Morgunblaðið - 14.03.1945, Síða 8

Morgunblaðið - 14.03.1945, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MiSviktídag’ur 14. mars 1945 Útg.: H.f Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Sitstjörar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Simi 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á manuði innanlands, kr. 10.00 utanlands. í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Erlenda smjörið BÚNAÐARÞING hefir gést harla einkennilega álvkt- un í sambandi við innflutning á erlendu smjöri og sölu þess, sem fram hefir farið á vegum ríkisstjórnarinnar. Ályktunin er í tveim liðum. í fyrsta lagi er skorað á rík- isstjórnina „að láta ekki flytja inn smjör eða aðrar landbúnaðarvörur, nema í samráði við Búnaðarfjelag íslands, og aðeins til að fullnægja brýnustu neysluþörf landsmanna, að því leyti, sem innlend neysluvara hrekk- ur ekki til“. í öðru lagi er mótmælt „þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar, að smjör það, sem nú er flutt inn í landið sje selt fyrir V:: lægra verð en íslenskt smjör, og telur að slík ráðstöfun muni tvímælalaust draga úr smjör- íramleiðslu Þetta er það eina, sem Búnaðarþing hefir látið frá sjer heyra um smjörsölu og smjörframleiðslu. ★ Ólíklegt er, að það sje skoðun Búnaðarþings, að sá innflutningur smjörs, sem fram hefir farið á vegum rík- isstjórnarinnar að undanförnu, hafi verið gerður út í bláinn og algerlega' að óþörfu. En þannig mætti skilja fyrri lið ályktunar Búnaðarþings. En hvernig horfir mál þetta við? Staðreyndirnar eru í stuttu máli þær, að síðan í ágúst- mánuði fyrra árs hefir ekki verið hægt að fá hjer í Reykja vík eitt einasta pund af smjöri á frjálsum markaði. Sömu sögu hafa aðrir kaupstaðir haft að segja, að Akureyri ein- um undanskildum, og sama hefir ástandið verið allsstað- ar á landinu. Með öðrum orðum: Smjör hefir verið algerlega ófáan- legt í. landinu á frjálsum markaði. Akureyringar eru þeir einu, sem hafa fengið lítilsháttar smjörskamt, og er það eingöngu að þakka góðri stjórn þessara mála þar nyrðra. Þetta hljóta fulltrúar Búnaðarþings að vita. En þá verða þeir einnig að játa, að það var ekki að ástæðu- lausu að ríkisstjórnin greip til þess úrræðis að flytja inn erlent smjör, til þess að seðja ofurlítið smjörhungur al- mennings. En hvar er þá innlenda smjörið? Hvers vegna kemur það ekki á markaðinn, ef það er á annað borð framleitt? Ætla mætti að fíúnaðarþing heíði reynt að grafast fyrir um þetta, áður en það samþykti ávítur í garð ríkis- stjórnarinnar, fyrir aðgerðir hennar í þessu máli. Það er á almanna vitorði, að meginhluti þess innlenda smjörs, sem framleitt er til sölu, er selt á svokölluðum svörtum markaði. Það eru aðeins örfáir menn, sem njóta þessa smjörs. Almenningur sjer það aldrei. Það hefði vissulega verið verkefni fvrir Búnaðarþing að finna einhver úrræði, sem tryggðu það, að innlenda smjörið kæmi á markaðinn, og að skömtun yrði tekin upp á þessari nauðsynjavöru, ef eitthvað væri til skömt- unar. En um þetta hirðir Búnaðarþing ekki. ★ Ríkisstjórnin er vissulega ekki ámælisverð fyrir það að hafa flutt inn erlent smjör, þar sem innlent smjör hefir ekki sjest á frjálsum markaði í marga mánuði. Þvert á móti. Stjórnin á þakkir skilið fyrir þetta, því að það ástand er óþolandi, að aldrei skuli vera hægt að fá smjörklipu. Og meðan ástandið er þannig, að innlenda smjörið sjest ekki á frjálsum markaði, verður ríkisstjórnin ekki ámæl- isverð fyrir það, að hún vill ekki okra á því erlenda smjöri, sem inn er flutt. Á smjör þetta er lagður 30% verðtollur, auk hæfilegrar álagningar fyrir rýrnun o. fl. Þetta virðist vera nokkuð. Og það er ofur skiljanlegt, að ríkisstjórn, sem verður að beita harkalegum verðlagsákvæðum á öllum sviðum, sjái sjer illfært að okra taumlaust á slíkri nauðsynjavöru sem smjöri. Enda þarf ekki að óttast það, að sá litli smjörskamtur, sem nú er í boði, verði til þess að draga úr innlendri smjör- sölu. Menn vilja miklu stærri skamt og kaupa áreiðan- lega innlenda smjörið, þótt dýrara sje. Vtl verti ó h r i ^a r: XJR DAGLEGA LIFINU Vor. LENGRI DAGAR og mildari veðurkaflar, þó enn geri hríð og hret, gefa fyrírheit. um vor. Sól- in er komin hærra á loft og hækk ar með degi hverjum. Bráðum kemur rauðmaginn á markaðinn, ef karlarnir geta náð sjer í net-^ stubb. Strákarnir fara að sparka suður á Iþróttavelli. „Nú fer mað ur að hugsa um sumarbústaðinn“, sagði kunningi minn, sem jeg varð samíerða í matinn í gær. „Ekki ertu farinn að hugsa um að flytja í sveit strax“, varð mjer að orði. „Nei, en það fer að vera kominn tími til að huga að bú- staðnum. Daginn er farið að lengja“. Það er altaf eftirvænting í huga okkar Islendinga, þegar við hugsum um, að vorið sje að koma, því á eftir því kemur sum- arið. En þó vorið sje ekki komið ennþá, þá hafa allir leyfi til að dreyma. Það er meira að segja skattfrjálst — ennþá að minsta kosti. Blettirnir okkar. ÞEIM FÆKKAR stöðugt tún- blettunum okkar hjer í höfuð- borginni. Bæjarstjórnin hefir þó gert lofsamlegar tilraunir til að prýða ýmsa bletti í bænum. Þeg- ar bæjarbúar fara að hugsa um vorið og gróandann, verðum þeim lit.ið til þessara bletta, sem eru aimennings eign og þeir hugsa sjer þá græna og fagra. Þessvegna sárnar mönnum að sjá einstaka menn ganga kæru- leysislega um grasblettina í bæn urn og eyðileggja þá, þannig, að ekki eru líkur til að þeir grói nokkru sinni aftur. Þannig er það með grasblettina á Hring- brautinni vestur með bæjarbygg ingunum, eða Fánaborg. I fyrra- sumar var búið að gera þannig að blettunum, að þeir voru sann- kölluð bæjarprýði, til yndis og ánægju fyrir þá, er þarna vestur frá búa og aðra, sem þar áttu leið um. • Skemdarverk. EN NÚ virðist alt það góða verk hafa verið unnið fyrir gýg. Einstaka menn virðast gera sjer að skyldu að troða niður blett- ina, einmitt núna í leysingunum, : þegar þeir eru viðkvæmastir. iBilstjórar aka yfir blettina, og i núna fyrir nokkrum dögum festi | einn bílstjóri vagn sinn á bletti i við Hringbrautina og það svo rækilega, að hann varð að setja ]keðjur á hjólin til að ná bílnum | út á götuna aftur. Vitanlega var skemdarvargurinn kærður, en | það bætir ekki flagið, sem þarna ] varð, þó manngarmurinn fái sekt. Það ætti að vera útlátalaust og fyrirhafnarlítið fyrir fótgangandi menn og ökumenn að sneiða fram hjá blettunum á Hringbraut inni. Gatan er þarna tvíbreið og víðar er þrengra á götum bæj- arins, þar sem fólk og vagnar kemst leiðar sinnar, án þess að fara út af götunni. • Arnarhóll. ÞÁ ER það eitt ótvífætt merki þess, að menn sjeu farnir að hugsa til vorsins og gróandans, !að kunningjar mínir eru farnir að skrifa mjer brjef um Arnar- jhói. Þ. E. segir t. d.: j „Undanfarin ár hefir verið sýnd lofsverð framtakssemi í að prýða og laga Arnarhólstúnið. Ljóta girðingin er hqrfin, blóm- um og trjám hefir verið plantað, gangstígar lagðir um túnið og góðri rækt komið í það. Þetta hafa bæjarbúar kunnað að meta, því á hverjum góðviðris sumar- degj hefir mátt líta hundruð manna á túninu, sem hafa forðað Isjer úr göturyktinu og notið þar sólarinnar". x * Vantar bekki. EN Þ. E. VILL láta setja fleiri bekki á túnið á Arnarhóli, með fram gangstígunum, til þess að koma í veg fyrir, að menn troði niður grasið meira en þörf er á. Segir brjefritari, að túnið verði j sumstaðar að flagi, einkum þar sem skjól er. ITel jeg víst, að hinn áhuga- sami og ágæti garðræktarráðu- !nautur bæjarins geri það, sem honum fanst helst til bóta í þess- um efnum. Það er rjett, að Arn- arhóllinn er ei'nn vinsælasti al- ! mennings hvíldarstaður í bænum að sumarlagi og virðist vera sjálf 1 sagt að gera það, sem hægt er, í til að bæta hann á alla lund. e Safnahúsið. ! LANDSBÓKAVÖRÐUR, Finn- ur Sigmundsson, hefir bent mjer á, í sambandi við það, sem sagt var um Safnahúsið og ytra útlit þess hjer í dálkunum fyrir skömmu, að þak hússins hafi ver- ið málað í fyrrasmuar og ákveð- ið hafi verið að lagfæra húsið að utan þegar í vor. Munu flestir fagna þessum tíð- índum, því að Safnahúsið hefir sannarlega ekki verið neinum til sóma undanfarin ár. í Visa um Kjarval. | G. BJ. SENDIR „Dáglega líf- inu“ þessa vísu, sem hann kvað á sýningu Kjarvals: Hans huga bindur hver Islands tindur. Hið dulda seiðir á huldar leiðir. Um frera klúngur og fjallabungur hann fer, en eigi fjöldans vegi. • Almanakið 1945. EF YKKUR hefir ekki tekist að ná í almanak eða dagatal fyr- , ir árið 1945, þá getið þið bætt úr því, ef þið eigið gamalt dagatal frá árinu 1934. Það er nefnilega alveg eins og dagatal núverandi árs. Á ALÞJÓÐA VETTVANGI Eftir Raymond Moley (Newsweek). í SÍÐASTA stríði var þetta við- kvæðið hjá Frökkum: „Húnarnir vei ða að borga“. Bretar sögðu hið sama, en bættu við: „Húnarnir verða að borga með peningum út i hönd“. En Húnarnir borguðu ekki neitt. í stað þess fengu þeir að láni hjá fyrrverandi óvinum sínum til að byggja tæki til að ráðast á þá á ný. Þessi einkenni- lega staðreynd skýrir, hvers- vegna Yaltaráðstefnan bætti við á eftir orðinu „skaðabætur": ,,í friðu“. Saga stríðsskaðabótanna eftir síðustu styrjöld hófst á friðarráð- stefnunni. Ráðstefnan ákvað ekki upphæð stríðsskaðabótanna, en fól nefnd að ákveða það, og skaðabæturnar voru ákveðnar sem svarar til 32—35 biljón doll- urum. ★ En Þjóðverjar áttu ekkert gull og gátu ekki greitt í neinu nema pappírsmörkum upp í hinar ár- legu greiðslur, sem námu um 3.000.000.000 dollurum. Enginn vildi pappírsmörk. Þjóðverjar buðu þá 80.000 iðnaðarmenn. Frakkar höfnuðu því boði vegna þess, að þá vantaði vinnu fyrir sínar eigin verksmiðjur og verka menn: Lloyd George sagði 1923: „Við höfum 3.000.000 atvinnu- lausa“. Frakkár tóku við dálitlu af kolum, þar til þeir fóru að reka sínar eigin kolanámur. Bretar voru ekki ánægðir með það, því það varð til þess, að þeirra eigin námaverkamenn urðu atvinnuiausir. ★ En nú komu Bandarikjamenn til sögunnar og lánuðu Þjóðverj- um 5 biljónum dollara. Með þessu fje greiddu Þjóðverjar stríðs- skaðabætur að nokkru, en not- uðu talsverðan hluta til að end- urbyggja iðnað sinn. Með Young- samþyktinni var allverulega dreg ið úr skaðabótagreiðslum Þjóð- verja. En svo kom kreppan 1929. Bandaríkjamenn hættu að lána og fjármálalegt hrun varð í Þýskalandi 1931. Síðar sama ár fjellu Bretar frá gullinnlausn og amerískir bankar lentu í vand- ræðum. Þá kom lánsfrestur Iíoovers til að hjálpa þjóðum, sem skulduðu Bandaríkjamönn- um. Þegar lánsfresturinn rann út 1932 neituðu Frakkar að greiða vexti og afborganir. Herriot, sem vildi greiða skuldir Frakka, sagði af sjer. Bretar greiddu sín lán eftir nokkurt þóf. I júnímánuði sama ár neituðu Frakkar enn að greiða sínar skuldir, en Bretar greidd sem svaraði 10% af sín- um skuldum. Aðrar þjóðir kváð- ust ekki geta greitt sínar skuld- ir, þar ú meðal voru Ítalír, BelgL ir, Pólverjar og Grikkir. Þessum þjóðum var leyft að fresta greiðslum sínum. Finnar voru eina þjóðin, sem hjelt áfram að greiða sínar skuldir. Eftir 1938 var horfið með öllu frá kröfum um lánsgreiðslur. (En Finnar lijeldu þó enn áfram að greiða sínar skuldir og gera enn). ir Þjóðverjar höfðu endurréist iðnað sinn, að miklu leyti með arnerískum lánum, og allur þessi iðnaður fjell í hendur Hitler 1933. Rússar fylgdust með þess- um fjármálaleik með kaldhæðn- isbrosi. Þeir hófu að koma upp stóriðnaði, en á meðan á því stóð gerðu Þjóðverjar innrás í Rússland og eyðilógðu meiri hluta þeirra verksmiðja, sem komið hafði verið upp í Rúss- iandi. ★ Hugmyndin um skaðabætur að þessu sinni er blátt fram þessi: Þjóðverjar skulu koma aftur til Rússlands, óvopnaðir, og' byggja upp það, sem þeir hafa eyðilagt. Aðrir Þjóðverjar eiga að vera eftir heima og framleiða þar það, sem Rússar geta notað frá þeim. Á þann hátt geta Þjóðverjar ekki komist hjá því að greiða ófriðarskaðabætur að þessu sinni. Þær verða að greiðast í friði. ■ 11 ’ I t * > ' i i • * i : í t ‘f í . I .* ■ ■i , iít

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.