Morgunblaðið - 03.08.1944, Page 2

Morgunblaðið - 03.08.1944, Page 2
2 MOkGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 3. ágúst 1944, * Tyrkir slíta stjérniálasam bandi við Þjóðverja London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- ! blaðsins frá Reuter. * I DAG KOM tyrkneska þingið saman til fundar og las fíarajoglu fórsætisráðherra þar boðskap þess efnis, að Tyrkir befðu ákveðið að slíta stjórnmála- og viðskiptasambandi við J>jóðverja. Þetta skref mun hafa verið stigið í sambandi við bandalags sáttmála Breta og Tyrkja, enda lýsti Churchill forsætisráðherra Breta-yfir í ræðu sinni í breska þinginu í dag, að svo hefði ver-r ið gert. Ákvörðun tyrknesku stjórnar innar um sámbandsslitin var síðan borin undir þingið og sam þykt þar samhljóða. — Bretar eru sagðir ætla að bæta Tyrkj- 'urn upp þann viðskiptalega hnekki, sem þeir bíða við að hætta verslun við Þjóðverja og rýmka að öðru leyti um inn- Jlutning til Tyrklands, en hann ;hefir verið mjög af skornum ;skamti að undanförnu, sem ■ kunnugt er. * Frá opinberri þýskri hálfu hefir verið tilkynt, að ekki sje að s'vo stöddu væntanleg nein yfirlýsing þýsku stjórnarinnar í tilefni af þessu tiltæki Tyrkja. £>arajoglu tók fram í ræðu sinni um sambandsslitin, að Tyrkir hefðu ekki í hyggju að fara í stríðið. Von Papen farinn heim London í gæi'kveldi: — Þjóðverjar tílkyntu seint í kvöld, að sendiherra þeirra í Tyrklarrdi, von Papen og starfs lið hans, hefði fengið vegabrjef sín og væri lagt af stað frá Ankara áleiðis til Berlínar. — Ekki hafa nenar fregnir borist sem berit gætu til þess, að í odda 'skerist með Tyrkjum og Þjóðverjum eða bandamönnum þeirra. Tyrkneska stjórnin hef- ir náðað fanga, sem höfðu .-drýgt afbrot stjórnmálalegs eðlis og leyst úr haldi flugmenn bandamanna í landinu. í — Reuter. Snarpír bardagar smtnan Florens London í gærkveldi: — l Ekkert lát verður á orustun- * jum fyrir sunnan Florens og má Ísvo heita að aðstaðan hafi ekk |ei:t breytst þar síðasta sólar- Ihring. Fregnritarar segja að iÞjóðverjar verjist þarna af fengu minna harðfengi, en við JCassino forðum, og sjeu bar- ýfagar þarna eins harðir eða lliarðari. Þjóðverjar hafa hvað eftir Wvnað lýst því yfir, að þeir hafi 'enga hermenn í Florens og beri £ að skoða hana óviggirta borg. Kveða þeir þetta gert vegna hinna miklu listaverka, sem í borginni sjeu. — í dag sögðu Þjóðverjar að bandamenn höfðu varpað spréngjum á Fiorens úr flugvjelum, en sú fregn hefir ekki verið staðfest. — Reuter. Stjórnarskiffi í Finnlandi! Stokkhólmi í gærkveldi: — Hjer gengur sá orðrómur, að stjórnarskipti sjeu væntanleg í Finnlandi, aðallega með það fyr ir augum, að forsætisráðherr- ann nýi verði samhentari Mann erheim forseta. Hafa borist fregnir um það, að Valdén her- foringi, sem hefir verið*onnur hönd Mannerheims, verði for- sætisráðherra hinnar nýju stjórnar. Ennfremur hefir því verið haldið fram, að verka- mannaleiðtoginn Aalto geti komið til greina sem forsætis- ráðherra, en fregnir þessar eru ekki enn staðfestar. — Reuter. fer í *. skemtiferð Á SUNNUDAGINN kemur efnir Hestamannafjelagið Fák- ur til skemtiferðar. Verður lagt á stað hjeðan snemma morguns í bílum og ek ið inn að Geldinganesi, þar sem hestarnir eru geymdir. En allur hópurinn leggur á stað frá Korpúlfsstöðum kl. 10. Verður riðið inn að Varmadal, þaðan upp að Tröllafossi og Þverár- koti, niður hjá Skeggjastöðum og þar þvert, yfir að Miðdals- vatni. Þar verður dansað á grænni grund, ef veður verður gott, en síðan riðið niður með Ulfarsfelli og áfram sem leið liggur að Breiðholti. Ástaræfintýr í Cairo. Cairo: — All-átakanlegt ást- aræfintýr hefir borjð mjög á góma hjer í borginni. Dóttir vellauðugs lögfræðings, sem er- Gyðingur, hljóp að heiman með ungum starfsmanni ■ úr stjórnarráðinu. Faðir stúlkunn- ar krafðist málshöfðunar gegn honum fyrir að hafa numið stúlkuna á brott, en þá lagði unga fólkið fram giftingarvott- orðið. Þá ásakaði faðirinn tengdason sinn fyrir það að hann sæktist aðeins eftir auði stúlkunnar. Brúðurin fór þá fram á lög- regluvernd gegn föður sínum og var hún veitt. Sagði hún að hann hefði hótað sjer dauða og leigt morðingja til þess að stytta sjer aldur. Varla hafði verndin verið veitt í rjettinum, er háir skothvellir heyrðust í anddyri rjettarsalsins. Hafði þá slegið í bardaga þar á milli ætt manna brúðhjónanna og voru ýmsir handteknir, en brúðurin hefi'r leitað athvarfs í amerísk um skóla. ar geri sjerfrið ANKARA í GÆR: — Sam- komulagsumleitanir milli full- trúa frá Rúmenum og fulltrúum frá bandamönnum hafa strand- að og er ekkert útlit fyrir það eins og er; að tilraunir verði gerðar til að halda samninga- umleitunum áfram. Fulltrúar, sem sendir voru frá Rúmenum til Egyptalands og Tyrklands til að ræða við fulltrúa bandamanna; höfðu umboð frá öllum flokkum í Rúmeníu til að semja; þar á meðal frá kommúnistum. Stribey prins. sem yar formað- ur samninganefndar Rúmena; kom tillögum Rúmena um sjer- frið á framfæri við fulltrúa Breta, sem sendu tillögurnar til Rússa. En Rússar höfnuðu til- lögum Rúmena. Síðar var fulltrúi frá vinstri flokkunum; Visoianu að nafni; sendur til að semja við Rússa; Breta og Bandaríkjamenn. Visoianu stakk upp á því. að Rúmenar fengju Transylvaniu og þeim yrði falið að stjórna Dónársljettunni. Rúmenar Ijetu hinsvégar af hendi Bessarabíu til Rússa og Norður-Bukovinu. Rúmenar myndu svo reyna að hrekja Þjóðverja úr landi með aðstoð Breta og Bandaríkja- manna. Rússar kröfðust þess hins- vegar; að' Rúmenar greiddu skaðabætur og' að rússneskt setulið yrði í landinu þar til Rúmenar hefðu greitt skaðabæt urnar. Allir rúmensku stjórn- málaflokkarnir höfnuðu þess- um kröfum og samningaumleit anirnar fóru út um þúfur. — Reuter X Frídagur verslunarmanna SVO sem kunnugt er, er frídagur verslunarmamía n. k. mánudag. Nú hefir dagskrá verið samin, báeði fyrir þau atriði er frani eiga að fara í útvarp og kvöldskemtun fje- lagsins að Ilótel Borg. Kvöld- skemtunin hefst kl. 10 e. h. meeð dansi, en ýms skemtiat- riði verða. Ágúst Bjarnason og Jakob Hafstein syngja tví- söng. og Lárus Ingólfsson leik- ari skemtir. Útvarpið mun helga eina klukkustund og tuttugu mínútur af kvölddag- skrá þess, verslunarmönnum, en þar flytur fonnaður Yersl- unarfjelags Reykjuvíkur, Hjörtur Hánsson ávarp, Bald- ur Pálsson flytur minni versl- unarstjettarinnar og Konráðl Gíslason minni Isiands. A milli; ræðna mun Elísabet Einars- dó.ttir syngja einsöng og út- varpshljónjsveitin leika ís- lensk þjóðlög. Vildi ekki sýna sig. London: — Einn af meðlim- um heimavarnaliðsins breska hefir verið sektaður um 130 pund sterling, fyrir að skrópa 13 sinnum af hersýningum. — Fyrir rjettinum afsakaði hann sig með feimni. Myndafrjettlr »**•*♦ **« ♦*♦ ♦** ♦*♦ **M**«*»4*«*H*^ V $ 'í t r V HINN NÝJI KONUNGUR ÍTALA Þetta er. nýjasta myndin af hinum unga konungi ítala, Umberto, sem raunar hefir ekki enn fengið konungsnafn- bótina, en ekki ér talinn vafi á því, að ítalir hafi konungs-i stjórn eftir styrjöldina. — Nú er hann aðeins nefndur „lands- stjóri“. ENDALOK FLUGVIRKIS Þessar þr.jár myndir hjer að ofan sýna endalok amerísl flugrvirkis yfir hinum herteknu löndum Evrópu. Efsta myn* in var tekin rjett eftir. að flugvjelin varð fyrir loftvarn: skoti, á þeirri næstu sjest að stjelið er eyðilagt og þrið myndin sýnir vjelina steypast til jarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.