Morgunblaðið - 21.04.1945, Qupperneq 1
16 síður
32. árgangur.
89. tbl — Laugardagur 21. apríl 1945
ísafoldarprentsmiðja h.f.
RÚSSAR UM 30 KM. FRÁ BERLÍN
GAGNSÓKN ÞJÓÐVERJA STÖÐVUÐ
liretar 7 km.
Víðavangshlaup í. R.
Her Konievs náigast
Dresden
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
BRETAR eru í kvöld um
7 km frá útbæ Hamborgar,
Harburg, og farnar að skjóta
af fallbyssum á Hamborg
sjálfa. Einnig hafa þeir því
nær umkringt Bremen, og
skjóta líka á þá borg. Einnig
hafa breskar skriðdreka-
sveitir sótt nokkuð langt
norður á bóginn milli Brem-
en og Hamborgar. Banda-
ríkjamenn hafa byrjað árás
ir á hið þýska lið, sem sótti
fram um 25 km í fyrradag,
til þess, að því er haldið er.
að koma til hjálpar liði „ í
Hartzfjöllum. Núrnberg er
algerlega gengin Þjóðverj-
um úr greipum eftir harða
bardaga, og Patton hefir sótt
fram um 26 km á svæðinu
milli Chemnitz og Bayreuth.
Sjöundi herinn hefir sótt
fram frá Núrnberg og eru
framsveitir um 115 km frá
Múnchen.
Norðurvígstöðvarnar.
í Hollandi hafa Kanadamenn
haldið áfram sókn, en Þjóð-
verjar ætla auðsjáanlega að
verja vesturhluta landsins eft-
ir megni og berjast þar af
hörku, en þvínær alt Norður-
Holland er á valdi Kanada-
manna. Þá er sótt að Emden og
Oldenburg, og eru bandamenn
komnir allnærri báðum þessum
borgum. Sókn Breta til norðurs
milli Bremen og Hamborgar er
talin mjög hættuleg fyrir Þjóð-
verja. Hafa nú Bretar á sínu
valdi mikinn hluta af bökkum
Elbe neðanverðrar.
' —r——~—r—■
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
FRAMSVEITIR RÚSSA, sem sækja að Berlín frá
Kústrinsvæðinu munu vart vera meira en um 30 km frá
úthverfum borgarinnar sumsstaðar, að því er aðilum ber
saman um í kvöld. Suðaustan borgarinnar eru Rússar
komnir yfir ána Spree á nokkrum stöðum. Orustur eru
ákaflega harðar. Milli Kottbus og Gleiwitz hafa s\æitir
Konievs sótt nokkuð fram og stefna í áttina til Dresden.
í herstjórnartilkynningu Rússa i kvöld er sagt frá töku
tveggja bæja austan Berlínar, er annar þeirra Wriesen.
Þá kveðast Rússar hafa tekið bæinn Spremberg, um 25
km fyrir vestan fljótið Neisse. Þá segir í tilkynnnigunni,
að Rússar hafi nálgast bæinn Bautzen á leiðinni til Dres-
den. —
(iagnsókn Þjóðverja.
Þar sem Þjóðverjar rjeðust
fram gegn vinstra fylkingar-
ai-mi níunda hersins ameríska,
háfa þeir ekki unnið á í dag,
_og er unnið að því að stöðva
þá þar. Austan Elbe hefir ver-
ið fremur kyrt, þó Þjóðverjar
hafi gert nokkur gagnáhíaup á
þessu svæði. Sunnar vinnur
fýrsti herinn að því að treysta
aðstöðu sípa, en enn sunnar og
'austar sækir Pattons fram og
mun vera kominn allvíða yfir
tjekknesku landamærin. Er nú
iim 100 km. bil milli herja hans
bg sveita Konievs austan Su-
detafjallanna.
Baráttan um Niirnberg
var ákgflega hörð meðan hún
Framhald 4 bls. 12
Frá Víðavangshlaupi ÍR: Fyrstu keppendurnir, Haraldur
Björnsson, KR og Oskar Jónsson, IR. koma að marki. (Sjá grein
á öðrum stað í blaðinu). — Ljósm.: Mbl. (Fr. Clausen).
Samningar Rússa 1 Borgarsf jórinn í
og Lublinstjórnar Leipzig fyririór sjer
Lomlon í gærkveldi:
BÚIST er viö því hjer í Lon-
don, að næslu dagana verði und
irritaður í Moskva samningur
milli Sovjelsljórnarinnar og
Lublinstjórnarinnar um gagn-
kvæma aðstoð og samvinnu að
styrjaldarlokum. Komu leiðtog
ar Lublinstjórnarinnar til
Moskva í gærkvöldi, og voru
þeim veittar svo veglegar við-
lökur að dæmafált er taliö.
Stjórnmálamenn telja að þelta
kunni alt að verða mjög örlaga-
ríkt. Virðist svo, sem Rússar
sjeu enn ekki vissir um stjórn-
arslefnu Bandaríkjamanna, eft
ir að Truman tók við völdum,
og eru að flýta sjer að full-
komna örj'ggisráðslafanir sínar
í Austur-Evrópu.
Mikið cr um það rætl, hvað
fundur ulanríkisráðherranna
muni gera ei samningar við
jLubiinmenn verða undirrilaðir,
áður cn hann kemur saman.
London í gærkveldi.
Stríðsfrjettaritari einn símar
frá Leipzig í kvöld, að borgar-
stjórinn þar hafi fyrirfarið sjer
ásamt íjölskyldu sinni. Fannst
fjölskyldan í skrifstofu borgar-
stjórans í ráðhúsinu og hafði öll
tekið eitur. Borgarstjórinn hafði
gegnt embættinu i 9 ár. Einnig
fannst varaborgarsljórinn og
fjöiskylda hans látin í ráðhús-
inu. Einnig sú fjölskytda hafði
jtekið inn eitur. I móttökusal
borgarsljórans i ráðhúsinu fund
ust lík þriggja gamalla þjóð-
varnarliða, sem allir höfðu
I skolið sig. Lík fleiri manna, sem
höfðu íyrirfarið sjer, fundust
og þarna. Segir frjettaritarinn,
aö ekki hafi hann áður sjeð
skelfilegri sjón, en fjölskyldu
borgarstjórans, sem sat látin
umhverfis skrifborð hans.
Ráðhúsið var all-verulega
skeml af fallbyssukúlum.
Reuler.
Lutzow
sökt
London 1 gærkveldi.
ÞJÓÐVERJAR eiga nú ekk-
ert af hinum svonefndu vasa-
orustuskipum sínum eftir. Hinu
þriðja og elsta, „Lutzow“, áð-
ur ,,Deutschland“, var sökt ný-
lega við Swinemúnde af bresk-
um Lancasterflugvjelum, sem1
vörpuðu á það sex smálesta!
sprengjum. Skipið var nýlega ^
komið frá Danzig, en þar að-
stoðaði það þýsku hersveitirn- 1
ar við vörn borgarinnar. Það
er nú flak við ströndina og er j
skuturinn í kafi. Lútzow var
10.000 smál. að stærð og var
í víking á Norðurhöfum árið
1939. Sökti það þá bresku
hjálparbeitiskipi nokkru fyrir
suðvestan Island. — Flugu- j
fregnir hafa borist um það, að
þýska orustubeitiskipið Gneis-
enau og stórbeitiskipið Seyd-
litz 'hafi fallið Rússum í hend-
ur í höfnum, sem þeir hafa tek-
ið. Þessar fregnir eru óstaðfest-
ar. Lútzow var þriðja þýska or-
ustuskipið, sem breskar
sprengjuflugvjelar sökkva i
styrjöldinni. — Reuter.
Lublinmönnum
hatnað enn
London: — Bandaríkjastjórn
hefir hafnað annari uppá-
stungu Sovjetstjórnarinnar um
það, að Lublinstjórnin pólska
fái sæti á ráðstefnunni í San
Francisco. — Forsætisráðherra
Lublinstjórnarinnar og margir
ráðherrar hans eru nú komnir
til Moskva til skrafs og ráða-
gerðar við Sovjetstjórnina.
Frásögn Þjóðverja.
I herstjórnartilkynningunni,
sem þýska yfirherstjórrún gaf
út á 56. afmælisdegi Hitlers, er
svo sagt, að barist sje nú í skóg
um rúma 30 km fyrir austan
Berlín, og tefli Rússar fram
miklum mannfjölda og ógrynni
hergagna ,og einnig sæki þeir
í áttina til Sudetafj allanna á
breiðu svæði. Allsstaðar segja
Þjóðverjar að mjög harðar or-
ustur sjeu háðar og telja þeir
sig hafa unnið Rússum ákaflega
mikið skriðdrekatjón. Barist er
nærri Kottbus að sögn Þjóð-
verja, sem einnig segja, að
Rússar sjeu sumsstaðar komnir
vestur fyrir þá borg. Við ána
Spree segja Þjóðverjar að stór
orustur sjeu háðar. Auk þess,
sem Rússar geta um bardagana
austan Berlínar, þar sem þeir
segjast hafa sótt á í þrjá daga,
segjast þeir líka hafa unnið á
við Ratibor.
Herfræðingar Þjóðverja, sem
gert hafa ástandið austan Ber-
línar að umræðuefni í útvarpi
í dag, hafa verið æði svartsýn-
ir. Segja þeir, að alt sje gert
sem unt er, til þess að stemma
stigu fyrir framsókn Rússa, en
hafi þó enn ekki tekist svo
sem æskilegt væri. Segja her-
fræðingamir liðsmun ákaflega
mikinn Rússum í hag, og mergð
hergagna þeirra stórkostlega.
Én síðastliðna 4 daga segja þeir
að 1000 skriðdrekar hafi verið
eyðilagðir fyrir Rússum.
Páfi ræðir um. frið.
London: — Páfinn hefir gef-
j ið út ávarp til allra kaþólskra
I biskupa og ræðir þar um frið-
. inn, sem í vændum er. Hvetur
j Páfi til þess að hefndarandinn
I verði látinn hverfa, svo friður-
inn verði rjettlátur og varan-
legur.