Morgunblaðið - 30.08.1944, Side 10

Morgunblaðið - 30.08.1944, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 30. ágúst 1944, „Þú ferð auðvitað hjeðan strax eftir útförina?“ sagði hún kuldalega. „Já, jeg býst við því“, svar- aði Miranda. Já, auðvitað varð hún að fara. Ekki gat hún ver- ið hjer ein með Nikulási. Niku- lás! Hún neri saman höndun- um og gekk út að glugganum, til þess að Magda sæi ekki svip hennar. Þegar hún yar farin, ýtti Miranda matnum frá sjer, án þess að snerta hann. Nikulás var nú svo óendan- lega langt frá henni. Hún vissi ekki, hve hryggur hann var, því að hún hafði aldrei verið á því hreina með, hvernig til- finningar hans í garð Jóhönnu voru. En hún var eiginkona hans — móðir dóttur hans — og honum hlaut að líða mjög illa. Miranda faldi andlitið í höndum sjer. Eftir dálitla stund fór hún að hátta og sofnaði þegar í stað. Um miðnætti voru allir komnir í ró á Dragonwyck. Miranda svaf svo fast, að hún vaknaði ekki við það, að dyrnar á herbergi hennar voru opnaðar. En hún vaknaði við það, að nafn hennar var nefnt, og þegar hún 'leit upp, sá hún Nikulás standa við rúmið. Hún lá grafkyrr, ennþá í svefnrof- unum. Hann setti kertið á borðið og gekk síðan aftur að rúminu. Hún starði á sorgarbandið, sem hann bar um handlegg sjer. „Miranda“, sagði hann, „líttu á mig“. Hún leit hægt af bandinu á andlit hans. Hann dró þungt andann og áður en hún vissi af, hafði hann þrifið hana í fang sjer og helt yfir hana brennandi kossum. Hún fann, hvernig hjarta hans barðist ótt og títt. „Nei------nei“, hvíslaði hún óttaslegin og reyndi að ýta honum frá sjer. Hann slepti henni, svo að hún fjell aftur á bak í rúmið. Hann stóð á fætur og rak upp stuttan hlátur. „Ef jeg vildi „já“, heldurðu þá að heimsku- leg mótmæli þín gætu stöðvað mig?“ „Jeg — jeg veit það ekki“, hvíslaði hún. Ofsi hans hafði gert hana óttaslegna, en þegar hann stóð þarna fyrir framan hana, kaldur og rólegur, fylt- ust augu hennar tárum og hún horfði biðjandi á hann. „Klæddu þig í eitthvað“, sagði hann og sneri baki við henni, á meðan hún hlýddi honum. Þegar hún hafði lokið við að klæða sig, gekk hún til hans og staðnæmdist fyrir framan hann, há og tíguleg, og gylt hár hennar fjell laust niður um herðarnar. Hann tók vinstri hönd henn- ar. Hún starði undrandi á, meðan hann dró stóran hring á l löngutöng hennar. Hún hdr|$i á hringinn. Hann var úr gulii, óg á hann voru greiptar tvær hendur, sem hjeldu utan um rauðan, hjartalagaðan rúbínstein. „Þetta er Van Ryn trúlof- unarhringurinn“, sagði hann. Hún leit vandræðalega af hringnum á andlit hans. „Jeg — jeg skil þetta ekki“. „Jú, þú skilur það, Miranda“, sagði hann blíðlega. Ofsagleði gréip hana. En svo dró hún að sjer hendina. ,,Jóhanna“, hvíslaði hún. Svipur Nikulásar varð hörku legur. „Hún bar aldrei þennan hring“, svaraði hann. „Hann var henni of lítill“. Guði sje lof, hugsaði Mir- anda. Þá getur ekki verið neitt athugavert við það. „Þú gerir nákvæmlega það sem jeg segi þjer?“ sagði Nikulás. „Já“, hvíslaði hún. „Altaf“. „Feldu hringinn. Segðu eng- um frá honum. Á föstudaginn ferðu heim til þín. Eftir ná- kvæmlega tólf mánuði mun jeg sækja þig“. „Tólf mánuði------“, endur- tók hún. „Auðvitað — það verður eitt ár í sorg“. „En Nikulás", hrópaði hún og horfði á hann í örvæntingu. „Jeg get ekki trúað — jeg hefi aldrei þorað að vona — — elskarðu mig í rauninni — þú hefir aldrei sagt það----?“ Nikulás brosti. Hann lagði hendurnar á axlir hennar. „Jeg hefi beðið þig um að verða konuna mína. Viðkvæmnishjal er aðeins fyrir skóladrengi. Lifðu fyrir framtíðina, Mir- anda — eins og jeg“. Hann beygði sig niður og kysti hana blíðlega. Síðan yfir- gaf hann herbergið og Miranda stóð ein eftir og starði eins og dáleidd á trúlofunarhringinn á fingri sjer. ★ í sama mund var Jeff að ljúka við rannsóknir sínar, á læknastofu sinni í Hudson. Hann átti enga bók um eðli og áhrif eiturefna, en hann fann kafla um eiturlyf í einni af kenslubókum sínum. Á disk fyrir framan hann lágu nokkrir kökumolar — og það var alt, sem eftir var af hunangskökubitanum, sem hann hafði hnuplað með sjer frá Dragonwyck. Sumt af hon- um hafði hann athugað undir smásjá sinni, en hann hafði ekkert sjeð. Eftir fyrirsögn í bókinni brendi hann dálítið af kökunni og á annan bita stráði hann vissum efnablöndum. En allar þessar tilraunir urðu nei- kvæðar. Alt í einu tók hann diskinn með kökuleifunum og henti honum í ruslakörfuna, svo að hann brotnaði í ótal mola. Jeg ætti að blygðast mín, hugsaði hann. Grunur minn var ekki annað en barnaleg þykkja yfir því, að mjer skyldi hafa skjátlast og sjúklingur minn dáið. Hann lokaði kenslubókinni og stakk henni aftur upp í hillu. Síðan fór hann að hátta, fastráðinn í því að hugsa aldrei um þetta frgmar. X. KAPÍTULI. Jóhanna var grafin með mik- illi viðhöfn og morguninn eftir fór Miranda frá Dragonwyck. Henni sárnaði mjög, að Niku- lás skyldi ekki koma niður og kveðja sig. Hann hafði skipað svo fyrir, að hún skyldi fara í ljettivagninum, með Dick. Grjeta, miðaldra þjónustu- stúlka, átti einnig að fylgja henni, þar eð þau myndu verða tvo daga á leiðinni og ekki var sæmandi hefðarkonu að gista ein á krá. Þegar vagndyrnar lokuðust á eftir henni, þrýsti hún and- litinu að rúðunni og horfði í síðasta sinn á Dragonwyck. Örvæntingin greip hana og augu hennar fyltust tárum. Hún greip utan um hringinn, sem hún bar í festi um’ háls sjer, eins og til að leita hugg- unar hjá honum. Þegar vagninn var kominn af stað, dró Grjeta brjef upp úr tösku sinni og rjetti Mir- öndu. „Gjörið þjer svo vel, ungfrú“, sagði hún. „Húsbónd- inn bað mig að fá yður þetta, þegar við værum komin af stað“. Á heimskulegu andliti hennar var enginn forvitnis- svipur. Hún var góður og hlýð- inn þjónn, en mjög heimsk. Það var þess vegna, sem Nikulás hafði valið hana til þess að fylgja Miröndu. Miranda hafði ákafan hjart- slátt, þegar hún opnaði brjef- ið. Það var á þessa leið: „Mjer þykir mjög leitt að geta ekki kvatt þig. En það er betra að hafa það þann- ig, og við eigum ekkert van- talað. — Þegar er einn dag- ur liðinn af hinum ákveðna tíma — ástin mín. ■— N.“ Miranda gleymdi allri var- færni og þrýsti brjefinu að vör um sjer. Síðan leit hún ótta- slegin á Grjetu, til þess að sjá, hvort hún hefði veitt sjer at- hygli. En gamla konan var far in að dotta. Jeg ætla að vera svo góð, hugsaði hún. Jeg ætla að lesa mikið og læra, svo að jeg verði honum samboðin. Við hverja mílu, sem hún fjarlægðist Dragonwyck, varð henni ljett- ara í skaþi. Samband hennar og Nikulásar varð eins og hún vildi hafa það. Hann elskaði hana og hún elskaði hann, og brátt myndu þau giftast. Hún gleymdi Jóhönnu og hinum undarlegu og óskýranlegu dutlungum Nikulásar. Við eig- um aldrei að líta aftur, hugs- aði hún, heldur aðeins að lifa fyrir framtíðina, eins og Niku- lás segir. Vagninn ók nú í gegnum Hudson, og þegar þau vofii að aka út úr þorpinu, datt henni alt í einu Jeff Turner í hug, og jafnvel hugsunin um hann hafði mátt til þess að koma henni í ilt skap. Ef Loftur íretur bað ekk1 — bá hverl Sögur Bertu gömlu Æfintýr eftir P. Chr. Asbjörnsen. 6. fjelaga sinna. Þeir hjeldu hann hafa farið heim eftir meira nesti, og það sagðist hann líka hafa gert. En hann var ekki sami maður síðan, hann gat alt í einu tekið viðbragð án minsta tilefnis. Það var huldukonunni að kenna, skal jeg segja yður. En svo var það nokkru eftir þenna atburð- að hann var að kljúfa trje nokkru fyrir ofan bæinn sinn. Hann hafði rekið fleyg í trje eitt og var þar komin rifa á. Þá sýndist honum konan hans koma með miðdegismatinn, og sýnd- ist honum hún hafa meðferðis fulla fötu af rjómagraut og var fatan svo falleg og gljáandi, að hann hafði ekki sjeð slíkt ílát áður. Hún settist á trjeð, sem fleygur- inn var í, en hann á trjestúf þar rjett hjá, en um leið og hann settist niður, sá hann, að hún var með langan hala eins og kýrhala og hann fór niður í rifuna á trjenu. Hann fór ekki að borða, heldur settist hjá henni og reyndi að ná fleygnum úr trjenu og tókst það líka, og um leið skrapp trjeð saman utanum halann, sem sat þar fastur í illilegri klípu, en Lási skrifaði Jesú nafn á föt- una með fingrinum. En þá tók hún aðeins til fótanna, þaut svo skjótt upp, að halinn slitnaði af henni og sat fastur í rifunni, og á brott var hún; hann sá ekki hvað af henni varð. En fatan og maturinn var þá ekki annað en börkur með kúaskán í. Síðan þorði hann næstum því aldrei út í skóginn, því hann var hræddur um að hún myndi hefna sín. En eitthvað fjórum, fimm árum seinna týndist hestur sem hann átti, og hann hafði engan til að leita að honum og varð að gera það sjálfur. Um leið og hann kom inn í skóginn, var hann kominn inn í kofa til einhvers fólks, hann vissi ekki hvernig hann komst þangað. Var þar inni ljót kerling að búverkum, en úti í horni sat krakki, sem hefði getað verið fjögurra eða fimm ára gamall. Kerling tók ölkönnu og fjekk krakkanum: „Farðu nú“, sagði hún ,,og bjóddu honum pabba þínum að drekka“. Hann varð svo skelkaður að hann tók til fótanna, og síðan hefir hann hvorki heyrt nje sjeð hana eða krakkann, en enn varð hann einkennilegri eftir þenna atburð“. ,,Já, skrítinn held jeg hann hafi verið, hann Lási Skosk frú var á ferðalagi um Island og var fararstjórinn orð inn þreyttur á spurningum hennar. — Hvernig mynduðust þessi jarðföll? spurði konan, þegar hún sá 91mannagjá. — Þau mynduðust þannig, vat svarið, að Skoti misti shill- ing niður í músarholu. ★ Skoti hitti kunningja sinn. — Hvers vegna ertu svona súr á svipinn, Jimmy? — Við verðum að leysa upp knattspyrnufjelagið, sem hefir starfað í 50 ár. — Af hverju? — Knötturinn sprakk. i* „Ágætt“, sagði maðurinn, um leið og hann lagði frá sjer dagblaðið, „nú lækkar bensín- ið í verði“. ,,Já“, svaraði kunningi hans, „það er gott fyrir ykkur bíla- eigendurna“. „Jeg er nú ekki einn af þeim, en jeg á vindlakveikjara. ★ Karlmaður spyr aldrei stúlku að því, hvort hún elski sig, fyr en hann er nærri viss um, að svo sje. ðtúlka spyr karlmann aldrei að því, hvort hann elski sig, fyr en hún er nærri viss um, að svo sje ekki. * — Ferðu nokkurn tíma með konuna þína í bílnum? — Nei, aldrei, jeg get ekki stjórnað báðum í einu. ★ Tveir blökkumenn eru fyrir rjetti í Ameríku, ákærðir fyr- ir að hafa brotið umferðarregl urnar. „Hafið þið lögfræðing?“ spurði dómarinn. „Nei“, svaraði annar, „við höfuð ákveðið að segja satt og rjett frá öllu“. ★ Karl litli hafði dottið í poll og kom heim rennvotur og hríð skjálfandi. Faðirinn var reiður og skipaði drengnum að hátta, en sagði um leið: „Altaf þarftu að gera ein- hverja skyssu. Farðu nú í rúm- ið, en þegar þjer er orðið heitt, þá flengi jeg þig duglega“. Klukkutíma seinna hrópar yngri bróðir Karls litla: „Pabbi, nú er Kalla orðið heitt“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.