Morgunblaðið - 14.02.1946, Qupperneq 5
Fimtudagur 14. febr. 1946
MORGUNBLAE'IÐ
5
Grunnmynd af nýja bæjarhúsinu
I £
ÞETTA er grunnmynd af tveim íbúðum í nýja húsinu, tveggja og þriggja herbergja.
Nýtt bæjarhús með
32 íbúðum
Rauða Kross söfnunin
FYRIR nokkru síðan var
byrjað að grafa fyrir nýju,
glæsilegu íbúðarhúsi sem
Reykjavíkurbær lætur byggja.
Húsið stendur á gatnamótum
Miklubrautar og Lönguhlíðar.
í húsinu verða 32 íbúðir. Þar
af verða 8 þriggja herbergja.
Þær verða 1 sitt hvorum enda
hússins. Hinar 24 íbúðirnar eru
2ja herbergja. Auk þess fylgir
hverri íbúð eitt herbergi
í þakhæð. Framhlið hússins
snýr til suðvesturs.
Húsinu verður skipt niður í
fjóra parta. — í hverjum þeirra
verða átta íbúðir. Fyrir þessar
átta íbúðir verða sameiginlegt
þvotta- og þurkhús og stór
geymsla fyrir barnavagna og
reiðhjól í kjallara. Komið verð
ur fyrir niðurfallsrörum, fyrir
sorp, líkt og í bæjarhúsunum á
Melurium — þannig að sorp-
ið er látið inn um lúu af stiga
palli, en þaðan fer það niður í
sorpgeymslu sem er í kjallara.
Hús þetta verður töluvert
stærra heldur en annað bæjar-
húsanna á Melunum. En hvort
þeirra er 476 fermetrar og um
7000 rúmmetrar með 24 íbúð-
um. — Þetta hús verður 645
fermetrar og 9674 rúmmetrar.
íbúðirnar eru rúmgóðar. — T.
d. verður þriggja herbergja
íbúðin 98.48 ferm. Tveggja her
bergja íbúðirnar verða um 75
ferm. að stærð.
Það eru húsameisararnir
Einar Sveináson og Gunn-
ar Ólafsson, sem gert hafa teikn
ingu að húsinu. — Þeir Guðjón
Vilhjálmsson, trjesmíðameist-
ari og Davíð Jónsson, múrara-
meistari, hafa tekið að sjer bygg
ingu hússins. Eftirlit með fram
kvæmd verksins, hefir Jens Ey-
jólfsson eftirlitsmaður með
byggingarframkvæmdum bæj-
arins.
Matarskamturinn
minkaður í
Ausiurríki
London í gærkveldi.
HERRÁÐ bandamanna í
Austurríki kom saman til fund
ar í Vínarborg í dag, og sam-
þykkti að að öllum líkindum
yrði nauðsynlegt, að minnka
matarskammt þar í landi. —
Skamturinn er jafnvel núna á- i
kaflega lítill og hvergi - nærri
nægilegur. Líklegt er talið, að
skamturinn verði þó aðeins
minkaður við þá, sem ekki eru
taldir stunda neina atvinnu.
FENGU GOTT KAUP
London- Síðastliðið ár voru
7000 landbúnaðarverkamenn
frá Jamaica í vinnu í Banda-
ríkjunum og sendu heim til sín
3 milj. sterlingspunda. Á þessu
ári munu 12000 í viðbót fara í
vinnu til Bandaríkjanna.
Til Rauða Krossins, afhent
Mbl.
Drifa kr. 50.0.0, Sigurður 100
V. B. 70,00, Emma og Elsa
20,00, frá Sápubúðinni 1000,00,
Ásta litla 20,00, Guðrún 50,00,
S. S. 25,00, .J G. 300,00, M. J.
100,00, G. K. H. 50,00, S. Br.
60,00, J. Á. 50,00, K. G. 100,00,
Lilla 25,00, 3 systkyni 50,00,
N. N. 50,00, Þ. Þ. 25,00, S. V. B.
10,00, Tómas 10,00, F. í. E.
100,00, N. N. 20,00, Lýdía 100,00
S. 250,00, Egill Jónsson 50,00,
V. Þ. Kjartansson 100,00, N. N.
50,00, í. S. 100,00, Tobbi og
Gunna 100,00, K. V. H. 50,00,
Tryggvi Ólafsson 30,00, Hafdís
og Aðalbjörn 100,00, Atli 50,00,
ónefndur 50,00, G. G. 15,00,
Jón E. Jónsson 50,00, N. N.
100,00, Dunni 25,00, ónefnd
10,00, 2 systur 20,00, Valdimar
50,00, S. S. og fjölskylda 100,00,
Ragnheiður Kristín Karlsdóttir
50,00, Ó. J. 100,00, ónefnd
100,00, J. G. J. 25,00, Helgi,
Nonni, mamma 30,00, Amma
20,00, H. S. 10,00, Þ. 100,00, L.
L. 50,00, N. 10,00, R. L. 20,00,
Oddur 20,00, ónefnd 50,00, G.
og B. 100,oo; M. Sk. 100,00, Árni
Th. 10,00, G. H. 120,00, N. N.
50,00, S. P. S. 10,00, Anna 20,00,
Á. V. B. 100,00, Jón Eyvík
100,00, frá barni 25,00, ónefnd-
ur 25,00, N. N. 20,00, Guðbjörg
Ólafsdóttir 25,00, Trausti 25,00,
Vilborg 50,00, G. 10,00, 3 syst-
kyn 170,00, Margrjet Sigurjóns
dóttir 20,00, U. B. 50,00, Gondi
25,00, Jens 50,00, Inga Lillý
100,00, ónefnd 120,00, Ó. J.
50,00, F. Ó. 30,00, O. S. 30,00,
Hjörney 25,00, N. N.. 50,00,.
Rannveig, Stebbi og Valdi, tek
ið úr sparibyssu kr. 29,29, ó-
nefdn 100,00, E. G. 100,00, S.
og G. 200,00, Jón Halldórsson
50,00, Pjetur litli 150,00, Guð-
raundur Ó. 100,00, K. G. 100,00,
Mæsí og Óli 50,00, Sigurður
10,00, Erla 10,00, Gyða, Gunna
og Dúddi 150,00, Har. S. Þor-
steinsson 50,00, J. E. 25,00,
kjallarabúi 165,00, Kalla 10,00,
Þóra 10,00, A. A. 20,00, K. T.
10,00, Anna 40,00, Á. B. 30,00,
Ottar og Haukur 100,00, R. T.
50,00, G. H. 20,00, Ninna 20,00,
fjölskylda Kratsch 100,00, G. B.
100,00, Hildur og Bói 200,00, F.
J. kr. 100,00.
Bindindisfundur
í Borgarnesi
SUNNUDAGINN 3. þ. m. var
haldinn almennur fundur* í
Borgarnesi til þess að ræða á-
fengismálin. Hafði ýmsum fjel-
ögum í nærliggjandi sveitum
verið boðin þátttaka í fundin-
um. Undirbúning og fram-
kvæmdir annaðist stúkan Borg,
en æðsti templar hennar er nú
Halldór Hallgrímsson klæð-
skeri.
Frá umdæmisstúku Suður-
lands mættu á fundinum, Viggó
Natanaelsson kennari, sem
sýndi kvikmyndina: „íslending-
ar á sljettunum í Canada“, og
Pjetur Sigurðsson, sem flutti
framsöguerindið. Umræður
urðu miklar á fundinum, tóku
margir til máls. Fundurinn var
fjölsóttur og stóð 3—4 klukku-
stundir. Eftirfarandi tillögur
voru samþykktar einróma:
Almennur fundur haldinn í
Borgarnesi sunnudaginn 3.
febr. 1946. til þess að ræða
áfengismálin, lítur svo á, að
áfengisneysla landsmanna sje
orðin slíkt þjóðarböl, að ekki
verði við unað. Fundurinn skor
ar því á ríkisstjórnina að láta
lögin um hjeraðabönn koma til
framkvæmda nú þegar.
Þá skorar fundurinn á öll
þau fjelög í landinu, sem sjer-
staklega vinna að . eflingu
menningar og góðra siða, og
aðra fræðslukrafta og úppalara
þjóðarinnar, að fyllya sjer sem
fastast um bindindismálið og
stefna markvíst að lokasigri.
Á fundinum mættu hátt á
annað hundrað manns. Fund-
arstjóri var Gísli Mágnússon,
Borgarnesi, og fundarritari
Sólmundur Sigurðsson, Borgar
nesi.
Hlv þingmál
ÞESSI þingmál hafa kornið
fram á Alþingi:
Hvera orka á Reyk-
hólum.
Gísli. Jónsson flytur svohlj.
þáltill. í Sþ.:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að láta þegar á
þessu ári fara fram rannsókn
því, hvort unt sje að fá nægi-
lega hveraorku á Reykhólum
til þess að framleiða rafmagn
fyrir væntanlegar stofnanir þar
og nærliggjandi sveitir1*.
Samgöngubætur í Barða-
strandarsýslu.
Gísli Jónsson flytur svohlj.
þál.till. í Sþ.:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að skipa 3 rnanna-
nefnd til þess að athuga og
gera tillögur um, á hvern hátt
kauptúnum og hreppum *
Barðastrandarsýslu verði fljót-
ast og hagkvæmast komið í aik-
vegasamband innbyrðis og sýsi
unni í samband við akvegakerfi
landsins, svo að unt sje a&
tnyggjn kauptúnunum nægilegæ
mjólk, bændunum örugga sölii
afurða og atvinnuvegunum í
sýslunni samgöngukerfi á borð
við aðra landshluta.
Skal nefndin skipuð þannig:
Vegamálastjóra, og verði hann
formaður nefndarinnar, einum
manni tilnefndum af stjóm
Búnaðarfjelags Islands og ein-
um manni af sýslunefnd Vestur
Barðastrandarsýslu. Skal nefnd
in hafa lokið störfum og skilað
áliti og tillögum fyrir 1. sept.
n.k. Kostnaður við nefndina
greiðist úr ríkissjóði“.
Meisfaramót •
Bridgefjelagsins
LEIKAR í annari umferð
fóru þannig: Sveit Einars B.
Guðmundssonar vann sveit Lár
usar Fjeldsted með 298 stig-
um gegn 284, sveit Harðar Þórð
arsonar vann sveit Lárusar
Karlssonar með 309 stigum
gegn 267, sveit Halldórs Dung-
al vann sveif Guðmundar O.
Guðmundssonar með 290 stig-
um gegn 286 ,og sveit Gunnars
Möllers vann sveit Gunngeirs
Pjeturssonar með 323 stigum
gegn 253.
Staðan er nú þannig í stigum.
Lárus Fjeldsted hefir 622 stig,
Hörður Þórðarson 606, Lárus
Karlsson 596, Gunngeir Pjetura
son 595, Gunnar Möller 570,
Halldór Dungal 569, Einar B.
Guðmundsson 526 og Guðmund
ur Ó. Guðmundsson 524 stig.
Næst verður spilað á mánu-
dag, 18. þ. m. kl. 8 e. h. — Þá
keppir sveit Lárusar Fjeldsted
við sveit Gunnars Möllers,
sveit Lárusar Karlssonar við
sveit Gunngeirs Pjeturssonar,
sveit Harðar Þórðarsonar við
sveit Guðm. Ó. Guðmundsson-
ar og sveit Halldórs Dungal
við sveit Einars B. Guðmunds-
sonar.
BÍLAR HANDA ÍRUM
LONDON: Bresku Austin-
bílaverksmiðjurnar munu inn-
an skamms byrja að starfrækja
Ibifreiðaverksmiðjur í Dublin,
Ihöfðuborg írlands.
ÞETTA er Ijósmynd af líkani af húsinu, sem Axel Helgason
hefir gcrt.