Morgunblaðið - 06.02.1946, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.02.1946, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 6. febr. 1946 MORGÐNBLAÐIÐ a f 2 t t t t t •> ^ *•••• ♦■ •« ♦' ♦• •♦ -••-♦•-♦--♦ •♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦♦•♦•♦♦ ^J{venj)jó£in o<£ ^JJeimiliÁ Fyrsti kvenmáloromeistari í heimi er íslenskur HJER Á LANDI eru konur nú óðum að koma fram á flest um sviðum athafnalífsins, þó að enn sje miklu ábótavant um, að þær njóti þar sömu rjettinda og karlmennirnir. En einu geta ís- lenskar konur stært sig af öðru fremur ■—- úr þeirra hópi er fyrsti kvenmálarameistari í heimi! Sú kona hlýtur að hafa verið bæði kjarkmikll og áræð in, sem um aldamótin síðustu bauð þröngsýninni og hleypi- dómunum byrgin og rjeðist inn á verksvið karlmannanna — rjeðist í það, að verða húsamál- ari, fyrst allra kvenna. — Kona þessi er frú Ásta Árnadóttir Norman, dóttir Árna Gíslasonar barnakennara og bónda í Narfakoti, Njarðvíkum, og Sigríðar Magnúsdóttur konu hans. (Hún er því systir Magn- úsar listmálara, Ársæls og þeirra systkina). Frú Ásta er gift vesturís- lenskum manni, Jóhanni Nor- man, og eiga þau hjón 3 börn. Hún er nýkomin heim frá Vest- urheimi, eftir rúmlega Í5 ára útivist og ætlar að dvelja heima í eitt ár. Jeg hitti hana í gær á heimili sonar hennar, Njáls Þórarins- sonar, og var erindið að biðja hana að segja lesendum Morg- unblaðsins eitthvað af því, sem á daga hennar hefði drifið, á viðburðarríkri ævi. Tók hún mjer mjög alúðlega og fer frá- sögn hennar hjer á eftir. Fyrstu árin. — Jeg byrjaði að mála skömmu eftir aldamótin eða ár- ið 1903. Jeg fór til Jóns Reyk- dal og bað hann að taka mig í vinnu. En það ætlaði nú að ganga erfiðlega að komast að hjá honum. Hann tók því fjarri fyrst í stað — skildi ekki, hvað jeg, kvenmaðurinn hefði að gera með það, að læra að mála. Það væri eingöngu karlmanns- verk. En svo fór að lokum, að hann ljet sig og jeg var hjá hon um í tæpt ár. Fyrsta húsið, sem jeg málaði, var Ingólfshvoll. — Svo lærði jeg hjá N. S. Berthel- sen í nærri 3 ár. En mig langaði til þess að sigla og fullkomna mig í iðninni. Jeg rjeðist því í að fara til Kaupmannahafnar haustið 1906 — þó að peningarn ir væru af mjög skornum skammti og jeg kynni lítið í dönksu. Þar tók eg sveinspróf vorið 1907 og fjekk bronseme- dalíu fyrir prófsmíð mífia. — Fjekk jeg þá leyfi til þess að ganga í teikniskóla, sem engin kona hafði haft aðgang að áð- ur. — Um sumarið vann jeg heima en fór svo út um haust- ið til þess að ganga í fyrrnefnd an skóla. Fjekk jeg þá í fyrsta og eins sinnið styrk — hluta af iðnaðarmannastyrknum — af því að jeg var fyrsta konan, sem fjekk aðgang að skólan- um. Til Þýskalands með tvær hendur tómar. Vorið 1908 var lítið um vinnu VéJ uú frá ^jjóta ^lrriaclóttnr Vjc í Höfn og rjeðu flestir mjer til þess að fara heim. En jeg vildi læra meira -—• og lagði því af stað til Hamborgar, með tvær hendur tómar — og kunni ekki orð í þýsku! Jeg fjekk fljótlega vinnu og lauk þar meistara- prófi 1910. í Þýskalandi fanst mjer gott að vera. Jeg ferðaðist dálítið um — fór til Berlínar og Dresden. Dresden var yndisleg borg. Jeg hafði mikinn áhuga á æðri list, svo að þjer getið í- myndað yður, hvort jeg hafi ekki unað mjer vel innan um alla listmunina þar. — Jæja, þegar jeg hafði lok ið meistaraprófi, hjelt jeg aftur heim til Reykjavíkur. Þar vann jeg svo í 10 ár. <■ — Altaf nóg að gera? — Já, meira en það. •— Jeg hafði oft marga menn í vinnu. Jeg hafði fjóra lærlinga og tvær stúlkur byrjuðu að læra hjá mjer. En eftir að jeg kom vest- ur, hafði jeg aldrei neina lær- linga. » — Hvernig stóð á því að þjer fóruð til Ameríku? — Jeg fór eiginlega bara að gamni mínu og til þess að hvíla mig. Ætlaði í fyrstunni ekki að dvelja þar nema í eitt ár. En það fór nú öðruvísi en ætlað var. Jeg varð 24 árum lengur en jeg ætlaði mjer! Sama árið og jeg kom þangað giftist jeg svissneskum manni, Jakob Thöni. Við höfðum skrifast á í 13 ár, en aldrei sjest — Hann hafði mikin-n áhuga á Islandi og öllu, sem íslenskt var. Jeg missti hann eftir 3 ára hjóna- band. Þá fór jeg að mála aft- ur — og hefi málað sleitulaust síðan. Ætlar að halda sýningu. — Hvað hafið þjer helst málað? — Jeg hefi málað hvað sem er — skóla, kirkjur, íbúðarhús, verslunarhús, skilti o. s. frv. — Yfirleitt allt, sem nöfnum tjáir að nefna. — Svo hefi jeg feng ist ofurlítið við æðri málaralist — bætir hún við, og brosir. Jeg var nú komin yfir fimmtugt, þegar jeg fór að fást við hana nokkuð að ráði. Gekk í skóla í Seattle, sem kpna að nafni Mrs. Sambardo hefir. Jeg kom með nokkrar af myndunum mín um með mjer, og er kannske að hugsa um að halda á þeim sýn- ingu, ásamt ljósmyndasafni sem jeg á — ef ske kynni, að einhver hefði gaman að því. • Mikill safnari. Annars er jeg mikill safnari. Jeg safna öllu mögulegu —alls- konar myndum, ilmvatnsglös- um, netakúlum -— og yfirleitt öllu, sem mjer finnst gaman að. Og síðast en ekki síst, safna jeg' öllu, sem íslenskt er. Hefi aldrei hent staf af því, sem jeg ormaa alveg göturnar, sem jeg þekkti einu sinni, svo að jeg ætla varla að finna þær. En Esjan og fjöllin hafa ekki breytst. — Þau eru eitt af því fáa, sem er óbreytanlegt hjer í lífinu. Það var alveg unun að sigla hjer inn. Við hrepptum vont veður á leiðinni hingað — storm og kulda — en það var eins og hlýnaði altaf eftir því, sem nær dró íslandi. —- Hvernig líst yður á fólk- ið? — Alveg prýðilega. Þið haf- ið verið að skrifa um það í blöð in ykkar, hve mikið væri af ókurteisum börnum her í Reykjavík. Jeg hefi ekki sjeð þau. Mjer finnst börnin hjer , vera prúð og vel uppalin — að * minnsta kosti þau, sem jeg hefi | sjeð — og mjer finnst unga fólkið hafa fríkkað svo mikið og stækkað. Sömu laun fyrir sömu vinnu. — Hvernig stóð annars á því, að yður datt í hug að verða málari? — Mig langaði til þess að hjálpa móður minni. Við vor- Frú Ásta Árnadóttir Norman. * hefi fengið sent á íslensku. — Morgunblaðið hefi jeg fengið sent í 19 ár. Jeg á 10 síðustu árgangana af því. Hitt glataðist í brunanum. — Brunanum? — Já. Húsið okkar brann 12. febr. ’36. Við höfum búið á sama stað í 20 ár, á Point Roberts. — Það er tangi, um það bil 100 milur frá Seattle. Þar námu Is- lendingar fyrst land. Þar eru góðar laxveiðistöðvar og góður baðstaður. í þorpinu búa um'um mörg, systkinin. Jeg var 400 manns — meiri hlutnin ís- | næstelst. Við misstum föður lendingar. — Það er fallegt á okkar, þegar jeg var ung. Jeg tanganum. Annars hefði jeg rjeði mig þá í vist. Fjekk tíu ekki unað mjer þar öll þessi ár i krónur í kaup á ári. Það hrökk — svona fjarri íósturjörðinni. * skammt. Jeg vildi vinna mjer Jeg hefi altaf haft heimþrá. —, inn meira — og málningarvinna Altaf langað heim. var sæmilega borguð. — Eftir að jeg fór að mála, fjekk eg Reykjavík fallegasta borgin. altaf sömu laun °S karlmenn- — Hvernig líst yður svo á lrnlr- Reykjavík, eftir öll þessi ár? — Jeg elska Reykjavík! — Mjer finnst það yndislegasta Frú Ásta brosir góðlátlega. — Jeg var vön að vera í kyrtli. En upp á síðkastið er jeg oftast klædd í samfesting, eins og það er víst kallað. Það er þægileg- ur búningur. Ætlar að skrifa ævisögu sína. — Hefir yður aldrei þótt erfitt, að vera bæði húsmóðir og málari? — Það hefir rekist furðan- lega lítið á. Jeg Hefi altaf verið hraust. Og jeg hefi altaf haft góða hjálp, svo að það hefir blessast allt saman. — Jeg er að hugsa um að skrifa ævisögu mína með tímanum. — Eru,ð þjer ekki orðin þreytt á því að mála? — Nei, svarar frúin brosandi. Jeg skil ekkert í, að fleiri stúlk ur skuli ekki hafa valið sjer þann stárfa. Það er gaman að mála. Jeg hugsa, að jeg verði aldrei þreytt á því — hvað gömul, sem jeg verð. M. Ætlaði að verða „Ásta málari“. — Urðuð þer aldrei að þola borgin í öllum heiminum! Breyt hæðni karlmannanna, sem með ingarnar eru orðnar æði mikl- yður unnu? Frú RooseveH var eitt sinn spurð að því, hvaða eiginleika væri æskilegt að sú kona hefði, sem biði sig fram til þings. Svar hennar var á þessa leið: . Hún ætti að vera ung, hraust og heilbrigð. Hún ætti að hafa góða menntun, og æskilegt væri, að hún hefði einhverja stjórnmálareynslu. Hún ætti að hafa ákveðnar skoðanir á því, hvað hún hyggur þjóðinni í heild fyrir bestu og einnig ætti hún að hafa einhverja hug mynd um það, hver staða þjóð- arinnar er í heiminum í dag. ar frá því jeg var hjer síðast. Allar þessar stóru byggingar, sem hafa risið upp og allar þess ar fínu götur. Húsin yfirgnæfa Frú Asta við vinnu sína. — Nei — furðanlega litið. — Það voru helst götustrákar, sem stundum skemmtu sjer við það, að kalla á eftir mjer. Ann- ars voru börnm góðir vinir mínir. Jeg gaf þeim kítti. Þeim fanst heldur en ekki matur í því. Einu sinni var lítill dreng- hnokki spurður að því, hvað hann ætlaði að verða, þegar hann væri orðinn stór. ,,Jeg ætla að verða Ásta málari, þeg ar jeg er orðinn stór“, svaraði sá litli! Islenski búningurinn vakti mesta athygli. —- Vakti það ekki mikla at- hygli í Danmörku og Þýska- landi, þegar þjer komuð þang- að til málaranáms? — Jú, jú. En samt var það ekkert, sem vakti aðra eins geysiathygli og þegar jeg fór út í íslenska búningnum. Jeg vgrð i oftast að fá lögreglufylgd til þess að komast leiðar minnar“. — Hvernig eruð þjer klædd við vinnu yðar? get jeg ekki stiílt mig um að spyrja. Keimilisdagbókin Cvo nefnist bók, sem nýlega er komin í bókaverslanir. Hún er ætluð húsmæðrum, til þess að færa í hana dagleg útgjöld heimilisins. I henni eru nöfn öllum útgjaldaliðum, sem varða íslensk heimili, og er niS urröðun þeirra vel og hagan- lega fyrirkomið. Það er góð regla, sem flestar húsmæður ættu að temja sjer, að færa heimilisdagbók. Með því má spara margann eyririnn. Það er þvi ekki að efa, að ís- lenskum húsmæðrum mun þykja fengur í því, að fá þægi- lega handbók til þeirra hluta. Vitið þjer— — Að vaxblettum má ná úr þannig: Vaxið er skafið varlega af. Síðan er þerriblað lagt á blettinn og strokið yfir með heitu járni Verður að flytja þerriblaðið til eftir því, sem það hefir sogið í sig íituna. — að vaxkerti drjupa lítið, ef þau eru lögð í saltvatn, rjett áður en kveikt er á þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.