Morgunblaðið - 09.06.1945, Blaðsíða 1
82. Argangur.
126. tgl. — Laugardagur 9. júní 1945.'
Isafoldarprentamiðja h.f.
SAMKOMULAG í TRIESTEDEILUNNI?
Rússar
slökuðu til
London í gærkveldi.
RÚSSAR hafa nú slakað til
á ráðstefnunni í San Francisco
varðandi neitunarvald einstaks
stórveldis í öryggisráðinu. Er
því komið á samkomulag um
það, að ekkert eitt stórveldi
geti geti komið í veg fyrir það,
að mál verði rædd í ráðinu. —
Varð sem kunnugt er, löng deila
um þetta, og leit jafnvel svo
út á tímabili, að ráðstefnan
myndi stranda á þessu, en svo
tilkynnti formaður rússnesku
nefndarinnar, að stjórn hans
hefði falið honum að falla frá
þesari kröfu. Þessi tilslökun
Rússa hefir komið stjórnmála-
fregm-iturum á óvart, en ýmsir
telja hana til komna vegna veru
Hárry Hopkins í Moskva. Telja
þeir, að hann hafi getað fengið
Rússa til þess að breyta afstöðu
sinni. Búist er við miklum
stjórnmálalegum viðburðum, er
fylgi kjölfar þessa atburðar á
ráðstefnunni. Ráðstefnan vinn-
ur nú af ölu megni, til þess að
ljúka sem fyrst þeim störfum,
sem fyrir liggja. Öryggisráðinu
hefir verið gefið nafnið: „Sam-
einuðu þjóðirnar“.
Bonomi að segja
aS sjer
London í gærkvöldi.
FRÁ Róm berast þær fregnir,
að Bonomi, forsætisráðherra
ítölsku stjórnarinnar, muni
hafa sagt af sjer, en Umberto
krónprins falið honum að fara
með völd, meðan verið sje að
mynda nýja stjórn. Bonomi
kvaðst ekki geta setið við völd
lengur, þar sem misklíðin inn-
an stjórnarinnar tefði fyrir
framgangi ýmsra nauðsynja-
mála.
Sumir í Róm telja að Bonomi
verði falið að mynda nýja
stjórn, en aðrir telja að það
verði annaðhvort Nenni, for-
maður jalnaðarmannaflokksins
eða Galvari, forsprakki kristi
legra jafnaðarmanna. — Reuter
Sjö hundruð férust
London í gærkveldi:
YFIR 700 manns fórust, er
þýskar steypiflugvjelar sökktu
breska beitiskipinu Gloucester
í Cytherasundunum við Krít
þann 22. maí 1941, að því er
breska ílotamálaráðuneytið til-
kynnir nú. Þeir sem komust af,
en það voru um 130 menn,
sögðu, að þeir sem innilokaðir
voru í skotfæraklefum skipsins
hefðu sungið sálma alt til þess
að skotfærin sprungu í loft upp.
Tekur af sjer heiðursmerkin
• • 'i
Sférslys og tnann-
ifjén af sprengingu
í Esbjerg i
Khöfn í g&r.
BERLINGSKE TIDENDE
. flytja þá fregn, að sprenging
; hafi orðið í skotfærabirgðum í
húsi því, sem áður var aðalstöð
’ Þjóðverja í Esbjerg. Sprenging
in varð af óvarfærni eða ó-
1 » I
hepni. Afleiðingarnar urðu
t hræðilegar. — Myndaðist við
sprenginguna 25 metra djúpur,
; og 50 metra breiður gigur. Loft,
þrýstingurinn braut mörg þús-
j und rúður í húsum alt upp í 6
km. fjarlægð frá staðnum, þar
sem spi’engingin varð Talið er,
að 10 manns hafi beðið bana, en
um 70 særst. Eru þó ekki öll
kurl komin til grafar enn.
Páll Jónsson.
Flugyjel Mallory
Eins og kunnugt er, var Göring nýlega handtekinn af banda-
mönnum í Suður-Þýskalandi. A myndinni sjest hann vera að
taka af sjer heiðursmerkin. Hann er þarna í fangabúðum við
Augsburg. —■ (Mynd frá O. W. I.)
íslendingar unnu
Bretunu 4:0
Albert Guðmundsson skoraði 3 mörk
ÚRVALSLIÐ knattspyi’nufjelaganna í Reykjavík ljek í gær-
kvel^li við úrvalslið breska hersins á íslandi. Fóru leikar þann-
ig, að íslendingarnir sigruðu glæsilega með 4:0. Voru þeir vel
að sigri sínum komnir. Breska liðið var langt frá því eins sterkt
og búist hafði verið við. Mannfjöldi svo þúsundum skifti var á
vellinum og horfði á leikinn.
Leikurinn byrjaði með sókn
Breta, sem leit út fyrir að ætla
að vera hættuleg, sjei’staklega
þar sem íslendingarnir virtust
vaila þora að snerta knöttinn
og skiluðu honum frá sjer eins
fljótt og þeim var mögulegt.
Þessi taugaóstyrkur ,landanna
var samt ekki til langframa.
Gekk á ,ýmsu fyrsta stundar-
fjórðunginn, en íslendingarnir
þó heldur meira í sókn. Er 17
mínútur voru af leiknum skor-
aði Sæmundur (Fram) mark úr
aukaspyrnu sem var tekin langt
fyrir utan vítateig Bretanna.
Hefði markmaður Bretanna vel
átt að geta varið, en hann virt-
ist ekki vel öruggur.
Eftir markið færðist að von-
um heldur meira. fjör í leikinn.
Liðin skiftust á upphlaupum,
sem þó báru ekki tilætlaðan
árangur. Munaði samt mjóu að
Bx’etar skoruðu, er einn þeirra
skaut að markinu. Anton sló
boltann út, Breti náði honum
aftur eftir nokkuð þóf og skaut,
erf boltinn lenti í stöngina. ís-
lendingai’nir áttu ^okkur góð
tækifæri, en voru seinhepnir
að skora. Síðast í hálfleiknum
voru Bi'etar í sókn og virtist
tilviljun ein að þeir skoruðu
ekki. — Hálfleikurinn endaði
því 1:0 íslendingum í vil.
Síðari hálfleikur.
Síðari hálfleikinn áttu Is-
lendingar alveg, þótt Bretarnir
gerðu einstaka upphlaup, sem
vörn Isl. bægði frá markinu.
Var hún yfirleitt örugg og
Antor varði ágætlega. Leikur-
ínn fór annars mest fram á
Framh. á 2. siðu
London í gærkveldi:
TALIÐ er að fundið sje flak-
ið af flugvjel þeirri, sem breski
flugmai’skálkui'inn Sir Tafford
Lee Mallox-y og frú hans voru
í, en hennar var saknað í fyrra
haust, er mai’skálkurinn lagði
upp í fei’ð til Suðaustur-Asíu,
en þar átti hann að taka við
yfirstjórn flughers Breta. Áður
hafði hann haft með höndum
yfirstjórn innrásarflugflotanna
í Evrópu og getið sjer besta
oi’ðstý.
Flugvjelarflakið fannst fyrir
nokkrum dögum hátt uppi í
frönsku Alpafjöllunum eigi all
fjarri borginni Grenoble. Fann
franskur bóndi það fyrstur, og
í því skjöl, sem sanna að þetta
hafi veiúð flugvjel marskálks-
ins. ■— Mallory marskálkur
rjeði fyrir orustuflugvjelasveit
í orustunni um Bretland og
skaut hún niður 150 þýskar
flugvjelar meðan hann stjói’n-
aði henni.
Undirritað á
morgun í Belgrad
London í gærkveldi.
frá Reuter.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
SYLVAIN MANGEOT.
stj óTnmálaf regni’itari vor
flvtur þær fregnir í kvöld,
að af opinberri hálfu í T-ond
on sje álitið, að samningar
hafi tekist milli Bretlands,
Bandaríkjanna og' Jugoslav-
íu, varðandi Triestedeiluna,
og verði undirritað á morg-
un í Belgrad af breska og
ameríska sendiherranum
ög utanríkisráðherra Jugo-
slavnesku stjórnarinnar. —
Telja ábyrgir menn í Lond-
on, að samkomulag þetta sje
vel víð unandi fyrir alla að-
ila, og leysi deilu, sem eitt
sinn virtist mjög alvarleg.
Bretar og Bandaríkjamenn
hafa allan tímann haldið því
fast fram, að Trieste og svæðið
umhverfis borgina, en um það
liggja samgönguleiðir til Aust-
urríkis. verði að vera algjör-
lega á valdi herja vgsturveld-
anna.
Haldið er í London, að í
samningum sje gert ráð fyrir
því, að Jugoslavar fari á brott
með allan sinn her frá Trieste
og svæðinu umhverfis borgina,
og virðast menn mjög ánægðir
í London yfir þessum úrslitum.
ef þau reynast þannig. Þar fæst
fram áhersla sú, sem Bretar
og Bandaríkjamenn hafa lagt
á það, að ágreiningur um land
svæði yrði útkljáður með frið-
samlegum og löglegum samn-
ingum, en ekki með hernaðar-
legu ofbeldi. Það má gera ráð
fyrir því, að þetta samkomu-
lag verði til þess að koma í
veg fyrir allar deilur, sem
virtust vera í uppsiglingu um
Feneyjahjeraðið, og verði alt
það látið bíða friðarráðstefn-
unnar.
Uppreisn í franskri
hersveif
London í gærkvöldi-
FREGNIR frá Damaskus
herma í kvöld, að frönsk úr-
valdshcrsveit hafi gert upp-
reisn í bækistöðvum sínum
nokkuð frá Damaskus ogj
drápu hermennirnir 6 franska
liðsforingja. Ilérsveit þessi,
sem skipuð er úlfaldariddur-
um, er ein af bestu sveitum
franska hersins. Kom flokkur
manna úr sveitinni til Dam-
askus í dag og- tilkynti sýr-
lenskum yfirvöldum atburðina.
,— Reuter.
Enginn undirróður
London í gærkveldi:
Ráðhera Breta í löndunum
við austanvert Miðjarðarhaf.
hefir neitað því með öllu, að
það sje rjett, sem franski hers-
höfðinginn Rouget, er var í
Sýrlandi en nú er kominn 'til
Frakklands, hefir borið út, að
tveir breskir liðsforingjar hafi
haft um hönd undirróður gegn
IFrökkum í Sýrlandi. Segir ráð-
herrann, að hver einasti bresk-
ur maður austur þar hafi verið
undir yfirstjórn og eftirliti sínu
og yfirhershöfðingjans breska
á þessum slóðum, Bernard
Paget.