Morgunblaðið - 21.04.1945, Síða 12
12
MORGUNBLAÖIB
Laugardagur 21. apríl 1945
f/.
Hafliði Sveinsson
Staðarhrauflí
sextugur
HAFLIÐI SVEINSSON bóndi
á Staðarhrauni í Hraunhreppi,
Mýrasýslu, er sextugur í dag.
Hann er fæddur 21. apríl 1885
á Svarfhóli 1 Stafholtstungum
og ólst þar upp. Vorið 1921 gift
ist hann Olínu Olafsdóttur. Hún
er fædd og uppalin í Reykja-
vík og var lengi innanbúðar
við verslun Árna Eiríkssonar í
Austurstræti, en dvaldi um
mörg ár á Svarfhóli á sumrin.
Þau hjónin bjuggu fyrst á Ol-
valdsstöðum í Borgarhreppi og
síðan á Haugum í Stafholtstung
um, en fluttust að Staðarhrauni
árið 1927 og hafa búið þar síð-
an. —
Hafliði var í mörg ár póstur
milli Borgarness og Stykkis-
hólms, en hætti því, er teknar
voru upp fastar áætlunarferð-
ir bifreiða á þessari leið. Aldrei
hlektist honum á í ferðum þess-
um, enda er hann maður að-
gætinn og traustur og karl-
menni í hverri raun. Hann er
trygglyndur og vinfastur og
drengur góður. Honum er
vinnugleði í blóð borin, dug-
legur og iðjusamur og fellur
aldrei verk úr hendi. Á hann
góða stoð í hinni ágætu konu
sinni, Olínu, og eru þau í öllu
hin samhentustu, enda er heim
ili þeirra annálað fyrir gest-
risni og myndarskap.
Við vinir og kunningjar
þeirra hjóna sendum þeim
bestu óski'r á þessum merkis-
degi húsbóndans, með þökk
fyrir liðnar ánægjustundir og
ósk um gæfu og gengi í fram-
tíðinni. B. G. B.
Vestur-
vígstöðvarnar
Framh. af 1. síðu.
stóð, en borgina vörðu S. S,-
menn, sem höfðust við í mið-
bænum, innan hinna fornu
múra borgarinnar. — Borgin er
ákaflega mikið skemd vegna
ofsans í orustunum, sem hættu
ekki fyrr en síðari hluta
dags í dag.
Aðalfundur Kven-
fjelags Neskirkju
AÐALFUNDUR Kvenf je-
lags Neskirkju var haldinn ný
lega. Gefið var yfirlit yfir
störf fjelagsins á árinu og
lagðir fram endurskoðaðir
reikningar. Á fjelagið nú í
s.jóði 50 þús kr. eftir aðeins
þriggja ára starf.
Frú Ingibjörg Thorarensen
hefir verið formaður fjelags-
ins frá stofnun þess og frú
'Marta Pjetursdóttir gjaldkeri
frá sama tíma, en báðust nú
báðar eindregið undan endur-
kosningu. Stjórnina skipa nú::
Frú Áslaug Sveinsdóttir, for-
niaður, frú Áslaug Þorsteins-
dóttir gjaldkeri og frú ITall-
dóra Eyjólfsdóttir ritari og
var hún endurkosin. Með-
stjórnendur: Frú Ingibjörg
Thorarensen og frú Matthild-
Ur Petersen.
- Roosevelf
Framh. af bls 9
við þessa tilfinningu. — A
þessum ráðstefnum erum
við eins oft og forsetinn að-
algagnrýnendurnir. — Auð
vitað verður gagnrýnin að
hafa sín takmörk. Mr.
Roosevelt getur húðskamm
að mann — frjettaritara. —
Þeim frjettaritara, er fyr-
ir því verður, þýðir ekki að
nálgast hann aftur á sama
hátt. Maður getur ekki sagt
við hann blátt áfram að
hann segi ekki satt. — Það
getur verið að hann hafi
ekki sagt satt og að þú vitir
það. Það getur verið að
hann ávíti þig fyrir að
segja sannleikann, og að
hann viti að það er sann-
leikur sem þú ert að segja.
En hann er forseti Banda-
ríkjanna og því eru tak-
mörk sett, sem þú mátt
segja við hann eða um
hann í návist hans. ■—■ En
hjer, í Hyde Park, og sjer-
staklega á vegum hans, er-
um við ekki einungis vel-
komni'r heldur höfum við
það greinilega á tilfinnnig-
unni — í fyrsta skipti — að
við eigum hjer heima og að
hann er forsetinn okkar,
okkar forseti.
Drengjahlaup Ármanns:
Hver vinnur
Drengjahlaupsbik-
arinn!
Fjelögin eru öll jöfn.
DRENGJAHLAUP Ármanns
fer fram á morgun og hefst kl.
10.30 við Iðnskólann. Keppend-
ur eru skráðir 20, 9 frá Ár-
manni, 6 frá KR og 5 frá IR.
Verður kepni þessi ákaflega
spennandi, ef svo má að orði
komast, vegna þess, að öll þessi
fjelög hafa unnið Drengja-
hlaupsbikarinn tvisvar og það
fjelag, sem vinnur hann núna,
vinnur hann til eignar. Tefla
öll fjelögin fram sínum bestu
,,drengjum“, því þau vilja ó-
gjarnan láta gripinn ganga sjer
úr greipum. — Kept er í þriggja
manna sveitum.
Leiðin, sem hlaupin.er, er
Vonarstræti, Tjarnargata, Bjark
argata, suður að nyrðra horni
Háskólans, beygt þar yfir tún-
in og tekin stefna á horn Hring
brautar og Njarðargötu. Síðan
er hlaupið eftir Sóleyjargötu,
Fríkirkjuvegi og endað syðst í
Tjarnargötu. Vegalengdin er
um 2.2 km.
Keppendur og starfsmenn
eru beðnir um að mæta kl. 10
f. h. í Miðbæjarskólanum.
Sumargjafir í Bama-
spítalasjóð .
Hringsins
MINNINGARGJAFIR frá frú
Ingibjörgu Steingrímsdóttur og
Bjarna Pjeturssyni, lil minn-
ingar um börn þeirra. Pjetur,
Steingrím, Anton og Margrjeti.
Kr. 10.000 — tíu þúsund. —
Minningargjöf um Otta Krist-
insson, frá foreldrum, kr. 10.-
000 — tíu þúsund. Sumargjöf,
afhent af biskupi íslands. Frá
mæðgunum Jónínu Ólafsdóttur
og Margrjeti Sigurðardóttur,
Grettisg. 74, 10.000 -— tíu þús-
und. Sumargjöf frá Hr. Klein.
Kr. 2000 — tvö þúsund.
Færir fjelagið gefendum kær-
ar þakkir.
Ingibjörg Cl. Þorláksson.
- Þorbjörn læknir.
Frh. af bls. 10.
veit þó, að hann er náskyldur
sjera Bjarna og ýmsum öðrum
bestu mönnum þessa bæjar. —
Það er því ekki óeðlilegt, að
hjón þessi hafi átt miklu barna-
láni að fagna, þegar agar sam-
an skipstjórum, doktorum, dokt
orsfrúm, hagfræðingum, lækn-
um, skrifstofustjórum og stúd-
entum og alt er þetta í besta
lagi.
Að svo mæltu leyfi jeg mjer
í nafni hans mörgu vina og vel-
unnara að óska Þorbirni margra
og góðra lífdaga og þakka
ágæta samfylgd það sem af er.
Ing. Gíslason.
— Einar Jónsson.
Framhald af bls. 11.
metinn og kær nemendum sín-
um, og síðar við vegaverkstjórn
og önnur störf ávann hann sjer
altaf velvild, traust og virð-
ingu.
Hann kvæntist 1913 Guð-
björgu Kristjánsdóttur, er hún
ættuð af Snæfellsnesi, og hef-
ir aðstoðað bónda sinn í öllu,
er vel má fara. Þau hafa átt 9
dætur, allar uppkomnar.
Það er enginn efi á því, að
þeir eru margir, sem senda
Einari hugheilar kveðjur á þess
um afmælisdegi hans. Allir
þeir, er hafa kynst honum, bera
til hans hlýjan hug og þakka
honum margan stuðning og
góða og trygga vináttu. Gott
væri, að þjóðin ætti marga hans
jafna. Vinur.
Bandamenn í úi-
hverfum Bologna
EKKERT LÁT er á fram-
sókn fimta og áttúnda hersins
á Italíu, og voru framsveitir
er síðast frjettist, komnar inn
í úthverfi borgarinnar Bologna,
og einnig nálgast bandamenn
borgina Ferrara. Er þar barist
ákaflega um brú eina yfir Sil-
aro-ána. Fimti herinn hefir að
jafnaði sótt fram um átta km.
á dag, og er sóknin allerfið
vegna mikilla virkja Þjóð-
verja, sem varin eru til hinsta
manns. — Reuter.
London: — Nokkrar sveitir
belgiskra hermanna berjast nú
með herjum bandamanna aust
an Rínar. Hafa sveitir þessar
getið sjer mikið orð
-Maðurogkona
Framh. af bls. 5.
framtíð á leiksviðinu, ef vel
verður að þeim búið.
Lárus Ingólfsson leikur Gríni
meðhjálpara og Sigurður S.
Scheving son hans Egil. Veiga-
Jítill og bragðsdaufur þólli
mér Grímur meðhjálparr í
höndum Lárusar og lítið verða
úr orðskviðum hans, verald-ar-
visku í munni leikarans, og
ekki var sonurinn burðugri,
ýklur sem hann var úr höfi
fram í heimsku sinni. Þó var
hann mun betri síðar í leiknum.
Steinunni, konu sjera Sigvalda
ljek frú Ingibjörg Steinsdóttir,
og fór laglega með það hlut-
verk.
,Önnur hlutverk voru lítil, en
misjafnlega með þau farið. —
Þuríði gömlu ljek Áróra Hall-
dóttir og tókst miður. -— Hún
virðist vera óheppin leikkona.
Lárus Ingólfsson hefir málað
leiktjöldin, sem eru skínandi
falleg og vel gerð, ■— og bún-
ingunum hefir hann einnig
ráðið-
Hallgrímur Bachmann ann-
ast allan ljósaútbúnað af ágælri
smekkvísi.
Að leikslokum voru leikend-
ur kallaðir fram hvað eftir ann
að og yfir þá rigndi blómvönd-
unum frá þakklátum áhorf-
endum.
Að endingu þetta: Maður og
kona ætti að geta orðið okkur
þjóðlegt leikrit á borð við
Skugga-Svein og Nýjársnótt-
ina, en til þess þyrfti að taka
það til ítarlegrar endurskoðun-
ar og umfram allt gæta þess,
er það er sett á svið að þar slæð
ist ekkert með, sem raski heild
arsvip leikritsins og rýri menn
ingargildi þess.
Sigurður Grímsson.
TAKE ME HOME
FÖR TSRED, TENDER
BURNING FEET
Dregur úr fótahita.
Inniheldur Amyloxin
Mýkir og læknar sára
fætur. En sá munur!
A TRCAT
fOH T££T
(44-11 E)
X-9
Effir Robert Slorm
..TÚENi ON 70 "
BIC AFBONATE -ON'THF. -HUD50N..
MV PUBU6HER..-THE OLD
‘5TORK GANQ —ÁND BRAINV !
HOPE 1 DON'T MAV£ TO
1—4) Vilda Dorré fjekk loforð fyrir fari með Hún gekk út að vatninu þar sem hún og X-9
flugvjel þrjú og gekk frá öllu heima og undir- voru saman daginn eftir komu hennar til eyjar-
bjó undir ferðalagið — aðeins eitt var eflir. innar. „Það er eins og mannsaldur síðan við
stóðum hjer“, hugsaði hún. „Var það aðeins
Flórída-tunglið, eða var það Amor lilli, sem var
á ferðinni.