Morgunblaðið - 17.03.1946, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 17. mars 1946
&£) a a b ó h
Vfiklar sprengingar í rússneskri
lögreglustöð í Beríin
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
TVÆR miklar sprengingar urðu í dag í rússneskri lögreglu-
stöð í miðhluta Berlínar, og fórust tveir menn en mjög margir
meiddust. í lögreglustöð þessarri er rússnesk leynilögregla og
þýsk útrásarlögregla, en í henni eru eintómir kommúnistar.
Rússar hafa slegið hring um svæðið, sem næst er byggingunni.
Þingeyskir bændur
vilja nýjan
fjárstofn.
ÍFjárskipti eina vörnin
: gegn mæöiveikinni.
1 ÞRIÐJUDAGINN 12. mahs
k 1. var haldinn á Akureyri
þameiginlegur fundur fulltrúa
úr öllum hreppum í Suður-
^ingeyjarsýslu vestan Skjálf-
andafljóts og beim hluta Eyja-
fjarðarsýslu, sem liggur austan
sauðfjárvarnargirðingar þar. Á
íundinum var lagt fram frum-
ivarp til samþyktar fyrir fjár-
tskifti, þegar á næsta hausti á
jsvæðinu milli Skjálfandafljóts
þg varnargirðínganna í Eyja-
jfirði. Frumvarpið var samþykt
jmeð samhljóða atkvæðum fund
ármanna og vísað heim í hrepp-
ana þar sem fjáreigendur
greiða atkvæði um frumvarp-
ið. Fer sú atkvæðagreiðsla
fram um næstu mánaðamót.
Mæðiveiki sú, er gengið hef-
ir í Þingeyjarsýslu, hefir leikið
hændur þar grátt. Á síðasta
hausti höfðu bændur þar aust-
an Skjálfandafljóts lokið við
að reka þennan mikla vágest
af höndum sjer með algerum
fjárskiftum. — Nú hefir veikin
aftur á móti komið fram í öll-
ym sveitum Þingeyjarsýslu
vestan Skjálfandafljóts og um
allstórt svæði í Eyjafjarðar-
sýslu.
Sú reynsla, sem fengin er
austan Skjálfandafljóts gefur
engar vonir um að plágu þess-
ari Ijetti og ekki eru heldur
fundin nein læknislyf, sem
hægt er að bvggja á. Bændur
vestan fljótsins höfðu því um
2 kosti að velja. Annar var að
hefjast handa um útrýmingu
pestarinnar með fjárskiptum.
Hinn að horfa upp á fjárstofn
sinn hrynja níður og búskap-
inn rekirn sem vonlaust fyrir-
tæki. Tóku þeir fyrri kostinn.
Framkvæmdaráð fjárskipta-
svæðisins hefir sent Alþingi á-
skorun um að veita riflegan
styrk íil þessara fjárskipta.
ýlgáfa á verkum
Guðmundar
Friðjónsionar
Óskað eftir sendibrjefum
að láni.
FRÁ Þóroddi Guðmunds-
syni frá Sandi hefir blaðið
fengið eftirfarandi tilmæli til
birtingar:
„Með því að ákveðin hefir
verið útgáfa á heildarverkum
Guðmundar Friðjónssonar
skálds og að sýnishorn af brjef-
um hatjs verði tekin með í
pessari útgáfu. vil jeg mælast
til þess, að þeir, sem kynnu
að eiga í fórum sínum eitthvað
af brjefum skáldsins, góðfús-
lega láni mjer þau, með prent-
un fyrir augum. Þeir, sem vilja
verða við þeim tiimælum, geri
svo vel að senda mjer undir-
rituðum brjefin til atbugunar
vlð fyrstu hentugleika. Sje
þess óskað, verður brjefunum
að sjálfsögðu skilað aftur að
lokinni notkun.
Reykjanesi við ísafjarðafdjúp
jan 1946
Þóroddur Guðmundsson.“
76. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 6,15.
Síðdegisflæði kl. 18,18.
Ljósatími ökutækja frá kl.
19,50 til kl. 7,25.
Helgidagslæknir er Ólafur
Helgason, Garðastræti 33, sími
2128.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki.
Næturakstur annast Hreyf-
ill, sími 1633.
□ Edda 59463197 þriðja 2.
I.O.O.F. 3 = 1273188 = 8y2 I.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Ingibjörg Samúelsdóttir, Hring
braut 201, og Lárus Th. Hall-
dórsson, starfsmaður hjá Lands
símanum, til heimilis í Garða-
stræti 19.
Héraðslæknirinn í Reykjavík
hefir verið veikur undanfarið,
en býst við að geta tekið til
starfa aftur næstu viku.
Skipafrjettir. Brúarfoss fór
frá Reykjavík 13/3 til New
York. Fjallfoss er í Reykjavík.
Lagarfoss er í Borgarnesi. Sel-
foss er í Leith lestar í Hull í
byrjun apríl. Reykjafoss kom
til Leith 12/3, er að lesta"
Buntline Hitch er í New York
(kom 4/3). Acron Knot hleður
í Halifax síðast í mars. Salmon
Knot hleður í New York í byrj-
un apríl. Sinnet hleður í New
York um miðjan mars. Empire
Gallop fór frá New York 6/3
til Reykjavíkur með viðkomu
í St. Johns. Anne fór frá Kaup-
mannahöfn í gær til Gauta-
borgar. Lech er í Reykjavík
(kom 9/3). Lublin hleður í
Leith um miðjan apríl. Maunita
er í förum frá Menstad í Nor-
egi með tilbúinn áburð til
Reykjavíkur. Sollund byrjaði
að lesta tilbúinn áburð á Men-
stad í Noregi í gær.
Hagstofa Islands hefir gefið
út nákvæma skýrslu um úrslit
þjóðaratkvæðagreiðslunnar, er
fram fór hér á landi árið 1944
um sambandsslit við Dani og
stofnun lýðveldis á Islandi.
Fundur verður í Kvenna-
deild Slysavarnafjelagsins á
mánudagskvöld í Tjarnarcafé.
Séra Jakob Jónsson talar,
nokkrar ungar stúlkur syngja
og að lokum verður stiginn
dans.
Ársskemmtun Nemendasam-
bands Kvennaskólansú Reykja
vík verður haldin í kvöld kl. 9
í Tjarnarcafé.
Tímarit Verkfræðingafjelags
íslands, 4. héfti, 30. árg., hefir
borist blaðinu. Efni er sem hér
segir: Um Skeiðfossvirkjunina,
eftir Jakob Guðjohnsen, raf-
magnsverkfræðing, Enn um
snjóát, eftir dr. Ólaf Daníels-
son, Mæling á vatnsrennsli við
Gvendarbrunna, éftir Steinþór
Sigurðsson og Jón E. Vestdal
og ýmsar athuganir og frjettir.
Iðnneminn, 2. tbl. 13. árg.
hefir borist blaðinu. Efni er m.
a.: Með hameiginlegu átaki,
eftir Ó. Hg., Ferð til Svíþjóðiar
með m.s. Esju, eftir Kolbein K.
G. Jónsson, Dagskólakenslan
gefst vel, Iðnnemafjelögin og
Iðnnemasamband Islands eftir
Jón Friðrik, Nýjungar í’tækni
og nýtt frumvarp til laga um
iðnfræðslu.
ÚTVARP í DAG:
8.30—8.45 Morgunútvarp.
10.30 Útvarpsþáttur (Helgi
Hjörvar).
11.00 Morguntónleikar (plöt-
ur): „Óður jarðar“ eftir
Mahler.
12.15— 13.15 Hádegisútvarp.
13.15 Hannesar Árnasonar fyr-
irlestrar dr. Matthíasar Jón-
assonar um uppeldisstarf
foreldra, VII.: Æskan og trú-
arbrögðin.
14.00 Messa í Hallgrímssókn
(sjera Sigurjón Árnason).
15.15— 16.30 Miðdegistónleikar
18.30 Barnatími (Pjetur Pjet-
ursson o. fl.)
19.25 Danssýningarlög eftir Off
enbach (plötur).
20.20 Samleikur á fiðlu og
píanó (Þórarinn Guðmunds-
son og Fritz Weisshappel):
Vorsónatan eftir Beethoven.
20.35 Erindi: Minningar frá
Kínasljettum. — Síðara er-
indi (Ól. Ólafsson kristni-
boði).
21.00 Einsöngur (ungfrú Elsa
Sigfúss). ,
21.20 Upplestur.
21.40 Tónleikar: Endurtekin
lög.
ÚTVARP Á MORGUN:
8.30— 8.45 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
13.15 Erindi Búnaðarfjelags ís-
lands: (Bjarni Ásgeirsson,
Steingrímur Steinþórsson,
Unnsteinn Ólafsson).
15.30— 16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 2. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Alfræðistefnan
(Þórhallur Þorgilsson mag.).
20.55 Ljett lög (plötur).
21.00 Um daginn og veginn
(Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Lög
eftir Árna Thorsteinsson.
— Einsöngur (Haraldur
Kristjánsson).
a) Fjallið eina (Kaldalóns).
b) Bikarinn (Markús
Kristjánsson.).
c) Tonarne (Sjöberg).
e) Trees (Oscar Rasbach).
f) London-derry Air (írskt
þjóðlag).
21.50 Tónleikar: Danssýningar
lög eftir Gertry (plötur).
22.00 Frjettir.
Ljett lög (plötur).
Fyrsta aftakan
í heila öld
London í gærkvöldi.
í DAG var tekinn af lífi í
Hollandi, maður nokkur hol-
lenskur að nafni Max Block-
zeil, sem talaði í útvárp fyrir
Þjóðverja, meðan á hernáminu
stóð. Var hann skotinn í dögun,
eftir að Vilhjálmína drotning
hafði neitað að náða hann.
Þetta er fyrsti dauðadómurinn,
sem Hollendingar hafa kveðið
upp í tæpa öld. — Reuter.
BEST AÐ AUGLÝSA
í MORGUNBLAÐINU
Sprengingarnar munu hafa
orðið með stuttu millibili. Við
þær fórust 2 lögregluþjónar
þýskir, en fimmtíu lögreglur
þjónar munu hafa særst, ásamt
mörgum óbreyttum borgurum.
— Ráku í burt blaðamenn.
Eftir að Rússar slógu hring
um svæðið, sem byggingin
stendur á, vildu þeir ekki
hleypa blaðamönnum Breta
inn á svæðið, nema þeir fengju
leyfi hjá yfirherstjórn Rússa í
borginni. Þegar blaðamennirn-
ir reyndu það. var þeim neit-
að um leyfið.
Rússar sögðu. fyrst að spreng
ingarnar hefðu orsakast af
handsprengjum, en síðar sögð-
ust þeir ekkert vita um orsak-
ir til þeirra.
Frystivjelar
Fyrsta flokks Atlas- frystivjelar, með miklu
af kælirörum, hraðfrystikeri, Elwemótor til
reksturs vjelanna ódýr, til sölu. Frystitækjun
um og mótorvjelinni fylgir alt smátt og stórt
og þarf ekkert að kaupa til þeirra aukreitis,
þar sem allar vjelar eru nú í rekstri. Verðið
aðeins 35 þúsund krónur.
cu ar ^Jda íídáróóon
*
f
m
Y eitingastaður
%
i V
& Veitingastaður til sölu á góðum stað. Skipti á góðri 'ij
bifreið getur einnig komið til greina. Upplýsingar $
í síma 1452 í dag, kl. 1—3 og 5—7 eftir hádegi.
X •;(
•!• «
< >
Trjemerkispjöld
nýkomin.
ddcfffert-Jdriótjánóóon Js? Cdo., L.f.
•>
I :
■• .•.
...
s
Góð svefnlierbergishúsgögn
til sölu. Upplýsingar í síma 2770 frá kl. 1—2.
•>
*
I
f
9
t
^5M»lM**4***«*****‘»**4**»**»***H«***********»**»M»*
c-x-x-x-x-x-x**x**Xh:-:-:-:”X->
Rana-
slípivjel
l-X-XK-«-X-X-X*X^X-X-X-:-X-^X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X3