Morgunblaðið - 15.05.1946, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIP: Faxaflói:
Vestan gola, síðan kaldi og
skýjað.
Miðvikudagur 15. maí 1946
Er drykkjuskapurinn og
óreglan hjer heimsmet?
„JEG hefi verið að velta
því fyrir mjer, hvort
drykkjuskapurinn og óregl-
an hjer í Reykjavík sje
heimsmet“, sagði Agnar
Kofoed Hansen, lögreglu-
stjóri, við blaðamenn í gær,
er þeir áttu tal við hann. —
„Vandræðin í sambandi við
ölvun og drykkjuskap eru
orðin ískyggileg. — Það er
meira að gera hjá okkur
hjer en í hálfrar-miljónar
borgum erlendis. Borgar-
menningin hefir 'ekki vaxið
eins ört og borgin sjálf“.
Störf lögreglunnar hafa stór
aukist vegna þessa ástands, sem
fer mjög vaxandi samkvEemt
skýrslum, sem lögreglustjóri
las. I fangageymslu í kjallara
lögreglustöðvarinnar voru
menn settir inn 2142. sinnum
árið 1942, 2308 sinnum árið
1943. Talan var 2489 árið 1944
og 1945 var hún 2763, en fjóra
fyrstu mánuði þessa árs er hún
komin upp í 1278. I ianúar
voru 333 settir inn á móti 235
árið áður, í febrúar 266 (139),
mars 335 (163) og í apríl 344
(94). — Skýrslur liggja enn
ekki fyrir um það, hvað það
eru raunverulega margir menn
sem gista „kjallarann“, því
sömu mennirnir eru látnir þang
að nokkuð oft, en þó mUnu þeir
tiltölulega margir, sem settir
hafa verið þangað.
Ekki hægt að hýsa nærri alla.
Þá skýrði lögreglustjóri frá
því, að ekki færi hægt að koma
í fangaklefana nema litlu broti
af því sem þyrfti. Bílarnir eru
látnir fara með fjölda manna
heim. Klefarnir í kjallaranum
eru alls 10, og venjulega ei'U
þpir orðnir fullir um kl. 8 síðd.
í gær kl. 4,30 var t. d. búið að
setja þar inn 7 menn alla dauða
drukkna. — Til samanburðar
má geta þess, að í Dublin í ír-
landi eru aðeins tveir lögreglu
þjónar á lögreglustöðinni á næt
urvakt og hafa þeir einn bíl.
Nýít fangahús nauðsynlegt.
— I fyrstu var ætlunin, sagði
lögreglustjóri, að fangageymsl-
umar í kjallaranum yrðu aðeins
til bráðabirgða á meðan ástand
ið á hernámsárunum. væri sem
verst. Kvaðst lögreglustjóri fyr
ir löngu hafa lagt til, að hún
yrði lögð niður og önnur fanga
geymsla reist, þó það væri að
vísu nokkuð hart, að þurfa að
biðja um slíkt á fyrstu árum
lýðveldisins.
Fullkomið drykkjumannahæli.
Lögreglustjóri hvað allmik-
ið af þessum mönnum vera
hreina alkohólista sem þyrftu
sjúkrahúsvistar og því mjög
nauðsynlegt að koma hjer upp
hið bráðasta fullkomnu drykkju
mannahæli.
Kærur lögrcglunnar ört hækk-
andi.
Kærur lögreglunnar 'fyrir
afbrot voru 2959 árið 1940-. —
Er orðin mest nauðsyn
á fangahúsi og drykkjumannahæli!
Árið 1941 voru þær komnar upp
í 5169, 1942 voru þær 5143,
1943 6424, 1944 4615 og 7171
og þær fara ört hækkandi* það
sem liðið er af þessu ári.
Hvar er lögreglan?
Lögreglustjóri hvað menn
oft slá fram spurningunni:
,,Hvar er lögreglan?“. vegna
þcss hve sjaldan lögregluþjón-
ar sjást á ýmsum götum bæj-
arins. Hvað hann því til að
svara að lögreglumennirnir
hjer í Reykjavik væru alltof
fáir og vísaði i því sambandi
til álits nefndar, sem dóms-
málaráðherra skipaði til þess
að gera tillögur um, hvaða ráð
stafanir skuli gera í því skyni
að koma í veg fyrir hin tíðu
og stöðugt vaxandi umferða-
slys hjer í Reykjavík og annars
staðar á landinu. í nefndinni
voru auk lögreglustjóra Gizur
Bergsveinsson, hæstarjetfar-
dómari og Bergur Jonsson, saka
dómari. Segir í nefndarálitinu
m. a.: „Eins og nú háttar, sjást
sjaldan lögreglumenn í úthverf
um Reykjavíkur og ófullnægj-
andi varðgæsla er á mörgum
aðalgötum. Orsök þessa er sú,
að lögreglumennirnir eru of fá-
ir til hinna margháttuðu starfa,
sem þeim eru falin í hinum víð
lerda bæ. — Lögreglustjóri
Reykjavíkur lýsir þessu þann-
ig. Halda verður uppi löggæslu
allan' sólarhringinn og er lög-
regluliðinu því skift í þrjár
varðsveitir. Eru um 27 menn í
hverri varðsveit. — Vanhöld
verða altaf, og stafa þau af
veikindum. Eru lögreglumenn
t. d. oft frá störfum vikum og
jafnvel mánuðum saman vegna
lemstra, sem þeir hljóta í starfa
sínum. Þá hefir hver lögreglu-
maður eins dags leyfi á viku
hverri. Verður því að ætla fyrir
því, að 4—5 lögreglumenn sjeu
í leyfi daglega og 2—3 forfall-
aðir af veikindum. Á lögreglu-
stöðinni eru varðsveitarforingi,
aðstoðarmaður hans, stöðvar-
maður, sem svárar í síma og
heldur dagbók. Þar eru líka
þrír ökumenn bifreiða og bif-
hjóla, sem gegna kalli til að
fara út um bæinn. Þá eru eftir
um 18 lögreglumenn. Skiftast
þeir á um götuvörslu og önnur
störf þannig, að tveir af hverj-
um þremur eru á götum úti, en
einn af hverjum þremur er á
lögreglustöðinni reiðubúinn til
að fara út um bæinn til að
framkvæma handtökur, sinna
brunaköllum og ótal mörgum
öðrum störfum. Eru samkvæmt
þessu einungis 12 menn til götu
vörSlu á hverjum tíma, og
verða þeir flesiir að vera í mið
þænum, við höfnina og á Lauga
vegi og Hverfisgötu vegna hinn
ar gífurlegu umferðar á þess-
um götum. Mun færri lögreglu
menn en nú var sagt, er á að
skipa meðan sumarleyfi
standa yfir. Sjest af þessu, að
þeir lögreglumenn, sem nú
starfa í Reykjavik, eru hvergi
nærri nógu margir til að halda
uppi löggæslu í bænum og út-
hverfum hans. Verður í þessu
sambandi að líta á það, að bær-
inn er sjerstaklega víðlendur,
miðað við íbúatölu, Svo ber og
að gæta þess, að Reykjavík er
aðalhafnarbær landsins og að-
setursstaður allra æðstu hand-
hafa ríkisvalds. Þegar öll þessi
atriði eru virt, verður að telja,
að þeir lögreglumenn, sem lúta
stjórn lögreglustjórans í Rvík, !
megi ekki vera færri en 2 fyr- '
ir hverja 750 íbúa. Loks er rjett;
að minna á það, að sjá þarf öðr ,
um kaupstöðum og hjeruðum |
hjer á landi fyrir viðunandi
lögregluliði“.
Sem stendur eru þó færri
lögregluþjónar en þarna er frá
skýrt, þar sem á hverri vagt
eru nú aðeins 22
Að lokum brýndi lögreglu-
stjóri það fyrir blaðamönnum,
að skapa þyrfti sterkt almenn-
ingsálit gegn þessu ófremdar-
ástandi, sem skapast hefði að
miklu.leyti af þyí losi, sem orð
ið hefði á hernámsárunum.
VI
sSJéra Karlakórs SÍK
s
p»-
pí
Kaupmananhöfn í gær.
Einkaskeyti frá frjetta-
ritara vorum.
„BERLINGSKE AFTENAVIS11
birtir í dag viðtal við Jóhann
Sæmundsson yfirlæknir, farar-
stjóra Karlakórs SIK í tilefni
af komu kórsins til Hafnar. •—
Yfirlæknirinn leggur áherslu á
að íslendingar vilji halda sam-
bandinu við Norðurlönd, sem
bestu og að vinátta í garð Dana
hafa aukist á íslandi síðan sam
bandslögin gengu í gildi.
Hinsvegar finst Jóhanni Sæ-
mundssyni að KaupmanAahafn
arbúar hafi breyst mjög. Þeir
hafi jafnvel tapað sínu ljetta,
gamla brosi og augnatillitið og
framkornan sje önnur en hún
var.
—Páll.
Tundurdirfl gerf
évirkt í Grindavík
HINN 9. þessa mánaðar rak
tundurdufl á land í Grinda-
vík og var það g'ert óvirkt
samdægurs af Haraldi Guð-
nasyni Sörlskjóli 18, Reykja-
vík. Duflið var breskt, scgul-
magnað.
TRUJILLO — Svarti ein-
ræðisherrann. — Grein um
hann á bls. 9.
9,900 krónur
teboxi í Póst-
hósstræti
ÞETTA ER SAGA UM
9,900 krónur, sem lög-
regluþjónn fann í teboxi
aðfaranótt sunnudagsins
s.l. í Pósthússtræti.
Þorkell Steinsson lög-
regluþjónn rak augun í
blikkkrús á götunni og tók
hana upp. Utan á krúsinni
stóð „Te“, en innihaldið
reyndist að vera íslenskir
bankaseðlar, 500 og 100
króhuseðlar samtals að
upphæð 9,900 krónur.
Á mándag kom maður
á lögreglustöðina og
kvaðst hafa tapað þessu
teboxi með peningunum.
Hann gat sannað eignar-
rjctt sinn.
Hann sagði þá sögu að
hann hefði ekki þorað að
geyma þetta fje heima hjá
sjer af ótta við þjófa. —
Taldi það betur geymt í
vasa sínum, er hann fór
úr íbúð sinnk
En svo lenti hann á
„kenderíi“ og týndi box-
inu.
Eiganda boxins var af-
hent það í viðurvist lög-
regluþjóna og þá datt hon-
um í hug að rjett væri að
launa lögrcglumanninum
fundinn.
Lögreglumaðurinn sagði
að hann skyldi ráða því
sjálfur, livort honum fynd-
ist þetta launavert.
Eigandi teboxins hjelt
nú það og rjetti lögreglu-
manninum einn hundrað
krónuseðilinn úr boxinu í
fundarlaun.
Lengsfi bæjarsjérn-
arfundur á íslandi!
ísafirði, þriðjudag.
Frá frjettaritara vorum.
Á SÍÐASTA fundi bæjar-
stjórnar ísafjarðar var sam-
þykt með 5 atkvæðum sam-
kvæmt tillögu meirihluta tog-
aranefndar, að stofnað verði
hlutafjelag til kaupa á togara
eða togurum og var togara-
nefnd falið að leita eftir fjár-
framlögum í því skyni. Al-
þýðuflokksfulltrúarnir vildu að
stofnað yrði til bæjarútgerðar.
Um fiskiðjuverið urðu mikl-
ar umræður, en ákvörðun frest-
að. Fundurinn hófst á mið-
vikudag og var haldið áfram
á fimtudag og föstudag. Stóð
hann samtals 15 klukkustund-
ir og mun vera lengsti bæjar-
stjórnarfundur, sem haldinn
hefir verið á Islandi.
Atómskip úr höfn
LONDON. — FÍoti sá, sem
Bandaríkjamenn ætla að notá
við tilraunir með atómsprengj
ur þann 1. júlí n.k., mun leggja
úr höfn í Bandaríkjunum bráð-
lega áleiðis til Bikini-eyjar á
Kyrrahafi.
Ágælis afli á
Patreksfirði
Frá frjettaritura vorum
á Patreksfirði.
UNDANFARNA daga hefir
verið hinn besti afli hjer á
Patreksfirði og er nú svo kom-
ið, að bæði frystihúsin eru hætt
að taka á móti fiski, þar sem
geymar þeirra eru þegar fullir,
en óvíst hvenær afferming á
frystum fiski fer næst fram.
Mun því þurfa að hefja söltun
hjer, en þess hefir ekki enn
gerst þörf.
Línubátar hafa aflað frá 6—■
12 smálestir í róðri og sækja
út að Látraröst, og hafa einn-.
ig sótt þangað bátar frá öðr-
um verstöðvum, alít frá Hnífs-
dal.
Trillubátar, sem alment eru
byrjaðir veiðar, eru allflestir
á handfæraveiðum og fá upp-
gripaafla, allt að 400 kr. í hlut
í róðri. Einn trillubátur, með
aðeins 2 mönnum á, hefir feng-
ið 3 síðustu daga um 7% smá-
lest af þorski.
Fjölmeflnur fundur
SjáHsteðisfjelag-
anna á Akureyri
SJÁLFSTÆÐISFJELÖGIN á
Akureyri hjeldu sameiginlegan
skemti og útbreiðslufund í Hó-
tel Norðurland s.l. laugardags-
kvöld.
Fundinn sátu hátt á þriðja
hundrað manns.
Richardt Ryel setti og stjórn
aði fundinum. Eftirtaldir menn
tóku til máls: Gunnar Helga-
son frá Hlíðarenda, erindreki
S. U. S. Gísli Jónsson nemandi
í 6. bekk M. A., sem talaði
fyrir ,,Vörð“ fjelag ungra Sjálf
stæðismanna.
Frú Ingibjörg Halldórs-
dóttir, sem talaði fyrir Sjálf-
stæðiskvennafjelagið og Helgi
Pálsson kaupm., er talaði fyrir
Sjálfstæðisfjelag Akureyrar. —<
Auk þess mælti frú Helga Mar
teinsdóttir hóteleigandi nokkur
hvatningarorð til fundarmanna.
Edward Sigurgeirsson sýndi
mjög smekklega kvikmynda-
þætti þ. á. m. kvikmynd frá
síðustu bæjarstjórnarkosning-
um á Akureyri.
Frú Helga Jóqsdóttir söng
einsöng við mikla hrifningu
fundarmanna. Og að lokum var-
svo stiginn dans til kl. 2 e. m.
Á fundinum kom greinilega
í ljós áhugi sá, sem nú er ríkj-
andi meðal Sjálfstæðismanna
á Akureyri og hversu einhuga
flokksmenn standa með sínum
vinsæla frambjóðanda Sigurði
E. Hlíðar.
Kvöldskemhm Þjáð-
ræknisfjelagsins
AF ófyrirsjáanlegum ástæð
um leikur Erling Bl. Bengtsi
son ekki á dansk-íslenskai
skemmtikvöldinu, sem Þjóð-
ræknisfjelagið gengst fyrir í
Tjarnarcafé í kvöld.