Morgunblaðið - 24.05.1946, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.05.1946, Blaðsíða 1
ö BANDARÍKJAMENN EIGA ENN ÆGI- LEGRA VOPN EN ATOMSPRENGJUNA Ifafís hamlar veiðum fyrir Vestfjörðum Isafirði, fimtudag. Frá frjettaritara vorum. UNDANFARNA daga hef- ir ísrek hamlað veiðum á liskislóðum norðan ísafjarð- ardjúps. Hefir verið mikii ferð á ísnum austur og norð- ur með landi. Nokkurt ísrek hefir einnig verið vestan ísa- fiarðardjúps, alt suður að Nesdjúpi. — Arngr. Tvelr kunnir lisla- menn farasi í fiuisiysi OSLO: — Ægilegt flugslys varð hjer nærri borginni í gær, þegar farþegaflugvjelin, sem flaug milli Stokkhólms og Oslo hrapaði til jarðar hjer skamt frá borginni og fórust allir sem í henni voru, 13 manns. Meðal þeirra, sem þarna biðu bana, voru tveir lista- menn, norski rithöfundurinn Ronald Fangen og sænski mál arinn Isak Grúnewald, — Flugvjelin rakst á tveggja hæða hús, er hún hrapaði og brann það til kaldra ko.’(a ásamt með flugvjelinni. Báðir listamennirnir, sem þarna ljetu líf sitt, voru vel kunnir á Norðurlöndum. (hungkingntenn ná aftur höfuSborg Manchuriu London í gærkvöldi. TILKYNT hefir verið í Chungking, að hersveitir stjórnarinnar þar hafi í dag ráð Chanchung, höfuðborg Manchuriu, úr höndum komm únista, sem tóku borgina rjett eftir að Rússar fóru úr henni. Hafa harðir bardagar stað- ið um borg þessa um alllanga hríð, en að lokum fengu stjórnarhersveitirnar rofið víggirðingar kommúnista um borgina og ráðist inn í hana. Hafa þær verið að nálgast borgina síðustu daga eftir að hafa ruðst gegnum ramgert virkjakerfi. — Reuter. Sagði Thomas þing- maður í gær Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. ÞINGMAÐURINN Albert Thomas úr flokki demokrata sagði þingmönnum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í dag, að „Bandaríkjaflotinn ætti vopn nokkurt, sem væri enn ægi- legra en atómsprengjan, og væri vopnið svo fullkomnað að það væri hættulegra en atómsprengjan þegar í dag“, þyrfti fekki fullkomnunar við heldur væri hægt að taka til þess hvenær sem væri. Frumvarp um aS stöðva rnkkW Khöfn í gær. RÍKISSTJÓRNIN ákvað í dag að leggja fram frumvarp til laga um það að stöðva verkfall ófaglærðra manna, en það hefir nú staðið í mán- uð og lamað ýmsar atvinnu- gréinar. Er í frumvarpinu gert ráð fyrir því að lögfest verði miðlunartillaga sátta- semjara, en hana samþyktu verkamenn, en atvinnurek- (;ndur höfnuðu henni. — Páll. Albanar skjófa á bresk beltiskip BRETAR hafa mótmælt því harðlega við Albaníustjórn, að skotið hefir verið á tvö bresk beitiskip úr albönskum strandvirkjafallbyssum á dög unum. Skotið var alls 10 sprengikúlum, en skipin urðu ekki fyrir neinni þeirra. — Talið er að Albanar hafi þeg- ar afsakað sig við Breta, vegna þessa atburðar, en ekki hefir svar þeirra verið birt opin- berlega. •— Reuter. Thorez liðhlaupi. Eitt blað jafnaðarmanna ásak ar Maurice Thorez. aðalleiðtoga kommúnista fyrir að vera lið- hlaupa. Hafi hann hlaupist úr landi og til Rússlands, rjett eftir að síðasta styrjöld byrjaði, og þannig svikið ættjörð sína á giund hættunnar. Fregnritarar halda, að þessi sókn jafnaðar- manna á hendur kommúnistum sje fyrirboði fyrir kosningaó- sigri kommúnista, en sem kunn ugt er, var það mikill hnekkir fyrir þá að stjórnarskrárfrum- varp það, sem kosið var um á dögunum, var fellt. Voru vinir nasista. Eitt af ákæruatriðum jafn- aðarmanna á hendur kommún- istum er það, að þeir hafi verið Btdaulf greiðir atkvæði Hjer sjest Bidault, utanríkis- ráðherra Frakka vera að greiða atkvæði uni stjórnarskrárfrum- varpið franska á dögunum. Eins og kunnugt er af frjett- um, varð atkvæðagreiðsla þessi mikill ósigur fyrir vinstri flokk ana;, en sigur fyrir horgara- flokkana. vin'ir Hitlers og nasista með- an sáttmálinn milli Þjóðverja og Sovjetríkjanna var í gildi. Einnig eru Rússar harðlega gagnrýndir fyrir framkomu sína við þjóðir í Austur-Evrópu. Skipasmíðastöð sprengd í lofi upp Breskir hermenn sprengdu í dag í loft upp hdnar miklu skipasmíðastöðvar Blohm und Voss í Hamborg, en þetta var einhver mesta skipasmíða- stöð heims, og voru þar meðal annars smíðaðir margir kaf- bátar Þjóðverja og ennfrem- ur stórorustuskipið Bismarck. Umberto og forseti ísiands skiftasi á kveðjum FORSETI ÍSLANÐS hefir móttekið svohljóðandi sím-. skeyti frá Umberto Íalíukon- ungi: „Þar sem jeg hefi verið kallaður til að taka við af föð- ur mínum, er mjer ljúft að færa herra forsetanum kveðju mína og láta í ljós óskir um gott samband milli lands míns og íslands". Forsetinn hefir svarað Ital- íukonungi með svohljóðandi símskeyti: „Jeg þakka yðar hátign fyr ir vingjarnlega kveðju yðar í tilefni af valdatöku yðar- ar. Jafnframt því að óska yð- ur til heilla og ítölsku þjóð- dnni hamingju tek jeg undir ósk yðar um vinsamlegt sam- band milli þjóða okkar“. (Frjett frá utanríkis- ráðuneytinu). SÍLDVEIÐI í ÁLFTAFIRÐI í GÆR veiddu síldveiðimenn irnir Ólafur Guðjónsson og Brynjólfur Jónsson Um 100 tunnúr smásíldar í Arnarfjarð- arbotni. Meðlimur rannsóknar- nefndar. Þingmaðurinn, sem þetta sagði var í rannsóknarnefnd frá stjórninni, sem átti að taka við upplýsingum frá foringj- um Bandaríkjaflotans. Upp- lýsingar þessar voru um ’ jýmsar nýjar uppfdnningar, sem gerðar höfðu verið og fullkomnaðar í rannsóknar- stöðvum flotans. Sagði ekkert frekar. Thomas viðhafði áðurnefnd ummæli í þingræðu, er verið var að ræða um fjárveitingar til flotans, og eftir fundinn var hann beðinn af blaða- mönnum um að útskýra frek- ar það, sem hann hefði verið að tala um. Hann neitaði því algerlega og kvaðst engu geta bætt við ummæli sín á þing- lundinum. Úrslitaleikurinn í II. fl. er á sunnudag Á VORMÓTI Il.-flokks fóru leikar í gærkveldi sem hjer segir: Fram vann Víking með 2:0 og Valur vann KR með 2:0. Úrslitaleikirnir fara fram á sunnudaginn kl. 7 30. Þá keppa Valur og Víkingur, dómari Magnús Maríusson og Fram og_ KR, dómari Haukur Óskars- son. Bylting byrjuð í Azerbeijan Gerð a! andsiæðingum Rússa Teheran í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BYLTING hefdr verið byrjuð í sumum hlutum Azerbeij- an, hinu umdeilda fylki í norðvestur Persíu. Standa að bylt- ingatilraun þessari menn, sem andvígir eru stjórn þeirri, sem Rússar hafa komið þar á laggirnar, og er byltingin gerð gegn henni og flokki hennar, að því er fregnir herma, sem hingað bárust í kvöld. Víða hefir komið til átaka. — Fregnir eru enn óljósar. — Franskir jafnaðarmenn ráðast barðlega á kommúnista London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. KOSNINGABARÁTTAN er nú sem hörðust í Frakklandi og hafa hinar snörpu og djarflegu árásir jafnaðarmanna á kommún- ist þar, vakið mikla athygli. Jafnaðarmenn ásaka kommúnista fyrir ýmislegt, til dæmis það að þeir sjeu ólýðræðislegur flokk- ur bæði í Sovjetríkjunum og utan þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.