Morgunblaðið - 22.08.1944, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.08.1944, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. ágíist 1944 Utg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlanda, kr. 10.00 utanlands I lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbðk. Bærinn okkar í AFMÆLISVEISLU þeirri, sem bæjarstjórn Reykja- víkur hjelt forseta íslands og frú hans síðastliðið föstu- dagskvöld, mintist forseti á það í ræðu, sem hann flutti við það tækifæri, að hann hefði orðið þess var í ferð sinni um landið að undanförnu, að íbúar sumra kaupstaða úti á landi legðu meira fram tiltölulega en Reykvíkingar, til þess að fegra og prýða bæinn sinn. Þessi ummæli forseta eru vafalaust rjett. En þau eru um leið áminning til okkar Reykvíkinga, að vinna betur einmitt á þessu sviði. Er þá einnig ástæða til að minnast á annað atriði, sem forsetinn drap á við þetta sama tæki- færi. Hann gat þess, að í Kaupmannahöfn hefði um 40 ára skeið starfað fjelag, er hefði það markmið að fegra og prýða bæinn. Fjelag þetta legði fram fje í því skyni, að ná hinu setta marki og hefði unnið mikið og gott starf. Kvaðst forseinn vona, áð hjer í Reykjavík væri jarðvegur fyrir slíkan fjelagsskap. Vissulega ætti að vera góður jarðvegur fyrir slíkan fjelagsskap hjer í Reykjavík. Ætti Reykvíkingafjelagið að beita sjer fyrir stofnun þessa fjelags. En ef slíkt fje- lag verður stofnað og fyrir því veljast menn, sem áhuga hafa fyrir málefninu, þarf ekki að kvíða því, að fjelagið fái ekki næg verkefni við að glíma. Forsetinn hefir hjer hreyft góðu og nytsömu máli, sem Reykvíkingar eiga að hrinda í framkvæmd. Því að þótt rjettmætt sje og sjálfsagt, að borgararnir geri kröf- ur til stjórnarvalda bæjarins um eitt og annað, sem betur megi fara, verður árangurinn áreiðanlega 'mestur og bestur, ef borgararnir eru sjálfir hvarvetna vel á verði og sýni í verki, að þeir vilji einhverju fórna fyrir mál- efnið. Hrindum þessu góða máli í framkvæmd. Stofnum fje- lagsskap meðal borgaranna, sem hefir það markmið að fegra og prýða bæinn. Fjölbreyttara atvinnulíf EITT AF ÞVÍ, sem einna líklegast er til þess að auka öryggið í efnahagsstarfsemi þjóðarinnar, er að okkur takist að auka fjölbreytni atvinnulífsins. Við þurfum að nýta á sem fyllstan hátt hráefni láðs og lagar. Kemur þar tvennt til greina. Að hefja nýja nýtingu á hráefnum, sem við höfum enn lítið eða ekki notfært okkur, og að vinna til frekari hlítar ýmislegt það, sem þjóðin hefir fram að þessu framleitt að vissu marki. Nokkuð hefir verið um það rætt, og undirbúningsat- huganir átt sjer stað, að koma hjer upp áburðarverk- smiðju og sementsverksmiðju. Ýmsir möguleikar eru á því, að ryðja nýjar brautir í meðferð og verkun sjávarafurða. Halldór Kristinsson, hjeraðslæknir í Siglufirði, ritar um það í blað Sjálfstæð- ismanna á Siglufirði, að ríkið ætti að reisa lýðisherslu- smiðju á Siglufirði eins fljótt og auðið er. Árið 1939 samdi Trausti Ólafsson efnafræðingur ýtarlega skýrslu um lýs- isherslu, að tilhlutun þáverandi atvinnumálaráðherra. •— Fram yfir kosti þess að lýsisherslan er frekari nýting síldaraflans en áður, telur T. Ó. það, að slík verksmiðja við hlið síldarverksmiðjanna myndi skapa fleira fólki fasta ársvinnu, en það er m. a. eitt vandkvæði atvinnu- lífsins hjer á landi, að suma mánuði ársins er nóg vinna á stöðum, sem svo er ef til vill lítil eða engin vinna á aðra mánuði. Kemur þetta mjög til greina við síldar- og fiskiveiðar. Aukinn iðnrekstur krefst mikillar raforku. En það er svo margt annað, sem kallar á raforkuna, og iðnreksturinn er þá einnig vísastur til að ljetta fjárhags- legan rekstur hinna stóru orkuvera. Við íslendingar þurfum um fram allt að láta hina bættu efnahagsafkomu undanfarinna ára verða að var- anlegum sjóði bættrar efnahagsafkomu þjóðarinnar í framtíðinni. Það yerður m. a. gjört með því, að stefna markvíst að því, að auka fjölbreyttni atvinnulífsins. I Morgunblaðinu fyrir 25 árum SIGURJÓN PJETURSSON á Alafossi skrifar þá um þátttöku Islendinga í Olympíuleikum. Honum farast orð m. a. á þessa leið: 29. ágúst. „Margir eru þeir hjer á landi, sem álíta það óráð mesta af oss íslendingum að vilja reyna að taka þátt í Olympíuleikunum frægu. Kennir þar vantrausts á þjóðinni sem íþróttaþjóð, sama vantrausts, sem svo oft ber á á öðrum sviðum: að íslendingar geti ekki neitt. — Islendingar standa að líkamsatgervi alls eigi að baki öðrum þjóðum, en það sem þá vantar marga er nógu einbeittur áhugi og vilji til þess að verða að manni, temja lík- ama sinn og þroska hann. Það kostar suma máske talsverða sjálfsafneitun að misbjóða ekki á neinn hátt líkamskröftum sín- um. Tóbak og vín verður hver sá að forðast, er iðka vill íþrótt og fá fullkomnun í henni, því hvorugt getur með nokkru móti samrýmst íþróttaiðkun, en eyði- leggur jafnharðan það, sem á vinst með æfingum. Alt það, sem getur skert vilja, einbeitni og þol íþróttamannsins, verður hann að forðast eins og heitan eldinn“. ★ KJÖTIÐ þótti dýrt. 29. ágúst. „Sláturfjelagið seldi kílóið af kjöti í gær á kr. 4.80, fremur sanngjarnt verð!!“ ÞA ÆTLUÐU Svíar að senda hingað „general-konsúl“, eins og það var orðað. 30. ágúst. „Sænska stjórnin.hefir ákveð- ið að senda hingað mjög bráð- lega ræðismann — Consul miss- us —. Hefir verið ákveðið að stofna aðalræðismannsskrifstofu hjer í Reykjavík líkt og Norð- menn hafa gert nýlega. Eigi mun það ráðið enn, hver þetta embætti hlýtur. En ganga má frá því vísu, að þar verður ekki valið af lakari endanum. Svíar hafa mikinn hug á því að auka viðskifti sín við Islendinga. Þeir eru oss mjög vinveittir og það er full ástæða til þess að gleðjast yfir þessari ákvörðun þeirra. Því hag getum vjer haft af auknum yiðskiftum við þá“. * ÞÁ VAR fyrsta listsýningin hjerlendis opnuð. Um það seg- ir m. a.: 31. ágúst. „í dag gerist nýr atburður í þessu landi, sá að opnuð verður almenna listasýningin hjer á landi. Það er Listavinafjelagið, sem gengst fyrir sýningu þessari og forstöðunefnd sú, sem fjelagið hefir kosið, hefir haft ærinn starfa .... Margir listamenn hafa sent verk sín á sýninguna. Einna mest ber á Ásgrími og Kjarval. .... Þór. B. Þorláksson á marg- ar myndir. Þá eru myndir eftir Kristínu Jónsdóttur, Júlíönu Sveinsdóttur, Emil Thoroddsen, Guðm. Thorsteinsson, Jón Helga son veggfóðrara, Jón Þorleifsson frá Hólum, Ólaf Túbalsson frá Múlakoti, Ríkarð Jónsson og Arngrím Ólafsson. — Högg- myndir eru á sýningunni eftir Einar Jónsson, Nínu Sæmunds- son og Ríkarð Jónsson, samtals 21". 'UíLverji áírij^ar; M. .♦. .». .♦. AAAA 'l jr clagiegci (íjinu i j •> Barnaleikvellirnir. EITT ALGENGASTA viðfangs efni í smáletursgreinum Reykja víkurblaðanna er gagnrýni á það, sem miður virðist fara. Hitt er sjaldnast orðað sem vel fer og til fyrirmyndar getur kallast. — Það er tekið sem sjálfsagður hlut ur. En nú langar mig til að minna á barnaleikvellina hjer í bænum, sem eru sannarlega bænum til sóma og eru þar að auki það sem meira er um vert til öryggis, holl ustu og ánægju fyrir yngstu borgara bæjarins. Bæjaryfirvöldin hafa látið gera barnaleikvelli allVíða í bæn um. Þar hefir verið.komið fyrir rólum, sandkössum og „söltum“. Auk tækja til leikja fyrir börn- in eru flestir leikvellirnir vel ræktaðir. Þar eru grænar gras- flatir og skrautblóm, sem auka á ytri fegurð leikvallanná. Á’ leikvöllunum una börnin sjer allan daginn og það er un- un að ganga framhjá og sjá glöð og ánægð börn að leik í góða veðrinu. Það hlýtur að vera foreldrum barnanna, sem búa nálægt barna leikvöllum, mikill ljettir, að vita af börnum sínum á öruggum stað, í stað þess, að þau sjeu á götunni, þar sem hættan vofir SÍ- fellt yfir þeim af umferðinni. Það er full ástæða til að þakka bæjarstjórninni fyrir, hve mikla rækt hún hefir lagt við barna- leikvellina, en um leið mætti bera fram þá ósk, að haldið yrði áfram á þeirri braut, að fjölga barnaleikvöllum í bænum eftir bestu föngum. • Gömlu kaffikvarnirn- ar í notkun á ný. UM HELGINA kom jeg í heimsókn til kunningja míns og var boðið upp á kaffisopa, að góðum og gömlum íslenskum sið. „En þú verður að bíða á meðan jeg mala“, sagði húsfreyj an. Það er svo langt síðan, að jeg heyrði þessa setningu, að jeg spurði húsfreyjuna hvað hún ætti við. — Jú, sagði hún, veistu ekki, að það er farið að þera á skorti á brendu og möluðu kaffi í bæn- um, vegna Iðjuverkfallsins og nú eru gömlu kaffikvarnirnar komn ar í notkun á ný. Svona er það. Maður gerir sjer ekki ljóst, dagsdaglega, hve þægindin hafa aukist á heimil- unum síðustu árin. Kaffikvarn- ir eru áhald, sem óvíða eru til á heimilum hjer í bænum nú orð ið. En þær koma sjer vel hjá þeim sem enn eiga þær. Menn eru fljótir að venja sig við nýtísku þægindi og gleyma því, að það er hægt að komast af án þeirra. Nýlega var jeg staddur í þorpi úti á landi. Þar var vatn alt sótt í brunna. Raf- magnið kostaði á aðra krónu kílóvattstundin. Símanum var lokað kl. 8 á kvöldin. En það var ekki að sjá á fólkinu í þorpinu, að það væri óánægt með sitt hlut skipti í lífinu. En hjer ætlar alt vitlaust að verða, ef augnabliks truflun kemst á þau þægindi, sem fólkið er orðið vant við. Ekki kemur kosninga- bensínið. H. Þ. skrifar: „í VOR þegar menn voru hvatt ir til þess að lána bifreiðar sín- ar til aksturs við lýðveldiskosn- ingarnar, var þeim lofað, sem bifreiðarnar lánuðu, að þeir skyldu fá auka bensínskammt svo ekki hallaðist á þá hvað ben sínið snerti. Hefir heyrst, að for rhaður lýðveldiskosninganefndar innar hafi gengið frá tillögum um bensínmagn það sem hverj- um bifreiðaeiganda ber til end- urgjalds fyrir bifreiðalánið. Nú er sumarið að verða búið og von á minnkandi bensínskammti. — Væri ekki úr vegi að menn fengju þennan skammt, ef lof- orðið um hann á að efna, áður en bifreiðunum er lagt í vetrar- geymslu. Fyrir nokkrum dögum minnt- ist jeg á þetta mál hjer í dálk- unum tvisvar sinnum. Það er sannarlega undarlegt ef stjórnar völdin ætla sjer að þverskallast við sjálfsagðri kröfu bílaeigenda í þessu efni og ganga á gefin lof- orð. © Úthlutun bygginga- lóða. KÆRI VÍKVERJI! Ónefndur brjefritari hefir skrifað þjer um úthlutun bygg- ingalóða. Hann telur, að óþarfi sje að úthluta mönnum lóðum í úthverfum bæjarins, svo sem í Kaplaskjóli, á meðan óbygðar lóðir sjeu fyrir hendi innan Hringbrautar, er bæjaryfirvöld- in ráða yfir. Hann bendir á eína óbygða lóð í bæjarins eigu við Ásvallagötu. En honum hefir, af skiljanlegum ástæðum láðst að framvísa fleiri lóðum miðsvæð- is í bænum. Jeg segi af skiljanlegum ástæð um. Og ástæðurnar eru þær, að* slíkar lójðir innan Hringbrautar eru ekki til, að heitið geti. Þáð er hægt að fullyrða margt og staðhæfa eins og þessi brjefrit- ari hefir gert, án þess að færa rök fyrir máli sínu. Bærinn þarf á tugum og hundruðu.m lóða að halda, til að fullnægja eftirspurn inni eftir byggingalóðum. Og þær eru ekki til, nema í úthverf- unum, nema ef horfið yrði frá því að halda óbygðum þeim svæðum, sem ætluð hafa verið og ætluð eru fyrir skemtigarða, torg, leikvelli og opinberar byggingar, sem enn eru óbygð- ar og verða að vera miðsvæðis í bænum. En hverjum dettur slíkt í hug? Brjefritarinn talar um, að ó- bygðar lóðir innan Hringbraut- ar sjeu „notaðar til óþrifnaðar", og telur, sem rjett er, það illa farið. En sú gagnrýni hans kemur helst til seint. Því eins og allir vita er nú einmitt verið að þrífa bæinn betur en nokkru sinni hef ir áður verið gert,,og taka til handargagns ýmislegt skran ó- nýtt og nýtilegt, er legið hefir árum saman á meira og minna afviknum stöðum, þó ekki hafi kveðið svo mikið að því, að fylt hafi nýtilegar byggingalóðir, eða staðið í vegi fyrir byggingum. Loflárásir gerðar í misgripum MEÐAN haldið var uppi hörð ustum loftárásum á stöðvar Þjóðverja nærri Falaise, kom ekki ósjaldan fyrir, að flugvjel- ar bandamanna vörpuðu sprengjum á kanadiskar her- sveitir, sem hjer a| biou all- mikið tjón. Var mest um þetta síðustu dagana fyrir helgina síð ustu, að því er yfirstjórn kana- diska hersins tilkynnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.