Morgunblaðið - 30.08.1944, Side 1
81. árgangnr.
193. tbl. — Miðvikudagur 30. ágúst 1944.
Isafoldarprentsmiðja h.f,
BANDAMENN KOMNIR AÐ RHEIMS
HAFA TEKIÐ SOISSONS OG CHALONS
SkrLðdrekasveitir
við Svissnesku.
landamærin
Bandamenn sækja hratt upp-
eftir Rhonedalnum
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÞAÐ ER NÚ staðfest að skriðdrekasveitir bandamanna sjeu
komnar að svissnesku landamærunum eigi langt frá borginni
Geneva og hafa bandamenn með aðstoð frakkneskra hersveita
tekið nokkrar borgir og þorp þar nærri.
Eru um 75 km. frá
landamærum Belgíu
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
FRAMSVEITIR Bandaríkjamanna eru nú sagðar komn
ar nærri borginni Rheims. en þaðan eru um 75 km. til
landamæra Belgíu. Sækja bandamenn nú fram á 200 km.
víglínu og er sókninni beint til norðausturs frá Marne.
Eru framsveitirnar nú um 150 km. frá landamærum
Þýskalands sjálfs. Teknar hafa verið borgirnar Soissons
og Chalons, en framsveitir eru nærri Compigene-skóg-
inum þar sem vopnahljessamningarnir voru undirritað-
ir 1940 og einnig 1918. — Norðar eru allmiklar breskar
og kanadiskar hersveitir komnar yfir Signu.
Mikið af þeim slóðum, sem Bandaríkjamenn sækja
fram á, eru vígvellir síðustu styrjaldar og nöfn borganna
kunn úr þeim ófriði. — Taliðer^að hersveitir Pattons
sjeu um 3 km. frá bænum Epernay. ,
Þá halda bandamenn áfram
liraðri sókn uppeftir Rhone-
dalnum. og hörfa Þjóðverjar
af miklum hraða undan. Er
því lítið um bardaga, en
fraiiskar sveitir gera það sem
þær mega til þess að tefja
undanhald Þ.jóðverja.
Bandamenn nálgast nú borg
ina Nissa á strönd Miðjarðar-
hafsins og hafa tekið nokkur
þorp skamt frá henni. Þar eru
bardagar harðari, og mót-
spyrna allsnörp.
Mótspyma í Toulon brotin
Öll mótspyrna Þjóóðverja
í Touion er nú brotin á bak
aftur, en höfnin er ógurlega
illa leikin, ekkert einasta
hafnarmannvirki óskemt. Er
þetta aðallega- vegna hinna,
miklu loftárása bandamanna
á höfn þessa, en á hana höfðu
þeir vai'pað um 3000 smálest-
um af sprengjum.
Þar að auki er höfnin full
af sokknum skipum, liggur
orustuskipið Strasbourg þar
sokkið og er að því er virð-
ist flak eitt. Rjett þar hjá er
beitiskipið Marseillase sokkið
og s.jest aðeins á þiífar þess.
Ennig eru allt að 10 sokknir
kafbátar í höfninni.
Allar byggingar í kaup-
skipahöfninni eru í rústum,.
hafa annaðhvort orðið fyrir
sprengjum eða verið sprengd-
a'r í loft upp. Vörugeymslu-
hús eru brunnin til grunna og
járnbrautarkerf ij hafnarinnar
gjörsamlega ónýtt. Þá er raf-
magnsstöð borgarinnar eyði-
lögð og hjálparstöðvar einnig.
Vopnuð lögregla
Quislinga
Frá norska blaðafulltrú-
anum.
,1 lok júnímánaðar byrjuðu
Quislingar í Oslo á því að setja
á laggirnar alveg nýja lögreglu
sveit, sem greinilegt er, að ekki
á að senda til vígstöðvanna,
heldur nota hana í Noregi, ef
þörf krefur. Sagt er að sveit
þessi hafi vjelknúin farartæki,
skriðdrekabyssur og þungar
vjelbyssur. Ekki er sveitin fjöl-
menn enn, segja sænsk blöð.
Tekið er fram að það hafi ver
ið hersveitir úr her Tolbukins
og landgöngusveitir úr Svarta-
hafsflotanum, sem tóku Con-
stanza. Var gerð atlaga að borg
inni frá landi og einnig settar
liðssveitir af skipum á land við
borgina.
Bardagar við Ploesti.
Þýskur herfregnritari skýrir
Framh. á hls. 11
Við hvern á hann
nú að tala!
OrSrómur gengur nú um
það, að von Papen, fyrrum
sendiherra Þjóðverja í Tyrk-
landi, muni bráðlega hitta
Roosevelt, Churchill og Stalin,
en aðar frjettir segja að hann
muni fara á fund Páfa. .
Kínverjar rjúfa
járnbraut.
Chungking: — Kínverskar
hersveitir hafa rofið járnbraut
ina milli Nanton og Hankow,
rjett fyrir norðan borgina
Hengyang, sem Japanar tóku
fyrir nokkru eftir lengstu
umsát, sem þekst hefir í kín-
versk-japanska stríðinu til
þessa. — Reuter.
Nóg atvinna í Svíþjóð.
Stokkhólmi: — Það hefir
ekki reynst mikill vandi að út-
vega eistnesku flóttamönnun-
um af sænskum ættum at-
vinnu í Svíþjóð. Var sett á
stofp sjerstök vinnumiðlunar-
stöð þeirra vegna og rjeði hún
170 menn í vinnu á tveim mán
uðum.
Stjórnarskipti í
Ungverjalandi
London í gærkveldi.
ÞÝSKAR fregnir herma í
kvöld, að stjórnarskifti hafi orð
ið í Ungverjalandi. í dag. Hefir
yfirmaður setuliðsins 1 Buda-
pest, Lakatos ofursti, verið
gerður forsætisráðherra. Sca-
ty verður áfram landvarnaráð
herra og einnig fara sömu
menn og áður með innanríkis-
málin, fjármálin og landbún-
aðarmálin.
Utanríkisráðherra verður
Henyer marskálkur, en dóms-
málaráðherra Vladar. Hann
var áður skrifstofustjóri þess
ráðuneytis. Þá tekur einnig
skrifstofustjórinn í viðskifta-
málaráðuneytinu við ráðherra
embættinu. — Reuter.
(hurchill kominn
heim
London í gærkveldi:
Um klukkan sex í kvöld lenti
flugvjel Churchill forsætisráð-
herra, sú, er flutti hann frá
Ítalíu, á flugvelli í Bretlandi —
Höfðu 12 orustuflugvjelar fylgt
henni alla leið.
Margt háttsettra hershöfð-
ingja tók á móti Churchill, en
opinberar móttökur voru eng-
ar. Skömmu eftir að forsætis-
ráðherrann steig út úr flugvjel
inni, var hann kominn á leið
heim til sín, ásamt frú sinni,
sem komið hafði til móts við
hann. — Reuter.
Mótspyrna Þjóðverja er mjög
lítil og rekast bandamenn að-
eins á strjálar og fámennar
sveitir.
Ilætta á innikróun.
Vafalítið þykir, að þesari
sókn sje stefnt að því, að halda
áfram til Ermarsunds og reyna
að króa inni hersveitir Þjóð-
verja, sem enn eru mikið vest-
ar, á eystri bökkum Signu og
ströndunum í Calaishjeraði. Þá
halda Þjóðverjar Le Havre enn,
og á því svæði, sem innikróun-
arhættan er mest, er mikið af
svifsprengjustöðvum Þjóðverja
— Land verður verra yfirferðar
hinum megin við Aisne, alt að
Meuse-fljótinu.
92.000 fangar.
Tilkynnt hefir verið, að tekn
ir hafi vérið 92.000 fangar í bar
dögunum í Normandie á dögun
um, en talið að þar hafi fallið
um 30.000 Þjóðverjar. Mann-
tjóns bandamanna er ekki getið
Ekki er ljóst, hvort enn sjeu
nokkrar þýskar hersveitir vest
an Signu, en kanadiskar og
breskar sveitir eru víða komn-
ar yfir.
Hörð gagnáhlaup.
Þjóðverjar gerðu gagnáhlaup
gegn þessum hersveitum, til
þess að reyna að halda þeim frá
fljótsbakkanum, og urðu miklir
bardagar. í kvöld berast fregn
ir um það, að breskum skrið-
drekasveitum hafi tekist að yf
irbuga mótspyrnu Þjóðverja
þarna og brjótast austur frá
fljótinu. Talið er að borgin
Rouen sje að mestu leyti um-
kringd.
Le Bourget flifgvöllurinn
loks tekinn.
í París er nú alt með kyrr-
Framhald á bls. 11
Rússor tuka hufnur-
borginu Constunzu
Burist við Ploesti
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
TILKYNT var í kvöld í Moskva með dagskipan frá Stalin að
Rússar hefðu í dag tekið hafnarborgina Constanza við Svarta-
haf mestu hafnarborg Rúmeníu, og flotastöð. Þangað liggja
olíuleiðslur frá Ploesti.