Morgunblaðið - 13.09.1944, Qupperneq 12
12-
Miðvikudagur 13. sept. 1944,
Forseti í
Keflavík
VísitaBan
272
í gær
Frá frjettaritara vorum.
FORSETI ÍSLANDS kom til
Keflavíkur klukkan 2 í gær. —
Hafði heiðurshlið verið reist á
Vatnestorgi inst í kaupstaðn-
um og tóku þar á móti forseta,
þeir Alfreð Gíslason lögreglu-
stjóri, Karl Magnússon hjeraðs
læknir og sjera Eiríkur Brynj-
ólfsson. Skátar stóðu heiðurs-
vörð og heilsuðu forseta með
fánakveðju, en mikill mann-
fjöldi, sem þarna hafði safnast
saman, hylli forseta með húrra
hrópum.
Lögreglustjóri ávarpaði for-
seta og bauð hann velkominn,
en forseti svaraði með ræðu til
mannfjöldans, en síðan söng
kirkjukór staðarins þjóðsöng-
inn.
Þvi næst var gengið heim til
lögreglusljóra og dvaldist for-
seti þar um stund ásamt emb-
ættismönnum staðarins, en
skátar fylktu liði þangað á und
an.
Þaðan var farið til sjúkra-
húss þess, sem verið er að
byggja og lagði forseti horn-
stein að byggingunni, en
kirkjukórinn söng sálm á und-
an og eftir. Síðan var forseta
boðið að horfa á sundsýningu
í hinni nýju sundlaug Kefla-
víkur, en þaðan var farift að
höfninni og hafnarmannvirki
skoðuð.
Því næsl efndi hreppsnefnd
in til kaffiboðs fyrir forseta í
samkomuhúsi staðarins og sátu
það hóf um 170 manns. Ræður
fluttu þar þeir Alfreð Gísla-
son lögreglustjóri, Karl Magn-
ússon hjeraðslæknir, Ragnar
Guðleifsson forstjóri, Helgi S.
Jórtsson , og sjera Eiríkur
Brynjólfsson. Forseti svaraði
rneð snjallri ræðu.
Maður deyr
af kolsýringi
Á SUNNUDAGINN 10. sept.
fanst maður örendur í bílskúr
að Langholti við Langholts-
veg. Maður þessi var Emil
Kristinsson, til heimilis þar.
Hafði Emil farið til Reykja-
víkur á laugardagskvöld og
var ekki kominn, er heimafólk
gekk til. hvílu þá um kvöldið.
— Ekki er vitað, á hvaða tíma
Emil hefir komið heim, en úti-
dyralykill hans hefir brotnað
í skránni og sennilegt, að hann
hafi ekki viljað vekja upp til
þess að komast inn. Hefir hann
|>á farið inn i bílskúr, sem var
ólæstur, er var við húsið, en
í honum stóð bifreið, er Emil
hafði lykil að. Bifreiðina hefir
Emil sett í gang, en þar eð bíl-
skúrinn er mjög vel þjettur,
hefir kolsýringur myndast
mjög fljótt. En svo sem kunn-
agt er myndast hann út frá
vjel bifreiðarinnar og er mjög
hættulegur.
Við rannsókn, er fór fram á
liki Emils í gær, kom í ljós, að
kolsýringur hafði orðið honum
að bana.
Le Havre s valdi Breta
eftir harða viðureign
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
KLUKKAN 11.30 í morgun gafst setulið Þjóðverja í frönsku
hafnarborginni Le Havre upp, og voru teknir þar 3000 þýskir
fangar. Hafði áður verið haldið uppi mikilli skothríð á borgina
og mörg þúsund smál. af sprengjum varpað á hana. — Fjöldi
Þjóðverja hafði fallið og yfirmaður varnarliðsins var hættulega
særður.
Það var breska 46. herfylk-
ið, sem átti mestan hlut í að
ná borginni, en það barðist í
Noregi, var síðan um langt
skeið á íslandi, en hefir nú bar
ist lengi í NorðurFrakklandi.
Le Havre er önnur stærsta
hafnarborg Frakklands, og eru
bryggjur þar samtals um 15
km langar. Ekki er enn vitað,
hvernig höfnin er út leikin, en
Þjóðverjar hafa haft nægan
tíma til þess að sprengja garða
og bryggjur í loft upp. Einnig
er líklegt að skemmdir hafi
orðið af sprengjum.
Þjóðverjar verjast enn af
mikilli hörku í Brest, Lorient
og St. Nazaire. í Lorient kveð-
ast þeir hafa náð nokkru af
hergögnum frá bandamönnum
með gagnáhlaupi.
í Brest geisa götubardagar.
Vöruskiftajöfnuð-
urinn óhagslæður
um 5,3 milj. kr.
SAMKVÆMT bráðabirgða-
skýrslu Hagstofunnar nam inn
flutningurinn í ágúst 18.6 milj.
króna og útflutningurinn 18.1
milj. kr.
Mánuðina jan.—ágúst þ. á.
nam innflutningurinn 156.0
milj. kr., en útflutningurinn
150.7 milj. kr. Hefir vöruskifta
jöfnuðurinn þannig verið ó-
hagstæður um 5.3 milj. kr.
Á sama tíma í fyrra nam inn
flutningurinn 155.2 milj. kr. og
útflutningurinn 155.0 milj. kr.i,
og vöruskiftajöfnuðurinn því
þá óhagstæður um 0.2 milj. kr.
Sundmóf Suður-
nesja
SUNDMÓT Suðurnesja fór
fram sunnudaginn 10. sept. —
Björn Stefánsson hlaut sæmd-
artitilinn Sundkóngur Suður-
nesja og Guðbjörg Þórhallsdótt
ir Sunddrottning Suðurnesja.
Úrslit mótsins urðu annars
þessi:
200 m. frj. aðf. karla: — 1.
Björn Stefánsson 3:21.1 mín.,
2. Sigurður Jónsson 3:21.2 mín.
100 m. frj. aðf. stúlkna: — 1.
Guðbjörg Þórhallsdóttir 1:30.9
mín., 2. Guðfinna Elintinus-
dóttir 1:34.0 mín.
50 m. bringusund, karla: —
1. Sig. Brynjólfsson 39.2 sek.,
2. Ragnar Friðriksson 40.6 sek.
33 m. bringus. drengja 8—13
ára: — 1. Kristinn Helgason
33.8 sek.
33 m. bringus. stúlkna 8—13
ára: — 1. Þorbjörg Pálsdóttir
35.6 sek.
50 m. baksund karla: — 1.
. Sig. Brynjólfsson 42.5 sek., 2.
Ragnar Friðriksson 49.8 sek.
200 m. bringus. drengja inn-
an 18 ára: — 1. Þorbjörn Ketils
son 3:34.9 mín., 2. Þorsteinn
Friðriksson 3:59.1 mín.
50 m. bringusund stúlkna, 13
—16 ára: — 1. Kristrún Karls-
dóttir 46.4 sek., 2. Guðfinna
Elintínusdóttir 47.3 sek.
50 m. bringusund drengja 13
—16 ára: — 1. Baldur Hjálm-
týsson 44.4 sek., 2. Þorsteinn
Friðriksson 46.8 sek.
200 m. bringusund karla: —
1. Björn Stefánsson 3:25.5
mín., 2. Sig. Jónsson 3:30.0 mín.
ísiendingur iýkur
doktorspróii
í Leipzig
NÝLEGA hefir borist til ut-
anríkisráðuneytisins fregn um
að Magnús Sigurðsson h'afi
fyrir skemmstu lokið doktors-
prófi við háskólann í Leip-
zig í Þýskalandi.
Magnús er sonur Sigurðar
Björnssonar frá Veðramóti og
konu hans Sigurbjargar Guð-
mundsdóttur og því bróðir
Jakobs Sigurðssonar, er nýlega
lauk doktorsprófi í Boston. —
Hann fór til náms í Þýskalandi
sumarið 1938 og stundaði nám
í verslunarfræði við Leipzig
Handelshochschule og síðar við
Háskólann í Leipzig. Kandi-
datsprófi þaðan lauk hann árið
1942, með ágætum vitnisburði.
Síðustu tvö árin hefir hann unn
ið að doktorsritgerð sinni um
hagfræðilegt efni og hlaut
Magnús dokorsnafnbót sína fyr
ir skemmstu með vitnisburðin-
um: — mjög gott.
Notkun þjóðsöngs
Svía takmörkuð
Stokkhólmi: — Talið er, að
bráðlega verði hætt að enda
dagskrá sænska útvarpsins
með þjóðsöngnum, „Du gamla,
du fria“, þar sem stjórn út-
varpsins lítur svo á, að lag
þetta beri aðeins að leika við
hin hátíðlegustu tækifæri í lífi
þjóðarinnar.
KAUPLAGSNEFND og Hag-
stofan hafa nú reiknað út
framfærsluvísitölu september-
mánaðar og er hún 272 stig,
eða 6 stigum hærri en vísital-
an fyrir ágústmánuð. — Hækk
un vísitölunnar stafar aðallega
frá verðhækkun á kartöflum.
Þýsku fangarnir
hjeðan senda
kvetíjur
Sænska sendiráðið hjer barst
nýlega skeyti frá sænska
Rauða Krossinum, sem í var
kveðjur frá Þjóðverjum þeim,
er búsettir voru hjer á landi, er
Bretar hernámu landið, og sem
síðan hafa verið herfangar
Breta. — I skeyti þessu segir
svo: Erum komnir heilu og
höldnu til Gautaborgar. Send-
um hlýjar kveðjur til allra
skyldmenna og vina.
Skeyti þetta skrifa undir
eftirtaldir menn: Heimbert
Bethke, Carl Billich, Rudolf
Camphausen, Erik Dahn, Karl
Haake, Hans Haesler, Alfreð
Heinicke, Walter Kratsch,
Bruno Kress, Paul Meinhart,
Rudolf Noah, Jakob Ruckert,
Heiny Scheiter, Herbert Stein-
mann, Hendrick Tegeder, Ernst
Thelen, Edmund Ullrich, Eugen
Urban, Gerd Will og Heindrick
Wöhler.
Menn þessir munu hafa verið
meðal fanga þeirra, er sendir
voru í fangaskiptum Þjóð-
verja og Englendinga, er fóru
fram í Gautaborg fyrir nokkru
síðan.
Farið varlega
yfir hengibrýr!
VEGAMÁLASTJÓRI hefic
nú aðvarað bifreiðastjóra uui;
að fara gætilega yfir allar,
•hengibrýr á iandinu. — Sjer-
staklega hvetur hann bió
reiðastjóra að fara gætilega
yfir brúna á Jökulsá í Axar«
firði. Yfir hana má ekki faraj
með meiri þunga í einu, en;
5 smál. og er vigt bifreiðart
innar innifalin í því. — Hvet-<
ur hann langferðabifreiða-<
stjóra til þess að láta farþega
í bílunum ganga yfir brún.
1 landinu munu vera því
sem næst fimm hengibrýr og
eru þær allar orðnar mjög
gamlar, eða síðan um alda-
mótin síðustu.
Fjórum þýskum tundur-
duflaslæðurum sökt við
Noreg.
Frá norska blaðafulltrú-
anum. i
í FRJETT frá London segir,
að fjórum þýskum tundur-
duflaslæðurum hafi í gær ver
ið sökkt af enskum sprengju-
flugvjelum úti fyrir Kristian-
■ sand S.