Morgunblaðið - 16.09.1945, Side 6
M 0 RGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 16. sept. 1945.
e<£ er
JÓNATAN
SCRIVENER
T-A’r Vlaude Vdoucjhton
26. dagur
„Jeg ætla ekki að biðja fyr-
irgefningar“, sagði hún við mig.
„Jeg hefi ekki komið út fyrir
dyr í þrjá daga, og þegar jeg
sá, fyrir stundu síðan, að þok-
an var horfin, datt mjer í hug
að skjótast hingað og sjá,
hvernig yður liði. Jeg sje, að
jeg er að gera yður ónæði“.
„Nei. Þetta er kunningi
Scrivener. — Frú Francesca
Bellamy — herra Middleton“.
Jeg sá þegar í stað, að
Middleton kannaðist við nafn
hennar. Það var þögn í her-
berginu andartak. Jeg tók við
kápu hennar og hún settist við
arininn. Það var auðsjeð, að
undrunin yfir að sjá frú Bella-
my varnaði Middleton máls.
En hann horfði á hana og var
bersýnilega hrifinn af fegurð
hennar.
„Hafið þjer frjett nokkuð af
Jónatan?“ spurði hún mig.
„Nei“, svaraði jeg. „Jeg hjelt,
að þjer hefðuð ef til vill frjett
eitthvað af honum“.
„Við skrifumst ekki á“.
Hún sneri sjer að Middleton.
„Þekkið þjer herra Scriven-
er vel?“ spurði hún.
„Nei — jeg þekki hann eig-
inlega ekki neitt“, muldraði
Middleton. „Jeg hefi aðeins
sjeð hann einu sinni. Við — eh
■— við slógum okkur saman eitt
kvöld“.
„Það er undarlegt“, sagði hún
glaðlega. „Jeg hefi aldrei hitt
neinn, sem hefir þekt hann vel.
Já — þá man jeg það: sagði
Jónatan yður frá því, að jeg
hefði lykil að íbúðinni hjerna?“
„Nei“, svaraði jeg. „Hann
sagði mjer yfirleitt ekki neitt“.
Hún hló og sneri sjer aftur
að Middleton. „Herra Scriven-
er sjer mjer fyrir leyndardóm-
um. Hann er sjálfur leyndar-
dómsfullur og einkaritari hans
ekki síður. Herra Wrexham er
sennilega gamall vinur yðar?“
Middleton hreyfði sig vand-
ræðalega í sætinu. „Nei, nei —
þvert á móti“, stamaði hann.
„Þetta er í annað sinn, sem við
sjáumst".
Hún leit á hann með undr-
unarsvip: „Þjer komuð þá
hingað í þeirri von að hitta
Scrivener?“
„Já“.
„Og í hans stað hittuð þjer
herra Wrexham, — og hann
hefir sennilega sagt yður, að
hann hafi aldrei sjeð Scriv-
ener?“
„Já — það er rjett“, svaraði
Middleton. Hann starði á hana.
„Hann hefir aðeins sagt okk-
ur sannleikann“, sagði hún.
„Það hlýtur að sumu leyti að
valda manni vonbrigða, en það
eykur og á leyndardóminn. —
Hafið þjer áhuga á herra
Scrivener?“
Hann svaraði ékki strax. Jeg
sá reiðiglampa bregða fyrir í
augum hans.
„Á þetta að vera fyndni?“
spurði hann loks.
„Fyndni?“ Francesca horfði
undrandi á hann.
„Já — fyndni, segi jeg“, end-
urtók hann reiðilega. „Það er
fremur ótrúlegt, að maður ráði
til sín einkaritara, sem hann
hefir aldrei sjeð, og kona, sem
hefi; lykil að íbúð hans, viti
ekkert um hann“.
Francesca virti að vettugi
hinn ruddalega raddhreim hans
og hló bhðlega.
„Þjer haldið, að þetta sje
samsæri, herra Middleton. Jeg
skil það vel. Jeg held oft sjálf,
að svo muni vera. Jeg skal við-
urkenna, að það kann að virð-
ast dálítið grunsamlegt, að jeg
skuli hafa þennan lykil í fór-
um mínum, en yður er óhætt
að trúa því, að jeg er ekki frilla
Scriveners — og jafnvel þótt
jeg væri það, vissi jeg sjálfsagt
ekki meira um hann en jeg geri
nú“.
Jeg sá, að Middleton var enn
ekki runnin reiðin. Hann reis
á fætur með nokkrum erfiðis-
munum.
„Jeg held það sje best að jeg
fari“, sagði hann loðmæltur, og
bætti svo við: „Jeg hefði senni
lega aldrei átt að koma“.
Hann kinkaði kolli í áttina
til hennar og yfirgaf herberg
ið. Jeg fór á eftir honum fram
í anddyrið. Hann sneri sjer að
mjer og sagði ofsalega:
„Var það lygi, sem þjer
sögðuð mjer? Þekkið þjer
Scrivener vel?“
„Jeg hefi ekki skrökvað
neinu að yður“, svaraði jeg ró-
lega.
Hann horfði fast á mig and
artak. „Jæja — jeg trúi yður.
Guð má vita, hvers vegna. En
jeg trúi yður. Aftur á móti trúi
jeg ekki einu orði af því, sem
kvenmaðurinn þarna sagði.
Hún er auðvitað þessi fræga
frú Bellamy — er það ekki?“
„Jú, þessi fræga frú Bella-
my“.
„Jeg er ekkert hissa á því,
þótt maðurinn hennar fremdi
sjálfsmorð. — Hún hefir lykil
— sem og ungfrú Mandeville.
Scrivener hefir bersýnilega
ekkert á móti kvenfólki —
Merkið, sem
fryggir yður
vörugæði
ÞEIR, SEM EINU SINNI
HAFA REYNT, GETA
ALDREI GLEYMT
NIÐURSUÐU V ÖRUNUM
Frá
NIÐURSUÐUVERKSMIÐJUNNI
A BÍLDUDAL H.F.
SÖLUUMBOÐ: VERSLUNIN
LIVERPOOL, Hafnarstræti 5.
SÍMAR 1135 OG 4202.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiimmiuimiuiuÞmiiinnmniD
Stúlka óskast
Uppl. í síma 5535 á morg
un (mánudag).
S Unnur Kolbeinsdóttir 5
Miklubraut 5.
EE =
niimiuiimiiimiiiiiiiimiimmmmimmiiiiiiiimmlB
| tbúð I
5 óskast, eitt herbergi og eld E
= hús mundi nægja, ef um i
E stærri íbúð er að ræða. Vil i
§ jeg borga 10—20 þúsund 1
g fyrirfram. Upplýsingar í g
= síma 6158 kl. 5—7 í dag. §
I I
diiinniiiiimiiiiiimiiimmiiiniiiiiiiiimimiuiiiiuiiiu
mi!Iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
2—3 herbergja
1 íbúð |
E óskast til leigu strax eða =
= um mánaðamót. Má vera 1
5 í Kleppsholti. Tilboð merkt 1
E „KxR“, sendist afgx-eiðslu =
5 blaðsins fyrir miðvikudags =
= kvöld.
Húsnæði
Ung hjón með eitt bai'n, e
óska eftir einu til tveimur |l
herbergjum og eldhúsi. §
Mikil fyrirframgreiðsla. — g
Tilboð sendist blaðinu fyrir
20. september merkt „Sjó
maður í siglingum“.
MMimniiiinimuua
pinuiiiiuiniBmiHU]mmoamnuumiiiiimiiiiiiii>
fVegghillur [
| Útskornar Vegghillur, §
| ýmsar fallegar gerðir. §
Tilvalin tækifærisgjöf. ff
I Veríi Uín \
Njálsgötu 23. =
= =
miiuiiiiiiiiumiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiim
Augun Jeg hvíli
með GLERAUGUM frá TÝLl
Húainæði
Fjögurra herbergja íbúð
með öllum húsgögnum í
nýju húsi á hitaveitusvæð-
inu, býður happdrætti Hús
byggingarsjóðs Sjálfstæð-
isflokksins.
miiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiimt
( Námsflokkar
| Reykjavíkur
i Innritun í iðnskólanum í
E dag og næstu daga kl.
5—7 og 8—9 síðd,
'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiuiiiiuuuuuunuumiiummtt
Biiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinauiiiiaii.Tdiimiiiiiiiimiiiiin
Reglusamur
( Bifreiðarsfjóri (
| getur fengið atvinnu við 1
| akstur á leiðinni Reykjavík s
—Hafnarfjörður. .
= Bifreiðastöð Steindórs. S
BmimiiiiiiiuiiiiuiiiinmTuuiimiiiniiiiiiiiiiimumig
m'mmimmimiimimmiimimmimiiiiimmiiiiiimii
3
S óskast til afgreiðslustarfa.
Uppl. í síma 3049.
immmmmmimmmmummiimimiiiiiiiiiiiiiiiiinu
mir mmnnmmminiiiiiwiiiiii ........ imh
= Prjónuð
1 Barnaföt 1
= =
= í mörgum litum. — Enn s
1 fremur telpu golftreyjur. 1
E Versl. Anna Þórðardóttir =
Skólavörðustíg 3.
= Sími 3472. =
■íxfimnmnnum
niiiiiiliillKiiiiiuiiiuiiiiiuuimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiniiia
Telpukápur]
í úrvali.
Versl. Anna Þórðardóttir js
Skólavörðustíg 3.
Sími 3472.
'Muumimumiiiiuuumuuumuuuuiimmmmmiui
GLERVÖRLR
ódýrar, nýkomnar.
~J*\. JJinarióon CJ UjörnSSou h.ý.
Sölumaður
Ungur og áhugasamur maður, helst með verslunar-
skólamentun, eða annari áiíka, óskast sem sölumaður ^
til eins af eldx-i fyrirtækjum bæjarins. *!
Umsókn ásamt mynd og ineðmælum, ef fyrir hendi í
eru, og uppiýsingum um fyrri störf, sendist Mhl. fyrir |!
20. þessa mánaðar nxerkt ..Sölumaður", !j