt, að hún er til í
hvað sem er. Stórþjóð verður
fyrst hættuleg, er hún hefir
brent allar brýr að baki sjer,
og hefir alt að vinna, en engu,
að tapa. Þeir örðugleikar, sem
þýska þjóðin á nú í, munu leysa
úr læðingi afl, sem aldrei fyrr
hefir þekst. í dag er óhætt að
segja, að þýska þjóðin, eftir svo
mörg óhöpp og ósigra, sje fær
um meiri átök, en hún var
nokkurntíma á mestu sigur-
tímum“. — Reuter.
Miklar árásir á svif-
sprengjusiöðvar
London í gærkveldi.
í nótt sem leið fóru stór-
hópar breskra sprengjuflug-
vjela til árása á svifsprengju-
stöðvar handan Ermarsunds, og
í dag hefir hvað eftir annað
verið ráðist á stöðvar þessar.
Þannig sendu Bretar bæði Lan-
caster- og Halifax flugvjelar
í dag og Bandaríkjamenn beittu
flugvirkjum og Liberatorflug-
vjelum, og gerðu sumar þess-
ara flugvjela einnig atlögur að
flugvöllum Þjóðverja. —
Þjóðverjar hafa enn á valdi
sínu Carpiquet.-flugvöllnn,
sem mest var barist um fyr-
ir skömmu. Eru Þjóðverjar
þrem megin við völlinn. en
Kanadamenn að norðan við
hann. Hefir þar verið kjrrt
að mestu í dag. Þjóðverjar
hafa þarna mikið af fallbyss-
um og hefir verið skipst á
sprengikúlum þarna, en að-
staðan lítið breyst. Nokkru
austar ko.must þýskar fram-
sveitir inn í varnarlínu banda
manna og urðu bandamenn
að hörfa lítilsháttar undan.
1 sókn sinni suðvestan Car
entan hafa Bandaríkjamenn
getað sótt fram nokkur hundr
uð metra, en Þjóðverjar hafa
þarna mikið af fallbyssum
og beita þeim óspart. Er því
óhægt um alla framsókn á
þessum slóðum, bæði vegna
þess og svo hins, að land er
mjög mýrlent og illt vfirferð
ar.
Ágætt flugveður.
I dag var besta flugveður,
sem komið hefir yfir Prakk
landi síðan innrásin var hafin
og notuðu flugmenn banda-
manna það óspart. Voru flug-
vjelar á lofti allan daginn og
oft inörg hundruð í einu og
var einkum ráðist á sam-
gönguleiðir að baki vígstöðv
um Þjóðverja, járnbrautir,
vegi og brýr og flugvelli. —
Nokkrir loftbardagar urðu
en þó var ekki mikið um
mótspyrnu Þjóðverja í lofti.
Það voru eikum meðalstórar
flugvjelar og orustuflugvjelar
sem árásirnar gerðu.
Háloftar ler.
London: — Frá Berlín ber-
ast fregnir um það, að þýskir
vísindamenn hafi fundið upp
gler, sem ekki getur sprungið
og er tíu sinnum sterkara e»
venjulegt öryggisgler, sem er
t. d. haft í bifreiðaglugga. Er
þessi nýja glertegund aðallega
notuð í flugmannaklefa flug-
vjela, sem eiga að fljúga um
háloftin.