Morgunblaðið - 12.03.1946, Síða 14

Morgunblaðið - 12.03.1946, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIB Þriðjudagur 12. mars 1946 Vwiiiti’iiRiiuixiiiiiiMtiiiiiauiiMaiaimiiti Ast í meiimum - C^^tir ^Ocujlor CJL.U naiiiiiiiiiiiiimai nini:iiiiiiii«iiiiiiiiMiiiiiiaiaiiimai 39. dagur Daginn eftir var Jerome enn í 'Juingu skapi. Þegar hann ók heim á leið, að lokinni vinnu, voru hugsanir hans allar á te-iki. Er vagninn ók fyrir Þlígðu á veginum, sá hann, -L-var Filip var á gangi. Fyrst í stað datt honum í hug. að aka "tfeölt áfram og þykjast ekki sjá hann. En við nánari- athugun hann vagnstjórann að nema staðar. Þegar Filip heyrði ha-nn kalla, sneri hann sjer við og brosti glaðlega. „Jerome“, hrópaði hann, og gekk að vagninum. „Komdu sæll, Filip“, sagði Jérome, og rétti honum hönd- ina. Það var ekki laust við, að haxm væri dálítið vandræða- íegur. Filip þrýsti hönd hans inni- lega. „Það er langt síðan við hofum hittst, Jerome. Það gleður mig sannarlega að sjá Ing". „Og það gleður mig ekki síður að sjá þig“, ansaði Jero- me. Hann varð alt í einu undr- andi, þegar honum varð Ijóst, að það var satt. Hann bætti við: „Amalia sagði mjer, að þú hefð ir r hyggju að heimsækja Upp- sali. Geturðu komíð og snætt nreð okkur kvöldverð annað Iíköld?“ Fílip hikaði. Svo sagði hann: „Já, þakka þjer fyrir“. Hann er ekkert vandræðalegur, hugs aði Jerome með sjer. Það er altaf hægt að treysta því, að Þífip breyti rjett og skynsam- tt’ga. Jerome sagði vingjarnlega: „Jeg hefði gaman af að sýna Pjer bankann minn og verk- smiðjurnar. Okkur hefir farið fraffl, Filip. Þú hefir verið svo i&ngi að heiman, að þú hefir auðvitað ekki fylgst með því, sem hjer hefir verið að ger- ast“. „Já, jeg sje, að það hafa orð- áð* miklar breytingar. Mjer pSetti vænt um að fá að skoða Þfírtkann og verksmiðjurnar á Htrwgun — ef þú ert ekki önn- trm kafinn“. „Nei, jeg hefi nógan tíma. Við hittumst þá á morgun“. Jerome bar höndina að hatt- í kveðjuskyni, og bað vagnstjórann að aka áfram. ★ Það vakti talsverða athygli, #fígar Filip birtist í banka Jerome morguninn eftir. En fr’ftíp gekk rólegur að afgreiðslu ♦iorðinu, og bað um að fá að fwla við bankastjórann, Jero- i»e Lindsey, eins og ekkert væri. Viðskiftavinirnir tóku að stinga saman nefjum. En þó kástaði fyrst tólfunum, þegar þeir heyrðu litlu síðar, að Je- rome bað um vagninn, og þeir óltu á brott saman, frændurnir. Um tvöleytið komu þeir inn í veitingahúsið og báðu um há- degisverð. Gestirnir góndu á þá eins og naut á nývirki og iieyndu að heyra, um hvað þeir væru að ræða. En þeir voru niðursokknir í samræður sínar og veittu enga athygli því, sem var að gerast í kringum þá. „Jæja“, sagði Jerome glað- k:ga. „Hvernig líst þjer svo á þetta alt saman?“ Filip brosti. „Jeg hygg, að það hafi verið mjög skynsam- legt hjá Napoleon, þegar hann ræddi um það, hve auðveldlega hann gæti komið upp nýjum her. Þú manst ef til vill, að hann sagði, að hið eina, sem hann þyrfti að gera, væri að gefa mönnum kost á að losna úr hnappaverksmiðjunum". Jerome hleypti brúnum. „Hnappaverksmiðjunum? — Jeg hjelt, að þú hefðir orðið hrifinn af verksmiðjunum, Fil- ip“. Filip svaraði: „Jeg hefi oft gengið í gegnum hið snyrtilega hverfi, þar sem verkamennirn- ir, sem vinna í verksmiðjun- um búa. Jeg hefi sjeð menn og konur sitja auðum höndum og hvíla sig. Það er eitthvað, sem vantar, Jerome. Jeg veit ekki gjörla, hvað það er. En það er ekki aukið frí og meiri peningar, verkamönnunum til handa. Jeg hygg, að þú og þín- ir líkar sjeu að gera stórfelda skyssu — en jeg veit bara ekki, í hverju hún er fólgin“. Hon- um til mikillar undrunar sá hann, að Jerome horfði rann- sakandi — nærri því ákafur á hann. Svo sagði Jerome kæruleysis lega: „Með aldrinum verður þú nákvæmlega eins og pabbi. — Svona — vertu ekki að liggja á þessu! Þú hefir komist að einhverri niðurstöðu. Hver er hún?“ „Þú hefir orðið var við þetta líka — er það ekki?“ sagði Fil- ip. „Jeg hefi ekki minstu hug- mynd um, hvað þú átt við“. Jerome horfði með atyhgli á kjötið, sem þjónninn hafði sett fyrir framan hann. Filip sagði: „Við skulum snúa okkur aftur að hnappa- verksmiðjunum. Þær fram- leiða mergð hluta. En jeg hygg, að það fullnægi ekki frumeðli mannsins að framleiða „hluti“. Hjer áður fyrr var verkamað- urinn hreykinn af því, sem hánn bjó til með eigin hönd- um. Alt, sem hann gerði, bar persónuleik hans vitni. Jeg er hálft í hvoru hræddur um, að verksmiðjurnar svifti manninn stolti hans — skerði sjálfs- ti'aust hans. Þú mátt ekki mis- skilja mig. Jeg trúi á iðnaðinn. Jeg hygg, að það sje rjett hjá þjer, að hann sje framtið þjóð- arinnar. En jeg er á því, að við megum ekki velja á milli hamingju einstaklingsins og stolts — og fjöldaframleiðslu. Við verðum einhvern veginn að reyna að samræma það. Við verðum að reyna að finna eitt- hvað, sem vegur upp á móti tilbreytingarleysi verksmiðju- vinnunnar — sem eflir sjálfs- traust mannsins, svo að hann hafi ekki á tilfinningunni, að heimurinn geti í raun rjettri vel verið án hans — honum sje eiginlega alveg ofaukið hjer. Því meira, sem vjelin læt ur til sín taka í lífinu, því minna ber á hæfileikum manns ins. En maðurinn er andlegt sprengiefni. Það er ákaflega hættulegt að þjappa sprengi- efni samán. Það hlýtur altaf að springa um síðir“. Jerome hallaði sjer áfram og sagði: „Þú tekur þá líka mál- stað iðnaðarins, Filip! Fyrir- tak! Þverhausarnir hafa nú sagt skilið við landbúnaðinn og snúið sjer að iðnaðinum. Jeg hefi vitað það lengi. En jeg hefi aldrei getað talað um það við neinn fyrr en nú. Jeg er þjer þakklátur“. Jerome var orðinn ákafur. „Jeg býst við, að þú hafir heyrt, Filip, að jeg sje fjegráðugur. Það er ekki satt. Jeg er að vísu auðugur maður. En jeg hefi í raun rjettri aldrei skeytt um pen- inga, í sjálfu sjer. Það eru að- eins þeir peningar, sem mað- urinn vinnur fyrir í sveita síns andlitis, sem veita honum nokkra ánægju“. Filip kinkaði kolli. Jerome hjelt áfram: „Jeg hefi ekki heldur verið laus við ótta, Fil- ip. Jeg hefi fundið það líka, að efling vjelaiðnaðarins dregur úr meðfæddri öryggiskend mannsins. Jeg veit, að líf allra manna grundvallast á tilfinn- ingum þeirra. Jeg veit, að vjel arnar eyða lífshamingju þeirra og sljóvga tilfinningalífið. Vin- ir mínir myndu ætla mig van- trúarsegg, ef þeir heyrðu til mín. En þeir eru menn fortíð- arinnar — sneyddir öllu hug- myndaflugi. Jæja — hver er lausnin?“ Filip varp öndinni. „Jeg veit það ekki. Eru það trúarbrögð- in? Aukin mentun? Jeg veit það ekki. Jeg veit aðeins, að maðurinn verður að hafa eitt- hváð að una við, utan vinnu sinnar. Það er ekki hægt að bæla tilfinningar hans niður í það óendanlega. Jeg hygg, að fyrsta sporið sje að fækka vinnustundunum í verksmiðj- unum, svo að einhæfnin geri verkamanninn ekki vitskert- an“. „Já, jeg veit það. Verka- mennirnir í verksmiðjum Riv- ersend vinna níu stundir á sól- arhring í stað tíu stunda. En þú hefir virt fyrir þjer svipinn á andlitum þeirra, í tómstund- um þeirra. — Það er skolli und arlegt“. Þeir luku við að drekka kaff ið í þögn. Svo sagði Filip: „Jeg er ef til vill ekki hagsýnn mað- ur. Jeg er í raun rjettri mjög ókunnugur þessu öllu. Jeg veit bara, að maðurinn lifir ekki á einu saman brauði. Verkamenn irnir lifa ekki á því einu sam- an að vinna í verksmiðjunum“. - ★ Amalía, klædd í fallegan, gráan silkikjól, beið þeirra heima við ásamt börnunum. Hún var dálítið óróleg. Þegar Jerome hafði sagt henni kvöld- ið áður, að hann hefði boðið Filip til kvöldverðar, hafði hún horft rannsakandi á hann. Jerome var ekki vanur því, að vera fljótfær. Það bjó oftast nær eitthvað undir gerðum hans. Amalía hafði grun um, að í þetta sinn væri það ekk- ert skemtilegt. Sígurgeir Sigurjónsson hœstaréttarlögmadur Skrifstofutími 10—12 og Áðoletrœtf 8 Sími 1043 Stríðsherrann á Mars Ubrent ejfaóaga Eftir Edgar Rice Burroufiw. 158. „Dómarar", sagói hann. „Úrskurðurinn getur aðeins fallið á einn veg. John Carter má ekki lengur vera prins af Helium,“ hjer þagnaði hann, „en í stað þess skulum við gera hann að jeddak jeddakanna, — Stríðsherra á Mars“. Og um leið og dómararnir allir stukku á fætur og lýstu sig samþykka dómnum, byrjuðu slík fagnaðarlæti í hinni miklu byggingu, að jeg hefi aldrei neitt þvílíkt heyrt. Jeg hjelt að þakið myndi fara af henni. Nú loksins sá jeg hvers vegna þeir höfðu farið þannig að því að gera mjer þenna mikla heiður, en að titillinn sjálfur væri ekkert grín, fann jeg strax á einlægni þeirri, sem fólkið fagnaði þessari nafnbót minni með, og hversu dómararnir voru glaðir, er þeir óskuðu mjer til hamingju. Þá gengu fimtíu aðalsmenn í salinn og báru á herð- um sjer burðarstól mikinn og skrautlegan. Þegar það sást, hver í honum var, stigu fagnaðarópin enn hærra en þau höfðu áður gert, því í burðarstólnum var De-jah Thoris, hin vinsæla prinsessa í Helium. Þeir báru hana beint að hásæti rjettlætisins, og þar hjálpaði Tardos Mors henni niður úr stólnum og leiddi okkur bæði til sætis í hásætinu mikla. „Leyfum fegurstu konu þessa heims að taka þátt í heiðri manns síns“, sagði hann. Og að öllum ásjáandi dró jeg konu mína að mjer og kyssti hana. ENDIR. arr\ Aðkomumaðurinn var að skrifa nafn sitt í gestabók hót- elsins, þegar stór veggjalús skreið yfir síðuna. Hann leit upp og sneri sjer að hótelþjón- inum. „Jeg hefi upplifað margt um dagana,“ sagði hann, „og orðið fyrir margs konar ásóknum, en skollinn hafi það, að þetta er í fyrsta skipti, sem jeg' hefi ver- ið á hóteli, þar sem veggja- lýsnar hafa blaðað í gestabók- inni, til þess að sjá númer hvað herbergið manns væri.“ ★ Ferðamaður nokkur, sem var staddur í Skagafirði, sá hvar maður fór, sem virtist eiga í einhverjum erfiðleikum með hestinn sinn. Hesturinn gekk nokkur skref áfram, stoppaði svo og hengdi höfuð- ið, en sá, sem á baki var, bölv- aði og sló í hann. Eftir örlít- inn tíma tók hesturinn við- bragð, gekk nokkra metra og stoppaði enn, en útreiðarmað- urinn hottaði og hrópaði og notaði svipuna. Þetta endurtók sig hvað eftir annað. Að lokum gekk ferðamaður- inn til hans og ávarpaði hann: „Er hesturinn veikur?“, spurði hann. „Stálhraustur“. „Er hann þá staður?“ „Nei, nei“. „Hvað er þá að honum?“ „Jeg skal segja yður nokk- uð. Hann er svo hræddur um, að jeg segi hott og hann heyri það ekki, að hann stoppar alt- fif öðru hvoru til að hlusta“. ★ „Bítur nokkuð á hjá þjer?“ spurði ókunni maðurinn á brúnni. „Það held jeg nú“, svaraði veiðimaðurinn fyrir neðan hann á fljótsbakkanum. „Jeg veiddi fjórtán silunga hjerna i morgun“. „Vitið þjer, hver jeg er?“ spurði maðurinn á brúnni. „Nei, ekki get jeg sagt það“, svaraði veiðimaðúrinn. „Jeg er bóndinn, sem á veiðirjettinn hjerna í ánni“. Veiðimaðurinn hugsaði sig um andartak. Svo hallaði hann höfðinu og spurði: „En vitið þjer hver jeg er?“ „Nei, hver ertu?“ „Jeg er mesti lygari sýsl- unnar“. ★ Skósmiðurinn gleymdi að skrúfa fyrir gasið, er hann fór af vinnustofu sinni, og þegar hann kom um morguninn og kveikti á eldspítu, varð voða- leg sprenging, sem þeytti hon- um gegnum dyrnar og út á miðja götu. Vegfarandi nokkur hljóp til hans, hjálpaði honum á fætur og spurði, svort hann væri meiddur. Skósmiðurinn horfði lengi á vinnustofu sína, sem logaði* nú öll, og sagði: „Nei, jeg er ómeiddur, en skratti slapp jeg mátulega út“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.