Morgunblaðið - 15.05.1946, Page 1
16 síður
33. árgangur. 107. tbl. — Miðvikudagur 15. maí 1946 Isafoldarprentsmiðja h.f.
Parísarfundurinn:
BYRNES VILL FRESTA FUNDUM
Tóku tennur í þriðja sinn
ÞESSIR ÖLDUNGAR, sem báðr eiga heima vestur í Ame-
ríku eru heldur en ekki ánœgðir. Báðir eru þeir á níræðis-
aldri og báðir hafa þeir nýlega tekið tennur í þriðja sinn í
Ujnu og eru nú að sýýna hvor öðrum.
Verkföllunum í Höfn
að mestu lokið
Frarnkoma kommúnista fordæmd
— K.höfn í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FLESTUM mótvælaverkföllunum er nú lokið, og búist við
að þeim verði öllum hætt í dag. Prentarar tóku aftur upp vinnu
í gærkvöldi. Öll blöð komu út í morgun. „Berlingske Tidende11
telja að tala verkfallsmanna hafi verið um 100.000, er verkfallið
stóð sem hæst í gær. Hálf önnur miljón vinnustunda tapaðist.
Launatap verkamanna var 3 miljónir króna. Blöðin segja að
kommúnistar beri ábyrgðina á þessum verkföllum og saka þá
um þingræðisfjandskap.
Vibræður viD utanríkisráð-
herrana að koma
algert strand
París í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Á FUNDI utanríkisráðherra fjórveldanna í kvöld bar
Byrnes, utanríkisráðherra Bandaríkjannaa, fram þá til-
lögu, að fundum utanríkisráðherranna skyldi frestað til
15. júní, en friðarráðstefna skyldi kvödd saman annað-
hvort 1. eða 15. júlí. Ráðherrarnir munu ákveða á fundi
sínum á morgun, hvort þeir geti fallist á tillögu Bvrnes.
Byrnes hafði áður lagt til, að friðarráðst'efna yrði boðuð
15. júní. Stjórnmálafregnritarar telja líklegt, að þessi til-
laga Byrnes verði samþykt, því að sýnilegt sje, að ágrein-
ingurinn muni einungis vaxa, ef fundum verði haldið
áfram nú.
Wavell og ráð-
herrarnir farnir frá
Simla
New Dehli í gærkveldi.
WAVELL, varakonungur
Indlands, og bresku ráðherr-
arnir eru komnir til New
Dehli frá Simla. Eins og áð-
ur hefir vérið frá skýrt, náðist
ekki algert samkomulag á ráð
stefnunni í Simla, en hún var
drjúgt spor í áttina að því
marki að samræma sjónarmið
M úh e;m m e ðt i< úsrmanna og
Þjóðþingsflokksins varandi
stjórnskipan Indlands í fram-
tíðinni. — Á fimtudaginn kem
ur rhun Attlee, forsætisráð-
herra Bretlands, gefa breska
þinginu skýrslu um ráðstefn-
una í Simla. Ennfremur mun
hann skýra frá því, hverjgr
ráðstafanir rouni gerðar næst
varðandi samningaumleitaU-
drnar.
— Reuter.
London í gærkveldi.
HERBERT MORRISON,
sem á vegum bresku stjórnar
innar, dvelst nú í Bandaríkj-
unum til þess að ræða við
stjórnarvöld þar um matvæla
ástandið í hedminum, mun
flytja úvarpsræðu á morgun,
þar sem hann setur fram sjón
armið Breta varðandi mat-
vælaskortinn og aðgerðir tii
þess að bæta úr honum. Hann
íæddi í gær við Truman for-
seta, og er talið, að allmikill
árangur hafi orðið að viðræð-
tmum. Morrison mun Ijúlca
víðræðum við Bandaríkj a-
stjórn á fimtudag, en leggja
af s.tað áleiðis til Ottawa til
þess að ræða við Kanadastjórn
— Reuter.
Njósnarar fyrir rjeifi
London í gærkveldi.
í DAG hófust rjettarhöld yf-
ir 7 af njósnurum þeim, sem
njósnuðu fyrir Rússa í Kanada.
Er.talið að þessi mál verði mjög
urqjangsmikil, og munu yfir
100 manns verða kvaddir til
að bera vitni í málum þessum,
sumir frá öðrum löndum. —
Bráðlega munu einnig hefjast
málaferli gegn kanadiska kom-
múnistaþingmanninum Fred
Rose, sem einnig er ákærður
fyrir njósnir í þágu Sovjet-
ríkjanna. — Reuter.
Ócirðirnar
Uppivöðsluseggir neyddu í
gær ekki aðeins sporvagnastarfs
menn til þess að hætta akstri,
heldur var mörgum búðum lok
að vegna þess, að hótað var að
brjóta gluggana að öðrum
kosti. — „Socialdemokraten“
ræðir um þetta og tekur fram,
að brott verði að má ógnar-
og ofbeldishugarfarið úr fólk-
inu.
Lítið utan Hafnar.
Lítið var um mótmæUverk-
föll víðast utan Hafnar. Ríkis-
stjórnin ræddi um mótmæla-
verkföllin í gær og komst að
þeirri niðurstöðu, að halda yrði
lögin um að stöðva slátrara-
verkfallið. Þá hafði stjórnin á
prjónunum að láta þingkosn-
ingar fara fram fljótlega, svo
fremi að mótmælaverkföllun-
um ekki linti í dag. Var búist
við því, að slíkar kosningar
um verkfallavandamálið myndu
styrkja aðstöðu stjórnarinnar.
Abyrgðin á kommúnistum
Blöð borgaraflokkanna og
jafnaðarmanna eru á einu máli
um það, að kommúnistar eigi
sökina á mótmælaverkföllunum
og fordæma skarplega verkföll
$em pólitísk vopn, ásamt til-
raunum til þess að spilla fyrir
því að lögum sje hlýtt. „Social-
demokraten“ segir að áskoranir
kommúnista um það að hætta
verkföllunum í gærkvöldi hafi
verið gefin út vegna þess að
þeir hafi sjeð að spilið var tap-
að og óttast afleiðingarnar. —
,,Politiken“ segir að verkföllin
hafi haft einn kost í för með
sjer. Þau hafi sýnt hinar ólýð-
ræðislegu og andþingræðislegu
fyrirætlanir kommúnistanna.
—Páll.
Hunguróeirðir í
ítalskri borg
Róm í gærkveldi.
í DAG kom til hunguró-
eirða hj ei*. Um fimm hundr-
uð konur gerðu árás á brauð-
gerðarhús og rændu meira
en hálfi smálest brauðs. —
Voru þær svo snarar í snúning
um, að lögreglan fjekk ekkert
að gert. Konurnar rjeðust
einnig til inngöngu í bygg-
ingu bæjarstjórnarinnar og
brutu þar útidyr. — Tveim
klukkustundum eftir að ó-
eirðirnar hófust, mátti heita
að regla væri á komin. Sterk-
ur vörður var settur um korn
n.yllur á staðnum, því að kon
urnar voru farnar að gera sig'
líklegar til þess að ráðast á
þær.
— Reuter.
Þremur nýjum tog-
urum hleypf af
sfokkunum
LONDON: — Nýlega var
hleypt af stokkunum þriðja
togaranum hjá Cochrane &
Sons skipasmíðastöðinni í Sel-
by, sem verið er að byggja fyr-
ir Islendinga.
Kjölurinn hefir verið lagður
að öðrum átta 175 feta togur-
um, sem einnig verða bygðir í
þessari sömu skipasmíðastöð.
Þess er getið, að ailt sjeu
þetta skip með nýtísku útbún-
aði, dýptarmælum, nýtísku
loftskeytastöðvum og talstöðv-
um. Allar hjálparvjelar. verða
reknar með rafmagni.
Á fundi ráðherranna í dag
var enn rætt um um friðar-
samningana við ítali, án þess
að nokkur árangur næðist, og
í fundarlok lýstu þeir yfir því,
að þeir hefðu ekkert meira að
segja um stríðsskaðabætur úr
hendi ítala, nýlendur ítala nje
væntanleg landamæri Italíu og
Júgóslafíu, en þetta voru helstu
ágreiningsatriðin varðandi frið
arsamningana við Itali. Ráð-
herrarnir samþyktu að fela full
trúum sínum að ræða þessi at-
riði og reyna að samræma sjón-
armið, sem fram hafa komið
um þau.
Erottflutningur liðs banda-
manna á Ítalíu
Molotov bar fram fyrirspurn
þess efnis, hvort ráð væri fyrir
því gert, að í friðarsamningum
við Itali yrði ákvæði, sem trygði
að herlið bandamanna á Ítalíu
yrði flutt brott, jafnskjótt Sem
friðarsamningarnir væru und-
irritaðir. Ef þetta yrði gert,
sagði Molotov, myndu Rússar
flytja brott lið sitt í Búlgaríu.
Bevin svaraði því til, að Rúss-
ar væru samkvæmt samningi
skyldir til þess, en þeim væri
nær að flytja burt hersveitir
sínar í Ungverjalandi og Rúm-
oníu.
Molotov vill ekki ræ'ða um
Austurríki.
Á fundinum í dag lýstu þeir
Bevin og Byrnes þeirri skoðurí
sinni, að mál væri komið til,
að ráðhefrarnir ræddu um vænt
anlega friðarsamninga við Aust
urríki, einkum þar sem landið
hefði mikla þýðingu fyrir sam-
göngur í Evrópu. Molotov svar
aði, að utanríkisráðherrarnir
hefðu nú þegar nóg um að
hugsa, þar sem þeir hefðu til
Framh. af bls. 2.