Morgunblaðið - 28.09.1944, Page 16
1G
Ölfusárbní
opnuð fyrir bíla
næstkomandi
laugardag
VIÐGERÐINNI á Ölfusarár-
brú er nú svo langt komið, að
ráðgert er að brúin verði opn-
uð fyrir bíla næstkomandi
laugardag.
Verða höfð iokuð hlið beggja
megin brúarinnar og verðir
við þau, svo að enginn geti
farið yfir brúna án leyfis varð-
mannanna. Verða settar strang
ar reglur um umferðina og
verðirnir sjá um, að settum
reglum verði gylgt.
Verður nú í vikulokin hafist
handa um slátrun sauðfjár í
Rangárvalla- og Skaftafells-
sýslum, en fresta varð slátr-
un í þessum sveitum, vegna
samgöngu teppunnar við Ölfus-
á-
Ráðgert var að fara með fjár
rekslur yfir Ölfusárbrú árd. í
dag-
Þýski lögregiusijór-
inn í Danmðrku
hélar illu
ÞEGAR DÖNSKU lögreglu-
þjónarnir höfðu verið fluttir úr
landi, reyndi Pancke, lögreglu
stjóri Þjóðverja í Danmörku,
að komast að samkomulagi við
embættismannastjórnina og
h.ina nýstofnuðu lögreglu í Dan
mörku. En allar samkomulags
umleitanir hans urðu árangurs
lausar.
Frjettir herma, að Danir hafi
borið fram þá kröfu við yfir-
\öld þýska setuliðsins, að
tíönsku lögregluþjónarnir verði
sendir heim aftur, svo að þeir
geti farið að gegna störfum sín
um á ný, því að nú sje alt á
tjá og tundri í landinu. Undir
þessa kröfu hafa skrifað mörg
fjelög og fjelagasambönd.
Ennfremur er sagt, að
Pancke lögreglustjóri eigi að
taka við af dr. Best. Pancke
hefir hótað hryllilegum gagn-
ráðstöfunum. ef Danir hlýðnist
honum ekki. Hann hótar að
taka þúsundir gisla, skjóta
saklausa menn og leggja Kaup-
mannahöfn í rústir. Fyrir
nokkru var hús í Nyhavn
sprengt í loft upp án nokkurar
sjerstakrar ástæðu, og Pancke
Ijet það boð út ganga, að Gesta
po myndi ekki hika við að
sprengja heil borgarhverfi í loft
upp, ef svo bæri undir.
Enn hafa 287 danskir lög-
regluþjónar verið fluttir til
Þýskalands, svro að þar eru nú
í haldi 2.200 lögregluþjónar.
60C0 lögregluþjónar fara huldu
höfði, en 1000 eru kyrrsettir.
Margir þeirra, sem kyrrsettir
voru, hafa verið fluttir í
Vestre-fangelsi. 106 meðlimir
dönsku lögreglunnar eru hafðir
í haldi á aðallögreglustöðinni í
Kaupmannahöfn, og eru þeir
þa' þvingaðir til að vinna fyr-
ir Þjóðverja.
(Samkv. frjett frá dönsku
sendisveitarskrifstofunni.
I
Barnsrán í barnaspífala
M MHm
m
l m
Skilarjellir byrja
í næstu viku
FYRSTU rjettum hjer á Suð
urlandi er nú lokið. Fje er tæp
lega í meðallagi að vænleika,
| þrátt fyrir hina góðu tíð er
verið hefir í sumar. Heimtur
hafa verið .sæmilegar, eins og
venja er til upp úr fyrstu rjett
um.
Skilarjettir verða í eftirtöld-
um rjettum sem hjer segir:
i Hafravatnsrjettir, þriðjudaginn
| 3. okt. n. k., Kollafjarðarrjettií
miðvikudaginn 4. okt. og Olfus
rjettir, 'föstudaginn 6. okt.
Yfirumsjón með rekstri slát-
urfjár til bæjarins hefir Sig'-
urður Gíslason, en honum til
aðstoðar er Sæmundur Gísla-
son.
ÞESSI MYND er tekin í barnaspítala í New York. Tilefni
til þess að mynd þessi var tekin var það, aS bófar rændu
barni nýleg'a í þessu sjúkrahúsi. Barnið, sem rænt var heitir
Barbara Anne Goggin, sex mánaða gömul.
V erkfallinu hjá olíu-
fjelögunum lokið
Samningar lókusl í gær
SAMNINGAR tókust í gær í olíudeilunni svonefnda og er nú
afljett verkfalli því, sem hófst hjá olíufjelögunum 22. ágúst s.l-
Samningar tókust fyrir milligöngu sáttasemjara ríkisins.
Forsaga þessa máls er sú, að
s. 1. vetur sagði Dagsbrún upp
m
tímakaupssamningi þeim, er
hún hafði við olíuf jelögin. Hins
vegar sagði Dagsbrún þá ekki
upp samningi mánaðarkaups-
manna.
Með samningi 22. febr. fengu
tímakaupsmenn 16% hækkun
á grunnkaupinu, en kaupgjald
mánaðarkaupsmanna stóð þá
óbreytt, þar eð þeir sögðu ekki
upp samningnum.
Mánaðarkaupsmenn sögðu
svo upp samningi sínum eftir
6 mánuði, eða frá 22. ágúst s.l.
Gerðu þeir þá margvíslegar
kröfur, sem vinnuveitendur
vildu ekki ganga að og hófst
þá verkfall hjá öllum olíufjelög
unum, nema Nafta, sem gekk
að öllum kröfunum.
En nú lyktaði þessi deila
þannig, að mánaðarkaupsmenn
fá 6 % hækkun á grunnkaupinu
en tímakaupsmenn fengu í vet
ur 16% hækkun.
Verkamenn með mánaðar-
kaupi fá nú 450 kr. grunnkaup
! (höfðu 425 kr), en bílstjórar
| 475 kr. (í stað 450 kr.). Eftir
(tvö ár hækkar kaup beggja um
25 kr. á mánuði.
Hjer er um að ræða örfáa
menn.
Hefst nú sala á ný frá öllum
bensíngeymum.
Sjúklingar á Vífils-
slöðum þakka
UM 90 sjúklingar frá Vífils-
stöðum, staddir á landi Vinnu-
heimilis S. í. B. S. að Reykjum
í Mosfellssveit 26. sept., flytja
allri þjóðinni alúðarfyllstu
þakkir fyrir það stórkostlega
örlæti, er hún hefir sýnt S. í. B.
S. og fyrir þann mikla skilning
á málefnum berklasjúklinga, er
hvarvetna verður vart.
Við vonum og treystum því
að sami skilningur og örlæti
ríki uns fullnaðarsigri er náð í
baráttunni gegn berklaveik-
inni.
London: Karl og Kona, sem
ætluðu að ganga á Ben Nevis,
hæsta fjall Skotlands, hröpuðu
til bana.
Morenthau verri en
(lemenceau
Stokkhólmi: Þýsku blöðin
eru æf við Morgenthau, fjár-
málaráðherra Banadríkjanna
fyrir það að Þjóðverjar verði
sviftir öllum iðnaðarmöguleik-
um eftir stríð. — Með stórum
fyrirsögnum segja blöðin: —
„Morgenthau er verri en
Clemenceau hinn franski. Ef
vjer töpum styrjöldinni, verð-
ur oss útrýmt. Þessvegna verð
ur hver maður að berjast til
hins ýtrasta. Enginn má slaka
á takinu“. — Þetta segja þýsku
blöðin flestöll um þessar
mundir. — Reuter.
ioregsfrjettir
Frá norska blaðafulltrú-
anum. —
Þjóðverjar búa sig undir götu-
bardaga í Osió.
I síðustu frjettum frá Noregi
er skýrt frá því, að Þjóðverjar
búi sig undir götubardaga í
Oslo. Aðalbækistöð sína í borg
inni hafa þeir víggirt ramm-
lega. Areiðanlegar heimildir
herma, að Glitne-byggingin við
Victoria Terrasse og Drammens
vej sje nú orðin öflug bækistöð
Þjóðverja. 40 lögregluþjónar
eru til taks í byggingunni
allan sólarhringinn. Þjóðverj-
ar búast við að geta stöðvað
alla umferð um Drammensvej,
ef á þarf að halda.
Josef Terboven landsstjóri
býr sig líka undir það, sem
koma skal.Hefir hann látið búa
sjer hæli á Skaugumásnum,
sem er handan við bústað krón
prinshjónanna, en bústað.þann
tók Terboven í sínar hendur,
strax og hann kom til Noregs.
Sprengt hefir verið í fjallið fyr
ir hælinu, og er það sprengju-
helt.
«
Aðferðir Þjóðverja við
öflun vinnukrafts.
Eftirfarandi frjett hefir bor-
ist sænskum blöðum:
Þjóðverjar nota einfalda, en
ófyrirleitna aðferð, þegar þeir
eru að fá Norðmenn í vinnu
hjá sjer. Þeir slá hring um hóp
manna á götunni, taka þá hönd
um og flytja þá norður á bóg-
inn. Til dæmis var allstór hóp
ur manna handtekinn á Karl
Jóhannsgötu í Oslo um daginn
og sendur til að vinna fyrir
Þjóðverja.
8000 Norðmenn í haldi í
Þýskalandi.
Samkvæmt upplýsingum,
sem norska blaðið „Norges
Nytt“ í Stokkhólmi, hefir aflað
sjer eru nú um 8000 Norðmenn
hafðir í haldi í Þýskalandi.
Lítið skipatjón Norðmanna.
Norski siglingaráðherrann
skýrir frá því, að fyrri helming
ársins 1944 hafi skipatjón
norska verslunarflotans orðið
minna en nokkru sinni, síðan
stríðið hófst. Tjónið var þessa
sex mánuði 1.5 prósent af smá-
lestatölunni.
Fimtudag-ur 28. sept. 1944*
Fulltrúaráðs -
fundur Sjálf-
stæðis-
fjelaganna
FUNDUR verðru haldinn í
fulltrúaráði Sjálfstæðisfjelag-
anna í Reykjavík annað kvöld
í Sýningarskálanum.
Umræðuefni fundarins er
stjórnmálaviðhorfið í dag, —-
tilraunir þær, sem fram hafa
farið til myndunar þingræðis-
stjórnar, og horfurnar fram-
undan.
Málshefjandi er formaður
Sjálfstæðisflokksins, Ólafur
Thors. Á fundinum mæta einn-
ig þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Þetta er fyrsti fundur full-
trúaráðsins á þessu hausti. —■
Menn ættu að hafa hugfast, að
mæta stundvíslega, enda mun
sjálfsagt marga fýsa að kynn-
ast nánar því, sem nú er að
gerast á sviði stjórnmálanna og
fylgjast með því, sem ætla má
að framundan sje í þeim efn-
um. O
Þriggja ára dreng-
ur verður undir bíl
í FYRRADAG um klukkan
5 e. h. var ekið á þriggja ára
dreng á Klapparstíg, milli
Njálsgötu og Grettisgötu. Var
drengurinn að leik í sandhrúgu
er bifreið ók yfir annan fót-
legg hans og meiddist hann
nokkuð.
Sennilegt að bifreiðarstjórinn
hafi ekki haft hugmynd um
slysið, því hann ók leiðar sinn-
ar. — Skamt frá slysstaðnum
var stúlka, sem mun hafa verið
sjónarvottur að því er þarna
gerðist, og tekið eftir númeri
bifreiðarinnar. Biður Rannsókii
arlögreglan stúlku þessa að
hafa tal af sjej; hið fyrsta.
Verður hljómsveit
á Hótel Borg!
Á FUNDI Fjelags íslenskra
hljóðfæraleikara, Cr haldinn
var í gærkvöldi, var samþykt
að fella burtu ákvæði um mann
fjölda við hljómsveitir, sem
leika í hinum ýmsu samkomu-
húsum bæjarins.
Ávæði þetta mælir nú svo
fyrir, að Fjelag ísl. hljóð-
færaleikara ráði til um stærð
hljómsveitar er leikur á hverj-
um stað.
Ætti nú ekkert að vera því
til fyrirstöðu að* samningar
takis^milli Fjel. ísl. hljóðfæra-
leikara og Hótel Borg.
Fangi í gær — þingmað-
ur í dag.
LONDON í gærkvöldi: —•
Ramsey kapteinn, þingmaður
breska íhaldsflokksins, sem ver
ið hefir í haldi af örygisástæð-
um síðastliðin fjögur ár, en
sem lálinn var laus úr Brix-
tonfangglsi í gær, kom á þing
í dag og tók þai við þingsæti
sínu á ný. —Reuter.