Morgunblaðið - 04.12.1945, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.12.1945, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIÐ. Faxaflói: Gengur sennilega í hæga suð- eða suð—vestan átt. Snjókoma. Þriðjudagu'r 4. desember 1945. . STJÓRNMÁLAÞRÓUNIN í Færeyjum, síðari grein Erlends Paturson. — Bls. 9. h rjár aSaílsiSir 301(1» iyrir ijaii Á landabrjefinu eru dregna r upp þrjár leiðirnar austur: A alleiðin um Þrengslin og vara- leiðirnar tvær, um Krýsuvík og Þingvöll. — Sjá grein á bls. 5. Samgðngur teppast milli Akureyrar og Reykjavíkur SAMGÖNGUR milli Akureyr ar og Reykjavíkur hafa nú al- gjörlega teppst. Einnig er ófært milli Húsavíkur og Akureyrar. Bílar, sem fara frá Akureyri komast ekki lengra en að Bakka seli. En bílar, sem ætla til Ak- ureyrar*komast að Vatnsskarði Þá er Öxnadalsheiðin sjálf ó- fær. — Þar standa 4 eða 5 bíl- *ar fastir í snjó. Hraðferðin, sem fór hjeðan frá Reykjavík áleiðis til Akur- eyrar s. 1. föstudag, fór ekki lengra en til Blönduóss. — Með hraðferðinni var nokkuð af pósti. Hann mun koma til Ak,- ureyrar með Esju. I gærmorgun ætluðu 3 bílar að fara frá Húsavík til Akureyr ar. — Þeir urðu að snúa við á Fljótsheiði. — Þá er Vaðlaheiði in, Akureyrarmegin orðin ófær. Símabilanir. Samkvæmt símtali við stöðv- arstjórann á Borðeyri, er síma- sambandslaust við Isafjörð og Patreksfjörð. Munu sjö síma- staurar hafa brotnað við Seyð- isfjörð í veðurofsanum aðfara- nótt laugardags. I gærkveldi hafði ekki frjettst um neinar símabilanir fyrir vestan Þorskafjörð, en vestur í Djúpi hefir fent fje bænda og er óvitað enn hversu margt. EMhúsumræður í byrjun næsiu viku ELDHÚ SUMRÆÐUR munu fara fram frá Alþingi í byrjun næstu viku. Verða þær tvö kvöld, á mánudag og þriðju- dag. Fjárlölgin eru nú að koma frá nefnd. En það er gömul þing- venja, að eldhúsumræður fari ftam við framhald 1. umr. fjár- laga. Tæpl. 600 manns ferðuðust ii! og frá landinu í NÓVEMBERMÁNUÐI komu hingað til landsins, frá útlölndum 300 manns. Til út- landa fóru í mánuðinum 298. Með skipum komu 213 manns með flugvjelum ATC komu 59, með flugvjelum SILA kom 21 farþegi. — Þá komu sjö farþeg ar með flugvjelum sem ann- ast flug fyrir breska stuliðið. Samkvæmt þessu hafa 87 manns komið hingað loftleiðis. Tala þeirra er fóru til út- landa skiftist þannig, að með skipum fóru 224. — Loftleiðis fóru 74.--Flugvjelar ATC fluttu 41 farþega, flugvjelar SILA 26 og breskar flugvjelar 7 farþega. Þess skal getið, að hjer er að- eins um að ræða þá, er haft hafa hjer lengri eða skemmri dvöl. Próf. Guðm. Thoroddsen kominn heim PRÓFESSOR Guðm. Thor- oddsen er kominn heim af full- trúa fundi Alþjóðarauðakross- ins. — Fundurinn var haldinn í París, en áður hafði undirbún- ingsnefnd fundarins starfað um þriggja vikna tíma í Genf. — Alhugun á hæfni varðbáianna nýju MORGUNBLAÐIÐ sneri sjer til Finns Jónssonar dómsmála- ráðherra og spurði um álit hans á hinum nýju varðbáturh ríkis- ins. — Jeg fór á dögunum reynslu för til Isafjarðar á einum varð- bátnum, sagði dómsmálaráðherr ann. Ferðin vestur tók 15 M: tíma, enda var risjuveður. 7— Það er ljóst, sagði ráðherr ann ennfremur, að ýmsu er á- bótavant um búnað bátanna og einnig um aðbúnað fyrir skip- verja. Hitt þykir mjer ekki sennilegt, að bátarnir sjeu ekki traustir, því að þeir voru byggð ir fyrir breska flotann. — En um hæfni, þeirra til vetrar- ferða hjer við land og til þess að annast landhelgisgæslu og björgunarstarf, get jeg ekki dæmt um á þessu stigi. Að lokum sagði ráðherrann: Nú verður látin fara fram at- hugun á skipunum og hæfni þeirra til þessara starfa. — Að þeirri athugun lokinni mun Skpiaútgerð ríkisins birta greinargerð um skipakaupin og skýra frá niðurstöðum athugun arinnar. - Fari svo, að skipin reynist ó- hæf til strandvörslu og björg- unarstarfa, verður reynt að ko’ma þeim í aðrar þarfir. En þetta myndi seinka mjög, að hingað fengjust hentug skip til landhelgis- og björgunarstaría. Cuðjón Einars- son form. V.R. AÐALFUNDUR Verslunar- mannafjelags Reykjavíkur Var haldinn í gærkveldi í Lista- mannaskálanum. Stjórnarkosn- ing fór þannig: Formaður var kjörinn Guðjón Einarsson (Eimskip). — Með- stjórnendur í 2 ár: Baldur Pálmason, . Carl Hemming Sveinsson og Björgúlfur Sig- urðsson. Meðstjórnandi í eitt ár: Sveinn Ólafsson. í varstjórn hlutu kosningu Gunnar Ásgeirsson, Gunnar Magnússon, og Sveinbjörn Árna son. Fyrir voru í stjórninni: Konráð Gíslason og Pjetur Ól- afsson. Úr stjórninni gengu og báð- ust undan endurkosningu: Odd ur Helgason, formaður, Luð- víg Hjálmtýsson og Lárus Bl. Guðmundsson. ísfisksalan: s.l. vikii í VIKUNNI sem leið seldu 9 íslensk fiskiskip afla sinn í Flleetwood og eitt í Aberdeen. Söluhæsta skipið var bv. Bel- gaum frá Reykjavík, er seldi 2906 kitts fryir 9.603 sterlings- pund. — Aflahæsta skipið var bv. Hafstein, 2936 kitts. Ms. Eldborg seldi í Aberdeen 2121 kits, fyrir 5.659 sterlings- pund. Bv. Belgaum seldi 2906 kits fyrir 9.603 pund. — Bv. Tryggvi gamli seldi 2641 kits, fyrir 9.329 pund. Bv. Haukanes seldi 2695 kits, fyrir 7.878 pund Skinfaxi seldi 2606 kits fyrir 8078. Bv. Júní seldi 2718 kits, fyrir 5.101 pund. Bv. Vörður seldi 2750 kits fyrir 6.176 pund. Ms. Fell seldi 1819 kits fyrir 2.798 pund. Bv. Hafstein 3936 kits, fyrir 5.521 pund. og bv. Kópanes 2340 kits, fyrir 5.771 sterlingspund. Fjölmenn árshátið Sjálfslæðismanna í Hafnarfirði SJÁLFSTÆÐISFJELÖGIN í Hafnarfirði hjeldu síðastliðinn laugardag, 1. des., hina árlegu árshátíð sína að Hótel Þresti. Var fjölmenni svo mikið, að margir urðu frá að hyerfa sök- um rúmleysis. Skemmtunin hófst með kaffi- samdrykkju og Ijek 3 manna hljómsveit, undir stjórn Óskars Cortes, ljett klassisk lög, með- an setið var undir borðum. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins í Hafnarfirði, Bjarni Snæ- björnsson, setti skemtunina og stýrði henni, en aðal ræðu kvöldsins flutti Jóhann Þ. Jós- efsson, alþingismaður. Að ræðu hans lokinni, skemti mandólín- hljómsveit með hljóðfæraslætti. Auk áðurgreindra ræðumanna töluðu eftirfarandi: Þorleifur Jónsson, bæjarfulltrúi, Stefán Jónsson, . bæjarfulltrúi, Árni Ágústsson, formaður Stefnis, frú Jakobína Mathiesen, formað ur Vorboðans, Páll Daníelsson, framkvæmdastjóri og Ingibjörg Ögmundsdóttir, símstöðvarstjóri. Að lokinni kaffidrykkju var dansað fram eftir nóttu. Þessi skemtun sjálfstæðisfje- laganna bar það með sjer, að Sjálfstæðismenn munu eiga miklu fylgi að fagna í kosning- um þ'eim, sem nú standa fyrir dyrum. Var það eftirtektarvert, hversu bæði eldri sem yngri virðast hafa skipað sjer um mál efni flokksins. Flandin fyrir rjetti. LONDON: Mornet, hinn opinberi franski ákærandi, hef ir lýst það tilhæfulaust, að Churchill verði kvaddur sem vitni í málaferlunum gegn Flandiip- hinum franska stjórn- málamanni. Brúarfossi um sólarhring vegna óveðurs BRÚARFOSS kom hingað á sunnudaginn frá Leith. Hreppti skipið hið versta veður í hafi og varð að liggja til drifs. Brotsjór kom á skipið^og braut bát og laskaði bátsuglur. Var skipið sólarhring eftir áætlun vegna óveðursins. Með skipinu voru eftirtaldir farþegar: Geir Borg framkvstj., frú Guðrún Borg, Tómas Pjeturs- son, stórkaupm., Guido Bern- höft stórkaupm., Jón Möller full trúi, Friðrik Bertelsen stórkaup maður, Geir H. Zoega forstjóri, Hjeðinn Valdimarsson forstjóri, Gunnar Guðmundsson, stór- kaupmaður, Arthur Gook (frá Akureyri) frú Wright með barn frú E. J. G. Hannan með barn, frú Cooney, frú Lindsey með barn, ungfrú A. Jansson, ungfrú J. Taylor, A. Ledingham, F. Carter, frú Valgerður Could, ungfrú Witaker, B. Gíslason, R. Ólafsson, Haraldur Bjarnason, G. Friðriksson, Lárus Johannes- son, R. T. Johannesson, Hard- ing Johansen og A. Hagvaag. Nr. $2237 kom upp í happdræili Sjálfsfæðisflokksins 0 DREGIÐ var í gær í skrif- stofu borgarfógeta í happdrættí Húsbyggingarsjóðs Sjálfstæðis- flokksins og kom upp nr. 52237. Vinningurinn var einn af glæsi- legustu vinningum, sem veittur hefir verið nokkurn tíma, eða fjögra herbergja íbúð í nýtísku húsi, á hitaveitusvæðinu. íbúð- in er með öllum húsgögnum og hin fullkomnasta að gerð. Nr. 31006 og 18277 hlirtu viimingana DREGIÐ var í happdrætti Norræna fjelagsins hjá borgar- fógbta í gær. Vinningarnir; lentu á þessi númer: 31006 ársdvöl við háskólanám á Norðurlöndum og 18277 ferð til allra höfuðborga Norður- landa með greiddri fjögra daga dvöl á hverjum stað. Ekki var blaðinu kunnugt í gærkveldi, hverjir eða hver iief ir hlotið þessa glæsilegu vinn- inga. ÚRSLITALEIKURINN f bridgekepninni fer fram í kvöld kl. 8 e. h., Spilað verður að Röðli. Leikar standa nú þannig f stigum: Gunnar Möller hefir 16; stig, Stefán Þ. 14 stig, Guð- mundur Ó. 13 stig, Gunnar Við- ar 12 stig, Gunngeir 10 stig, Guðlaugur og Jóhann hafa 8 stig hvor, Jens og Sveinbjörn hafa 6 stig hvor, Ragnar hefig 4 stig og Jón 3 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.