Morgunblaðið - 14.02.1946, Page 8
8
I0R6 ÖNBLAÐIÐ
Fimtudagur 14. febr. 1946
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Aust.urstræti 8.— Sími 1600.
Áskriftargjald: Kr. 8.00 á mánuði innanlands,
kr. 12.00 utanlands.
í lausasðlu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók.
Varist sundrungina
EITT veigamesta atriðið í málefnasamningi núverandi
ríkisstjórnar fjallaði um vinnufriðinn. Þar segir svo:
„Ríkisstjórnin leggur áherslu á að tryggja vinnufrið-
inn í landinu, og hefir í því skyni aflað sjer yfirlýsinga
frá stjórn Alþýðusambands íslands og framkvæmda-
nefnd Vinnuveitendafjelags íslands“.
Yfirlýsingar þær, sem hjer er vitnað til, gengu út á
það, að báðir þessir aðilar, Alþýðusamband íslands og
framkvæmdanefnd Vinnuveitendafjelags íslands, tjáðu
sig því fylgjandi, að kaupgjaldi yrði haldið óbreyttu í
meginatriðum til ársloka 1945. Lofuðu báðir þessir aðilar
að gera sitt til, að þetta mætti takast. Og ekki verður
með rjettu annað sagt en að staðið hafi verið við þessi
loforð. Að vísu urðu talsverðar breytingar á kaupgjaldi
víðsvegar um land á þessu tímabili, en það voru sam-
ræmingar og út frá þeim gengið.
★
Svo sem kunnugt er, var nýsköpunin grundvallaratriðið
í stjórnarsamningunum. En ríkisstjórninni var fjóst, að
nýsköpunin yrði aldrei annað en áferðarfallegt pappírs-
gagn, ef ekki tækist að tryggja vinnufriðinn í landinu,
meðan verið væri að koma nýsköpuninni í framkvæmd.
Þessvegna aflaði ríkisstjórnin sjer fyrrgreindra yfirlýs-
inga frá þeim aðilum, sem mestu voru ráðandi á þessu
sviði. t >
Yfirlýsingar tjeðra aðila um óbrevtt kaupgjald voru
bindandi til ársloka 1945. Hinsvegar voru fulltrúar verka-
lýðsflokkanna reiðubúnir að semja um þetta atriði til
tveggja ára. En ekki þótti fært að binda þetta til svo
langs tíma, vegna þeirrar óvissu sem ríkti um afkomu
atvinnuveganna.
Ríkisstjórninni var ljóst, að tilkostnaðurinn við fram-
leiðsluna var orðinn svo mikill, að stórfeldur taprekstur
gat dunið yfir, ef nokkuð bæri út af. Hinsvegar lýsti
ríkisstjórnin yfir þeirri grundvallarstefnu sinni, „að
tryggja það, að allir landsmenn geti haft atvinnu við
sem arðbærastan atvinnurekstur“. Þessu takmarki hugði
stjórnin að ná með nýjum og fullkomnum tækjum við
atvinnureksturinn. Að þessu er stefnt með nýsköpuninni.
★
Hafi verið þörf á því, að tryggja vinnufriðinn í land-
inu í október 1944, þegar núverandi ríkisstjórn var
mynduð, er þörfin áreið.anlega ekki minni í dag. Ný-
sköpunin er enn á byrjunarstigi. Fest hafa verið kaup
á mörgum nýjum og fullkomnum tækjum til atvinnu-
rekstursins. En þessi nýju tæki eru ekki enn komin í
atvinnulífið.
Hitt liggur hinsvegar ljóst fyrir öllum, að miklir erfið-
leikar steðja nú að aðal atvinnuvegi okkar, bátaútvegin-
um, vegna markaðstapa. Þar ríkir nú meiri óvissa en
nokkru sinni fyrr, meðan ekki hefir tekist að afla nýrra
markaða fyrir framleiðsluvöru/ia.
Með þessa staðreynd fyrir augum vekur það að von-
um furðu, að nú skuli stefnt út í kaupdeilur, sem reistar
eru á auknum kaupkröfum til handa verkafólki á landi.
En nú er stefnt inn á þessa óheillabraut, þar sem tvö
stærstu verkalýðsfjelögin, Dagsbrún í Reykjavík og Hlíf
í Hafnarfirði, hafa sagt upp kaupsamningum og gert
auknar kaupkröfur. Hvar þetta endar, verður ekki sjeð
á þessari stundu.
★
Núverandi ríkisstjórn náði strax í öndverðu mikilli
hylli hjá íslensku þjóðinni. Og fullvíst er að traust
þjóðarinnar til ríkisstjórnarinnar hefir ekki minkað,
heldur vaxið, eftir að kunnugt varð um framkvæmdir
hennar á sviði nýsköpunarinnar.
Segja má, að hið mikla nýsköpunarstarf ríkisstjórnar-
'innar sje rjett aðeins hafið. Öfl eru að verki, sem vilja
gera að engu þetta þýðingarmikla starf og koma ríkis-
stjórninni frá. Ríkisstjórnin og stuðningsflokkar hennar
verða því að gá að sjer í tæka tíð, ef ekki á illa að fara.1
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Yeitinga- og gisti-
staðir.
ÞAÐ ER ALTAF verið að
tala um erlenda ferðamenn og
að aðbúnaður á gisti- og veit-
ingahúsum, sem þeir sækja,
sje með öllu ófær og okkur til
skammar. En á hitt er sjaldan
minst og það eru innlendu ferða
mennirnir. Alt árið um kring
eru þó hundruð manna á ferð |
um landið og þurfa á beina^að
halda ekki síður en útlending-
ar.
Það vill svo vel til, að jeg
hefi nýlega fengið brjef frá
manni, sem hefir ferðast mik-
ið um landið, og sem einnig hef
ir ferðast mikið erlendis. Það er
margt gott í brjefi hans. En nú
skulum við lofa ferðamannin-
um að háfa orðið. Hann segir:
„Hr. Víkverji.
Viljið þjer ekki hefja fjörug-
ar umræður um gistihús, veit-
ingastaði og fei;ðamenn á Is-
landi? Oft hafa blöðin minst á
þetta; fleiri orð mun þó þurfa
til, en umfram alt róttækar að-
gerðir.
Ljelegar vcitingar.
„SENNILEGA þarf að setja
upp skóla til þess að kenna
mönnum að starfrækja gistihús
og veitingastaði. Veitingar eru
oft illaNútilátnar, matur mis-
jafnlega góður, stundum vond-
ur og illa matreiddur, stundum
líka ágætur. Sumir veitinga-
staðir hafa altaf gott að bjóða,
aðrir jafnan Ijelegt.
Oftast er kaffi á veitingahús
um bæði vont og hálfkalt, stund
um svo vont, að sá, sem drekk-
ur kaffið, ætti skilið borgun
fyrir að koma því niður. Það
er ósvífni að láta úti slíka vöru
fyrir hátt verð. Ljeleg gistihús
taka 30-—40 kr. yfir sólarhring
inn.
Stutt er síðan jeg kom inn í
veitingahús og sá kött stökkva
þar af einu borðinu á annað
og snuðra ofan í alt, sem fund-
ið varð. Á öðrum stað lá hund-
urinn uppi í legubekknum, þeg
ar hann rápaði ekki snuðrandi
um í veitingastofunni og inn í
eldhúsi. Hvað eiga hundar og
kettir að gera á slíkum stöð-
um? Þegar svo húsin eru eld-
gamlir hjallar og fullir af ó-
þef er mönnum nóg boðið.
•
Gistihúsin.
„FYRIR NOKKRU var mjer
vísað á svefnherbergi í gisti-
húsi. Jeg varð að afklæðast fyr
ir hálfopnum gluggum, engar
nægilegar dulur voru fyrir
gluggunum til þess að varna
hverjum sem vildi að glápa inn
í herbergið. Ekki var snagi í
herberginu til að hengja á föt,
ofurlítill klæðaskápur, en full-
ur af rusli, spegillinn á öfugum
vegg og ljósið svo dauft, að
ekki varð lesið við það, og
slökkvarinn auðvitað fram við
dyr.
Þá var jeg bæði sjónar- og
heyrnarvottur að því, hvernig
sama kerlingin tók til í her-
bergjum gestanna, bjó um rúm
in um leið og hún þvoði gólf-
in og handljek skólpfötur, án
þess að þvo sjer um hendur og
gera nokkurn mun á rúmfötum
og gólftuskunni. Því ekki búa
urrr rúmin fyrst í öllum her-
bergjunum og þvo gólfin á eft-
ir og hella úr skólpfötum?
•
Engin þrifnaðar-
tilfinning.
„ÞETTA FÓLK hefir engan
skilning á sjálfsögðum þrifn-
aði, og þetta er ósómi, sem verð
ur að leggjast niður, ef ekki á
verða þjóðinni til stórskamm-
ar, eftir því sem ferðamanna-
straumurinn eykst. Það er
ferðamönnum mikið angurs-
efni, ef þeir þurfa stöðugt að
búast við því, að fá óyndi þar
sem þeir leita sjer náttstaðar
og hressingar. Seljandinn má
ekki hugsa eingöngu um sig,
heldur og þann, sem kaupir.
Hjá því verður sjálfsagt ekki
komist, að stjórn landsins láti
þetta mál til sín taka, hefji
rannsókn og aðgerðir til úr-
bóta“.
•
Bílarnir á „Rúnt-
inum“.
EINKENNILEG skemtun er
iðkuð af furðanlega mörgum
ungum mönnum hjer í bænum,
en það er að aka hinn svokall-
aða „Rúnt“ í miðbænum fram
og aftur, stundum heil kvöld.
Bifreiðar þessar þekkjast úr frá
hinum, sem hafa eitthvað er-
indi á götum miðbæjarins, því
þær aka lú^hægt, en farþeg-
arnir hanga uti í gluggum bif-
reiðanna og virða fyrir sjer líf
ið á aðalgötu höfuðstaðarins.
Venjulega gengur útvarps-
tæki bifreiðarinnar af fullum
krafti og vegfarendur fá að
heyra dillandi dansmúsik, eða
fúgu eftir Bach, alt eftir því,
hvernig á stendur. Sumir hafa
með sjer harmonikuspilara.Við
og við kemur það fyrir, að þess
ir ,,rúntbílar“ nema staðar og
ungu mennirnir teygja álkuna
út úr gluggum bifreiðarinnar
og ávarpa blómarósirnar á göt-
unni. Flestar ansa ekki þessum
dónum, en aðrar skríkja dálít-
ið, ganga nokkur skref og láta
bilinn elta sig, en láta svo til
leiðast að koma upp í bíiinn og
þá er ekið af stað. Jeg spurði
ungan mann, sem stóð á göt-
unni hjer um kvöldið, hvað
þessir bílar væru að gera, því
jeg sá, að þeir trufluðu um-
ferðina.
„Þeir eru á veiðurn11, svaraði
pilturinn. — Þá veit maður
það.
; Á ALÞJÓÐA VETTVANGI |
. ... J
r f ■
ALDREI fyrr hefir Sankti
Pjeturs torgið, nje heldur St.
Pjeturskirkjan fræga í Róm
verið eins troðfull af börnum,
eins og hún var þann 27. jan.
s.l. Þar voru þá stödd 35.000
skólabörn úr Rómaborg, miklu
fleiri drengir en stúlkur komu
þangað í sjerhverju því farar-
tæki, sem fyrir hendi var, .og
hlaupandi í flokkum.
★
Það var niður af barnarödd-
um í hinni gömlu. veglegu dóm
kirkju, og unga fólkið laust upp
fagnaðarópum, þegar Páfinn
kom fram. Þau komu þarna í
helgidómínn, til þess að vera
við sjerstaka þakkarguðsþjón-
ustu, í. þakklætisskyni til
UNRRA 'fyrir hjálp þá, sem sú
stofnun hefir veitt börnum í
hinum stríðshriáðu löndum.
Páfinn flutti ræðu og sagði að
lokum:
„Velgjörðamenn ykkar, sem
hafa hjálpað ykkur svo ríku-
lega í neyð ykkar, eru boðber-
ar manngæskunnar, með slík-
um verkum er gæskan sjálf
breidd út.um heiminn, og þeir,
sem að því vinna, eru þess-
vegna frumherjar þess heims
góðvildar og friíar, sem koma
skal og koma verður.
nn ræðir um hjáip fil
Kveinstafir þjáðra barna rísa
nú frá þeim löndum, sem stríð-
ið hefir eytt og þjakað. Hungr-
uð, köld, lemstruð og klæðlaus
kalla þau á hjálp allra, sem
hana geta í tje látið. Á gðtum
borganna gefur að líta hópa af
börnum með holar kinnar,
varnarlaus eru þau og forsjár-
laus, og mörg af þeim lenda í
vegleysum glæpa og lasta. En
rödd þeirra er rödd komandi
kynslóðar, og hún krefst að-
gerða okkar, sem eldri erum.
Af munnum barnanna heyrum
við rödd skapara þeirra, þar
sem hann skorar á okkur með
röddu kærleikans. Og bæn mín
er sú, að blessun hans megi um
vefja ykkur öll“.
★
UNRRA hjálpar nú yfir
miljón börnum í Ítalíu með
sjerstökum matarskamti, auk
þess, sem stofnunin veitir
mæðrum ungbarna mat. í
hverjum barnaskóla á Ítalíu
gefur UNRRA sjerhverju barni
mjólkurglas á hverjum morgni,
og ekki er hægt að finna betri
stað fyrir það, sem þjóðirnar
leggja fram til þessarar hjálp-
ar. Fjármunum er ekki betúr’
varið, heldur en að sjá ljós
heilbrigðrar æsku kvikna aft-
barna
ur í hálfeyddum borgum og
þorpum, eins og t. d. þorpun-
um nærri Róm, þar sem sá, er
þetta ritar (frjettaritari The
Manchester Guardian), fann
nýlega heilar fjölskyldur, sem
lifðu í hellum' nærri hrundum
heimilum sínum.
it
Því miður getur UNRRA
ekki hjálpað börnunum nerpa
í verst leiknu hjeruðunum. %
Rómaborg er nú full af flótta-
fólki, svo að í borginni eru
tvær miljónir manna, en
UNRRA getur aðeins hjálpað
35.000 börnum. — Stofnunin
reynir að gera alt sem unt er
fyrir sængurkonur, gefur ung-
börnum mjólk og hinum ný-
fæddu reifa. En slíkt er ekki
hægt að fá á Ítalíu nú fyrir
minna en tvenn mánaðarlaun
þeirna, sem algenga vinnu iðka.
★
Kaþólska kirkjan leggur stór
fje að mörkum til barna bæði
á Italíu og í öðrum kaþólskum
löndum, og margir prestar
hennar hafa unnið hreinustu
afrek á sviði mannúðarstarf-
anna. En hinni komandi kyn-
’slóð verður líka að bjarga hvað
sem það kos’tar.
(Manchester Guardian.)