Morgunblaðið - 28.09.1944, Blaðsíða 7
Fimtudagur 28. sept. 1944.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Vígsla Innri-Njarð
víkurkirkju
ÁRIÐ 1917 var Njarðvíkur-
kirkja í Kjalarnesprófasts-
dæmi lögð niður sem sóknar-
kirkja fyrir Ytri og Innri-
Njarðvík og Keflavíkur og
Njarðvíkursóknir sameinaðar.
Kirkjuhúsið sjálft, sem þá var
orðið hrörlegt mjög, var hins-
vegar látið standa og afhent
sóknarnefnd hinna sameinuðu
sókna. Undu margir íbúðar í
Innri-Narðvík þessu mjög illa.
Á síðastliðnu ári fóru svo
íbúar í Innri-Njarðvik fram á
það, að þeim yrði leyft að
stofna sjerstaka kirkjusókn og
að þeim yrði jafnframt afhent,
til fullrar eignar, hið gamla
kirkjuhús, sem þá hafði staðið
ónotað og ónothæft árum sam-
an, gegn því, að þeir gerðu það
messuhæft á eigin kostnað.
Varð safnaðarfundur Keflavík
ursóknar, svo og kirkjustjórn-
in við þeirri beiðni og ljetu
sóknarmenn nú ekki á sjer
standa, en rjeðust þegar í að
endurbæta og endurreisa hina
gömlu kirkju sína, en af henni
var nú lítið annað eftir en hin-
ir traustu, hlöðnu grjótveggir. -
Og nú stendur hin gamla
Njarðvíkurkirkja fullgerð á
ný og er eitt af vönduðustu og
fegurstu guðshúsum þessa
lands, því að það er engan veg-
inn ofmælt, að hvergi hafi ver-
ið sparað til þess, að því marki
mætti verða náð. Viðgerðin hef
ir þá líka kostað um 60 þúsund
krónur.’ auk þeirrar vinnu og
þess efnis, sem gefið hefir ver-
ið. Og af áðurnefndri upphæð
hefir kirkjunni þegar gefist um
50 þúsundir króna frá söfnuð-
inum og gömlum safnaðarmeð-
limum, og eru henni enn að
berast peningagjafir. Auk þess
söfnuðu konur sóknarinnar
sjerstaklega álitlegri fjárupp-
hæð, sem varið var til þess að
prýða kirkjuna að innan, en
aðrar gjafir bárust henni auk
þess hvaðanæfa, svo sem alt-
aristafla, messuskrúði allur og
altarisumbúnaður, ljósakrónur
í loft, kertastjakar á vegg Qg
á altari, silkifáni, fánastöng,
númeratafla og ýmislegt fleira.
Kirkjan er bæði rafhituð og
raflýst.
Síðastliðinn sunnudag var
kirkjari vígð af biskupi lands-
ins, herra Sigurgeir Sigurðs-
syni, að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Þar voru og komnir
vígslubiskup Hólastiftis, sjera
Friðrik J. Rafnar, sem um rúm
an áratug þjónaði Útskála-
prestakalli, prófastur sjera Hálf
dán Helgason, svo og aðrir
prestar hjeraðsins, sem aðstoð-
uðu við vígsluna. Að vígslunni
lokinni prjedikaði sóknarprest
urinn sjera Eiríkur Brynjólfs-
son, og skírði þvínæst þrjú
börn, biskuparnir báðir þjón-
uðu fyrir altari á eftir, en
sr. Sigurbjörn Á. Gíslason las
útgöngubæn. Nýr og vel æfð-
ur söngflokkur annaðist söng
allan. Var athöfnin öll hin há-
tíðlegasta og áhrifarík mjög
fyrir alla viðstadda.
Að guðsþjónustunni lokinni
ávarpaði biskup söfnuðinn enn
á ný íneð skörulegri hvatning-
arræðu og töku þvínæst til
máls vígslubiskup, prófastur og
sóknarprestur. Að síðustu flutti
formaður sóknarnefndar, Sig-
urgeir Guðmundsson, ræðu,
þar sem hann sagði sögu kirkju
byggingarmálsins og lýsti gleði
sinni og safnaðarins yfir því,
að fagrar vonir þeirra hefðu nú
rætst. Glitruðu þá tár í augum
margra þeirra, sem saknað
höfðu kirkju sinnar í nærri þrjá
áratugi, en fögnuður og þakk-
læti til Guðs fylti hvert hjarta. j
Bar öll þátttaka safnaðarins í
athöfninni, svo og hinn al-
menni, hljómsterki safnaðar-
söngur þessa Ijósan vott.
Að lokinni athöfninni í kirkj
unni buðu konur sóknarinnar
öllum viðstöddum til sameigin
legrar kaffidrykkju og veittu
af mikilli rausn, en sjera Bryn-
jólfur Magnússon þakkaði und
ir borðum fyrir hönd gestanna.
í Innri-Njarðvík búa nú um
60 gjaldskyldir safnaðarmeð-
limir og er hjer því um mjög
fámenna sókn að ræða. En
þessi söfnuður hefir lyft Grett-
istaki og sýnt það áræði, þann
áhuga og þá fórnfýsi, sem vart
á sinn líka, en sem mun verða
öðrum til fyrirmyndar um lang
an aldur. Með þessum fámenna
söfnuði hefir raunverulega
gerst fagurt og stórfenglegt
æfintýri í kirkjumálum og
kirkjulífi þessa lands, sem birtu
mun leggja af um mörg ókom-
in ár.
Og um leið og vjer samgleðj-
umst Innri-Njarðvíkurbúum,
sem nú hafa sjeð hinn gamla
og fagra draum sinn rætast á
svo stórfenglegan hátt, þá er
það oss ekki síður fagnaðarefni
að vita hina fögru, endurreistu
kirkju standa þarna um öll ó-
komin ár sem táknrænt og á-
þreifanlegt merki kirkjulegs
áhúga, fórnfýsi og ræktarsemi,
reista á þeim tíma, þegar and-
stæðingar kirkjunnar, sem oft-
ar, vildu hana feiga og hlökk-
uðu yfir þeirri deyfð, sem þeir
hugðu ríkja innan hennar og
brátt mundi verða henni að
fjörlesti.
Hálfdán Helgason.
^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiniiBiiiiiiiiim
| Húsnæði 1
5 Trjesmið vantar 1—3 her =
| bergi og eldhús. Mikil i
| fyrirframgreiðsla ef ósk- h
1 að er. Vinna á trjeverki og i
i innanhúsmálun, getur kom i
1 ið til greina, ef með þarf. j|
| Tilboð sendist afgr. blaðs- i
§ >ns fyrir sunnudag, merkt =f
,,Trjesmiður“.
tfiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiinui
t MORGUNBLAÐINU
Allir Lslensk-
ir unfflinsar
verða að
kynnast
Daníel
íljarfa
mtýriira
hans og
ferellnm
_ æf-
<$>
DAIMIEL DJARFI
eftir uppáhaldshöfund danskra
unglinga, Hans Kirk
f
r
t
t
t
i
i
i
i
i
❖
Getum útvegað
nokkrar
Kamínnr
frá
Englandi
Heildverslun Ásgeirs
Hafnarstræti 10—12.
Sígurðssonar h.f.r
Símar: 3307 og 3308.
f
t
t
i
i
r
i
i
i
i
i
i
♦>
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦.♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦^♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦►♦♦♦♦s<**
Sigfús Elíasson:
Fyrirlestur og upplestur
í Iðnó fimtudagskvöld kl. 9.
EFNI: r
Hafa oss Islendfngum borlst aðver-
anir frá nteisiurum tiehkingar! Aðgöngumiðar í Bókav. Sigfúsar Eymundssonar, Versl. Sigríðar Helgadóttm- og við innganginn. —
Fjelaglð Aivara