Morgunblaðið - 24.08.1944, Síða 5
Fiuitudagur 24 ágús,t 1944
MORGUNBLAÐIÐ
5
:-x-:-x-x-:-x-x**x-:-x-x-:-x-x-:-x-x-x-x-x-x**:-x*
•x-:-x-:-:-:-x-:~x-x-s
X
r ó í t a ó í (f a Ifflj
or9
un
l ia Éó i
nó
h
íMI“t*‘IMX*4X**«MXH*MIiMX**»MX**t**«**»M*HIw«'M»**X****4****‘*t*'
tugþiiuíarkeppsi
Lok meistaramótsins
Hverjir eru tíu bestu íþrótta-
menn heimsins?
ÞAÐ HAFA margir áhuga-
menn á íþpóttasviSinu velt því
fyrir sjer, hverjir muni tíu
bestu íþróttamennirnir, er uppi
hafa verið. Um þetta efni ritar
Gösse Molmér grein í sænska
íþróttablaðið. Fer aðalatriði
þeirar greinar hjer á eftir:
Við höfum í seinni tíð feng-
ið vitneskju um, hvernig við
eigum að leita að „tíu bestu í-
þróttamönnum heimsins“. Þann
sem má nefna upphafsmanninn
að þessum útreikningi, er
Svahn, ritstjóri „Sportlexikon-
et“, en íþróttasaga hans hefir
vissa þýðingu. Þar kynnist
maður áður óþektum eða lítt
þektum íþróttafrömuðum eins
og t. d. Eiríki XIV og Henrik
Thorpe hlaut þar 8.412.96. —
Morris hefði sem sagt verið ó-
hælt að’ gefa Thorpe eftir eina
greinina og samt sigrað.
Tíu bestu frjálsíþróttamennina
er að finna í núgildandi heims
rhetatöflu. Sama er að segja um
sund og aðrar íþróttagreinar,
þar sem afrekin eru mæld í
metrum og sekúndum.
En ef við snúum okljur að
frjálsum íþróttum og ' tökum
fyrst hlaupin, þá verða einna
fyrst í hugum okkar Englend-
ingurinn Geórges, Finninn
Nurmi og Sviinn Hagg. Aliir
þessir þrír hlauparar voru og
eru bestu hlauparar sinnar líð-
ar og hafa skarað fram úr og
sigrað sterkustu hlaupara sam-
Þjóðverjinn Rudolf Ha rbig og Gunder Hágg.
Skemtileg
ÞA ER meistaramót í. S. í.
1944 í frjálsum íþróttuin að
fullu lokið. Lauk því s. 1. þriðju
dag, en þá var keppt í síðustu
greinum tugþrautarinnar.
Mót þetta hefir ótvírætt bor
ið með sjer, sem önnur íþrótta
mót á sumrinu, að mikil fram-
þróun er hjer á íþróttasviðinu.
Framþróun, sem ánægjulegt er
að fylgjast með. Aðeips í örfá-
um greinum hefir árangurinn
orðið ljelegri en í fyrra á meist
aramótinu þá. Og það sem
einna ánægjulegast var við
mótið, var það, að nú sendu öll
sterkustu íþróttafjelögin utan
höfuðstaðarins, eða því sem
næst, keppendur á mótið. Var
sjerstaklega ánægjulegt að
Austfirðingar og Vestmanna-
eyingar skyldu koma til móts-
ins, þar sem þeir eru ekki dag-
legir gestir á móturw hjer. —
Vonandi láta þeir hjer eftir
sem oftast sjá sig á þessum
mótum.
Heildarúrslit mótsins hafa
orðið þessi.
K.R. hefir hlotið 11 meistara
stig, í boðhlaupunum báðum,
fimmtarþraut, hástökki, köstun
um öllum, 110 m. grindahlaupi,
þrístökki og 10000 m. hlaupi.
í. R. hefir hlotið 6 meistara-
stig, í 100, 200, 400, 800 ,1500
og 5000 m. hlaupum.
K. V. (Knattspyrnufjelag
Vestmannaeyja) hefir hlotið 2
meistarastig, í stangarstökki og
tugþraut.
F. H. hlaut eitt meistarastig,
í langstökki.
'k
Nokkuð hefir verið skýrt frá
keppni í hinum einstöku grein-
um hjer í íþróttasíðunni að tug,
þrautinni undanskilinni. Þar
sem sú keppni var að þessu
sinni mun skemtilegri en hún
hefir verið oft áður, þykir rjett
að geta hennar nánar hjer.
Þátttakendur voru að þessu
sinni fimm og þrír þeirra keptu
fyrir fjelögum utan höfuðstað-
arins, þ. e. Vestmannaeyingarn
ir Gunnar Stefánsson og Ingólf
ur Arnarson og Austfirðingurinn
Jón Ólafsson. Af bæjarmönn-
um kepptu K. R.-ingarnir Jón
Hjartar, og Einar Þ. Guðjohn-
sen. Greinarnar, sem keppt er
í, eru: 100 m. hlaup, langstökk,
kúluvarp, hástökk, 400 m.
hlaup, grindahlaup, kringlu-
kast, stangarstökk, spjótkast
og 1500 m. hlaup. Keppt var í
þeim í þeirri röð, sem þær eru
hjer taldar upp.
Eftir 100 m. hlaupið stóðu
stigin þannig, að Gunnar Stef-
ánsson hafði 464, Jón Hjartar
.og Ingólfur Arnarson voru með
399 hvor. E. Þ. Guðjohnsen
með 383 og Jón Ólafsson 340.
— Vindur var nokkur á móti
og rigning ög dró það mjög úr
árangrinum.
Eftir langstökkið stóðu stig-
in: Gunnar 989, Jón Hjartar
983, Ingólfur 841, Guðjohnsen
760 og Jón Ólafsson 742.
Eftir kúluvarpið stóðu stigin
þannig: Gunnar 1490, Ingólfur
1438, Jón Hjartar 1350, Guð-
johnsen 1330 og Jón Ól. 1300.
Eftir hástökkið stóðu stigin:
Gunnar 2106, Jón Hjartar 2021
Ingólfur 2001, Guðjohnsen 1698
og Jón Ól. 1300. — Hjer varð
Jón Ólafsson sannarlega óhepp
inn. HásWkkið hefði átt að
vera besta grein hans, því á há
stökkskeppni meistaramótsins
stökk hann 1.75., en þar fjekk
hann ekkert stig nú. Hann byrj
aði ekki að stökkva fyrr en hæð
in var 1.60 m., en þá vildi svo
slysalega til að hann felldi þá
hæð í öllum stökkunum.
Eftir 400 m. hlaupið: Gunnar
2732, Jón Hjartar 2532, Ingólf-
ur 2436, Guðjohnsen 2220, Jón
Ólafsson 1790. -—
I þessum greinum var keppt
í á mánudaginn. Það var þegar
orðið ljóst að aðalkeppnin yrði
milli Gunnars Stefánssonar og
Jóns Hjartar og vafasamt varð
að teljast, hvort Jóni tækist að
vinna upp þennan 200 stiga
mun, sem var á honum og
Gunnari, þótt það væri ekki ó-
hugsandi.
Grindahlaupið var fyrsta
grein seinni daginð. Eftir það
stóðu stigin þannig: Gunnar
3048, Jón Hjartar 2866, Ingólf-
’ur 2724, Guðjohnsen 2519 og
Jón Ólafsson 2008.
Eftir kringlukastið stóðu
stigin þannig: Gunnar 3498,
Jón Hjartar 3354, Ingólfur
3287, Guðjohnsen 3007 og Jón
Ólafsson 2641.
Eftir stangarstökkið: Gunnar
3999, Ingólfur 3753, Jón Hjart-
ar 3686, Guðjohnsen 3134 og
Jón Ólafsson 3038.
Eftir spjótkastið: Gunnar
4455. Jón Hjartar 4273, Ingólf
ur 4255, Guðjohnsen 3591 og
Jón Ólafsson 3384. — Ingólfur
tdgnaði í hendi og kastaðil>að-
eins eitt kast.
Úrslitin urðu svo eftir síð-
ustu greinina, 1500 m. hlaupið,
sem hjer segir:
1. Gunnar Stefánss. 4999 stig
2. Jón Hjartar 4820 stig.
3. Ingólfur Arnars. 4555 stig.
4. E. Þ. Guðjohnsen 4061 stig
5. Jón Ólafsson 3828 stig.
Úrslit í hinum einstöku grein
um urðu sem hjer segir:
100 ni. hlaup.
1. Gunnar Stefánsson 464
stig (12.5).
2. Jón Hjartar 399 st. (13.1).
3. Ingólfur 399 stig (13.1).
4. Guðjohnsen 384 st. 13.2).
5. Jón Ól. 340 (13.5).
Langstökk.
1. Hjartar 584 st. (6.12).
■ 2. Gunnar St. 525 st. (5.86).
3. Ingólfur 442 st. (5.48).
4. Jón Ól. 402 st. (5.29).
5. Guðjohnsen 377 st. (5.17).
Kúluvarp.
1. Ingólfur 597 st. (11.74).
2. Guðjohnsen 570 st. 11.44).
3. Jón Ol. 558 st. (11.30).
4. Gunnar 501 st. (10.65).
5. Hjartar 367 st. (9.00).
Hástökk.
1. Hjartar .671 st. (1.70).
2. Gunnar 616 st. (1.65).
3. Ingólfur 563 st. (1.60).
4. Guðjohnsen-368 st. (1.40).
5. Jón Ól. ekkert stig.
400 m. hlaup.
1. Gunnar 626 st. (55.0).
2. Guðjoínsen 522 st. (57.7).
3. Hjartar 511 (58.0).
4. Jón Ól. 490 st- (58.6).
5. Ingólfur 435 st. (60.3).
110. m. grindahlaup.
1. Hjartar 334 st. (20.8).
2. Gunnar 316 st. (21.1).
3. Guðjohnsen 299 st. (21.4).
4. Ingólfur 288 st. 21.6).
5. Jón Ól. 218 st. (23.0).
Kringlukast.
1. Jón Ól. 633 st. (37/89).
2. Ingólfur 563 st. (34.76).
3. Guðjohnsen 488 st. (31.94)
3. Hjartar 488 st. 31.94).
4. Gunnar 450 st. (30.45).
Stangarstökk.
1. Gunnar 501 st. (3.00 m.).
. 2. Ingólfur 466 st. (2.90).
3. Jón Ól. 397 st. (2.70).
4. Hjartar 332 st. (2.50).
5. Guðjohnsen 127 st. (1.80)
Spjótkast.
1. Hjartar 587 "§t. (50.00).
2. Ingólfur 502 st. (45.23).
3. Guðjohnsen 457 st. (42.57)
4. Gunnar 456 ^t. (42.53).
5. Jón- Ól. 346 st. (35.74).
1500 m. hlaup.
1.. Hjartar 547 st. (4:39.6).
2. Gunnar 544 st. 4:40.0).
3. Guðjohnsen 470 stig
(4:50.8).
4. Jón Ól. 444 st. (4:55.0).
5. Ingólfur 300 st. (5:22.0).
Besta afrekið í þrautinni var
hástökk Jóns Hjartar, sem gef
ur 671 stig. Annað besta var
kringlukast Jóns Ólafssonar,
sem gefur 633 stig og þriðja
besta 400 m. hlaup Gunnars
. Stefánssonar, sém gefur 626 st.
Þ.
Septembermótið
ÁKVEÐIÐ hefir. verið að
Septemhefmótið fari að þessu
sinhi fram sunnudaginn 3.‘ sé]it
Keppt verður að þessu sinni
í 200 m. hlaupi, 800 m. hlaupi
3 km. hlaupi. hástökki, spjót-
kasti, kringlukasti og 80 m.
hlaupi fyrir stúlkur.
Mót ]>etta er mestmegnis
haldið ti-1 þess að ná góðum
árangri og má búast við því
að hann geti orðið mjög góð-
iir, ef veðurskilyrði leyfa. :
Glímufjelagið Ármann sjer
um mótið.
VIII, sem voru engir íþrótta-
menn á nútímamælikvarða. —
Henrik VIII ljet hermenn sína
æfa sig í að kasta fallbyssu-
kúlum, sem voru svipaðar að
þyngd og kúlan og sleggjan eru
núna. Stundum var þeim kast-
að með svipuðu móti og kúlunni
er nú kastað og stundum líkt
og sleggjunni, en þó úr kyrr-
stöou. Þetta er íþróttasaga, en
afrekið verður að mæla á nú-
tímavísu. Svipað og Hannib’al,
hinn mikli hersnillingur frá
Kartago, með 100 þúsund
manna her, hefði 3itla sigur-
möguleika í oruslu við fámenn-
an hóp hermanna með nýtísku
herútbúnað, stæðust meistarar
fortíðarinnar ekki síðari tíma
íþróttamenn í núttíma íþrótt-
’um.
Margir háfa nefnt Banda-
ríkjamanninn Jim Thorpe. fjöl-
prautameisíarann frá Stokk-
hólms-ólympíuleikunum 1912,
sem einn hinna „tíu bestu“. —
Thorpe var alveg sjerstakur af
reksmaður á sínum tíma, en
besti • tugþrautarmeistari, sem
uppi hefir vexið, er samt tví-
mælalaust Berlínar-olympíu-
meistarinn, Glenn Morris. Fyr-
ir afrek það, sem.hann vann í
Berlín, hefði hann fengið
9.415.305 stig samkvæmt tug-
þrautartöfluhni frá 1912, en
tíðar sinnar. — Svo er það ol-
ympiska jStjarnan' Hannes Kol
ehmainen, sem stendur mjög
framarlega, eða það finnst að
minsla kosti þeim sem taka
hann fram fyrir Paavo Nurmi.
Hannes var stóri maður Stokk
hólms-olympiuleikanna (ékki
Jim Thorpe), vann 5000,
10000 m og hindrunarhlaup. —
Ennfremur vann hann undan-
rás í 3000 m hlaupi og náði
besta tímanum, sem náðist. —
Átta árum seinna vann Hannes
maraþonshlaupið í Antwerpen.
Þeir frjálsíþróttamenn, sem
hafa haft einna mest áhrif á
mig, þau bráðum 40 ár, sem
jeg hefi fylgst með íþróttum,
eru:
Jesse Owens,
Gunder Hágg,
Glenn Morris,
Glenn Hardin,
Paavo Nurmi,
Rudolf Harbig,
Hannes Koleehmainen.
400-metra-hlauparanum Carr
ásamt Kálarne og Máki, er að
s’jálfsögðu ekk i hægt að gleyma,
þegar talað er um hlaupara. Af
stökkvurum dettur mjer einna
fyrst í hug þrístökkvarinn,
Naolo Tajimas. Af * kösturum
skulu nefndir: Erik Lemming,
Harald Andersson. Matti Jár-
Framh. á bls. 6.