Morgunblaðið - 24.03.1945, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 24. mars 1945
O
Söngskemlun Guð-
rúnar Á. Símonar
UNGFRÚ Guðrún Á. Símon-
ar hjelt söngskemtun í Gamla
Bíó síðastliðið þriðjudagskvöld
með aðstoð þeirra Þórarins Guð
mundssonar, Fritz Weisshappel
og Þórhalls Árnasonar.
Ungfrúin hefir erft sönggáfur
foreldra sinna í ríkum mæli og
ber öll framkoma hennar vott
um meðfæddan listþroska. —
Röddin er þegar all-þroskuð og
virðist búa yfir miklum mögu-
leikum.
Söngkonan hefir notið nokk-
urrar kenlsu hjá Sig'. Birkis,
söngmálastjóra, og gætti þess
í góðri „vocalizalion" og smekk
legri meðferð vandasamra verk
efna. Verkefnin voru yfirleitt
flest erfið og sum mjög, svo að
undrum sætti, að ung stúlka,
sem enn er aðeifts á byrjunar-
sligi erfiðs náms, skyldi ráð-
ast í að flytja þau. En því á-
nægjulegra var hve meðferðin
var örugg og smekkvís, því öll
voru lögin vel sungin og sum
prýðilega og af fullkomnu lát-
leysi.
Undirleikararnir leystu sín
hlutverk vel af hendi og voru
ungfrúnni góð aðstoð.
Það er ástæða lil að bjóða
ungfrú Guðrúnu velkomna í
hóp íslenskra söngvara og ef-
ast jeg ekki um að með vaxandi
þroska við áframhaldandi nám
muni rætast þær vonir, sem við
hana eru tengdar, og hún muni
verða góður liðsmaður í is-
lensku tónlistarlífi.
Húsið var þjettskipað, blóm-
um rigndi og fögnuður áheyr-
enda mikil].
P. í.
Afhald flugmanna
ÞESSI unga stúíka hefir verið
kosin fegurðardrottning af or
ustuflugmönnum Bandaríkj-
anna. Hún heitir Ardis Sheffer
og meira vitum vjer ekki
BERJAST ÞEIR ENN?
London: — Breska stjórnin
hefir látið gera fyrirspurnir í
Madrid um það, hvort rjett sje,
að spánskir ríkisborgarar berj-
i,St enn með Þjóðverjum á aust-
urvígstöðvunum, en Rússar
sögðust nýlega hafa handtek-
ið tvo slíka. — Reuter. '
Hreppurinn
var sýknaður
Ámeríku
UNGUR Reykvíkingur, Vil- i
hjálmur Guðjónsson, sonur Guð
jóns bryta Jónssonar, er nýlega
farinn til Ameríku og ætlar að
stunda þar tónlistarnám fram
á næsta haust. Er þá svo ráð
fyrir gert, að hann komi heim 1
aftur og hefji kenslu á klarin-
ett hjer við Tónlistarskólann.
Þessi för Vilhjálms er einn >
þáttur Tónlistarfjelagsins í því
að koma hjer upp fullkominni •
kenslu á blásturshljóðfæri. Á l
síðastliðnu hausti fóru þeir |
Árni Björnsson og Andrjes •
Kolbeinsson til tónlistarnáms í
Englandi á vegum fjelagsins,
þannig að Vilhjálmur er þriðja
kennaraefnið, sem fjelagið
sendir utan til framhaldsnáms
nú á skömmum tíma.
Vilhjálmur er löngu kunnur
bæjarbúum fyrir hljóðfæraleik
sinn og talinn gæddur miklum
tónlistargáfum, svo sem hann
á kyn til. Hann hefir áður dval
ið um skeið við tónlistarnám í
Þýskalandi og því þegar hlot-
ið góða undirbúningsmentun.
HÆSTIRJETTUR kvað í fyrra
dag upp dóm í málinu: Stjórn-
arnefnd ríkisspítalanna gegn
Hvammshreppi (í Dalasýslu).
Krafði stjórnarnefnd ríkisspít-
alanna hreppinn um greiðslu
vistgjalds sjúklings á Kleppi,
að upphæð kr. 3.937,80. —
Hreppurinn var sýknaður, bæði
í undirrjetti og Hæstarjetti. I
forsendum dóms Hæstarjettar
segir:
,,Stefndi, Hvammshreppur,
ráðstafaði ekki sjúklingi þeim,
er í málinu. gréinir, til dvalar
á geðveikrahælinu á Kleppi, og
ber hann því ekki af þeim sök-
um ábyrgð á greiðslu vist-
gjalds þess, sem í málinu er
krafist.
Fyrirsvarsmann Hvamms-
hrepps annarsvegar og fyrir-
svarsmann Fellsstrandarhrepps
og áfrýjanda hinsvegar grein-
ir á um J5að, hvernig skýra skuli
13. gr. laga nr. 52 1940, en á
því veltur, hvort skylda til
meðlagsgreiðslu með sjúklingi
þessum hvílir á Hvammshreppi
eða Fellsstrandarhreppi. Þar
sem hjer er raunverulega á-
greiningur milli hreppsfjelaga
um framfærsluskyldu, sem
stjórnvöld þau, er greinir í 31.
gr. laga nr. 52 1940 hafa enn
ekki lagt úrskurð á, þá ber að
sýkna stefnda, Hvammshi’epp,
að svo stöddu að gjaldkröfu á-
frýjanda.
Ný úigáfa af Passíu-
sálmuiNMiogíslands
vísum ións Trausfa
UMBOÐSMAÐUR Tónlistar-
Reykjavíkurstúíka
kjörin „drolning"
í Florida
UNG KONA, ættuð hjeðan úr
Reykjavík, var kjörin ,,drotn-
ing“ á hátíð, sem haldin var
fyrir skömmu í Winter Haven
í Florida. Hún heitir Ásta Lóa
Olafsson og er kona Sveins
Ólafssonar (Sveinssonar for-
stjóra áfengisútsölunnar). Hún
stundar nám við skóla í Lake-
land í Kaliforníu. Hún var val
in úr hópi allmargra Flo'rida-
stúlkna.
„Drotningin11 var krýnd með
mikilli viðhöfn og sjest hún
hjer á myndinni með kórónu
sína. Hún hafði sjerstaka hirð
í kringum sig ,,og á hátíðinni
var í alla staði farið með hana
eins og drotningu“, segir í am-
erísku blaði, sem getur um
þetta.
Skemlisamkoma
„Nordmannslaget"
, ,N ORDM ANN SL AGET ‘! í
Reykjavík hjelt samkomu að
Hótel Borg s.l. þriðjudagskvöld.
Var þar saman komið um 350
manns.
Gestir á samkomunni voru:
Torgeir Andersson-Rysst, hinn
nýi sendiherra Norðmanna,
sendiherra Dana og frú de
Fontenay, sendiherra Svía og
frú Otto Johansson, Henry Bay,
yfirkonsúll og frú, frú Gerd
Grieg, G. E. Nielsen endurskoð-
andi, Erik Lundgaard verk-
fræðingur, frá „De frie Danske
i Island“, Wigelund og Sámal
Davidsen frá ,,Færöyafjelagið“
og Guðlaugur Rósinkranz, rit-
ari Norræna fjelagsins.
Tomas Haarde, formaður fje-
lagsins setti samkomuna og
bauð hinn nýja norska sendi-
herra hjer á Islandi, Andersson
Rysst, sjerstaklega velkominn.
Þá tók sendiherrann til máls
og skilaði m. a. kveðju frá landi
sínu og þjóð til landsmanna
sinna á Islandi.
Síðan talaði Anker Svart,
frjettafulltrúi við danska sendi
ráðið, frú Gerd Grieg las upp
kvæðið ,,Danmark“ eftir mann
sinn, Nordahl Grieg og S. A.
Friid blaðafulltrúi gaf greinar-
gott yfirlit um ástandið á
norsku heimav.ígstöðvunum.
Kórinn ,,Húnar“ söng nokk-
ur lög og síðan var stiginn dans.
fjelagsins, Lárus Blöndal, bók-
sali, hefir sent út tvær bækur
frá fjelaginu. Eru það Passíu-
sálmar Hallgríms Pjeturssonar
með lógum, sem Jónas Jónsson,
sem flestum landsmönnum er
kunnur, safnaði og gaf út
skömmu eftir síðustu aldamót.
Telur Jónas að þar sjeu lögin,
sem Hallgrímur valdi sjálfur
við sálmana. Eru þau flest úr
Grallaranum og svonefndri
Hólabók. Passíusálmarnir eru
ekki aðeins okkar áhrifamestu
trúarljóð, heldur munu þeir
ávalt verða taldir til þess stór-
brotnasta, sem til er í íslensk-
um bókmenlum fyr ,og síðar.
Færi vel á því, ,að sá háttur
væri tekinn upp að nýju að
syngja þá á heimilunum og er
Tónlistarfjelaginu best trúandi
til þess að vinna að því. Ætti
ekkert heimili að láta undir höf
uð leggjast að eignast þessa
fallegu og góðu bok.
Jafnframt kom út hjá fje-
lagihu Jslandsvísur Jór.s
Trausta með hinum sjerkenni-
legu og fallegu myndum Þórar
ins sál. Þorlákssonar, listmál-
ara. Íslandsvísur Jóns Trausta
voru gefnar út skömmu eftir
aldamót og aðeins í 150 eintök-
um. Að þessu sinni eru geíin út
200 eintök. Báðar þessar bækur
eru ljósprentaðar í Lithoprenti.
Bókaútgáfa Tónlistarfjelags-
ins nýtur að sjálfsögðu almenn
ingshylli, enda rennur ágóðinn
til eins mesta áhugamáls
fjölda ma^rgra, eflingar íslenskri
tónlistarmenningu.
Bs. Hreyflll hefir
Í20 bíla
AÐALFUNDUR Samvinnu-
fjelags „Hreyfill11 var haldinn
14. mars s. 1. Formaður fjelags
ins, Bergsteinn Guójónsson
skýrði frá starfsemi fjelagsins'
og gat þess m. a., að á s.l. ári
hefði bifreiðum á bifreiðastöð
fjelagsins fjölgað um nálega
helming og eru bifreiðarnan' nú
120, en voru 1 fyrstu aðeins 65.
Fjelagið rekur einnig verslun
með bensin og smurningsolíur
og hefir sú starfræksla orðið
fjelaginu ómetanleg fjárhagsleg
stoðo. Fjelagsmenn fengu 5%
af viðskiptum sínum við fjelag
ið á árinu. Á fundinum var á-
kveðið að stofnsetja á þessu
ári bifreiðaviðgerðaverkstæði
og verslun' í sambandi við það.
Úr stjórn fjelagsins áttu að
ganga tveir menn að þessu
sinni, þeir Bergsteinn Guðjóns
son og Ingjaldur Isaksson, og
voru þeir báðir endurkosnir.
Stjórn fjelagsins skipa nú:
Ingjaldur ísaksson, formaður
Tryggvi Kristjánsson, varafor-
maður, Ingvar Sigurðsson gjald
keri, Þorgrímur Kristinsson rit
ari og Bergsteinn Guðjónsson.
Bergsteinn Guðjónsson var
áður formaður fjelagsins og
framkvæmdastjóri, en verður
nú framkvæmdastjóri þess.
I varastjórn voru koenir:
Bjarni Eggertsson og Halldór
Björnsson.
V. R. mótmælir
verslunarfjötrum
VEF.SI.UNARMANNAFJE-
LAG REYKJAVÍKUR boðaði
til fundar í fyrrakvöld að fje-
lagsheimili sínu við Vonar-
stræti.
Bjarni Bened.iktsson borgar-
stjóri var frummælandi og
ræddi hann Um verslunar- og
viðskiftamál. Var ræðu borgar-
stjóra ágætlega tekið af fund-
armönnum, enda var hún af-
burða snjöll. Benti ræðumaður
m. a. á, að verslunarmanna-
stjettin þyrfti sjálf að vera vel
á verði til viðhalds frjálsri
verslun og sjálfum sjer, enda
væri alfrjáls verslun einn af
hyrningarsteinum þjóðfjelags-
ins. Að ræðu borgarstjóra lok-
inni tóku til máls dr. Odduu
Guðjónsson, Björn Snæbjörns-
son stórkaupm., Gunnar Ás-
geirsson kaupm., Egill Gutt-
ormsson slórkaupm. Ræðu-
menn ræddu allir um ástand og
horfur verslunarinnar í fram-
tíðinni og voru á einu máli um
að gera þyrfti einhverjar brey t
ingar á starfsháttum Viðskifta-
ráðs og reglum þeim, sem nú
gilda um útflutningsverslun. —<
Áður en fundi var slitið, var
samþykti svohljóðandi tillaga
frá stjórn V. R.
„Fundur í Verslunarmanna-
fjelagi Reykjavíkur haldinn í
húsi fjelagsins fimtudaginn 22.
mars 1945, samþykkir að skora
á ríkisstjórnina að vinn að þvi,
að þeir fjötrar, sem lagðir hafa:
verið á verslun landsmanna á
undanförnum stríðsárum verði
leystir eins fljótt og við verclur
komið, með tilliti til viðskiíta-
samninga ríksins. Telji ríkis-
stjórnin óumflýjanlégt að Við-
skiftaráðið starfi áfram enn urri
stund, er það álit fundarins, að
nauðsyn beri til að endurskoðá
starfsgrundvöil ráðsins, og skor
ar á ríkisstjórnina, að leita
álist og umsagnar sjergreina-
fjelaga kaupsýslumanna um
það, hverjar breytingar sjeU
æskilegar“.
Sljórn rtkisúfgáfu
námsbóka
MENTAMÁLARÁÐHERRA]
liefir nýlega skipað þrjá mennj
í stjórn ríkisútgáfu námshókaj
samkv. fögum nr. 82, 1936.
Þessir voru skipaðir: Sigurðuij
Thorlacius, skólast.jóri (skiji-
aður af ráðherra, án tilnefn-i
ingar), Steinþór Guðmundsi
son, kennari (skipaður eftiij
tilnefningu Sambands ísL
barnakennara) og Sveinbjörnj
Sigurjónsson, magister (skip^
aður eftir tilnefningu Kenm
arafjelagh hjeraðs- og gagrn
fræðaskóla). Þessir menn en1
skipaðir til 4 ára.
Varamenn eru þessir (tiú
nefndir af sömu aðiljum): Álm
sæll Sigurðsson, kennari, Iijörtj
ur Kristmundsson, kennari,,
og Guðmundur Kjartansson,
kennari. i
Áður áttu sæti í stjórn i'ík-
isútgáfu námsbóka þessitj
menn: Vilmundur .Tónsson,
landlæknir, Jónas Jónsson frá|
Hriflu og Guðjón Guðmunds-í
son, skólastjóri. ]