Morgunblaðið - 19.10.1945, Síða 12
VEÐURUTLITIÐ, Faxaflói:
VISITALAN fyrir október
Föstudagur 19. október 1945
er 2S5 stig. — Sjá grein lijer á
síðunni.
BARNASPÍTALASJÓÐUR 780 ÞÚS, KR.
Hvað líður mjólk-
urslöSinni!
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI
Fjölbreyttar skemtanir í flestum sam-
komuhúsum bæjarins á sunnudag
í gær gerði Jón A. Pjetursson
þá fyrirspurn til borgarstjóra,
hvað liði vjelaútvegun í hina
nýju rnjólkurstöð'. Hann kvaðst
að vísu ekki ætlast til, að borg-
arstjóri svaraði fyrirspurn þess
ari á þeim fundi, vegna þess, að
hann hefði ekki sagt frá því
fyrirfram, að hann ætlaði að
gera þessa fyrirspurn til borg-
arstjóra á þessum fundi. En
borgarstjóri hefði, sem kunn-
ugt er, enga íhlutun um þessi
mál.
Bjarni Benediktsson borgar-
stjóri kvaðst ekki viðbúinn að
svara þessari fyrirspúrn, þareð
umsjón með hollustuháttum
við meðferð og dreifing mjólk-
ur væru utan við verksvið
hans. En hinsvegar, sagði hann,
er þetta mál mikilsvert fyrir
borgarbúa.
Hann kvaðst myndi verða við
ósk bæjarfulltrúans um það, að
afla sjer kunnleika á þessu
máli, enda myndi það sönnu
næst, að ýmislegt viðvíkjandi
mcðferð og dreifing mjólkur-
innar muni þurfa mikilla um-
bóta við. En viss atriði þessa
máls hafa komið til athugun-
ar í bæjarráði.
Sigfús Sigurhjartarson
kvaðst vilja leggja það til við
borgarstjóra, að hann athugaði
einnig, hvort ekki væri ástæða
til þess að bæjarstjórn óskaði
eftir því við Alþingi, að gerð-
ar yrðu ráðstafanir til þess, að
bærinn gæti tekið hina nýju
mjólkurstöð leigu- eða eignar-
námi, með það fyrir augum, að
bærinn ræki stöðina og tæki við
hinni aðsendu mjólk utan við
stöðvarvegg.
Jón A. Pjetursson sagði, að
hjer væri um tvö aðskilin mál
að ræða, annað það, hvenær hin
nýja stöð gæti tekið til starfa.
Því það væri vitað, að gamla’
mjólkurstöðin hefði fyrir all-
löngu verið talin of lítil. Og hitt
það, sem Sigfús Sigurhjartar-
son talaði um, að bærinn eign-
aðist stöðina og ræki hana.
Hann kvaðst því andvígur,
að bærinn tæki að sjer stöðina
, og rekstur hennar. Mjólkur-
framleiðendur myndu vilja eiga
stöðina framvegis. Það færi
best á því. Bæjarstjórn hlyti
að geta gripið í taumana, sam-
kvæmt núverandi löggjöf, ef
hjer væri seld skemd eða óholl
mjólk.
Sigfús Sigurhjartarson var
hlyntur eignarnáminu á stöð-
inni, en sagði að vísu, að hjer
væri ekki um annað að ræða
en tilmæli frá sinni hendi um
það, að borgarstjóri athugaði
málið.
SAMK VÆMT til kynnin gu
breska utanríkisráðuneytisins
er í Bretlanrli afnumin öll rit-
akoðun nema að því er tekur
til stríðsfanga.
KVENFJEI.AGIÐ HRING-
URINN, sem stendur fyrir
fjársöfnuninni til barnaspít-
ala í Revkjavík. efnir til
merkilegra og mikilla skemt
ana fyrir almenning á sunnu
daginn. Verða hljómleika-r
og skemtanir, híósýningar,
spil og töfrakúnstir, gaman-
vísur og söngur á boðstól-
tim allan daginn, en þeim
lýkur með flugeldasýning-
um og dansskemtun um
kvöldið.
Skýrir stjórn Hringsins svo
frá tilhögun þessara hátíða-
halda:
í Gamla lííó
verður fjölbreytt skemtun kl.
1.30 e. h. Jónas Haraldz hag-
fræðingur flytur ávarp og
kynnir síðan skemtiatriðin. —
Þær Svava Þoibjarnai'dóttir og
Þórunn Þorsteinsd. syngja tví-
söng. Eru þær mjög vinsælar
söngkonur, sem sjaldan hafa
látið til sin heyra. Þá syngur
Ragnar Stefánsson majór í
Bandaríkjahernum einsöng. —•
Hann er öllum landsmönnum
kunnur fyrir söng sinn í út-
varpi, fen hefir ekki áður komið
opinberlega fram. Lárus Ingólfs
son leikari syngur gamanvísur
af sinni alkunnu list. Þá lelkur
Þórunn litla Jóhannsdóttir ein-
leik á píanó. Hún er aðeins 6
ára gömul, dóttir Jóhanns
Tryggvasonar, söngstjóra Sam-
kórs Reykjavikur. Hún kom
fyrst fram á hljómleikum Sam-
kórsins í haust og vakti mikla
athygli. Loks syngur Miss Dee
Jungers sópransöngkona ein-
söng. Hún hefir nokkrum sinn-
um komið fram á hljómleikum
ameríska hersins ásamt hljóm-
sveit Corley’s og vakið mikla
hrifningu með söng sínum.
I Tjarnarbíó
verður athyglisverð skemtun
á sama tima (kl. 1.30 e. h.).
Hefst hún með ávarpi, sem
Níels próf. Dungal flytur. Að
því búnu leika þær Ragnheiður
Þórólfsdóttir og María Magnús-
dóttir saman á tvo gítara. Þá
les Jón Sigurðsson frá Kaldað-
arnesi upp, en síðan leikur
strepgjatríó, María Magnúsdótt
ir, gítar, Tage Ammendrup,
mandólín, og Jón Kornelíus
Jónsson, manólín. Síðan sýnir
Baldur Georgs ýmsar töfra-
kúnistir, cn hann hefir undan-
farið komið fram á mörgum
skemtunum og vakið almenna
hrifningu með leikni sinni. —
Loks leikur manólínkvartett-
inn, Sverrir Kjartansson og
Guðm. Á. Bjarnason (mandó-
lín), Páll Pálsson (mandóla),
og Ragnheiður Þórólfsdóttir
(gítar). Kvartettinn þótti eitt
besta atriðið á hljómleikum-
mandólínhljómsveitarinnar í.
vor. Kynnir skemtunarinnar
Til ágóða fyrir barna-
spítala Hringsins
verður hinn vinsæli gamanleik-
ari Alfred Andrjesson.
I Trípólí-leikhúsinu
verða h!j imleikar kl. 4 e. h.
Flytur Valdimar Björnsson
bíaðafulltrúi þar stutt ávarp og
kynnir síðan einstaka liði. —
Bi-eski baritónsöngvarinn, Roy
Hickman, sem vakti mikla at-
hygli með hljómleikum sínum
; í sumar, syngur einsöng, en auk
| hans syngja þau einnig á þess-
'ari skemtun Miss Dee Jungers
'og Ragnar Stefánsson. Þá leik-
J ur mandóíínkvartettinn þar
einnig, en systurnar Sibyl og
Ruth Urbantschiseh, sem eru 8
!og 12 ára að aldri, leika saman
á fiðlu og píanó. Þær eru báðar
nemendur í Tónlistarskólanum
og hafa áður komið fram á nem
endakonsertum og vakið mikla
athygli fyrir fágaðan leik.
Aðrar skemtanir:
í Nýja Bíó verður kvik-
myndasýning kl. 1.30 e. h.
Kl. 2 e. h. verður Útvegs-
bankasalurinn við Lækjartorg
opnaður almenningi. Þar verða
ýmsar skémtanir og spil allan
daginn, þ. á. m. veðhjól og fleiri
leikir, sem kunnir eru frá út-
skemtunum Hringsins í Hljóm-
skálagarðinum.
Um kvöldið kl. 22 hefst dans-
leikur í Tjarnarcafé, og verður
þar einnig efnt til happdrættis
um blómskrýdda körfu með
ýmsu góðgæti.
Loks verða sýndir flugeldar
á Arnarhól, ef veður leyfir, þeg
ar skyggja tekur
Öll hjálp ókeypis.
Hringurinn kann hinum mörgu
listamönnum, sem á skemtun-
um hans koma fram, ágætustu
þakkir, því að þeir hafa allir
boðið störf sín ókeypis. — Þá
hefir hershöfðingi Bandaríkja-
hers, með atbeina sendiráðs
Bandaríkjanna, látið Hringnum
Tripolileikhúsið í tje ókeypis,
en ameríski Rauði Krossinn
ljeði Hringnum til afnota sín
fágætu leikspil og ýmsa aðra
hjálp, auk þess sem listamenn
hersins veita veigamikla að-
stoð. Kvikmyndahúsin hafa öll
verið lánuð til afnota endur-
gjaldslaust, en margvisleg önn-
ur hjálp verið fúslega veitt án
endurgjalds, svo sem prentun
öll og annar undirbúningur. —
Kann stjórn Hringsins eigi nóg
samlega þakkað þá dýrmætu að
stoð. En hún sýnir raunar að
barnaspítalamálið er öllum al-
menningi hjartfólgið, og að all-
ir eru af vilja gerðir að hjálpa.
Sjóðurinn neinur 780.0000 kr.
Samkvæmt bráðabirgðaupp-
gjöri nemur barnaspítalasjóður-
inn nú rúmum 780.000 krónum,
og eru þá ótaldar nokkrar ó-
innheimtar tekjur.
Sjóðurinn ekki nógu stór.
Sjóðurinn er enn ekki orðinn
nándar nægur til þess að hægt
sje að hugsa til að fara að
byggja. Þyrfti hann að þrefald-
ast áður, að minsta kosti. En
stjórn Hringsins hefir haft til
athugunar tillögur að fyrir-
komulagi og reksturstilhögun
og mun leggja þær fyrir heil-
brigðisstjórnina, áður en handa
verður hafist. Verður víðtæk
athugun látin fram fara, áður
en á byggingu verður byrjað,
enda sjálfsagt að vanda til spít-
alans sem best í allan stað.
Reykvíkingar eiga að þessu
sinni kost á óvenjufjölbreyttum
og menntandi skemmtunum, og
auk þess er að vænta að aðsókn
bregðist ei, þegar saman fara
merkileg skemtiatriði og gott
málefni, sem allir hafa sýnt að
þeir vilja af alhug styrkja.
Aukning vatnsveit-
unnar samþykf iil
fullnustu
AUKNING vatnsveitunnar
var samþykt við 2. umræðu í
bæjarstjórn í gær.
Borgarstjóri skýrði frá því,
að hann hafi fengið umsögn
innkaupastjóra og vatnsveitu-
stjóra um skýrslu Sigurðar
Thoroddsen um vatnsveituna.
Höfðu þeir ekki gert aðrar at-
hugasemdir en þær, að þeir
teldu ráðlegt að hafa minna af
trjepípum en Sig. Thoroddsen
lagði til. Þetta væri fram-
kvæmdaatriði óviðkomandi að-
alefninu.
Tillagan, sem samþykt hafði
verið til 2. umræðu, var síðan
borin upp og samþykt í einu
hljóði. Hún var svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Reykjavíkur
samþykkir að leggja nýja
vatnsveituæð frá Gvendar-
brunnum til bæjarins, sem geti
flutt alt að 290 sekúndulítra af
vatni.
Felur bæjarstjórnin bæjar-
ráði að hraða framkvæmdum
eftir föngum, þannig að þeim
verði lokið haustið 1946.
Jafnframt felur bæjarstjórn
bæjarráði að taka nauðsynleg
lán til framkvæmdanna og
veiti borgarstjóra heimild til
að undirrita hverskonar
skuldabrjef, sem gefin verða út
vegna lántökunnar.
verið máluð _að innan ,
+•—-——..— ---------+
VísHalan hækk-
ar um 7 stig
KAUPLAGSNEFND og
Hagstofan hafa reiknað út
vísitölu framfærslukostn-
aðar fyrir yfirstandandi
mánuð. Reyndist hún vera
285 stig, eða 7 stigum
hærri en í síðasta mánuði.
Hækkun þessi stafar að-
allega af hækkuðu verði
á mjólk og mjólkurafurð-
um, hækkun sjúkrasam-
lagsiðgjalda, hækkuðu slát
urverði og verði á strá-
sykri og kaffi.
Próf. Guðm. Thor-
oddsen á fundi
sambandsstjórnar
R. K.
FÝRIR nokkru barst Rauða
Kross íslands beiðni nm aði
senda fulltrúa á Alþjóðarauða
krossfund í Genf þann 15. þ.’
mán. og ennfremur fulltrúa
á fund sambandsstjórnai' Al-
þjóðarauðakrossins, er halda
á í París 14. nóv. n.k.
Hefir framkvæmdanefnd
Rauða Kross Islands ákveðið!
að senda fulltrúa á báða þessa
fundi og valið til þess prófes-
sor Gúðmund Thoroddsen, en
hann hefir átt sæti í stjórn
R.K.Í. frá stofnun hans. Fór
prófessor Thoroddsen með
flugvjel áleiðis til Englanda
þann 16. þ. mán.
Þá hefir Norski Rauði Krosa
inn farið þess á Ieit að Ra'uði
Kross Islands sendi fulltrúa
til Oslo þann 4. nóv. í til-
efni af 80 ára afmæli Norska
Rauða Krossins.
Hátíðarguðsþjón-
usla í Hvalsnes-
kirkju á sunnudag
Á HUNNUDAGTNN kemur,
verður haldin hátíðarguðs-
þjónusta í Ilvaneskirkju áj
Miðnesi kl. 1 e. h. í tilefni af
því að mikil viðgerð hefig
farið fram á kirkjunni. Yerðj
ur herra biskupinn, Sigurgeir(
Sigurðsson viðstaddur, ásanitj
prófasti og sóknarpresti.
Yiðgerð á kirkjunni hófst
} marsmánuði í vetur og var
ekki iokið fyrr en í ágiistmán-
uði. Múrverk alt var riíið
innan úr kirkjunni og vikur-
einangrun sett í staðin. Bekk-
ir allir endurbygðir svo í
kirkjunni eru nú hin þa'gi-
legustu sæti. Kirkjan hefir öli