Morgunblaðið - 17.03.1946, Side 12

Morgunblaðið - 17.03.1946, Side 12
VEÐURUTUTIP. Faxaflói: Allhvass austan. Víðast úr- komuIausL RÆÐA CHURCHILLS birt- ist í heild á bls. 7. Sunnudagur 17. mars 1946 Handknattleiksmótið: ðvaða íjelög keppa um meistara- Handknattleiksmótið held- ur áfram í íþróttahúsi ÍBR við Hálogaland annað kvöld. kl. 8 e. h. Þá keppa FH og KR í meistaraflokki kvenna, Fram og Haukar og Valur og FH í meistaraflokki karla og FH og Ármann og KR og ÍR í II. flokki karla. I meistaraflokki karla er leikurinn á morgun á milli Fram og Hauka. úrslitaleik- ferinn í A-riðli. Haukum næg fr-jafntefli til þess að vinna riðilinn, en Fram verður að vinna Hauka til þess að vinna hann. Úrslitaleikurinn í B riðli verður aftur á móti á milli ÍR og Ármanns á þriðju dagskvöldið. Þau fjelög sem vinna keppa svo síðar um meistar atit ilinn. í II. flokki karla hefir Vík- ingur þegar unnið A-riðilinn og ef Ármann vinnur FH annað kvöld. þá vinnur það fjelag B-riðilinn og keppir til úrslita við Víking. Vinni FH aftur á móti getur svo farið að þrjú fjelög verði jöfn í þeim riðli. Ferðir inn að Hálogalandi verða frá BSÍ, frá ki. 7 annað kvöld. K: gnús V. Magnús- son fulilrúi íslands á þingi UNRRá FJÓRÐI RÁÐSFUNDUR Hjálpar- og endurreisnarstofn- unar hinna sameinuðu þjóða — UNRRA — hófst 15. þ. m. í Atlantic City í Bandaríkjunum. I kjörbrjefanefnd hefir verið kosinn fulltrúi íslands, Magnús V. Magnússon, sendiráðsritari . í Washington. (Frá utanríkis- ráðuneytinu). Æíla ekki að slíía stjérnmála- London í gærkvöldi. FRÁ KANADA berast þær fregnir, að Kanadastjórn muni ekki ætla að slíta stjórnmála- sambandi-við Sovjetríkin, þrátt fyrir það þótt upp hafi komist um það, að njósnaflokur, sem stjórnað var frá Sovjetríkjun- um, hafi starfað í Kanada. Nú hefir eini þingmaðurinn, sem kommúnistar eiga á þingi í Kanada, verið tekinn fastur og hefir játað á sig að-hafa tekið þátt í njósnum fyrir Rússa. — Ennfremur hefir prófessor einn, sem vann að rannsókn á sprengiefnum fyrir Kanada- stjórn á styðsárunum, og er kommúnisti, játað að hafa lát- ið Rússa vita um árangur rann- sókna sinna jafnóðum. . — Reuter. Mikill oíli og góðar gæítir í flestum verstöðvum Söltun fiskjar víða hafin Keflavík. HÆSTI bátur í Keflavík, er með nærri 800 skippund, það sem af er vertíðar. Fyrri vik- una fór nær allur fiskur í frysti hús, en vegna skorts á fisk- kaupaskipum, varð að salta nokkuð. Hina síðari viku hefir ekki þurft að salta neitt, aflinn hefir allur farið í skip eða frysti hús. Norskt skip lá þar í gær og var að lesta ísvarinn fisk, um 450 smál. mun það taka. Daglega hefir gefið á sjó og afli verið sæmilegur, en þó nokkuð misjafn, frá 10 til 30 skippund í róðri. Að meðaltali frá 15 til 20 skippund. Vestmannaeyjar. Afli Vestmannaeyja-báta var sæmilegur fyrri viku s. 1. hálf- an mánuð. — Var afli þeirra þá þetta frá 6 til 7 smáJestir á bát í róðri. — Hina síðari viku hafa bátar ekki róið nema s. 1. mánudag og laugardag. Afli bátanna var 3 til 4 smál. Þegar þetta er ritað voru 3 skip að taka þar fisk til útflutnings. — Ekki var meiri fiskur en það, að nægilegt var í tvö þeirra, en aðeins slatti í hið þriðja. Ekkert hefir verið saltað í Vestmanna- eyjum. Allur íiskur hefir farið í fiskkaupaskip eða frvstihús. 15 bátar stunda togveiðar. — Afli þeirra hefir yfirleitt verið ljelegur, en s. 1. sunnudag fjekk „Vonin“ mikinn afla. — Um 4500 lítra lifur, eða um 50 smál. fiskjar. Hornafjörður. Ekki hefir í manna minnum á Hornafirði verið annað eins tíðarfar þar um slóðir. — Og aldrei hefir vertíðin gengið eins vel. — Bátar hafa fengið þetta 15 til 18 skippund í róðri, en hæsti báturinn, Mars, frá Norð- firði, losaði s. 1. föstudag 500. SÍÐASTLIÐINN hálfan mánuð hefir afli báta úr öll- um helstu verstöðvum verið mjög góður. Yfirleitt milli 10 og 20 skippund í róðri og nokkrir bátar hafa komist allt upp í 30 til 40 skippund. — í Vestmannaeyjum hefir þó veður hamlað róðrum. Eftir því sem blaðið hefir fregnað mun hæsti bátur á vertíð vera búinn að afla um 925 skippund, það er Egill Skallagrímsson, Akranesi, eign Haraldar Böðvarssonar & Co. skippund sitt. Allur afli bát- anna hefir farið í fiskkaupa- skip, sem jafnan hafa vérið þar. — Haldist veður óbreytt þessa viku, telja Hornfirðingar að róðrar kunni að stöðvast, vegna fiskkaupaskipa skorts. Ekki hefir Loðnu orðið vart á bátum frá Hornafirði. — Það er mjög óvenjulegt um þetta leyti árs. Akranes. Frá því að vertíð hófst hafa Akranes-bátar farið alls 25 róðra í röð. — Og hafa aldréi verið farnir jafn margir róðrar í röð þaðan. — Mest var áður 23 róðrar. Afli bátanna hefir verið 7 til 16 smál. miöað við hausaðan og slægðan fisk. Afla- hæsti bátur á Akranesi er Egill Skallagrímsson, með 925 skip- pund. — Hanr: mun vera afla- hæsti bátur á þessari vertíð, eft- ir því sem blaðið hefir frjett. Fiskurinn er allur látinn í hraðfrystihús eða selur í fisk- kaupaskip. — Ekkert hefir enn verið saltað á Akranesi. Vestfirðir. Afli báta úr verstöðvum á Vestfjörðum hefir verið sæmi- lega góður og gæftir ágætar, þetta frá 8 til 12 skippund í róðri. Þar vestra hefir nær all- Fastar flugferðir milli íslands og Skotlands SKOSKA FLUGFJELAGIÐ „Scottish Airlines" hefir ákveðið að hefja fastar flugferðir milli Reykjavíkur og Prestwick í Skotlandi eftir 3 vikur, eða svo. Fargjöld verða mjög sanngjrn og verða fyrst um sinn að minstá kosti tvær ílugferðir í viku hverri. Umboðsmenn skoska flugfjelagsins á íslandi er Flugfjelag íslands. Forstjóri Scottish Airlines, Mr. Mclntyre, skýrði Morg- unblaðinu frá þessu í gær, en hann var hjer staddur ásamt hertoganum af Hamilton og Mr. Walter Eiliot, eins og getið er um á öðrum stað hjer í blaðinu. ísland Skotland 3Vtl klst., Flugfjelagið mun fyrst um sinn notaj Liberator flugvjel- ar til. farþegaflugs milli fs. lands og Skotlands og taka flugvjelarnar 22 farþega í einu. Frá Prestwick eru greið ar flugsamgöngur innanlands á Bretlandseyjum og til flestra Evrópulanda. Reynsluflug til Ameríku. Þeir fjelagar, Hertoginn af Hamilton, Walter Elliot og Mclntyre eru stjórnarmeð- limir í stjórn Scottish Airlin- es og eru þeir á leið til Amer iku í reynsluflugi og komu hjer við í gærdag. Flugfjelag þeirra er með traustustu fiugfjelögum í Bretlandi. Nýtf hraðfrystihús í ur fiskur farið í íshús eða verið saltaður. — Á þessum stöðum hefir fiskurinn verið frystur: Önundarfirði, Dýrafirði, Pat- reksfirði og B.'ldudal. — Lítils- háttar hefir verið saltað í Súg- andafirði. Aftur á móti mikið saltað í Bolungavík og á ísa- firði. Grindavík. S. 1. hálfan mánuð, voru slæmar gæftir og lítill afli. — Og það í síðustu viku, hefir að- eins verið * róið mánudag og fimmtudag. Þá urðu sjómenn varir við Loðnu Lögðu þá nokkrir bátar þo'rskanet. Afli þeirra var sæmilegur, en einn bátanna fjekk mjög góðann afla, um 40 skippund úr þrem netatrossum. — I gær var al- mennt róið úr Grindavík, en afli bátanna nokkuð misjafn.. Það litla sem borist hefir á land af fiski á þessu tímabili, hefir nær allt verið sett í frystihús og selt í fiskkaupa- skip. Mjög lítið hefir verið salt- að í Grindavík til þessa. Sandgerði. Róið hefir verið alla daga s. 1. hálfan mánuð. — Afii bát- anna verið þetta frá 6 til 17 skippund í róðri. Aflahæstu bátar þar eru Muninn, Sand- gerði, með milli 600 og 700 skippund og Freyja úr Garði, sem mun vera eitthvað hærri. Afli bátanna hefir mest allur verið seldur í fiskkaupaskip eða settur í hraðfrystihús. — Lítilsháttar hefir verið saltað. S. 1. hálfan mánuð mun hafa verið saltað )>ar um 100 skip- pund. Alls mun vera búið að salta um 600 skippund í Sand- gerði. S. 1. laugardag var nokk- uð af fiski flutt til Keflavíkur í fiskkaupaskip sem þar var að lesta. Þá mun einnig nokkuð af fiski hafa verið sett í frystihús og einhver smáslatti saltaður. Hafnarfjörður. Afli bátanna hefir verið á- gætur og róið hefir verið alla daga s. 1. hálfan mánuð. Afli hefir verið frá 12 til 30 skip- pund í róðri, og verið mjög jafn allán tímann. Megnið af fiskinum hefh' farið í frysti- hús þar á staðnum eða í Reykjavík. Sá fiskur, sem frystihúsin geta ekki tekið á móti, hefir verið saltaður og. mun nú vera búið að salta um 200 smál. Lítið sem ekkert hef- Keflavík, laugardag. Frá frjettaritara vorum. í DAG tók til starfa nýtt hraðfrystihús í Keflavík. Heiti þess er Sameignarfjela(gið Frosti, og eigendur Albert Bjarnason og Sigurbjörn Eyj - ólfsson, útgerðarmenn. Bygging hússins var hafin 30. júlí s. 1. Um múrverk sá Ingvi Loftsson, en um trje-« smíði annaðist Þorsteinn Árna- son & Co. Raflögn annaðist Júlíus Steingrímsson og er þetta fyrsta rafdrifna frysti- húsið á Suðumesjum. Frystivjelar eru sænskar, en vjelsmiðjan Hjeðinn sá um niðursetningu þeirra. Nýja Blikksmiðjan í Reykjavík sá um frystitæki. Húsið er 16x30 metrar að stærð og gotur rúmað 400 smálestir af flökum. Dagsaf- köst eru 12—15 smálestir af flökum. Vatn til hússins er fengið úr borholu, sem Rafmagnseftirlit ríkisins ljet gera og flytur hún yfir 40 smálestir vatns á klukkustund. Gert er ráo fyrir síðar að setja flutningabönd og öðrum útbúnaði komið fyrir í húsinu, þár sem ekki vannst tími til þess nú, vegna þess^hve að- kallandi var að hagnýta afl- ann. — Um 30 manns starfa við frystihúsið og er það á all- an hátt mjög fullkomið. ÆskulýðsguSs- þjónusla I DAG, sunnudaginn 17. mars, fer fram æskulýðsguðs- þjónusta í Dómkirkjunni kl. 2 e. h. á vegum Kristilegs fjelags ungra manna Fríkirkjusafnað- arins, Pilta og Stúlkna fjelags Dómkirkjunnar, og Kristilegs ungmennafjelags ' Hallgrims- sóknar. Sr. Friðrik Hallgrímsson fyrv. dómprófastúr flytur prje- dikun. Altarisþjónustu annast þeir sr. Árni Sigurðsson, sr. Jakob Jónsson og sr. Jón Auðuns. Er þess vænst að meðlimir fjelaganna og annað ungt fólk komi til guðsþjónustunnar. FrysSur fiskur iil Frakklands SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrysti- húsanna hefir samið um sölu á fimm þúsund smálestum af hraðfrystum fiski til Frakk- lands. •—• Endanleg staðfesíing á samningi þessum barst Sölu- miðstöðinni í gærmorgun. Söluverð er 11 pence f. o. b. hvert enskt pund. Um það bil 1000 smálestir munu fara rneð leiguskipi Éimskipafjelagsins Lech, sem er hjer nú. Skipið verður hlaðið á Vestfjörðum, en að því búnu fer skipið til Frakklands, með stuttri við- ir verið selt í fiskkaupaskip.dvöl hjer í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.