Morgunblaðið - 15.12.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.12.1944, Blaðsíða 5
Föstudagur 15. des. 1944 MORGUNBLAÐIÐ 5 ANDRÉ MAUROIS er án alls vafa einhver vúMcsnasli og vinsælasfi rithöfundur Frakklands, þeirra, er nú lifa. Stílsnilli hans, skarpleika, lær- dómi og fyndni er við brugðið. Skáldsögur hans hafa þótt frábærilega snjallar, en mesta frægð hefir hann þó getið sjer fyrir æfisögur sínar. ekki síst æfisögur enskra mikilmenna. Maurois hefir kannað til grunna enska menningu og Hfsviðhorf og er viðurkendur snjallari túlkur þeirra og skýrandi en jafnvel hinir snjöllustu meðal Breta. Fara þar saman skátdleg innsæi hans og gleggni gestsaugans. . .. Maurois hefir skrifað æfisögur Chateaubriands, skáldsins, stjórnmálamannsins og ástamannsins Voltaires, hins nafnfræga rithöfundar Lyanteys, stofnanda Afríkuveldis Frakka, Disraelis, hiris mikla breska stjórnmálamanns, Shelleys, hins hugljúfa, enska skálds. En frægastur hefir hann orðið fyrir æfisögu BYRONS LÁVARÐAR, höfuðskáldsins nrikla, sem hann skilur ©g túlk- ar af undursamlegri nærfærni, ætt hans og erfðir. Líppeldi hans og mentun, ástir hans og skáldskap — eínu orði alt hans líf, uns hann fellur í valinn í Missólaughi, glæsilegasta hetjan í frelsisstríði Grikklands og sá, sem barg málstað þess. Eitt ágætasta bókmentablað Bretlands, Times Litterary Supplement segir í ritdómi um þessa bók: „Franskur snillingur hefir með þessu verki goldið minningu Bjrrons lávarðar þá skuld, sem engum var skyldara að greiða, en oss sjálfum. En bók hans mun eigi að síður skipa varanlegt og virðulegt sæti í hópi þeirra rita, er ágætast hafa verið rituð um enska menn og enskar bókmentir. Hún er dásamlegur lykill að hirini dularfullu og fjölþættu sál Byrons, smíðaður af skyggnum völundi, sem hefir töfravaldið til þess að láta hlið Sesams opnast. Með snilldarlegum þýðingum hafa þeir Steingrímur og Matt- hías gert Byron að einu ástsælasta skáldi Islendinga. Me-ð þessari bók gefst þeim kostur á að kynnast æfi hans og samííð, skapgerð hans og persónu. seni einu sinni var frelsisskáld allrar Norður- álfunnar og glæsilegastur allra sinna samtíðarmanna. Þetta er bók, sem hver einasti ungur maður og ung kona hefur gaman af að eignast og lesa. 'icivet'álun -^áciíoídae tí' J utibti oLa .atiaaue^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.